blaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 8
8
FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2007
blaóiö
STUTT t
• Mannfall Ellefu Palestínu- ■ 71
menn létust í skotbardögum
herskárra Hamas-liða og her-
sveita ísraelshers við landamæri
Gasa-strandarinnar í gær.
• Fóstureyðingar Kristilegir
demókratar í Danmörku hafa
ákveðið að leggja niður bar-
áttu sína gegn fóstureyðingum.
Systurflokkur þeirra í Svíþjóð
ákvað að gera slíkt hið sama
fyrir nokkru.
rjón vegna úrhellis
á Norðurlöndum
• Mannrán Móðir bresku
stúlkunnar Margaret Hill, sem
var rænt í Nígeríu í gær, segir að
mannræningjarnir hafi hótað að
drepa stúlkuna ef faðir hennar
samþykkir ekki að koma í
hennar stað.
• Rauða moskan Tveir
íslamskir stúdentar létust í
bardögum íslamista og pakist-
önsku lögreglunnar við Rauðu
moskuna í höfuðborginni Is-
lamabad. 21 hefur nú látið lífið
frá upphafi átaka við moskuna
fyrr í vikunni.
• Madeleine Lögregla í Hol-
landi hefur handtekið 39 ára
karlmann fyrir að hafa reynt að
svíkja fé út úr foreldrum bresku
stúlkunnar Madeleine McCann.
Svikahrappurinn krafðist 160
milljóna króna fyrir upplýsingar
um hvar Madeleine væri að
finna.
• Tryggingar Áætlað er að
flóðin í Bretlandi í síðustu
viku muni kosta bresku trygg-
ingafélögin andvirði tæplega
tvö hundruð milljarða króna.
• Forsætisráðherra Skoðana-
kannanir sýna að Ehud Barak,
formaður ísraelska Verkamanna-
flokksins, sækir nú hart að
Benjamin Netanyahu, formanni
Likud-flokksins, sem sá stjórn-
málamaður sem ísraelar vilja
helst sjá sem næsta forsætisráð-
herra. Báðir eru þeir vinsælli
en Ehud Olmert, núverandi
forsætisráðherra.
• Undur veraldar Hin nýju sjö
undur veraldar verða kynnt
í Lissabon, höfuðborg Portú-
gals, í kvöld. Rúmlega níutíu
milljónir manna hafa kosið
um málið á Netinu.
■ Kona drukknaði í bíl sínum í Svíþjóð ■ Varað við að fólk geti drukknað í Hróarskeldu
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
Gríðarleg úrkoma hefur verið
á Norðurlöndum síðustu daga og
valdið miklu tjóni víðs vegar í Sví-
þjóð, Noregi og Danmörku. Fyrsta
dauðsfallið vegna úrhellisins átti sér
stað í Svíþjóð í gær. I Noregi hefur
rigningin og mildir vaxtavextir í ám
valdið miklum óþægindum og tjóni
og í Danmörku hefur Rauði krossinn
varað hátíðargesti á Hróarskelduhá-
tíðinni við hættu á drukknun, en
hátíðarsvæðið er eitt drullusvað og
hafa margir yfirgefið hátíðina.
Roskin kona fannst látin í bíl
sínum sem var á kafi í vatni í vegar-
kanti skammt frá Helsingborg í Sví-
þjóð í gær. Ljóst þykir að hún hafi
drukknað eftir að hafa keyrt bílinn
inn í vatnselg, en einungis þrjátíu
sentimetrar af bílnum sáust standa
upp úr vatninu. Kalla þurfti út kaf-
ara til að ná líki konunnar út.
Vegum lokað
Vegagerðin í Svíþjóð beindi þeim
orðum til vegfarenda að forðast að
keyra í átt að Malmö, en bæði vega-
og lestarsamgöngur röskuðust veru-
lega vegna úrkomunnar, sér í lagi í
vesturhluta Skánar. Yfirvöld lokuðu
rúmlega tuttugu vegum og vöruðu
almenning við að fleiri tugir vega
ÚRHELLISRIGNINGAR
► Júnímánuður er sá blautasti
í Noregi frá árinu 1883.
► Langir biðlistar eru eftir því
að láta slökkvilið dæla upp
úr kjöllurum.
► Vegfarendur eru beðnir um
að forðast Malmö.
væru sums staðar á kafi, þar á meðal
hraðbrautirnar E6 og E22. Slökkvi-
lið hafði einnig í nógu að snúast við
að dæla vatni upp úr kjöllurum og
langir biðlistar mynduðust.
í suðurhluta Noregs glitti loks í
sólina í gær eftir margra daga rign-
ingu. Flóðið í Numedalsánni er í
rénun eftir að rennslið í ánni hafði
verið rúmlega tífalt á við venjulega.
Bændur hafa orðið fyrir miklu
tjóni þar sem fjölmargir akrar hafa
skemmst í úrhellinu og voru tjald-
svæði á árbökkum einnig mörg hver
á floti. Að sögn hefur ekki rignt
meira í fjalllendi Noregs í hálfa öld
og var nýliðinn júnímánuður sá
blaustasti frá árinu 1883.
Varað við drukknun
Rauði krossinn f Danmörku sendi
frá sér yfirlýsingu í gær þar sem
varað var við að mjög ölvað fólk ætti
á hættu að drukkna á Hróarskelduhá-
NordicPhoto/AFP
tíðinni, sem hefur verið ein sú blaut-
Rigning í Smálöndum Úrhelliö
hefur valdiö mikilli röskun á bæði
vega- og lestarsamgöngum í
suðurhluta Sviþjóðar.
asta frá upphafi. Sólin skein brot úr
degi í gær, en búist er við frekari rign-
ingu um helgina þó að hún verði ekki
jafnmikil og síðustu daga.
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Ný rannsókn á Grænlandsjökli
Grænland var grænt
Vísindamenn hafa sýnt fram
á að ótal skordýr hafi skriðið
og flogið um skógi þakið svæði
þar sem Grænland er nú fyrir
þúsundum ára. I nýjasta hefti
vísindatímaritsins Science segir að
ný DNA-sýni úr tvö þúsund metra
þykkum jöklinum á Grænlandi
sýni að flugur og fiðrildi hafi
þrifist í þykkum furuskógi þar, á
tímabilinu fyrir 450 þúsund og 800
þúsund árum.
Rannsókn vísindamannanna
bendir einnig til þess að jökullinn
þoli hlýnun jarðar betur en fyrri
rannsóknir hafa sýnt. „Við höfum
sýnt fram á að suðurhluti Grænlands,
sem nú er þakinn tveggja kílómetra
þykkum ís, var einu sinni mjög
óíikur því sem við þekkjum í dag.
Þessi heimshluti var eitt sinn mun
hlýrri en flestir hafa haldið til þessa,“
segir Eske Willersley, prófessor við
Kaupmannahafnarháskóla og einn
þeirra sem vann að rannsókninni.
Vísindamennirnir áætla að
hitastigið á tímabilinu sem um
ræðir hafi náð um tíu stigum á
sumrin og sautján stiga frosti
yfir vetrarmánuðina. Fyrir um
450 þúsund árum lækkaði svo
hitastig með þeim afleiðingum að
skógar Grænlands lögðust undir
ís. Rannsóknirnar sýna einnig að
ísbreiðan hafi varðveist á síðasta
hlýskeiði milli ísalda, fyrir 116 til
130 þúsund árum síðan, en þá var
meðalhiti um fimm stigum hærri
en nú.
atlii@bladid.net
SKRIÐ
GARÐHEIMAR
allt í garðinn á einum stað!
R 061R
Stekkjarbakka 6 - Sími 540 3300
www.gardheimar.is
ssa?í
—