blaðið - 16.08.2007, Side 12
12 FRETTIR
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2007
blaðió
ATBURÐARÁS GRÍMSEYJARFERJUMÁLSINS
Apríl 2003
Samgönguráðuneytið skipar starfshóp til að fjalla um samgöngur til
^ Grímseyjar.
Febrúar2004
W. Starfshópurinn skilar skýrslu sinni. Þar kemur meðal annars fram að
^ Einar Hermannsson, skipaverkfræðingur og aðalráðgjafi Vegagerðar-
innar í ferjumálum, hafi verið fenginn til að ástandsgreina Sæfara, gömlu
Grímseyjarferjuna. 1 niðurstöðu greiningar hans kom fram að kostnaður
við að halda Sæfara úti sem Grimseyjarferju til ársins 2018 væri um 137,8
milljónir króna. I áliti starfshópsins kom ennfremur fram að það væri
óraunhæft að fara út í þær breytingar, sérstaklega með tilliti til þess kostn-
aðar sem Einar ætlaði að breytingarnar myndu hafa í för með sér. Það
væri því samdóma álit hópsins að nýsmíði á skipi ætti að „koma sterklega
til greina þegar hugað verði að endurnýjun skipakosts í stað núverandi
Sæfara“. Einari Hermannssyni hafði verið falið að athuga hvort mögulegt
væri að kaupa notað skip til verksins en hann sagði það mjög erfitt vegna
ástands á markaði. Því var útilokað að fara þá leið að kaupa notað skip.
15.-16. nóvember 2004
w Sami Einar Hermannsson fer til frlands að skoða Oilean Arann til að
^ meta hentugleika skipsins til að sinna Grímseyjarsiglingum. Sú ferð
var farið samkvæmt óskum Vegagerðarinnar.
19. nóvember 2004
W. Skýrsla Einars Hermannssonar um skoðun á Oilean Arann er afhent
^ Vegagerðinni. Þar kemur fram að Einar telji skipið „mjög hentugt til
Grímseyjarsiglinga“. Áætlar hann kostnað við kaup og endurbætur á þvi um
150 milljónir króna. Segir hann ennfremur að nýsmíði á skipi muni kosta um
600 milljónir króna. Því segir hann Oilean Arann vera mjög vænlegan kost.
12. apríl 2005
Minnisblað Vegagerðarinnar frá 5. apríl kynnt fyrir ríkisstjórn íslands. Þar
►er heildarkostnaður við kaup og endurbætur á ferjunni áætlaður 150
milljónir króna og tekið fram að þá yrði ferjan komin í fyrsta flokks
ástand. Ríkisstjórnin veitti heimild til kaupanna á Oilean Árann á grund-
velli þessara áætlana.
23. september
► Ólafur J. Briem, skipaverkfræðingur hjá Siglingastofnun, fer til f rlands
að skoða Oilean Arann að beiðni samgönguráðuneytisins. Með í för
eru fulltrúar Grímseyjar og Vegagerðarinnar.
25. september 2005
►Ólafur skilar skýrslu sinni til samgönguráðuneytisins. Hún er svört og
segir hann meðal annars að ástand skipsins sé „í einu orði sagt hrör-
legt sökum vanhirðu og skorts á viðhaldi“. í niðurstöðu úttektar Ólafs
á skipinu segir að það sé líklegt að kaup á því sé áhugaverður kostur „sé
ástand Oilean Arann með þeim hætti að kaupverð að viðbættum kostnaði
við endurbætur á því verði lægra en 240 milljónir króna“. Meðal þess sem
kemur fram í skýrslunni er að það sé vel athugunarvert að setja perustefni
á skipið. Grímseyingarnir bættu því við að kannað yrði hver kostnaður við
slíka smiði væri samhliða þeim breytingum sem gera ætti á skipinu yrði af
kaupum á því. Þeir ráðlögðu því samgönguráðuneytinu að kynna sér þann
kostnað áður en skipið væri keypt. Grímseyingar lögðu einnig ríka áherslu
á að útbúið yrði lokað lestarrými á aðalþilfari skipsins í þessari skýrslu.
Þessar breytingar eru með þeim kostnaðarsömustu sem þurfti að gera á
skipinu. Því er ljóst að reikna hefði mátt með þeim í kostnaðaráætlun end-
urbóta á Oilean Arann.
26. september 2005
W. Sveitarstjórn Grímseyjar sendir samgönguráðuneytinu póst þar sem
^ hún segir að miðað við þau gögn sem hún hafi undir höndum og eftir
að hafa kynnt sér ástand Oilean Arann geti hún ekki mælt með því að
skipið verði keypt að svo stöddu. Þar kemur einnig fram að sveitarstjórnin
telji varhugavert að áætla að kostnaður við að koma Oilean Arann í viðun-
andi horf sé minni en nýsmíði á skipi.
Ráðuneytið vissi
af breytingunum
Samkvæmt heimildum Blaðsins
sátu meðal annarra Gunnar Gunn-
arsson aðstoðarvegamálastjóri,
Einar Hermannsson, aðalráðgjafi
Vegagerðarinnar í ferjumálum, Ól-
afur Briem, skipaverkfræðingur hjá
Siglingastofnun, og Jóhann sjálfur
fyrir hönd samgönguráðuneytisins
þann fund.
Grímseyingar höfðu skömmu
áður sent Jóhanni tölvupóst þar sem
þeir sögðust telja það „varhugavert
að áætla að kostnaður við að koma
Oilean Arann í viðunandi horf, verði
minni en við nýsmíði“. 1 skýrslu Ein-
ars Hermannssonar hafði þá komið
fram að kostnaður við slíka nýsmíði
yrði um 600 milljónir króna.
Sögðu kröfurnar sanngjarnar
1 svarpósti segir Jóhann meðal
annars að fram hafi komið í máli
allra fundarmanna að athugasemdir
Grímseyinga um breytingar á skip-
inu væru sanngjarnar og yrði allt
gert sem hægt væri til þess að verða
við þeim. Þá segir hann að „önnur
atriði svo sem stækkun lestar, breyt-
ingar á farþegarými og athugun á
perustefni koma öll til greina“.
Síðan segir að ráðuneytið vilji
„ekki kaupa köttinn í sekknum og
viljum við vita svona með einhverri
nálgun hver viðbótarkostnaðurinn
umfram kaupverð kynni að verða.
Vil ég í því sambandi ítreka við
ykkur að við höfum nokkurt svig-
rúm til að leggja út í kostnað við að
gera skipið sem best úr garði“.
Þessi samskipti áttu sér stað
rúmum tveimur mánuðum áður
B Bæði samgöngu-
ráðuneytið og
Vegagerðin vissu af
kröfum um breyting-
ar á nýrri Grímseyj-
arferju áður en hún
var keypt
■ Grímseyingar
áætluðu að viðgerð-
arkostnaður yrði
svipaður og við ný-
smíði
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
í tölvupóstum sem sendir voru
milli samgönguráðuneytisins og
sveitarstjórnar Grímseyjar tveimur
mánuðum áður en nýja Grímseyjar-
ferjan var keypt kemur fram að aðilar
frá samgönguráðuneytinu, Vegagerð-
inni og Siglingastofnun höfðu allir
séð réttar upplýsingar um ástand
Oilean Arann og þær breytingar sem
þyrfti að gera á skipinu áður en að
gengið var frá kaupunum.
1 tölvupósti sem Jóhann Guð-
mundsson, skrifstofustjóri hjá
samgönguráðuneytinu, sendi sveit-
arstjórn Grímseyjar 28. september
2005 lýsir hann fundi sem fram
fór daginn áður þar sem málefni
Grímseyjarferjunnar voru rædd.
en skipið var keypt og því ljóst að
bæði samgönguráðuneytið og Vega-
gerðin vissu um þær endurbætur
sem þurfti að gera á skipinu til að
Grímseyingar myndu samþykkja
kaup þess. Þessar breytingar eru
stór hluti af þeim viðbótarkostnaði
sem bæst hefur við endurbætur á
ferjunni.
Segir Sturlu bera ábyrgð
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri grænna, segir ábyrgð
vegna kaupa á Grímseyjarferjunni
liggja hjá Sturlu Böðvarssyni. „Að
sjálfsögðu ber samgönguráðherra
hvers tíma pólitíska og lagalega
ábyrgð á öllu sem undir hann heyrir.
Það hefur alltaf þótt ódýrt hjá ráð-
herra að skella skuldinni á undir-
menn sína og hengja þá. Mér finnst
allavega að hann eigi að svara fyrir
sinn hlut í málinu.“
Hann segir þann framúrakstur
sem átti sér stað alveg ótrúlega stór-
felldan. „Þetta er með því grófara
sem maður hefur séð. Þetta horfir
þannig við mér að það hafi allt
verið gert vitlaust og farið úrskeiðis
sem hægt var. Það grátlegasta við
þetta allt saman er að kostnaður-
inn endar Hklega í svipuðum upp-
hæðum og nýsmíði á skipi kostar.
Þannig að það er ekki hægt að kalla
þetta neitt annað en stórfellda sóun
á fjármunum."
VILTU VITA MEIRA?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Förum varlega í akstri um ísland og höfum hugfast að ferðalagið
er jafnmikil upplifun og áfangastaðurinn. Landið hefur upp á
ótalmargt að bjóða og aldrei að vita hverju þú missir af þegar
farið er um í óðagoti. Stillum hraðanum í hóf, göngum vel um
landið okkar og komum heil heim.
Ljósmyndasamkeppni
Á ferdalag.is finnurðu ýmiss konar upplýsingar sem tengjast
ferðalögum um ísland. Kynntu þérfáséðar perlur utan alfaraleiðar
og sjáðu með eigin augum. Safnaðu Ijósmyndum og sendu inn í
Ijósmyndasamkeppnina okkar. Sú stendur í allt sumar og vegleg
verðlaun eru í boði.
www.ferdalag.is