blaðið - 21.07.2007, Qupperneq 35
blaóiö
LAUGARDAGUR 21. JULI 2007
ORÐLAUSTÍSKA
tiska@bladid.net
wp Ég fór með smáhlutverk í
mynd sem heitir Race. í henni
leikur Saif Ali Khan, sem er einn
af frægustu leikurum Indlands.
Bryndís Helgadóttir starfar sem fyrirsæta á Indlandi
Leiknr lífvörð í Bollywood
Bryndís Helgadóttirfór
sem fyrirsæta til Indlands
fyrir sex vikum og er
þegar komin með hlut-
verk í Bollywood-kvik-
myndunum.
Eftir Halldóru Porsteinsdóttur
halldora@bladid.net
Bryndís Helgadóttir er ein
nokkurra íslenskra fyrirsætna
sem herjað hafa á fyrirsætumark-
aðinn í Indlandi. Það er ekki hægt
að segja að Bryndís sé á flæðiskeri
stödd i verkefnunum, en hún hélt
utan fyrir einungis sex vikum
og hefur fengið hvert verkefnið á
fætur öðru.
„Ég vinn sem módel fyrir Eskimo
í Mumbai. Mér líkar mjög vel að
vera hérna þrátt fyrir menning-
arsjokk í byrjun út af fátæktinni,
stéttaskiptingunni og sérstöku
lyktinni sem er á Indlandi. Þetta
er ein mengaðasta borg í heimi og
ruslahaugar á hverju horni," segir
þessi 17 ára fyrirsæta en tekur þó
fram að lífið á Indlandi venjist vel.
„Maður þarf bara að laga sig að
aðstæðum, þá líður manni vel. En
fyrst var þetta erfitt, sérstaklega
þar sem ég sker mig svo úr fjöld-
anum með ljóst sítt hár. Ég var
eiginlega eins og geimvera og allir
horfðu á mig. En þetta venst.“
’
Nýtur lífsins á Indlandi Bryndís
; segist njóta sín í botn í Indlandi.
Lendir í skotbardaga
„Ég er búin að fara í þó nokkrar
prufur og sumar leiða af sér verk-
efni. Ég er til dæmis búin að leika í
sjónvarpsauglýsingum og þremur
bíómyndum," segir Bryndís spurð
um verkefnin hingað til.
„Núna er ég að leika í myndinni
Stardust. Ég held að hún sé með-
alstór I Bollywood og mér er sagt
að einn af aðalleikurunum, Tarun
Khanna, sé upprennandi stór-
stjarna. Ég leik „töff gellu“ sem er
lífvörður glæpaforingja sem þessi
Tarun leikur. I nokkrum senum
UM BRYNDÍSI
►
►
Bryndís verður 18 ára göm-
ul eftir rúma viku
Fyrsta auglýsing Bryndísar
var fyrir Smáralind þegar
hún var 13 ára gömul.
► Bryndís hyggst halda áfram
námi við Borgarholtsskóla
í haust.
lendi ég í skotbardaga og skýt af
byssu með púðurskotum," segir
Bryndís, sem lauk einnig við tökur
á kvikmynd með einum frægasta
leikara Indlands nýverið.
„Þetta var smáhlutverk í mynd
sem heitir Race. í henni leikur Saif
Ali Khan, sem er einn frægasti hér.“
Minni útlitskröfur í Indlandi
Bryndís býr ásamt fimm öðrum
í íbúð sem Eskimo á í Indlandi.
Hún segir aðstæður til fyrirmyndar
enda þótt mjólkurvörur og græn-
meti séu ekki upp á marga fiska.
„Við erum með mjög góða íbúð
með nettengingu, nettengingu,
tvo lífverði og bílstjóra sem keyrir
okkur. Betra getur þetta ekki orðið,
nema kannski maturinn," segir
Bryndís, sem hefur ávallt haft
áhuga á fyrirsætustörfum.
„Ætli það megi ekki segja að
draumurinn hafi alltaf verið að
gerast fyrirsæta. Þriggja ára sá ég
Hagkaupsbækling með myndum
af vinkonu minni og sagði við
mömmu að ég vildi líka láta taka
myndir af mér. Tólf ára fór ég svo
á fyrirsætunámskeið hjá Eskimo,"
segir Bryndís.
Spurð um möguleika fyrirsætna
á Indlandi segir Bryndís ekki loku
fyrir það skotið að indverski mark-
aðurinn sé ívið sanngjarnari en
annars staðar.
„Samkeppnin er auðvitað mikil
alls staðar og kröfurnar miklar
en ég tel að hér séu sanngjarnari
kröfur um vöxt og útlit fyrirsæta."
Hannar
fyrir Mango
Leikkonan Pen-
elope Cruz tók á
dögunum þátt í
nýrri haust- og
sumarlínu fyrir
tískuvörumerkið
Mango. Spánska
tískuvörumerkið
fékk leikkonuna og systur hennar
til liðs við sig og hafa þær nú
hannað nýja og vandaða línu
sem sett verður á markað í haust.
Aðaluppistaða línunnar eru galla-
buxur og peysur auk þess sem rík
áhersla var lögð á skart og auka-
hluti. Auk nýju línunnar mun
Penelope leika í stórri auglýsinga-
herferð fyrir Mango í haust.
Borin saman
við bróður sinn
Donatella Versace
segist enn finna
fyrir bróður
sínum, tískumóg-
úlnum Gianni Vers-
ace, sem myrtur
var fyrir tíu árum.
Húntókviðaf
bróður sínum eftir lát hans og
hefur stýrt Versace-tískuhúsinu
allar götur síðan. „Ég heyri enn í
Gianni segja mér að gera ekki mis-
tök. Þetta er ekki auðvelt og erf-
iðastar eru væntingar fólks um
að ég eigi að vera eins og hann,“
sagði Donatella á dögunum.
SNYRTIBUDDA VIKUNNAR
Skemmtilegar vörur
fyrir allar konur
Very Irréstistible frá
Givenchy Nýr ilmur frá
tískuhúsi Givenchy þar
sem ferskleiki og fágun
eru í fyrirrúmi. Ilmurinn er
bleikur og inniheldur fimm
tegundir rósa með léttu og
kvenlegu ívafi. Very Irrés-
titible kallar fram dularfulla
og mjúka angan án þess
þó að draga úr frískleika.
Super Aqua-Lotin frá
Guerlain Rakagefandi
andlitsvatn sem eykur vernd
húðarinnar gegn utanaðkom-
andi áhrifum og dregur fram
hámarksferskleika. Andlits-
vatnið er ferskt og silkimjúkt
auk þess sem húðin styrkist
eftir notkun og berst því betur
við öldrun. Þá gefurvatnið
mikla hreinleikatilfinningu.
DayWear Plus frá Estée
Lauder Gott andlitskrem með
verulega rakagefandi áhrifum.
Kremið frískar upp á húðina og
kemur í veg fyrir þurrk ásamt
því að næra húðina til muna.
DayWear Plus dregur úr fínum
línum, hrukkum og dauðum
húðfrumum auk þess að hafa
endurnýjandi áhrif á húðina.
tSItt IAUDER
Loud Lash-
maskari Loud
Lash-maskarinn frá
MAC lengir og þykkir
augnhárin ásamt þvi
að byggja þau upp
og lyfta þeim vel.
Burstinn greiðir vel
úr augnhárunum og
nær að lengja þau
á eðlilegan hátt án
þess að óvelkomnar
klessur geri vart við
sig. Mjög flottur ma-
skari fyrir öll tilefni.
I
sa'UTURAlH
Sculpturale frá
Lancomé Sculpt-
urale vinnur vei
á appelsínuhúð
auk þess að örva
sogæðakerfið og
hafa vatnslos-
andi áhrif. Efna-
skiptin örvast
og frumurnar
brenna fitu.
Still life-augnskuggi
frá NIAC Paint-augn-
skuggarnir frá MAC eru
sérlega flottir og haldast
vel á augnlokinu. Sviti, sól,
hiti eða annar raki hefur
engin áhrif á skuggann og
liturinn helst í langan tíma.
Still Life-liturinn er sérstak-
r lega flottur, bæði einn og sér
eða sem grunnur undir aðra
augnskugga og því hentugur
til margra nota.
Lévres scintiilantes
frá Chanel Flottur
gloss með gljáa og
flottri áferð. Varirnar
virka viðameiri ásamt
því að vera sérlega
kyssilegar og smart.
Veglegur kaupauki fylgir öllum
keyptum vörum frá Levante út
september!
Gildir á medan birgðir endast
WWi
t
í/
v
'ekja eftirtekt!
Tilbodið gildir í verslunum Lyfju, Lyf& heilsu, Lyfjavals og smásöluverslunum um land allt