blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 29

blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 29
blaöið LAUGARDAGUR 21. JULI 2007 29 að framtíðinni. Nú er ákveðið að ég fari þangað aftur og kenni við prestaskóla á kristniboðssvæði Is- lendinga í Kenýa. Það er verkefni sem ég mun vonandi geta sinnt í þrjá mánuði á ári og ég held að það muni láta mér vel.“ En heldurðu að það verði ekk- ert erfittfyrir þig að búa án þess að hafa allan þann lúxus sem nú- tímamenn á Vesturlöndum búa við? „Kristniboðsstöðvarnar eru ágæt- lega búnar og þar mun fara vel um mig. Ég held að ég muni ekki sakna neins munaðar og ef ég sakna hans þá er það bara gott og hollt fyrir mig. Eg mun einungis vera þarna nokkra mánuði á ári, hina mánuð- ina verð ég hér á landi. Það er margt sem mig langar til að gera. Ég hef sagt barnabörnunum mínum sögur og hef skrifað þær niður. Ég er bú- Ames One inn að skrifa bók um börn og engla sem verið er að myndskreyta og kemur vonandi út á næsta vetri. Ég hef líka verið að vinna fræðsluefni upp úr Laxdælu og spyr þar meðal annars hvað nýbúinn Melkorka Mýrkjartansdóttir hafi kenni Ólafi syni sínum. Nú mun ég hafa fleiri tækifæri til að vinna að verkefnum eins og þessum.“ Hvað með stöðu nýbúa hér á landi í samfélagi nútímans? Hafa íslendingar fordóma gagnvart nýbúum? „Hópar í þjóðfélaginu telja sig staðfesta mikilvægi sitt með því að niðra aðflutt fólk. Ég veit ekki til þess að nokkur manneskja hafi komið hingað óboðin frá framandi þjóð heldur sem gestir eða starfs- menn. Þetta er rétt að hafa hugfast. Innflytjendur og erlent vinnuafl skapa fleiri störf og fjölbrey tni, þjóð- félagið hefur auðgast og menningin sömuleiðis. Þessar aðstæður eiga að gera okkur betur meðvituð um það hver við erum og hver okkar menning er, fyrir hvað við stöndum og hvaða gildi við viljum halda í og virða. Ef ég á einhverja yfirskrift yfir það verkefni sem ég vil vinna á komandi árum þá er það að gera okkur meðvituð um verðmætin í kristninni og íslenskri menningu. Ef við týnum vegarnestinu okkar er stórhætta á því að við verðum úti á veraldarhjarninu. Ég vil auðvitað að við hugum sér- staklega að trúararfinum og lærum af fyrri kynslóðar mönnum því það munu koma harðari tímar en við lifum núna. Margar þær forsendur sem við höfum í dag munu hverfa bæði vegna alþjóðavæðingarinnar og takmörkunar auðlindanna. Þá þarf fólk að hafa sterka kjölfestu í lífi sínu og þar kemur trúin og reynslu- sjóður kynslóðanna til sögunnar.“ Eins oq kunn- , , ► ugt er hefur Guð engar hendur, aðrar en okkar, og þegar menn eru utangarðs með vand- ræði sín þá hafa hend- urnar ekki hreyft sig eftir höfðinu. Glötuð tækifæri m Þú hefur skrifað greinar þar sem er Ijóst að þú berð umhyggju fyrir föngum. Hefurðu kynnst þeim persónulega? „Já. Maður í fjölskyldunni er fíkniefnaneytandi og hefur lent í fangelsi fyrir að hafa önglað saman fyrir neyslu sinni með ólöglegum hætti. 1 gegnum starf mitt hef ég líka haft kynni af föngum og fylgist Fyrri hluti nafns stólsins er myndað af upphafsstöfum framleiðandans Ana Maria og hönnuðarins Erlu Sólveigar - Ames. Einn vísar til þess að þetta er þeirra fyrsta samstarfsverkefni en ekki það síðasta. Uppruna hans má rekja til stólsins Dreka sem Erla Sólveig hannaði 1998 og Ana Maria seldi í miklu upplagi í Kólumbíu þar sem hún starfar. Þegar markaðurinn tók að mettast fyrir Dreka fæddist hugmyndin að arftaka hans. Ames Einn er úr umhverfisvænu plasti, léttur og staflanlegur. Mjúkar línur einkenna stólinn og náttúruleg form sem taka sífellt nýja mynd eftir sjónarhorni. Ames Einn er sannarlega alþjóðlegur stóll, því frumgerðirnar eru hannaðar á íslandi, stólgrindin framleidd í Kólumbíu og Kína en plasthlutinn í Þýskalandi. Erla Sólveig hefur áður hlotið fjölda verðlauna fyrir húsgagnahönnun sína. Erla Óskarsdóttir mail@erta-solveig-oskarsdottir.com Sýningargripina færðu hjá okkur Hjá okkur geturðu keypt mörg af þeim verkum sem sýnd eru á íslensku hönnunarsýningunni MAGMA/KVIKA á Kjarvalsstöðum. ih Epal hf. / Skeifan 6 / Sími 568 7733 / epal®epal.is / www.epal.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.