blaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 26

blaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2007 blaðið MENNING menning@bladid.net í stað þess a velta mér upp úr mér sem konu eða stöðu kvenna finnst mér meira spennandi að fjalla um þessa karla sem eru svo fyrirferðamiklir. Geta ekki dáið Hópur frá leikfélaginu Hugleiki og Leikfélagi Kópavogs heldur á leiklistarhátíð alþjóðlega áhugaleikhússambandsins IATA í Mason-borg í Suður-Kóreu í lok júlímánaðar. Þar verður sýnt leik- ritið Memento mori eftir Hrefnu Friðriksdóttur í leikstjórn Ág- ústu Skúladóttur. í Memento mori er skyggnst inn í heim fólks sem nýtur þeirrar blessunar - eða er það bölvun? - að geta ekki dáið. Þessar ódauð- legu verur velta fyrir sér lífinu, dauðanum og ódauðleikanum, og brugðið er upp svipmyndum af fortíð þeirra. Þegar á líður koma tengsl þeirra betur í ljós og þar kemur að þær hljóta að taka af- stöðu til fortíðarinnar og ódauð- leikans. valin á hátíð alþjóðasam- bandsins í Suður-Kóreu. Frítt inn á söfn íslenski safnadagurinn verður á morgun, 8. júlí, og af því til- efni er ókeypis inn á sýningar í Listasafni Reykjavíkur. Á Kjar- valsstöðum verður leiðsögn á sýningunni K-þátturinn, málar- inn Jóhannes S. Kjarval, klukkan 15. Á sýningunni Magma/Kvika, sem einnig er á Kjarvalsstöðum, verður opin listsmiðja þar sem gestum er boðið að virkja eigin sköpunarkraft. í Hafnarhúsinu eru til sýnis mörg af lykilverkum Erró ásamt því sem sýningar Roni Horn og Daníels Björns- sonar eru enn í gangi. í Ásmundarsafni, sem er opið 10- 16, er sýningin Lögun línunnar, þar sem lögð er áhersla á abstrakt- verk Ásmundar, ásamt sýning- unni Þjóðsögur-Munnmælasögur, með verkum íslenskra teiknara sem myndskreyttu þjóðsögur úr munnlegri geymd. Halldór Bjöm með leiðsögn Halldór Björn Runólfsson safnstjóri verður með leiðsögn á sýningunni Cobra Reykjavík á morgun, sunnudaginn 8. júlí, en sýningunni lýkur á morgun. Héðan fer sýningin til Kunst Centret í Silkeborg í Danmörku. Cobra Reykjavík er framlag Listasafns íslands til Listahátíðar árið 2007. Verkin koma bæði úr opinberum söfnum og einkaeign og hafa sum hver aldrei áður verið lánuð. Þar á meðal eru nokkur ómetanleg lykilverk sem teljast til þjóðargersema og sýna svo ekki verður um villst hve snemma á ferðinni danskættaðir Cobra- menn voru í notkun óheftra og sjálfsprottinna vinnubragða. Stæltir menn takast á í Edinborgarhúsinu Karlmannslíkamar með- höndlaðir á óvenjulegan hátt Dagný Guðmundsdóttir opnar myndlistarsýning- una Maður með mönnum í Edinborgarhúsinu á ísafirði í dag klukkan 16. Þar sýnir hún Ijósmyndir af stæltum karlmönnum að takast á, en undanfar- in ár hefur Dagný unnið með karlmannslíkamann á kvenlegum forsendum. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net „Þetta er í anda þess sem ég hef unnið með undanfarið,“ segir Dagný. „Myndirnar eru af tveimur karlmönnum að glíma og ég klippi myndirnar þannig að þetta verða bara líkamspartar í átökum. Sýn- ingin heitir Maður með mönnum og ég er dálítið að spyrja, hvað er að vera maður með mönnum? Karlmenn taka vissulega pláss í samfélaginu og það er fyrirferð í þeim, en dæmigerður maður með mönnum hefur áhrif og tekur pláss í tilverunni enda hálfgert karlaæði í samfélaginu.“ Fyrir utan að hengja ljósmynd- irnar upp á veggi tekur Dagný þær og þrykkir þeim á silkipúða. „Þetta eru kvenlegir silkipúðar með áþrykktum karlmönnum í átökum, þannig að ég er að reyna að taka þessa stæltu karla og meðhöndla þá á kvenlegan, mjúklegan hátt,“ út- skýrir hún. Fyrir tveimur árum var Dagný með sýningu í lest í loðnuskipi sem er að vísu búið að breyta í hvalaskoð- unaraðstöðu. „Þar var ég með vídeó- brot af stæltum og flottum karl- mannsbringum og setti fallegan textíl á bak við, til dæmis sumar- klúta eða slíkt. Ég lét sem sagt þessa karla vera í karllægu umhverfi en með þennan skrautlega og fíngerða bakgrunn. Svo hef ég gert bolla með myndum af stæltum magavöðvum, en svoleiðis bolla er hægt að kaupa í Listasafni Islands," segir hún. Ekki ráðist gegn karlmönnum Þó svo að Dagný vinni með karl- mannslíkamann í óvenjulegu ljósi segir hún markmiðið með listinni alls ekki vera að ráðast gegn þeim. „Það er frekar að ég vilji gera til- raun til að setja þá í nýtt samhengi og kannski höndla þá á einhvern hátt. Ég er að vinna með þennan karllæga heim þar sem karlmenn leggja línurnar, í pólitík og á fleiri sviðum. En í stað þess að velta mér upp úr mér sem konu eða stöðu kvenna almennt finnst mér meira spennandi að fjalla um þessa karla sem eru svo fyrirferðarmiklir og nota þá til að að skrey ta umhverfið með þeim. Þessir sterku og stæltu karlmenn eru ekki endilega óhugn- anlegir heldur getum við alveg eins horft á þá sem fagurfræði." Dagný segist afar stolt af því að vera með sýningu í Edinborgarhúsinu. Dagný Guðmundsdóttir „Þesslr sterku og stæltu karlmenn eru ekki endilega óhugnanlegir heldur getum við alveg eins horft á þá sem fagurfræði.“ „Ég bý ekki á ísafirði, en Edinborgar- húsið sem var opnað þann 1. júní er rosalega flott og skemmtilegt menn- ingarhús að mínu mati. Svo verð ég LISTAKONAN ► Dagný býr í Reykjavík og starfar í Árbæjarsafninu ásamt því að vinna að list sinni. ► Dagný útskrifaðist árið 1997 úr myndhöggvaradeild Mynd- lista- og handíðaskólans og hefur einnig textílmenntun. Sýningin Maður með mönn- ^ um stendur til 12. ágúst. reyndar með aðra sýningu 2. ágúst í Start Art á Laugavegi þar sem ég vinn með sama viðfangsefni en sýni öðru- vísi listaverk,“ segir hún að lokum. Út vill Jóhannes Jóhannes Kjartansson opnar sína fyrstu ljósmyndasýningu í Nakta ap- anum í dag klukkan 15. Sýningin ber heitið ÚT/VIL/EK og eru þar sýndar myndir frá nokkrum helstu viðkomu- stöðum hans síðustu ár sem eru þorp á borð við Berlín, Hofsós, London, Vestmannaeyjar, Akranes, Barcelona, Isafjörð, Zúrich ásamt heimabænum Reykjavík. Þegar Snorri Sturluson hugðist ferðast aftur heim til íslands á stríðs- tímum í Noregi í ágúst 1238 bannaði Hákon Noregskonungur honum það. Snorri lét sér þó ekki segjast og mælti þá þessi fleygu orð „Út vil ek“ og hélt heim á leið. Síðan þá hafa Islendingar litið breyst eins og sést á sífelldum sólar- landaferðum og fyrirtækjakaupum þeirra erlendis. Jóhannes, eða Jói eins og hann er oft kallaður, er þar engin undantekning. En í stað þess að höggva mann og annan eða kaupa hitt og þetta ljósmyndar hann eitt og annað sem vekur forvitni hans á ferðalögum. JóhannesútskrifaðistmeðBA-gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Islands vorið 2006 og er sjálflærður ljósmyndari. Hann hefur starfað við ýmiss konar blaðaútgáfu í gegnum árin, meðal annars hjá götublaðinu The Reykjavík Grapevine. Nú starfar hann við auglýsingagerð hjá auglýs- ingastofunni Jónsson &Le’macks.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.