blaðið - 16.08.2007, Síða 17
blaóió
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2007
17
Kreditkortavelta
Samdráttur
milli mánaða
Heildarvelta vegna kredit-
kortanotkunar nam 23,6
milljörðum króna í júlí. Það
er lítillega minni velta en í
mánuðinum á undan, en hins
vegar nemur raunaukning
kreditkortaveltu 10 pró-
sentum frá sama mánuði í
fyrra. Hefur aukningin milli
ára ekki verið jafn mikil frá
aprílmánuði síðastliðnum.
Erlend kortavelta jókst um
tæp 24 prósent milli ára að
raunvirði, en 7 prósenta raun-
aukning varð á innlendri kred-
itkortaveltu á tímabilinu.
mbl.is
Bandaríkin
Lánin frekar
til hvítra
Þeldökkir Bandaríkjamenn
og Bandaríkjamenn af
spænskum uppruna hafa mun
meiri áhyggjur en hvítir sam-
landar þeirra af því verðfalli
sem orðið hefur á bandaríska
fasteignamarkaðnum. Þá eru
þeir þrisvar sinnum líklegri
en hvítir Bandaríkjamenn til
að segja að það sé orðið erfið-
ara að fá húsnæðislán sam-
þykkt. Þetta eru meðal annars
niðurstöður könnunar sem
Reuters/Zogby hefur gert.
í kjölfar niðursveiflunnar sem
hefur orðið á bandarískum
fasteignalánamarkaði hafa
lánveitendur nú þurft að
herða lánaskilyrðin og svo
virðist sem minnihlutahópar
í Bandaríkjunum finni mjög
fyrir breyttum aðstæðum á
markaðnum. mbi.is
Skjálfti í Asíu
Meiri vandi
framundan
Talsverðar lækkanir voru á
helstu hlutabréfamörkuðum
í Asíu í gær eftir lækkun vest-
anhafs í fyrrakvöld. Óttast
menn að það versta sé ekki
búið og þrátt fyrir að seðla-
bankar hafi víða sett aukið
fé í umferð þá dugi það ekki
til þar sem fjárfestar vilja
losa fé sitt og færa í öruggari
fjárfestingu. 1 Tókýó lækkaði
Nikkei-vísitalan um 2,19 pró-
sent og hefur ekki verið lægri
í átta mánuði. Á sama tíma
styrktist jenið gagnvart evru
og Bandaríkjadal.
AFP fréttastofan hefur eftir
verðbréfamiðlurum að
eftirspurn eftir ríkisskulda-
bréfum hafi aukist. mbi.is
Iðnaðarráðherra spenntur fyrir komu Becromal
Teningnum kastað og ekki aftur snúið
1
'5
« 1......... %
Krossanes Fyrirbugað er að
aflþynnuverksmiðjan verði reist
á Krossanesi við Akurevri.
Italska fyrirtækið Becromal
undirritaði í gær samning við
Landsvirkjun um raforkukaup til
framleiðslu aflþynna, en fyrirtækið
hyggst reisa slíka verksmiðju á Ak-
ureyri. Orkuþörf verksmiðjunnar
er 640 gígavattstundir á ári sem er
fimm sinnum meira en Eyjafjarðar-
svæðið notar árlega. Framkvæmdir
við byggingu verksmiðjunnar hefj-
ast innan skamms og mun fyrsti
áfanginn skapa hátt í 50 störf.
Áætlað er að þeim störfum fjölgi
þegar fram líða stundir.
Ossur Skarphéðinsson iðnaðar-
ráðherra bauð Becromal velkomið
til landsins fyrir hönd íslensku ríkis-
stjórnarinnar í ræðu sem hann flutti
við undirritunina. Hann áætlar að
útflutningsverðmæti framleiðslu
aflþynnuverksmiðjunnar verði sam-
bærilegt við það sem fiskvinnslufyr-
irtækin á Akureyri afla í dag. „Sem
iðnaðar- og orkuráðherra lýsi ég
sérstaklega yfir ánægju með að verk-
efnið skuli vera komið á þetta stig.
Nú er teningnum kastað og væntan-
lega verður ekki aftur snúið,“ sagði
Össur. Hann fagnaði jafnframt ný-
yrðinu aflþynna, en hingað til hefur
enska orðið capacitor verið notað.
Becromal framleiðir rafhúðaðar
aflþynnur sem eru mikið notaðar í
rafþéttaiðnaði. Þær eru sérstaklega
eftirsóttar í Asíu þar sem þær eru
notaðar við gerð rafmagnstækja. Fyr-
irtækið er það stærsta á þessu sviði
í Evrópu og er með starfsemi í Sviss,
Noregi, Bandaríkjunum og Ítalíu.
,Það hefur löngum verið áhugi á að
finna leiðir til þess að innleiða hér úr-
vinnsluiðnað úr áli, sem gæfi okkur
kost á að auka fjölbreytni áliðnaðar
og skapa tugi nýrra hátæknistarfa
á því sviði. Framleiðsla aflþynna er
slíkur iðnaður, enda þótt ekki verði
notast við íslenskt ál í fyrstu,“ segir
iðnaðarráðherra. magnus@bladid.net
Fáðu meira fyrir ferðina
Velkomin í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Aukið rými og bætt þjónusta í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Umfangsmiklai breytingar hafa staðið yfír á Flugstöð Leifs Eiríkssonar síðustu misserin. Vershmar- og
þjónusturýmið hefur ríflega tvöfaldast og fjölmargir nýir rekstraraðilar bæst í hópirm. Veitingastöðum
fjölgar jafnt og þétt og úrval verslana og vöruframboð hefur aldrei verið glæsilegra.
Fáðu meiia - mættu fyrr!
Víð hvetjum alla farþega til þess að mæta tímanlega og njóta alls þess sem Flugstöð Leifs Eiríkssonar hefur
upp á að bjóða. Hægt er að nálgast upplýsíngar um þjónustu flugstöðvarinnar á airportJs.
Munið! Irmrítun hefst 2 tímum fyrir brottför!
fcrð til fjár
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR