blaðið - 16.08.2007, Qupperneq 16
16
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2007
blaðiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
íslendingar hugsa eins og
við, eru bæði vinnufúsir
og umhverfisvænir.
270 milljarða kaup-
samningur Kaupþings
Kaupþing hefur undrritað samning
um kaup á öllu hlutafé hollenska
bankans NIBC fyrir tæplega 3.000
evrur eða 270 milljarða íslenskra
króna. Um er að ræða stærstu
viðskipti íslandssögunnar í einum
viðskiptagjörningi.
„Starfsemi NIBC fellur einkar vel að
starfsemi Kaupþings hvort heldur
sem litið er til landfræðilegrar dreifingar, vöruframboðs eða fyrir-
tækjamenningar,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.
NIBC er fyrirtækjabanki, stofnaður 1945, sem leggur áherslu á þjón-
ustu við meðalstór fyrirtæki í Vestur-Evrópu. Hjá honum starfa 718
manns en starfsstöðvar eru í Haag, London, Brussel, Frankfurt, New
York og Singapúr en seljandi er fjárfestahópur undir forystu J.C. Flo-
wers & Co. LLC. bm
lceland Express
til Barcelona
Næsta vetur hefur Iceland
Express flug til Barcelona. Er
það fimmtándi áfangastaður fé-
lagsins, en flogið verður þangað
tvisvar sinnum í viku. „Barcel-
ona er skemmtileg viðbót við
okkar áfangastaði og er ánægju-
legt að geta boðið íslendingum
upp á samkeppni í flugi til
þessarar einstöku borgar,“ segir
Matthías Imsland, forstjóri Ice-
land Express.
• Krónan veikist Nokkur veiking
varð á krónunni í morgun í kjölfar
lækkana á Wall Street í gær, en er
leið á daginn rétti hún aðeins úr
kútnum og þegar upp var staðið
nam veikingin 0,94 prósentum,
samkvæmt upplýsingum frá
Glitni.
• Stöðugar horfur Alþjóðlega
matsfyrirtækið Fitch Ratings
hefur staðfest lánshæfismat
Kaupþings. Langtímaeinkunn
er A, skammtímaeinkunn er
Lárus aftur í
fótspor Bjarna
Lárus Welding, forstjóri Glitnis,
var í gær kjörinn nýr formaður
Samtaka fjármálafyrirtækja.
Hann tekur við af Bjarna Ar-
mannssyni sem lét af formennsku
í sumar. Lárus tók einmitt við af
Bjarna sem forstjóri Glitnis fyrr
á þessu ári. Aðildarfélög samtak-
anna eru orðin 43 talsins eftir að
Saga Capital bættist í hópinn í
gær.
Fx, óháð einkunn er B/C og
stuðningseinkunn er 2. Horfur
fyrir langtímaeinkunninni eru
stöðugar.
• Fyrirséð stýrivaxtahækkun
Norski seðlabankinn hækkaði í
dag stýrivexti um 0,25 prósent
og eru vextirnir þá komnir í 4,75
prósent. Sérfræðingar bjuggust al-
mennt við þessari ákvörðun bank-
ans enda hefur verðbólguþrýst-
ingur verið að aukast í Noregi.
FÖSTUDAGAR
Auglýsingasíminn er
510 3744 blaðiö=
Hydro átti að
byggja á Islandi
■ Norskt stórifyrirtæki reisti frekar álver í Katar en á íslandi
M Stjómin gagnrýnd ■ Brátt meira ál framleitt hér en í Noregi
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Stórfyrirtækið Norsk Hydro
hefur sætt mikilli gagnrýni und-
anfarið fyrir ákvarðanir sem hafa
reynst fyrirtækinu kostnaðarsamar.
Ein þeirra var að reisa ekki 600.000
tonna álver á íslandi eins og til stóð.
„Fyrirtækið vó og mat í sjö ár
hvort það ætti að reisa álver á Is-
landi og komst að lokum að þeirri
niðurstöðu að gera það ekki,“ segir
Jan D. Hansen forstjóri Almeq, sem
framleiðir tækjabúnað fyrir álver
um allan heim, í samtali við norska
miðilinn E2.
Valgerður Sverrisdóttir, fyrrver-
andi iðnaðarráðherra, stóð í eldlínu
samningaviðræðna við Norsk Hy-
dro á sínum tíma. „Ég hef afar litla
samúð með fyrirtækinu þar sem
það stóð ekki við tímaáætlanir sem
þeir höfðu sett í samráði við íslensk
NORSK HYDRO
►
Gróði fyrirtækisins fyrri
hluta þessa árs var tæpar
70 milljónir.
► Starfsmenn fyrirtækisins
eru 33.000 um allan heim.
► Framleiddi 1,8 milljónir
tonna af málmi árið 2006.
stjórnvöld um byggingu álvers hér
á landi,“ segir hún. Valgerður segir
jafnframt að þegar fyrirtækið tók
ákvörðun um kaup á þýska fyrirtæk-
inu VAW hafi það ekki lengur getað
staðið við fyrirfram ákveðnar tíma-
áætlanir um byggingu álvers hér.
Röng ákvörðun um Katar
Hansen segir að í stað byggingar
álvers á Reyðarfirði hafi Norsk
Hydro lagt í 4,8 milljarða dollara
fjárfestingu í álverksmiðju í Katar
sem ekki hafi verið rétt. „Á Islandi
er öll orkan umhverfisvæn en í
Katar notar Norsk Hydro gas sem
orkuuppsprettu,“ segir Hansen.
Þá nefnir hann einnig að ef til vill
henti allt umhverfi á Island norska
fyrirtækinu betur, meðal annars
vegna líkrar menningar og þjóðar.
„íslendingar hugsa eins og við, eru
bæði vinnufúsir og umhverfis-
vænir,“ segir Hansen.
Áður en ár var liðið frá því að
Norsk Hydro hætti við að reisa hér
álver hófst Alcoa handa við stórfram-
leiðslu í álveri sínu á Reyðarfirði. Val-
gerður segir að samningaviðræður
við Alcoa hafi ætíð gengið mjög
vel. „Sama dag og stjórnvöld slitu
samningi við Norsk Hydro hófust
samningaviðræður við Alcoa, sem
náði á ótrúlega skömmum tíma að
fara inn í þá tímaáætlun sem Norsk
Hydro hrökk frá,“ segir hún.
MARKAÐURINN I GÆR
”“““” • Mest viðskipti í Kauphöll
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á Islandi, 15. ágúst 2007 qmX á Islandi voru með bréf
Víðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi Viðskipti Tllboð í lok dags:
Félðg í úrvatsvfsitölu verð brayting viðsk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala
Atorka Group hf. 8,98 -<144% 15.8.2007 12 28.998.144 8,95 9,00
Bakkavör Group hf. 65,60 -1,35% 15.8.2007 32 126.900.505 64,70 65,60
Exista hf. 31,85 -3,19% 15.8.2007 92 510.609.568 31,75 31,85
FL Group hf. 25,50 -1,54% 15.8.2007 73 621.119.171 25,50 25,60
Glitnir banki hf. 27,50 -1,61% 15.8.2007 115 1.723.045.978 27,50 27,60
Hf. Eimskipafélag islands 39,55 -1,00% 15.8.2007 9 23.924.349 39,30 39,45
lcelandair Group hf. 26,60 -»,49% 15.8.2007 22 156.407.103 26,40 26,60
Kaupþing banki hf. 1099,00 ■0,18% 15.8.2007 264 7.777.972.248 1097,00 1099,00
Landsbanki Islands hf. 38,30 -1,54% 15.8.2007 134 2.224.481.935 38,30 38,45
Mosaic Fashions hf. 17,50 - 13.8.2007 - .
Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 19,40 -2,02% 15.8.2007 118 1.017.996.826 19,30 19,40
Teymi hf. 5,59 ■0,36% 15.8.2007 1 447.200 5,59 5,64
össur hf. Önnur bréf á Aðallista 105,00 0,48% 15.8.2007 26 23.930.657 104,00 105,50
365 hf. 3,02 0,00% 14.8.2007 - - 2,98 3,02
Actavis Group hf. ffNULLl - 20.7.2007 - -
Alfescahf. 5,84 0,52% 15.8.2007 6 8.202.200 5,78 5,84
Atlantic Petroleum P/F 1072,00 -1,02% -1,55% 15.8.2007 8 4.851.550 1072,00 1079,00
Eik Banki 699,00 15.8.2007 14 9.902.978 693,00 695,00
Flaga Group hf. 1,71 9.8.2007 - - 1,70 1,72
Feroya Bank 228,00 -2,98% 15.8.2007 10 4.217.702 210,00 229,50
lcelandic Group hf. 5,95 13.8.2007 - - 5,90 5,98
Marel hf. 92,30 -1/19% 15.8.2007 7 48.200.545 92,20 92,70
Nýherji hf. 21,90 9.8.2007 - - 21,90
Tryggingamiðstööin hf. 39,80 0,00% 15.8.2007 2 9.950.000 39,80 40,00
Vinnslustöðin hf. 8,50 25.7.2007 - -
Rrst North á íslandi Century Aluminium Co. 2930,00 -5,48% 15.8.2007 12 107.967.000 2900,00 2935,00
HB Grandi hf. 11,00 18.7.2007 - - 11,50
Hampiöjan hf. 6,50 20.6.2007 - -
Kaupþings, eða fyrir 7,77 millj-
arða. Næstmest viðskipti voru
með bréf í Landsbankanum eða
fyrir 2,24 milljarða króna.
• Mesta lækkun dagsins í
OMX var á gengi bréfa Century
Aluminium, eða 5,48%. Bréf
Icelandair Group lækkuðu um
4,49% og bréf Exista lækkuðu
um 3,19%.
• Úrvaisvísitalan lækkaði um
1,22% í gær og var lokagildi
hennar 7.874,66 stig.
• fslenska krónan veiktist
um 0,55% í gær. Við opnun í
morgun var vísitalan 121,45, en
við lokun var hún 122,60.
Veist þú hvaó er ad gerast
á markadnum í dag?
MARKAÐSVAKTIN
0
mentis
HUGBUNAÐUR
OKEYPIS REYNSLUTIMI
í 14 daga á www.mentis.is
Miaosoft-
CEBTIFIED
Partncr
Mentís Sigtúni 42 105 Reykjavík Sími 570 7600 info@mentis.is