blaðið

Ulloq

blaðið - 21.07.2007, Qupperneq 13

blaðið - 21.07.2007, Qupperneq 13
blaóió LAUGARDAGUR 21. JÚLÍ 2007 FRETTIR 13 FÉOGFRAMI vidskipti@bladid.net v&m Ég hugsa að ég fari í rekstrar- verkfræði, enda á rekstur mjög vel við mig og ég hef lært alveg helling á þessu brölti. h Hafa ekki tima til heimilisstarfa Norðmenn hafa ekki tíma til að sinna venjulegum heimilisstörfum og kaupa sér aðstoð við að hengja upp myndir á veggina, strauja og setja blóm í blómakerin. „Við gerum allt mögulegt. Einn hringdi meira að segja og spurði hvort ég gæti ekki náð í bílinn hans og látið skipta um dekk á honum,“ segir fulltrúi þjónustufyrirtækisins Bolig & Næringss- ervice í viðtali við Dagens Næringsliv. Garðyrkjufræðingurinn Cathrine Gjævert kveðst fá margar hringingar frá ungum mönnum í Bærum sem vilja láta setja blóm í blómakerin. Þeim fjölgar einnig sem fara með hjólin sín á verkstæði til að setja bót á slöngu. Spenna á vinnumarkaði Mikil spenna ríkir á vinnumark- aði, þrátt fyrir að farið sé að hægjast um í hagkerfinu. Síðustu 12 mánuði hefur launavísitalan hækkað um 9,8 prósent, þar af um 0,6 prósent milli maí og júní. Kaupmáttur hefur einnig aukist umtalsvert, eða um 5,7 prósent á síðustu 12 mánuðum. Þetta er mesta kaupmáttaraukning síðan árið 1998. Greiningardeild Glitnis segir á vef sínum að í ljósi hás atvinnustigs, lítils atvinnu- leysis og fjölda erlends vinnuafls á landinu, þá komi hækkanir á fasteignamarkaði og aukin einka- neysla á 2. ársfjórðungi ekki á óvart. hagvöxtur í Kína Hagvöxtur í Kína á öðrum fjórð- ungi ársins var 11,9 prósent og hefur hann ekki mælst hærri í 11 ár. Nú stefnir í að hagvöxtur ársins nái tveggja stafa tölu fimmta árið í röð og nálgast kínverska hagkerfið að fara fram úr Þýskalandi sem það þriðja stærsta í heimi. Fastlega er búist við að kínversk stjórnvöld grípi til aðgerða til að koma í veg fyrir að efnahagurinn bræði úr sér. Verðbólga í landinu er komin upp í 4,4 prósent og er reiknað með stýrivaxtahækkunum innan skamms. 10% ungmenna atvinnulaus Atvinnuleysi á öðrum ársfjórð- ungi ársins mældist 3,2 prósent samkvæmt tölum frá Hagstofu íslands. Að meðaltali voru 5.800 manns án vinnu og í atvinnuleit á þessum ársfjórðungi. Hlutfallið var svipað árið 2005, en örlítið hærra árin 2003,2004 og 2006, eða um 4 prósent. Atvinnuleysi mældis langmest hjá aldurshópnum 16 til 24 ára, eða 10,2 prósent. Sigurlaug Hauks- dóttir, sérfræðingur hjá Hagstofu íslands, segir að mikill hluti þessa hóps sé skólafólk í sum- arfríi. „Skilgreining á atvinnu- lausum er sá sem er að leita sér að vinnu og getur hafið störf innan tveggja vikna. Á tímapunkti á öðrum ársfjórðungi á þessi skilgreining við mikinn fjölda námsmanna.“ hos Erfiö vika hjá Google Vikan er búin að vera erfið hjá netrisanum Google. Full- trúadeild bandaríska þingsins tilkynnti fyrr í vikunni að hún ætlaði að skipa nefnd til að fara yfir yfirtöku fyrirtækisins á Double Click, en viðskiptanefnd þingsins hefur efast um lögmæti hennar. Þá veitti þýska ríkis- stjórnin 166 milljarða dollara styrk til viðskiptasamstæðu, sem Bertelsmann og SAP eiga meðal annars hlut að, til að smíða nýja evrópska leitarvél til höfuðs Google. í gær tilkynnti Google 58 prósenta tekjuaukningu á 2. árs- fjórðungi. Það var 2 prósentum minna en markaðurinn bjóst við og lækkuðu hlutabréf fyrir- tækisins um rúmlega 7 prósent. Skýrendur vestanhafs segja að eftir samfellt vaxtarskeið, þá hafi vinsældir Google náð hámarki. Yfirtaka ekki Debenhams Baugur Group ætlar ekki að gera yfirtökutilboð í bresku verslunar- keðjuna Debenhams. Þetta segir í tilkynningu frá félaginu sem birt var í kjölfar frétta þess efnis í breskum fjölmiðlum. Baugur á nú fyrir 9 prósenta hlut í Deben- hams og segir í tilkynningunni að það hafi hvorki hug á að leggja fram yfirtökutilboð í allt hlutafé félagsins, né að auka við hlut sinn. Húsnæðishækk- anir kynda bálið Húsnæðisverð er leiðandi þáttur í verðbólgunni. Endurnýjuð uppsveifla er á húsnæðismarkaði, þinglýstum kaupsamningum fjölgar milli ára og hærra húsnæð- isverð leggur 0,3% til hækkunar vísitölu neysluverðs. Þetta segir greiningardeild Kaupþings í Hálf- fimmfréttum í gær. Greiningardeildin segir að verði íbúðalánasjóði umbreytt gæti það dregið úr framboði lánsfjár og greitt fyrir hraðara vaxtalækkunarferli. Elvar Hrannarsson Segir við- skiptavini sína ekki fetta fingur út í ungan aldur sinn; það eina sem skipti máli sé að verkið sé vel unnið. Blaðið/ÞÖK Utnb°' Tvítugur með tíu í vinnu Hinn tvítugi Elvar Hrann- arsson keypti hellulagn- ingafyrirtækið Stéttafé- lagið sl. haust Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynur@bladid.net Þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur að aldri á Elvar Hrannarsson sitt eigið fyrirtæki, hellulagningafyr- irtækið Stéttafélagið, og er með 10 menn í vinnu. „Ég keypti fyrirtækið af fyrri eiganda sl. haust, en áður hafði ég unnið hjá honum í fimm ár,“ segir Elvar. Aðspurður hvort honum hafi ekki fundist ógnvekjandi tilhugsun að fara þetta ungur út í eigin rekstur segir Elvar: „Nei, alls ekki. Þetta er bara áskorun. Ég hafði verið verkstjóri í nokkur ár þannig að ég hafði reynslu af að vera með menn undir mér, og svo er ég líka með mjög gott fólk í vinnu. Og fyr- MARKAÐURINN í GÆR irtækið gengur vel, enda tók ég við góðum rekstri." Gæði fram yfir aldur Elvar viðurkennir að stundum verði viðskiptavinir hans hissa þegar þeir sjá hvað eigandi fyrirtækisins er ungur að aldri. „Yfirleitt hugsa kúnn- arnir þó ekkert út í það. Ég geri bara samning sem maður við mann, og ef við stöndum okkur er kúnnanum sama um aldur minn.“ Elvar segist sjá um mest allt bókhald sjálfur, en er þó með bók- haldara í vinnu til að sjá um virðis- aukaskattskil og ársreikninga. „Við erum með mörg verk í gangi í einu - allt að 20 verk á einu sumri, þannig að það er gott að fá smá aðstoð." Stefnir á eigin rekstur Elvar kláraði Menntaskólann við Sund í vor og ætlar nú að taka sér árs frí frá námi. „Eftir það ætla ég í verkfræði. Ég hugsa að ég fari í rekstrarverkfræði, enda á rekstur mjög vel við mig og ég hef lært alveg helling á þessu brölti. Svo hef ég líka svo gaman af þessu.“ En mælir Elvar með því við krakka á hans aldri að fara út í eigin rekstur? „Já og nei. Það fer allt eftir persónuleika viðkomandi. Margir hafa auðvitað farið mjög illa út úr rekstri, enda er peninga- streymi mikið og lítið mál að fara á hausinn." Elvar viðurkennir fúslega að það sé ekki alltaf dans á rósum að vera með eigin rekstur. „Sembeturhefur ekkert stórvægilegt komið upp á, bara einstaka vandamál með að fá verkin greidd. Það er það sem ég hef helst áhyggjur af; að vera búinn að vinna mikið verk og fá það svo ekki greitt.“ ÞEKKIR ÞÚ FRUMKVÖÐUL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 20. júlí 2007 Viðskipti (krónum Heildar- ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboö í lok dags: Félög í úrvalsvísitölu verð breyting viðsk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala ♦ Actavis Group hf. 86,20 0,00% 20.7.2007 3 284.460 86,20 86,20 a Atorka Group hf. 9,90 1,75% 20.7.2007 18 104.040.294 9,89 9,90 ▼ Bakkavör Group hf. 71,80 -0,42% 20.7.2007 12 36.056.002 71,80 72,00 ▼ Existahf. 40,10 ■0,12% 20.7.2007 63 317.800.097 40,10 40,25 ▼ FLGrouphf. 30,00 ■0,33% 20.7.2007 31 280.528.616 29,95 30,15 A Glitnir banki hf. 30,90 0,65% 20.7.2007 57 1.504.387.802 30,75 30,90 * Hf. Eimskipafélag íslands 40,10 0,25% 20.7.2007 3 5.595.576 40,10 40,30 ▼ lcelandair Group hf. 30,50 -0,49% 20.7.2007 4 15.829.500 30,20 30,40 ♦ Kaupþing banki hf. 1280,00 0,00% 20.7.2007 83 940.033.878 1280,00 1283,00 ♦ Landsbanki íslands hf. 41,00 0,00% 20.7.2007 73 692.791.183 41,00 41,15 ♦ Mosaic Fashions hf. 17,00 0,00% 20.7.2007 2 289.000 17,00 17,00 ♦ Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 23,05 0,00% 20.7.2007 98 1.376.074.233 23,00 23,05 a Teymihf. 5,62 1,63% 20.7.2007 13 32.029.701 5,58 5,63 a Össurhf. 110,50 0,45% 20.7.2007 10 17.961.201 110,00 110,50 Önnur bróf á Aðaliista ▼ 365 hf. 3,34 -0,60% 20.7.2007 1 273.760 3,34 3,36 a Alfescahf. 5,75 0,52% 20.7.2007 2 5.875.000 5,75 5,79 ♦ Atlantic Petroleum P/F 1130,00 0,00% 20.7.2007 11 3.856.883 1117,00 1133,00 a EikBanki 721,00 0,56% 20.7.2007 17 12.320.580 717,00 723,00 ♦ Flaga Group hf. 1,87 0,00% 20.7.2007 1 285.175 1,87 1,89 ▼ ForoyaBank 243,00 ■0,41% 20.7.2007 23 8.514.978 239,00 246,00 T lcelandic Group hf. 6,29 -0,47% 20.7.2007 1 3.145.000 6,30 6,34 A Marelhf. 97,00 1,36% 20.7.2007 9 35.798.905 97,00 97,40 ♦ Nýherjihf. 19,50 0,00% 20.7.2007 1 97.500 19,50 23,00 ♦ Tryggingamiðstððin hf. 39,50 0,00% 20.7.2007 2 18.288.500 39,25 39,60 ♦ Vmnslustöðin hf. 8,50 0,00% 25.6.2007 - - First North ó Islandi T Century Aluminium Co. 3894,00 -2,11% 20.7.2007 8 97.429.640 3865,00 3894,00 ♦ HBGrandihf. 11,00 0,00% 18.7.2007 . . 10,50 12,00 ♦ Hampiðjanhf. 6,80 0,00% 20.6.2007 - - 6,80 • Mest viðskipti í kauphöll OMX voru með bréf Glitnis, fyrir um 1,5 milljarða króna. Næstmest við- skipti voru með bréf Straums-Burð- aráss, fyrir um 1,4 milljarða. • Mesta hækkunin var á bréfum Atlantic Petroleum, 1,80%. Bréf Atorku hækkuðu um 1,75%. • Mesta lækkunin í gær var á bréfum Century Aluminium, eða 2,11%. Bréf 365 lækkuðu um 0,60%. • Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,07% í gær. í lok dags stóð hún í 8.995 stigum. • Islenska krónan veiktist um 0,48% í gær. • Samnorræna OMX40-vísitalan lækkaði um 1,40%. Þýska DAX- vísitalan lækkaði einnig um 1,4% og FTSE í Bretandi um 0,8%.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.