blaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 2
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2007
blaöiö
Héraðsdómur
taki afstöðu
Meint áreitni á
Landspítalanum
Hæstiréttur hefur ógilt frávisun
Héraðsdóms Reykjavíkur á kröfu
hjúkrunarfræðings, sem fór fram á
að ógilt yrði ákvörðun stjórnanda á
geðsviði Landspítala-háskólasjúkra-
húss um að færa hana til í starfi.
Hæstiréttur fer fram á að héraðs-
dómur taki málið til efnislegrar
meðferðar.
Upphaf málsins má rekja til teitis
hjá deildarstjóra geðsviðs Landspít-
alans. Eftir teitið fór stefnandi heim
til sín ásamt öðrum hjúkrunarfræð-
ingi af karlkyni. Hvað þar gerðist
eru hjúkrunarfræðingarnir tveir
ekki sammála um, en mánudaginn
næsta tilkynnti maðurinn deildar-
stjóranum að hann hefði orðið fyrir
grófri kynferðislegri áreitni heima
hjá stefnanda og treysti sér ekki til
að vinna með henni lengur.
Leitaði til lögreglunnar
Maðurinn tilkynnti einnig
meinta áreitni til lögreglunnar. I
dagbók hennar er haft eftir mann-
inum að konan hafi fengið hann
heim með sér þar sem hún hafi
átt eftir að viðra hundinn en þyrði
ekki að gera það ein. Konan mun
hafa „gengið mjög nærri [honum]
við að reyna að fá hann til kynmaka
við sig. [Hann] mun ekki hafa haft
áhuga á því enda giftur og tveggja
barna faðir.“
Stefnandi sagði framburð manns-
ins uppspuna frá rótum og sætti
sig ekki við tilfærsluna. Kærði hún
hana til Héraðsdóms Reykjavíkur,
sem féllst á að hún fengi greiddar
miskabætur en vísaði eins og áður
sagði frá kröfum hennar um að
ákvörðunin yrði ógilt.
hlynur@bladid.net
STUTT
• Ljósleiðarar Eðlilegast er
að ljósleiðarakerfi Ratsjárstofn-
unar verði boðið út. Þetta segja
fulltrúar símafyrirtækjanna.
Utanríkisráðherra útilokar ekki
að það verði gert, samkvæmt
fréttum Vísis. Alls eru átta
ljósleiðarar á landinu og þar af
þrír sem ríkið á. Þeir liggja um
allt land en hafa eingöngu verið
notaðir af Ratsjárstofnun fram
til þessa.
Leikfangaframleiðandinn Mattel innkallar leikföng
Fólki ráðlagt að skila eða farga vörum
Nýverið hafa uppgötvast gallar í leikföngum
frá leikfangaframleiðandanum Mattel og hafa
þau verið innkölluð. Hagkaup hefur sent frá
sér tilkynningu þar sem foreldrum og öðrum
aðstandendum er ráðlagt að yfirfara vel hvort
börn þeirra eigi viðkomandi leikföng. Er þeim
sem eiga ofangreindar vörur bent á að skila þeim
strax í næstu verslun gegn fullri endurgreiðslu,
eða farga þeim með öruggum hætti. Upplýsingar
um hvaða vörur eru gallaðar er að finna á heima-
síðu Hagkaupa og á heimasíðu Forvarnahúss.
Nokkuð hefur verið um að erlend leikfangafyr-
irtæki hafi innkallað vörur sínar á undanförnum
misserum. Er einkum um að ræða leikföng sem
framleidd eru í Kína. Eftirliti með framleiðslu
leikfanga þar í landi er mjög ábótavant og í fyrra-
dag afturkallaði Mattel rúmlega sjö milljónir leik-
fanga og er það í annað sinn sem framleiðandinn
grípur til slíkra aðgerða. Ástæðan er sú að í leik-
föngunum eru litlir seglar sem losna auðveldlega.
Er hætta á að börn gleypi seglana og það getur
valdið skemmdum í meltingarvegi.
Fyrr í mánuðinum afturkallaði leikfangafram-
leiðandinn Fisher Price tæplega milljón leikföng
eftir að málning í þeim reyndist innihalda of
mikið magn af blýi.
Elías Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Leik-
bæjar, segir að búið sé að fara vandlega yfir lista
yfir þær vörur sem Mattel hefur innkallað. „Við
erum heppnir að því leyti að við höfum ekki verið
að selja þessar vörur. Hins vegar er þetta fyrst og
fremst slæmt fyrir neytendur að lenda í svona
vandræðum.“
magnus@bladid.net
Foreldrar fullir viðbjóðs
■ Rússnesk barnaklámsíða vísar á bamalandis ■ Foreldrar læstu hið snarasta síðum
með drengjum léttklæddum að leika sér ■ Ekki munað eftir öðru dæmi hjá Barnalandi
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Rússnesk vefsíða undir yfirskrift-
inni „Little Boys Rule“ vísaði not-
endum sínum inn á 14 íslenskar
Barnalandssíður sem var í kjölfarið
læst.
María Katrín Jónsdóttir heldur úti
vefsíðu á barnalandi.is fyrir tæplega
fimm ára son sinn sem rússneska
klámsíðan benti notendum sínum
á. „Það er alger viðbjóður að lenda
í þessu og ég hafði einhvern veginn
ekki hugsað út í að þetta gæti komið
upp,“ segir María. „Það var stúlka
sem tók eftir því að bent var á síðu
sonar míns út frá rússnesku vefsíð-
unni. Hún hringdi í mig og lét mig
vita en ég læsti síðunni undir eins.“
Ungirdrengir að leik
Maria segir að myndirnar inni
á síðu sonar síns hafi mestmegnis
verið fjölskyldumyndir eða af
syni hennar létklæddum að leika
sér, en rússneska vefsíðan hvetur
notendur sína til þess að vísa á
klámefni með 2-9 ára drengjum í
aðalhlutverki.
Ingi Gauti Ragnarsson er einn
ábyrgðarmanna Barnalands. „í
fljótu bragði man ég ekki eftir öðru
svona tilviki en við munum ítreka
það enn frekar fyrir fólki að læsa
síðum sínum,“ segir hann og bætir
við að auglýsing hafi verið sett á
forsíðu vefjarins til að brýna fyrir
fólki að læsa Barnalandssíðunum.
Reiði kemur í kjölfarið
Gunnar Friðfinnsson er í sömu
sporum og María, en hann fékk
Vefsíðum læst Vísað var á
114 íslenskar Barnalandssíður á
rússneskri óþverrasíðu.
. mási
BARNAHEILL
► Hefur frá 2002 tekið þátt í al-
þjóðlega samstarfsverkefn-
inu „Stöðvum barnaklám".
Árið 2006 fékk Barnaheill
383 ábendingar og 212
þeirra voru barnaklám.
► Frá upphafi hefur Barnaheill
fengið 3.525 ábendingar og
hefur 31% þeirra verið um
barnaklám.
ábendingu í gestabók Barnalands-
síðu fimm ára sonar síns um að
vefsíða hans gæti hugsanlega verið
notuð í illum tilgangi úti í heimi,
þar sem vísað væri á hana.
„Þar má sjá myndir af syni
mínum sofandi eða úti í garði,“
segir hann og bætir við að hann
hafi ekki getað gert sér i hugar-
lund að svona mál gæti komið
upp. „Það er vissulega reiði sem
kemur i kjölfarið en það er lítið
hægt að gera núna þegar síðunni
hefur verið læst.“ Gunnar segir
hina rússnesku óþverrasíðu bjóða
upp á fjöldann allan af tenglum
og hafa marga notendur. „Einnig
passa forsvarsmenn síðunnar upp
á að út frá henni séu engir virkir
tenglar en svo virðist sem hún sé
alveg lögleg.“
ÞEKKIRÞÚTIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Hægari vindur
Rigning eða súld með köflum norðaustan-
og austanlands, en léttskýjað sunnan- og
vestantil. Vind lægir smám saman á öllu
landinu og dregur úr úrkomu norðaustan-
lands. Hiti 5 tiM5 stig að deginum, hlýjast
sunnanlands.
ÁMORGUN
Víða skýjað
Hæg norðlæg eða breytileg átt, en norð-
vestan 5-10 m/s við austurströndina fram
eftir degi. Skýjað um mestallt land. Skúrir
suðaustanlands og dálítil súld á Norðaust-
urlandi, en annars úrkomulítið. Hiti 5 til 14
stig, hlýjast syðst.
STUTT
• Umferð Um 10.000 bílar fóru
um Hvalfjarðargöng síðastliðinn
sunnudag, 12. ágúst, en um 8.500
á sunnudegi Fiskidagshelgar-
innar 2006. Þetta er metumferð
á einum degi það sem af er árinu
2007. Til samanburðar má nefna
að mest fóru 8.800 bílar um
göngin á einum degi um nýliðna
verslunarmannahelgi.
• Aldraðir Ásta Möller al-
þingismaður er nýr formaður
samstarfsnefndar um málefni
aldraðra. Guðlaugur Þór Þórð-
arson, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, hefur skipað nýja
samstarfsnefnd um málefni
aldraðra sem í sitja fjórir auk
Ástu næstu fjögur árin.
mbl.is
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 24
Amsterdam 23
Ankara 32
Barcelona 29
Berlín 26
Chicago 29
Dublin 16
Frankfurt 27
Glasgow 16
Halifax 26
Hamborg 24
Helsinki 24
Kaupmannahöfn 19
London 21
Madrid 31
Mílanó 29
Montreal 17
Mönchen 20
New York 24
Nuuk 8
Orlando 25
Osló 16
Palma 25
París 19
Prag 29
Stokkhólmur 21
Þórshöfn 14