blaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 18
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2007
blaóió
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@bladid.net
Ef þú hefur hæfileika skaltu nota þá á
allan mögulegan hátt. Spreðaðu hæfi-
leikunum eins og milljónamæringur sem
ætlar sér að verða gjaldþrota. Brendan Francis
AFMÆLII DAG
Madonna söngkona, 1958
Shimon Peres
forsætisráðherra, 1923
Charles Bukowski skáld, 1920
METSÖLULISTI
Innlendar og þýddar bækur
1. Leyndarmálið
Rhonda Byrne
2. Made in lceland
Sigurgeir Sigurjónsson
3. Lost in lceland
Sigurgeir Sigurjónsson
4. Viltu vinna milljarð? - kilja
Vikas Swarup
5. Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Flosseini
6. Svartfugl - kilja
Gunnar Gunnarsson
7. Tvíburarnir - kilja
Tessa de Loo
8. Móðurlaus Brooklyn - kilja
Jonathan Lethen
9. Ókei bæ! - kilja
Flugleikur Dagsson
10. Saffraneldhúsið - kilja
Yasmin Crowther
Listinn er gerður út frá sölu í Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar dagana 08.08 - 14.08.
METSÖLULISTI
Erlendar bækur
1. Flarry Potter & the Deathly
Hallows J.K. Rowling
2. The Secret
Rhonda Byrne
3. The Water's Lovely
Ruth Rendell
4. A Place Called Here
Cecelia Ahern
5. Last Testament
Sam Bourne
6. A Thousand Splendid Suns
Khaled Hosseini
7. The Bourne Ultimatum
Robert Ludlum
8. Hide
Gardner, Lisa
9. Blind Willow, Sleeping Woman
Haruki Murakami
10. Liseys Story
Stephen King
Listinn er gerður út frá sölu í Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og
menningar dagana 07.08 - 13.08.
LAUGARDAGAFt
ORÐLAUSTÍSKA
Auglysingasiminn er
510 3744
Gel gallerí býður gestum og gangandi að skapa sín eigin málverk
Málverk fólksins
Anna Sigríður Pálsdóttir og Aron Bergmann „Þott við-
komandi telji sig hafa lokið við að mála mynd þá geta aðrir
komið og bætt við og þróað hana þannig áfram."
Anna Sigríður Pálsdóttir
og Aron Bergmann opna
dyr Gel gallerís upp á
gátt á Menningarnótt
og bjóða fólki að mála
þar sínar eigin myndir.
Myndirrnar verða siðan
boðnar til sölu.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolþrun@þladid.net
Reykjavík mun iða af lífi á Menn-
ingarnótt nú á laugardaginn, 18.
ágúst. Margir listviðburðir verða í
boði og einn sá óvenjulegasti verður
í Gel galleríi á Hverfisgötu. Eigend-
urnir, Aron Bergmann og Anna
Sigríður Pálsdóttir, bjóða fólki,
ekki síst börnum, að koma inn, fá
þvi málningu og pensla og gefa því
tækifæri til að mála myndir á striga.
,Við opnum klukkan tvö og lokum
klukkan tíu um kvöldið. Hér verða
fjórtán strigar, mismunandi að
stærð sem fólk fær að mála á. Þetta
á að vera flæði allan tímann, engin
mynd verður talin fullgerð. Þótt
viðkomandi telji sig hafa lokið við
að mála mynd þá geta aðrir komið
og bætt við og þróað hana þannig
áfram. Ef þeim sem kemur inn líst
ekki nógu vel á eitthvert verk þá má
hann mála yfir það,“ segja Aron og
Anna Sigríður.
Málverkin sett í sölu
Þau segja að þessi hugmynd
hafi vaknað eftir að þau héldu árið
2005 viku þar sem fólki var boðið
að koma inn í galleríið og mála
beint á vegginn. „Okkur fannst
leiðinlegt að geta ekki átt þau verk
heldur þurfa að mála yfir þau. Ekki
síst þess vegna völdum við að hafa
þennan hátt á núna,“ segja þau.
Næstkomandi mánudag, þriðjudag
og miðvikudag getur fólk komið
inn í galleríið og keypt verkin. Fast
verð verður á hverri mynd en að
sjálfsögðu er heimilt að bjóða meira
vilji menn það. Ágóðinn rennur til
samtakanna Blátt áfram.
Aron og Anna Sigríður stofn-
uðu galleríið í septembermánuði
2004. „Galleríið er opið þeim
listamönnum sem vilja sýna. Við
spyrjum ekki um menntun lista-
mannanna en viljum auðvitað sjá
verkin áður en þau eru sett upp.
Við neitum ekki oft að taka verk
til sýningar en þó hefur það komið
fyrir. Yfirleitt fáum við mjög góð
verk hingað inn.“ Þau lána salinn
til sýninga án endurgjalds og taka
ekki prósentur af sölu málverk-
anna. „Ef viðkomandi listamaður
selur vel getur hann styrkt galleríið
en yfirleitt fáum við mynd og erum
hæstánægð með það,“ segja þau.
Óvenjuleg blanda
Aron er menntaður myndlistar-
maður og lærði í Flórens á Ítalíu.
„Það var mikil upplifun að búa í
borg þar sem Leonardo da Vinci
gekk um götur og á hverjum
morgni gekk ég framhjá húsinu
hans,“ segir hann. „í náminu hafði
ég mjög gaman af að læra gamla
tækni til að geta búið til nýja hluti.
Það er nokkuð sem vekur áhuga
minn. Myndlistarmaðurinn Odd
Nerdrum er í miklu uppáhaldi
hjá mér vegna þess að hann kann
alla gömlu tæknina en breytir
viðfangsefnum og leikur sér með
formið á sérstaklega skemmtilegan
hátt. Sjálfur reyni ég að blanda því
gamla og nýja saman. 1 haust stefni
ég að því að halda sýningu þar sem
ég tek gamlar íslenskar ljósmyndir
og geri þær að mínum eigin.“
Gel gallerí er rekið í Hárstofunni
Gel sem Aron og Anna Sigríður
eiga. Anna Sigríður starfar þar sem
klippari. Hún segir þessa óvenju-
legu blöndu af listagalleríi og hár-
greiðslustofu ganga ljómandi vel
upp. „Þarna erum við allan daginn
með viðskiptavini sem skoða sýning-
arnar í leiðinni. Svo kemur hingað
mikill fjöldi gagngert til að skoða
sýningarnar. Við reynum að hafa
þennan stað heimilislegan og skapa
notalegt og létt andrúmsloft.“
MENNINGARMOLINN
Heimurinn syrgir Elvis
Á þessum degi árið 1977 var
komið að Elvis Presley látnum
á heimili hans í Memphis, Tenn-
essee. Heimurinn grét. A hverju ári
fara milljónir manna í pílagríms-
för til Graceland, búgarðs Presleys,
til að votta honum virðingu sína.
Nú, þegar þrjátíu ár eru liðin frá
láti hans, verður hans minnst víða
um heim.
Presley kunni ekki að höndla
velgengnina. Eftir því sem frægð
hans óx sökk hann æ dýpra í eitur-
lyfjaneyslu og ofát. Hann hélt síð-
ustu tónleika sína 25. júní 1977. Sex
vikum seinna var hann látinn, ein-
ungis 42 ára gamall. Hann var graf-
inn í Graceland sem einkadóttir
hans, Lisa Marie Presley, erfði.