blaðið - 07.07.2007, Blaðsíða 39
blaöió
LAUGARDAGUR 7. JÚLÍ 2007
39
Fleiri hljómsveitir bætast við á Icelandic Airwaves
Erfitt að segja nei
Eldar Ástþórsson er einn skipu-
leggjendalcelandicAirwaves-tónlist-
arhátíðarinnar sem haldin verður
hér á landi í niunda sinn þann 17.-21.
október næstkomandi. Fjöldi sveita
hefur boðað komu sína á hátíðina
og segir Eldar það ekki lengur erfitt
að fá þekkt bönd á Klakann.
„Þetta hefur breyst rosalega á síð-
ustu árum. Við þurftum að ganga
mikið á eftir sumum böndum í
byrjun og lögðum mikla vinnu á
okkur til að fá þessar þekktari hljóm-
sveitir hingað til íslands. Nú hefur
þetta snúist við og við eigum í stök-
ustu vandræðum með að segja nei
við sumar hljómsveitir. En það er
vissulega skemmtilegra hlutskipti
en hinn kosturinn," segir Eldar sem
nýlega gekk frá bókunum við þrjár
hljómsveitir.
„Það eru um 60-70 hljómsveitir
bókaðar eins og málin standa í dag.
Við vorum að ganga frá komu kanad-
ísku hljómsveitarinnar Chromeo og
einnig Annuals frá Bandaríkjunum.
Þá verður brasilíska hljómsveitin
Bonde de Role einnig á hátíðinni.“
Eldar segir að um 170 tónlistar-
atriði komi fram í ár og að hlutfall
íslenskra listamanna verði um 75%.
Atriðin skiptast niður á átta aðalsvið
en minni spámenn munu dreifast á
ýmis kaffihús, bari og plötubúðir.
„I ár verður mikið af nýjum lista-
mönnum og hljómsveitum sem eru
að koma fram i fyrsta sinn og því
spennandi að sjá hvað er að gerast
í bransanum. Búist er við komu
meira en 3000 gesta erlendis frá og
er hróður hátíðarinnar sífellt að efl-
ast í umfangi og stöðu á alþjóðavett-
vangi. Það hefur verið uppselt á há-
tíðina síðstliðin þrjú ár og við náum
bara ekki að selja fleiri miða,“ segir
Eldar sem segist ekki mega missa af
ákveðnum atriðum.
„Því miður getur maður bara
verið á einum stað í einu, en ég
ætla mér alls ekki að missa af Bloc
Party, Motion Boys, Chromeo,
Múm, GusGus, Sprengjuhöllinni og
fleirum. Þetta gæti verið lengri listi,
en ég minni á að við eigum eftir að
tilkynna um fjölda annarra hljóm-
sveita sem koma fram á hátíðinni,
bæði innlendar og erlendar sveitir."
BLOGGARINN.
Enginn
aðdáandi
„Ég vil taka það fram að ég er ekki reglu-
legur tesandi að blásögunum hennar
Ellýjar. Það kemur til afþvíað mér finnast
þær leiðinlegar. Nema þessar tvær til
þrjár fyrstu. Fyrirsögnin á þeirri nýjustu
fékk mig þó til að glenna upp augun. Eitt-
hvað um afa barna vinkonunnar. Ég fór
og las. Mikið rétt Ellý er að færa sig upp
á skaftið. Vinkonan komin í kynferðislegt
samband með fyrrverandi tengdó. Nú eru
góð ráð dýr. Hvað verðurþað næst. Ég
held að ég segi það ekki upphátt. Súmí. “
Jenný Anna Baldursdóttir
jenfo.blog.is
Þversögn
Jóhönnu
„Jóhanna Sigurðardóttir, nýskipaður félags-
málaráðherra, er að sumra mati einkar
heilsteyptur stjómmálamaður og sjálfrí sér
samkvæm. Það er reyndar spuming hvort
ástæðan sé ekki fyrst og fremst sá félags-
skapur sem hún er íog samanburðurínn
við ýmsa aðra þar innanborðs. En það
er önnur saga. Hitt er svo annað mál að
einmitt afþessum sökum hefur ákvörðun
hennar, um að lækka hámarkslán Ibúða-
lánasjóös úr 90% í 80% íþví skyni að slá
á verðbólgu, þótt afar einkennileg íljósi
þess að þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks gerði nákvæmlega
þetta sama fyrirnjmu ári siðan gagnrýndi
Jóhanna það harðlega. “
Hjörtur J. Guðmundsson
sveiflan.blog.is
Keflvíkingum
að kenna
„Keflvíkingar eiga bara að biðjast afsök-
unar - segja sem er að þeir hlupu á sig,
misstu sig i hita leiksins. Það er ekki gott
fyrir unga knattspyrnuaðdáendur að fylgj-
ast með þessu orðaskaki öllu lengur. Leik-
urinn fór úr böndum - menn misstu sig.
Bjarni, Guðjón og rekstrarfélag lA hafa
beöist afsökunar á þessu marki - gott hjá
þeim. Nú verða Keflvíkingar að sýna að
þeir hafi manndóm til að sættast - a.m.k.
að þeir hafi hlaupið á sig gagnvart Bjarna.
Mistök eru bara mistök, og þau mega
ekki verða aðalmálið. Það skiptir meiru
hvernig menn taka á mistökum sinum og
vinna úrþeim.“
Ólfna Þorvarðardóttir
olinathorv.blog.is
betri
Ein sú flottasta
í heimi
Kaffidrykkir
TE & KAFFI
Velkomin í „nýja“ Te & Ka
sérverslun Laugavegi 27
Nt'islunin liefur verið uppfu-rð tír ganila krmuluiðarsiíliuini inn í nýja tíma,
en það er í lakt við aðrar lirev lingar seni nrðið liafa á fyrirla-kinu á tinilan-
liirniiin átrum. kaffiliar er frenist í versluniniii, þar seni liigð er áliersln á kaffi
,,tn go‘‘. I’ar er að finna siigulega kaflivél frá Nielnria Vnluinn. kaflivélin var
smíðuð í tilefni af 100 ára alma-li \ielnri Vnluinn. sem smíðaði ug kynnti Ivrslu
espressnvélina sem seld var árið IVd.j ng markaði uppliaf espressn siigunnar.
C \ kulfi St;rvcrslun • Lau
iíÍÍIIIÉ
i
1 'j|| llll
■IJpÍjlM!
verslun