blaðið - 21.07.2007, Side 4

blaðið - 21.07.2007, Side 4
FRÉTTIR LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ2007 blaðið Opið bréf um áfengi Lægra verð, meiri drykkja Hörður Svavarsson, áfengis- og vímuefnaráðgjafi, ritar Agústi Ólafi Ágústssyni opið bréf þar sem hann svarar yfirlýsingu Ágústs í Blaðinu á dögunum um að hann vilji að stjórnvöld taki upp nýja stefnu í áfengis- málum. 1 niðurlagi bréfsins, sem birtist í heild sinni á heima- síðu SÁÁ, segir: „Þér og öðrum stjórnmálamönnum sem vilja hafa svipaðar skoðanir á áfeng- ismálum þarf að vera ljóst að aukið aðgengi táknar aukna neyslu áfengis. Það táknar aukna ofdrykkju með auknum sársauka fyrir börn, maka og aðra fjölskyldumeðlimi of- drykkjumanna.“ hos STUTT • Lúkasarmálið Árdís Ösp Pétursdóttir, ein þeirra sem viðhafði neikvæð ummæli um mann sem hún taldi vera morðingja hundsins Lúkasar frá Akureyri, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hún segist harma ummælin. Segist hún hafa beðið manninn afsökunar og hann hafi tekið því vel. • Lygalaupur Aðfaranótt föstudagsins stöðvaði Iög- reglan á höfuðborgarsvæðinu ökumann sem aldrei hafði öðlast ökuréttindi. Maðurinn reyndi að snúa sig út úr vand- ræðunum með því að segjast hafa gleymt ökuskírteininu heima hjá sér. Lögreglan sá þó í gegnum þá lygi. • Tekjuaukning Tekjur Nýherja á öðrum ársfjórðungi þessa ár voru 24 prósentum meiri en á sama tíma í fyrra en alls voru þær 2,6 milljarðar. Hagnaður fyrirtækisins jókst einnig á milli ára og var 104 milljónir króna. Sérsveitin nauðsyn- legri með hverju ári ■ Glæpamenn harðvítugri og betur vopnaðir ■ Sérsveitarmenn æfa skotfimi stíft Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Fjöldi sérverkefna sérsveitar Ríkislögreglustjóra hefur allt að þrefaldast undanfarin ár, og á síðasta ári voru þau 156 talsins. I ársskýrslum ríkislögreglustjóra kemur fram. að árin 1999 og 2000 hafi sérverkefni sérsveitarinnar verið 54 og 58, og að það hafi verið heldur fleiri verkefni en árin áður, enda hafi mikill fjöldi þjóðarleið- toga heimsótt landið þau ár. Örygg- isverkefni sérsveitarinnar vegna slíkra heimsókna eru yfirleitt um 20 til 30 á ári. Frá árinu 2002 hafa sérverkefni sérsveitarinnar verið um og yfir 100, og á síðasta ári voru þau 156. „Ég hef ekki neinar skýringar á þessari aukningu frá árinu 2002, nema þá að skýringin er sú að tilvikum þar sem þarf að notast við þjálfun og þekkingu sérsveit- arinnar hafi fjölgað,“ segir Krist- ján Kristjánsson, aðalvarðstjóri í sérsveit ríkislögreglustjóra. „Það urðu engar vinnulagsbreytingar hjá sérsveitinni fyrir 2002. Hins vegar var ákveðið árið 2004 að efla sérsveitina og færa hana frá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu til embættis ríkislögreglustjóra." Sérsveitin sífellt nauðsynlegri „Við erum með fjóra sérsveitar- menn sem vinna tveir og tveir á vöktum,“ segir Ólafur Ásgeirs- son, aðstoðaryfirlögluþjónn lög- reglunnar á Akureyri, sem tekur undir orð Geirs Jóns Þórissonar, yfirlögregluþjóns lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, um að glæpamenn verði stöðugt harðvít- ugri og betur vopnaðir. „Ég held að sérsveitin verði nauðsynlegri með hverju ári sem líður í okkar samfé- lagi. Það færist sífellt meiri harka í samfélagið og tilkynningum um Sérsveitin við æfingar Á síðasta | ári voru sérverkefni sérsveitarinnar 156, sem er þreföldun frá því sem s var fram til ársins 2002. ► Arið 2004 var ákveðið að fjölga sérsveitarmönnum úr 12 í 36. ► Fram að því höfðu aðeins verið sérsveitarmenn í Reykjavík, en nú eru þeir einnig staðsettir á Akureyri og í Keflavík. ► Sérsveitarmenn sinna ýms- um almennum lögreglustörf- um, svo sem hraðamæling- um á vegum, þegar þeir eru ekki að sinna sérverkefnum. vopnaburð fjölgar stöðugt. Það er nauðsynlegt að þeir sem eru þjálf- aðir til þess sérstaklega fáist við slík amál.“ Aðstoðaryfirlögregluþjónninn hefur trú á sérsveitarmönnum sínum. „Þetta eru menn í 100 pró- sent þjálfun; þeir fara oft í viku á líkamsræktarstöðvar og eru stöð- ugt að æfa skotfimi. Enda þurfa þeir að vera tilbúnir þegar kallið kemur.“ Fjórir með allt Norðurland Ólafur segir sérsveitarmennina á Akureyri vera ábyrga fyrir öllu Norðurlandi, og viðurkennir að hann vilji gjarnan sjá fjölgun í liði þeirra. „Þeir hafa sem dæmi þurft að sinna útköllum frá Egils- stöðum og ofan af Kárahnjúkum. En spurningin um fjölgun sérsveit- armanna er náttúrulega pólitísks eðlis. Ég hef verið það lengi í lög- reglunni að ég þakka bara fyrir að hafa þó fjóra sérsveitarmenn hér á Akureyri.“ VILTU VITA MEIRA? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net SÉRSVEITARMENN www.or.is Fræðsla og nánari upplýsingar á www.or.is íslensk vísindi Reykjavíkur - vistvæn orka Komdu heimsókn Umhverfi Nesjavallavirkjunar og Hengilssvæðið er með vinsælustu útivistarsvæðum á landinu, tilvalin til náttúruskoðunar og gönguferða. Það er einnig skemmti- leg upplifun að fræðast um hið tæknilega stórvirki, Nesjavaliavirkjun. Um svæðið liggja merktar gönguleiðir og fræðslustígar í boði eru skoðunar- ferðir um virkjunina fyrir einstaklinga og hópa. Gestamóttaka er opin í sumar, mánudaga til laugardaga kl. 9:00 - 17:00 og sunnudag kl. 13:00- 18:00. Atlantsolía vill lita bensín eins og dísilolíu Fleiri segjast vilja litað bensín Ríflega 41 einn af hverjum hundrað landsmönnum telur það frekar eða mjög mikilvægt að selt verði litað bensín á atvinnutæki sem ekki eru notuð á vegum Iands- ins 38 af hundraði tölu það litlu máli skipta. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir Atlantsolíu. Forsaga málsins er sú að Atl- antsolía sendi fjármálaráðuneyt- inu bréf síðastliðið haust þar sem skorað var á ráðherra að hann beitti sér fyrir því að sama fyrirkomulag yrði haft við sölu á bensíni og dísil- olíu á tæki og búnað sem ekki eru notuð á vegum landsins. Eigendur þessara tækja greiða nú auk virðis- aukaskatts rúmar 30 krónur í bens- íngjald sem ætlað er til vegafram- kvæmda. Lítrinn af lituðu bensíni myndi því kosta 75 til 85 krónur. Ráðherra skipaði í maí síðast- liðnum starfshóp til þess að gera Telur þú mikilvægt eða lítilvægt að boðið verði upp á litað bensín hjá Atlantsolíu? Lítilvægt 38,4% tillögur að heildarstefnu að því er varðar skattlagningu ökutækja og eldsneytis og vísaði hann ábend- ingu Átlanstolíu inn í þann hóp. ejg STUTT • Ógöngur Tveir menn lentu í ógöngum er þeir reyndu að aka yfir Krossá í gær. Bílstjóri sem var staddur í Húsadal í Þórsmörk kom mönnunum tveim til hjálpar áður en illa fór. Lögreglan brýnir fyrir fólki að fara varlega þegar ekið er yfir á.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.