blaðið - 16.08.2007, Page 4
FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2007
blaðió
Kristján vill
enn stýra SGS
Kristján Gunnarsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavíkur og nágrennis, gefur
áfram kost á sér sem formaður
Starfsgreinasambandsins (SGS).
Hann tilkynnti þetta á fundi
framkvæmdastjórnar sambands-
ins sem haldinn var í fyrradag.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar Iðju á Akureyri, hyggst
einnig gefa kost á sér áfram í emb-
ætti varaformanns. Kosið verður
á þingi Starfsgreinasambandsins
3. til 5. október. Á því þingi verða
lögð drög að komandi kjaravið-
ræðum við Samtök atvinnulífsins.
mge
Olíuhreinsistöð
í Arnarfjörð
Bæjarstjórn Vesturbyggðar sam-
þykkti í gær að breyta skipulagi
í og leyfa með því byggingu
olíuhreinsistöðvar í landi Hvestu
í Arnarfirði. Viljayfirlýsing um
að landið verði keypt liggur fyrir.
Svæðið á eftir að fara í umhverfis-
mat. RÚV greindi frá.
Biskup vísiterar
Biskup fslands, Karl Sigurbjörns-
son, vísiterar Skaftafellsprófasts-
dæmi dagana 18. til 25. ágúst næst-
komandi. Þar mun biskup skoða
18 kirkjur og bænahús, hitta
sóknarnefndarfólk og presta og
starfsfólk safnaða. Hann mun
einnig heimsækja hjúkrunar- og
dvalarheimili. í öllum kirkjunum
verða helgistundir og guðsþjón-
ustur. ibs
's'qfænmeti
sérmerkt þér!
r * " —bcst
ití mmrV.
VIÐ HÖFUM ALLAR GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA
FJQLSKVLDUHHTIÐ NORÐURSINS
# Kántrv -H,
OnBBnft
jJL Affllflllfil Gospeimessa
SKAGASTEÖND 17.-19. flGÚST 2007
Bjarni töframaður grínar og kynnir Hara systur syngja
Bis Jóhannsson syngur kántrýtónlist Gospei kórinn syngur
Guðmundur Jónsson flytur eigin tónlist qkeípis er
„ , ÁSVŒEID
DllS SJA DAGSKRA: www.skagastrond.is
Reykingafólk í meiri
hættu í lýtaaðgerð
■ Reykingar bannaðar fyrir lýtaaðgerð vegna hættu á skaða á
vefjum ■ Landlæknir ekki viss um þörf á umboðsmanni sjúklinga
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Jens Kjartansson, yfirlæknir á lýta-
lækningadeild Landspítala-háskóla-
sjúkrahúss, segir lýtaaðgerðir áhættu-
samar og bendir á að reykingafólk sé
í stórhættu þegar þær aðgerðir eru
annars vegar. „Þó er ekki algengt að
lýtaaðgerðir misheppnist hérlendis,
en gerist það er það oftast nær hjá
reykingafólki,“ segir hann. Tuttugu
og níu hafa leitað til Lífsvogar, sam-
taka gegn læknamistökum, það sem
af er árinu vegna magaminnkunar
eða brjóstaaðgerða sem hafa farið
úr böndunum, að sögn Jórunnar
Sigurðardóttur framkvæmdastjóra
samtakanna.
Matthías Halldórsson landlæknir
tekur undir með Jens. „Það er mun
áhættumeira að gera aðgerðir á reyk-
ingafólki þar sem nikótínmagn í
blóði reykingamanna dregur æðarnar
saman og minnkar súrefnisflæði.“
Um tveimur einstaklingum af
hverjum tíu sem sækjast eftir brjósta-
aðgerð og magaminnkun er neitað
nema þeir leggi niður reykingar í 6 til
8 vikur fyrir aðgerð.
„Ef lýtaaðgerð er gerð á einstaklingi
sem reykir lifir 40% minna af þeim
vef sem hreyft er við i aðgerðinni en
hjá þeim sem ekki reykir, samkvæmt
niðurstöðum tilrauna á dýrum,“ segir
Matthías.
Tímafrektferli
Jens segir að ef súrefni nái ekki
til skurðarsáranna, til dæmis eftir
brjóstaminnkun, svuntuaðgerð eða
andlitslyftingu, geti myndast drep í
þeim. „Við drep getur vefurinn orðið
alveg hvítur, bíár eða jafnvel svartur
og vessað getur úr sárinu,“ segir Jens
og bætir við að á því stigi sé lítið hægt
að gera fyrir sjúkling nema byggja
vefinn frá grunni sem sé tímafrekt
og geti skilið eftir ljót ör. Jens segir
að aldur skipti ekki máli í þessu
samhengi.
Kvöl og pína
Jórunn Sigurðardóttir gagnrýnir
hversu fáir lýtalæknar fylgi sjúk-
lingum sínum eftir fari aðgerðir
þeirra illa. „Samtökin Lífsvog hafa
barist fyrir því síðustu 12 ár að
komið verði á stöðu umboðsmanns
sjúklinga sem gæti þá meðal annars
tekið á málum þar sem aðgerðir hafa
misfarist,“ segir hún og bætir við að
samtökin hafi engin svör fengið hjá
stjórnvöldum um það hvers vegna
stöðu umboðsmanns sjúklinga hefur
ekki verið komið á, en fyrir þvi séu
fordæmi í nágrannalöndum. Matt-
hías Halldórsson telur álitamál hvort
sjúklingar þurfi yfirhöfuð umboðs-
mann. „Umboðsmaður sjúklinga
100 fitusogsaðgerðir.
120 svuntuaðgerðir.
28 aðgerðir á nefi.
32 andlitslyftingar.
171 brjóstastækkanir og -lyftingar
gæti þó verið til bóta ef hægt væri
að leysa vandamál sem upp koma
nálægt vettvangi hans áður en þau
færu út í kerfið sem formleg mál.“
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Leikskólaráð Reykjavíkur
Launahækkun til
leikskólakennara
Samstaða var í gær í leikskóla-
ráði Reykjavíkur um að samþykkja
tillögu Vinstri grænna um að nýta
strax heimild til greiðslu tímabund-
inna viðbótarlauna til leikskóla-
kennara vegna manneklu á leik-
skólum borgarinnar. Ákvæði eru
um heimildina í kjarasamningum
BHM og átti að innleiða það um
næstu áramót.
„Ég bað um að athugað yrði hvort
við mættum hækka launin. I kjara-
samningum er kveðið á um að bæj-
arstjóri megi hækka launin að upp-
fylltum ákveðnum skilyrðum og
þess vegna vísum við þessu til borg-
arráðs,“ segir Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir, formaður leikskólaráðs.
Með tímabundinni launahækkun
er verið að tryggja að leikskólakenn-
arar haldist í starfi og taki mögulega
á sig aukaálag, að því er Þorbjörg
greinir frá. Slík heimild er nú þegar
nýtt í Kópavogi.
ingibjorg@bladid.net
STUTT
• Malasía Karlmaður sem
starfaði í 29 ár sem tannlæknir,
án þess að hafa lært tannlækn-
ingar eða hafa til þess tilskilin
leyfi, hefur verið handtekinn i
Malasíu. Maðurinn tók á móti
sjúklingum á heimili sínu í
Kuala Lumpur, en hann notaði
60 ára gamlan tannlækningastól
sem herinn hafði eitt sinn notað.
mbl.is
• Þýskaland ítölsk yfirvöld
hafa greint frá því að mál
mannanna sex sem voru
teknir af lífi í Duisburg í
Þýskalandi í nótt tengist
mafíuátökum. Giuliano
Amato, innanríkisráðherra
Ítalíu, sagði á blaðamanna-
fundi í Róm að svo virtist sem
morðin tengdust langvarandi
átökum tveggja mafíugengja í
Calabriu, sem er á suðurhluta
Ítalíu.
mbl.is
• Lagos Nígerískur maður sem
var handtekinn á flugvellinum
í Lagos á leið til Lundúna reynd-
ist hafa gleypt 1,1 kg af kókaíni
í litlum pakkningum. Ætlaði
maðurinn að smygla eiturlyfj-
unum til Evrópu. Hann var
handtekinn á mánudag og hefur
skilað frá sér um 100 pakkn-
ingum síðan.
mbl.is