blaðið - 21.07.2007, Qupperneq 38
38
LAUGARDAGUR 21. JULI 2007
blaðið
FÓLK
folk@bladid.net
Jú, líklega, en það er til
alls konar ómengandi
málning, þótt hún komi
ekki beint af beljunni.
Er skyrið ekki umhverfisvænna?
Sigurður Harðarsson, betur þekktur sem Siggi Pönk, er meðlimur
Saving lceland-samtakanna, sem skvettu málningu á ræðisskrif-
stofu íslands i Edinborg. Orðin „íslandi blæðir" voru einnig máluð
á tröppur skrifstofunnar. Margir muna svipaða uppákomu á Nord-
ica Hotel, en þar var grænu skyri slett, af þeim sem áttu það.
HEYRST HEFUR
Eins og fram hefur komið hefur
Emílía í Nylon hætt í stúlknasveit-
inni sem slegið hefur í gegn á ís-
landi og í Bretlandi. Gekk Emilía
að eiga Pálma Sigurðsson og setti
fjölskylduna í fyrsta sæti, framar
framanum. Ekki eru þó aðdá-
endur Nylon-hópsins par sáttir
við þessa ákvörðun
Emilíu og hafa sett
í gang undirskrifta-
lista á Netinu þar
sem skorað er á
Emilíu að hætta
við að hætta. Þegar
síðast var gáð höfðu
53 skrifað undir list-
Hið fornfræga Naust
á Vesturgötunni hefur skipt
um nafn og heitir nú Great
Wall. Þar er rekin kínverskur
veitingastaður og mikil opnunar-
veisla var haldin þar síðastliðið
fimmtudagskvöld. Þangað mætti
mikill fjöldi. Kínverjar hér á
landi voru vitanlega áberandi
og síðan sannir Kínavinir eins
og Jón Baldvin Hannibalsson og
Bryndís Schram og Hjörleifur
Sveinbjörnsson, eiginmaður
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur,
en hann var á sínum tíma náms-
maður í Kína. Þekktir sjálfstæð-
ismenn settu svip á samkomuna
og þar á meðal voru Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson borgarstjóri, Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra,
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
og Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son. Þarna voru vitanlega einnig
Kalli í Pelsinum og
Ester eiginkona
hans en þau eiga
húsið á Vesturgöt-
unni og leigja það
út til rekstursins.
Aögerðasinnarnir í Saving
Iceland kvarta sáran undan
gagnrýni, sem þeir hafa orðið
fyrir í leiðurum og pistlum
hér í Blaðinu. Á heimasíðu
samtakanna er fjallað
ýtarlega um meinta fáfræði
og mannvonsku ritstjóra
og blaðamanna á Blaðinu.
Talsmaður samtakanna hefur
reyndar fengið tækifæri til að
tjá sjónarmið sín í viðtali hér
í Blaðinu, en bjargvættirnir
virðast þola illa að aðferðir
þeirra séu gagnrýndar. Heyrst
hefur að á ritstjórninni bíði
menn nú spenntir eftir því að
félagar Saving Iceland hlekki sig
við tölvurnar þeirra...
Jón Adólf Berstáfáki
fráum, fram um veg.
BlaÖið/Brynjar Gauti
Tréskurðarmeistarinn Jón Adólf Steinólfsson býr til mótorhjól úr tré
Meira en aö tálga spýtu
Jón Adólf Steinólfsson
fékkfyrir mörgum árum
tréskurðarnámskeið í
jólagjöf frá móður sinni.
Síðan þá hefur margur
spónninn svifið til jarðar.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
„Hjólið er gert fyrir handverkssýn-
ingu sem haldin verður að Hrafna-
gili þann ío. ágúst. Við erum sex
strákar sem erum í þessu og köll-
umst Einstakir, enda erum við það
allir, hver á sinn hátt,“ segir Jón en
hópurinn kom einnig að álíka verk-
efni fyrir ári.
„Þetta byrjaði allt á því að ég hafði
verið að kenna tréskurð og sankað
að mér einum og einum úr hverjum
hópi sem ég kynntist betur en
öðrum. Saman hittumst við síðan
i eins konar kjaftaklúbbi sem við
skýrðum Einstakir. Síðan hafði Dó-
róthea samband við okkur, en þá
var hún nýtekin við Hrafnagili fyrir
norðan og vildi fá eitthvað sniðugt
frá okkur. Eftir að hafa velt upp alls
kyns hugmyndum kom upp úr krafs-
inu að gera ío metra háan gítar úr
tré. Að vísu þurftum við að minnka
hann aðeins, eða niður í um 4 metra,
þar sem verkstæðið mitt rúmaði
ekki meira!
MAÐURINN
Jón Adólf er 48 ára.
Jón hefur lengst af búið í
Kópavogi.
Hann segist mikill rokk-
ari og spilar vikulega á
rafmagnsgítar ásamt syni
sínum og frænda.
Upphaflega átti þetta að vera mót-
orhjól með hliðarvagni. Við kom-
umst hins vegar að því að það væri
bara djöfuls vesen enda gerðum við
okkur ekki alveg grein fyrir um-
fangi verkefnisins. En við erum þó
langt komnir og verðum tilbúnir
með þetta fyrir þann tíunda."
Handlaginn með viðinn
„Það var 1986 sem mamma gaf
mér námskeið í tréskurði í jólagjöf.
Ég hafði áður verið á sjó og í hinu og
þessu, fálmandi eins og aðrir ungir
menn. Ég hafði þó alltaf stefnt á
það að verða smiður, enda viðurinn
alltaf leikið í höndunum á mér. Ég
var einnig með eigin rekstur sem
gekk ágætlega, en eftir að ég fór
á námskeið í Austurríki 1995 þá
breyttist allt. Það má segja að ég
hafi séð ljósið. Það er rosalega góð
tilfinning að uppgötva hvað maður
vill gera það sem eftir er; eitthvað
sem margir uppgötva aldrei á lifs-
leiðinni. Sama ár fór ég til Englartds
til að læra hjá einum þeim alfærasta
í heiminum, Ian Norbury, sem ég
vann nokkrar stórar sýningar með.
Ég tók hann einnig með til íslands
þar sem hann hélt námskeið. Það
hefur löngum verið metnaður hjá
mér að efla þessa listgrein hér á
landi, því hún hefur setið svolítið
eftir. Að mínu mati eru aðeins ör-
fáir, fimm eða sex, sem eru virkilega
góðir í þessu. Annars lít ég miklu
frekar á tréskurðinn sem listgrein
frekar en iðngrein.“
Sýning íSeattle
„Ég og Tryggvi Larum, verðum
með sýningu í Nordic Heritage
Museum. Þemað er ísland fortíðar
og framtíðar í tréskurði. Tryggvi sér
um fortíðina, víkingamynstrin og
það allt, en ég verð með framtíðina;
Tölvur, tækni og þess háttar dót,“
segir Jón en hann segist einmitt
nýta tæknina við iðju sína.
„Maður notar allt sem flýtir fyrir
manni auðvitað. Það eru nokkrir af
eldri kynslóðinni sem fussa og sveia
yfir þessu og skammast yfir því að
maður noti vélarnar við þetta, en
etta er bara lenskan í þessu í dag.
g held að ef víkingarnir hefðu haft
vélbyssur í gamla daga, þá hefðu
þeir nú notað þær!“
Hægt er að sjá verk Jóns á slóð-
inni: jonadolf.com
BLOGGARINN...
Trúir málstaðnum
„Sagt er að fólk geri góðlátlegt grín að
ungliðahópnum Seifing Æsland og brosi
jafnvel út í annað þegar sést til þeirra
vera að mótmæla virkjunum og álverum,
neyslukapphlaupi og bHisma. Ekki ég.
Það eraldrei að vita nema um sé að ræða
alvöru umhverfisverndarsinna sem fara
á milli á reiðhjólum eða hestum öfugt
við íslenska vinstrigræna sem allir nema
Magnús Bergsson mættu á bílum á lands-
fundinn í febrúar síðastliðnum. “
Anna Kristjánsdóttir
velstyran.blog.is
Harry Potter
„Skemmtileg þessi stemning sem alltaf
skapast þegar að ný bók um Harry Potter
er að koma út. Þessar bækur hafa eignast
gríðarlega marga aðdáendur um viða
veröld og er ísland ekki undantekið frekar
en fyrri daginn þegar eitthvað verður að
æði. Það er ánægjulegt að fólk lesi og
enn ánægjulegra að ungir krakkar og
unglingar bíði eftin/æntingarfullir eftir
bók! Mér þykir það leitt - en ég hef aldrei
komist í takt við Harry Potter og félaga.
Reyndi að lesa eitthvað afþessu en það
heillaði mig ekki."
Guðmundur Brynjólfsson
blogg.visir.is/
Þvagpoki
„I apótekinu rakst ég á einhverja stórkost-
legustu uppfinningu sem ég hefséð lengi.
Uppfinningin heitir „ Travel John “ eða
Ferðakamar. Þegar menn skoða pakkann
ítarlega kemur iljós að pissustoppin i fjöl-
skylduferðalaginu heyra brátt sögunni til.
Þessi stórkostlegi kamar erhannaður fyrir
karla, konur og börn og svo má henda
pokanum út um gluggann á ferð. Það
sem meira erþá lekurpokinn ekki. Það
er klárlega kostur. Myndirnar þar sem
útskýrt er hvernig nota skal þessa stór-
kostlegu uppfinningu em ekkert minna
en óborganlegar. Ég lá nánast ígólfinu af
hlátri. “ Henry Birgir Gunnarsson
blogg.visir.is/henry
Er fyrirtækið þitt uaktað?
Ávextir í áskrift er einhver besta fjárfesting
sem þú gerir í starfsmannamálum.
www.avaxtabillinn.is
Su doku
3 4 8 1 2
9 1 3 5
7 4 2 6 9
9 4 2 8
2 5 9
5 9 6
6 3 2 7
5
7 6 1
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem uþþ eru gefnar.
Ef hann átti sex eiginkonur, af
hverju var þá enginn Hinrik níundi?
9-14
© LaughingSiock Intamational Incydist. by Uniled Media, 2004
HERMAN
eftir Jim Unger