blaðið - 16.08.2007, Qupperneq 20
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2007
4
blaöiö
LÍFSSTÍLL48K
48k@bladid.net
Þar á að vera sannkölluð útópía kapítalismans
og einstaklingsframtaksins en um leið og leik-
maður stígur fæti í borgina sér hann að eitthvað
hefur farið úrskeiðis.
KÍLÓBÆT
• Nýtt frá Sony Ericsson Það er
auðvelt að gleyma símaframleið-
endum í öllum
spenningnum
vegna iPhone,
en Sony Erics-
son kynnti
nýjan síma í
Cybershot-ser-
íunni. K770-
síminn er að-
eins 14 mm þykkur en státar af 3,2
mp myndavél, 1,9 tommu skjá og
LED-ljósi til að lýsa upp myndefnið.
• HDMI í Xboxið Eftir þó nokkra
bið virðist svo vera sem Microsoft
hafi loksins
ákveðið að
skella HDMI-
tengjum i
fleiri Xbox3óo-
tölvur, en
hingað til hafa
Elite-vélarnar
verið þær einu
sem státa af slíku tengi. Premium-
útgáfan mun nú fá HDMI-tengi en
ódýrasta Core-útgáfan verður enn
HDMI-laus.
• Hættuleg batterí Rafhlöðu-
framleiðendur hafa ekki átt sjö
dagana sæla undanfarið, því vörur
þeirra hafa átt það til að ofhitna
og jafnvel springa. Tölvufyrirtæki
á borð við
Apple og Hew-
Iett Packard
lentu í miklum
vandræðum
vegna þess
og nú er
Nokia nýjasta
fórnarlambið.
BL-5C rafhlöður frá Nokia sem
framleiddar er milli 2005 og 2006
eru taldar hættulegar. Nokia þarf
nú að standa sig í stykkinu við
að skipta þeim út en talið er að
yfir 46 mÚljónir eintaka séu á
markaðnum.
• Tæknilegur baðfatnaður
Kóreska fyrirtækið JWin kynnti
á dögunum
allsérstakan
sundfatnað
sem mun án efa
heilla marga
upp úr skónum.
Um er að ræða
bikinítoppa
sem búið er að festa á stjórntæki
fyrir iPoda. Konur geta því skipt
um lög, hækkað og lækkað að vild
með því einu að snerta bikinítopp-
inn á réttum stöðum. Þessi stjórn-
tæki eru þráðlaus en það fylgir ekki
sögunni hvar skuli geyma iPodinn.
• Stórgróði Það er ekki hægt að
segja annað en að Microsoft-fyr-
irtækið sé einstaklega bjartsýnt
varðandi sölu
á hinum vænt-
anlega Halo
3. Fyrirtækið
vonast til þess
að ná að slá
sölumetið sem
forveri leiksins
setti árið 2004 þegar leikurinn
rakaði saman 125 milljónum
dollara á fyrsta sólarhring í sölu.
Samkvæmt Chris Di Cesare hjá
markaðsdeild Microsoft stefna
menn á að græða um 155 milljónir
dollara á fyrsta söludegi.
• DS á PSP Hugvitssamir hakk-
arar í Japan hafa nú fundið upp
leið til að keyra Nintendo DS-leiki
áPSP.Þó
svo að svona
háttalag sé
kolólöglegt
þá verður að
játa að þetta er
býsna mikið
afrek. Það er þó einn stór galli við
þennan DS-hermi og það er sú
sorglega staðreynd að leikirnir
keyra á fjórum römmum á sek-
úndu sem er óheyrilega hægt.
Playstation 3
þolir frost
Á meðan Xbox3óo-leikjatölvan
glímir við hinn „Rauða hring
dauðans" eins og hann er kall-
aður hafa aðdáendur annarra
leikjatölva lagt ýmislegt á sig
til að athuga hvort álíka gallar
leynist í djásninu þeirra. í
þeim tilgangi tóku nokkrir
aðdáendur Playstation 3 sig til
á dögunum og ákváðu að láta
reyna á úthald vélarinnar undir
ýmsum öfgakenndum kring-
umstæðum. „Rannsakendur“
spiluðu á tölvuna i 108 klukku-
stundir samfellt í þremur mis-
munandi umgjörðum. Fyrst var
og funa
spilað á tölvuna inni á venjulegu
heimili, síðan í kælibíl þar sem
hitastigið rokkaði frá 10 gráða
hita niður í 17 stiga frost og að
lokum var tölvan sett í sánu
þar sem hún þurfti að þola allt
að 48 gráða hita. Niðurstöður
þessarar óformlegu rannsóknar
komu aðstandendum hressilega
á óvart því tölvan virtist lifa af
þessa miklu þrekraun. Að frátal-
inni brunalykt eftir 64 klukku-
stundir i næstum 40 stiga heitri
sánu og rakaskemmd í utan-
áliggjandi snúru virtist ekkert
bita á tölvuna.
Styttist í Bioshock
Neðansjávarútópía
fer til fjandans
Í öllum æsingnum yfir
leiknum Halo 3 væri auð-
velt að halda að það væri
eini stórleikurinn sem
væri væntanlegur fyrir
Xbox 360. Þó er til annar
leikur sem margir hafa
haft augastað á lengi,
hinn magnaði Bioshock.
Eftir Viggó Ingimar Jónasson
viggo@bladid.net
Bioshock gerist árið 1960 og hefst
leikurinn á því að aðalsöguhetja
leiksins, Jack, lendir í flugslysi á hafi
úti en nær að halda lífi og leitar skjóls
í vita sem stendur úti á miðju ballar-
hafi. 1 þessum vita finnur hann leið-
ina til neðansjávarborgarinnar Rapt-
ure sem sérvitur auðkýfingur hefur
byggt til að safna saman öllu besta
fólkinu á jörðinni, það er að segja
fólki sem er honum þóknanlegt. Þar
á að vera sannkölluð útópía kapítal-
ismans og einstaklingsframtaksins
en um leið og leikmaður stígur fæti
í borgina sér hann að eitthvað hefur
farið úrskeiðis.
Borgarastyrjöld milli tveggja fylk-
inga út af efni sem er kallað ADAM
hefur lagt mikið af borginni í rúst og
íbúarnir eru allir annaðhvort dánir
eða skelfilega stökkbreyttir, vegna
notkunar á hinu eftirsótta efni.
Skotleikur hins hugsandi manns
Leikurinn spilast sem fyrstu per-
sónu skotleikur en þó verður seint
sagt að Bioshock sé hefðbundinn
leikur í þeim geira. Leikmenn geta
notað ADAM-efnið til að uppfæra lík-
ama sinn og fá þannig nýja hæfileika
og vopn. Þar að auki eru leik-
menn óspart hvattir til að
nota ímyndunaraflið þegar
barist er við hina fjölbreyttu óvini í
leiknum og fylgir það með að besta
leiðin er ekki alltaf að dæla í þá byssu-
kúlum, enda verða skotfærin víst á
köflum af skornum skammti. Enn
fremur munu leikmenn geta safnað
saman brotajárni víða um neðan-
sjávarborgina og það „rusl“ er síðan
hægt að nota til að búa til skotfæri,
gildrur og fleira.
Frábærar móttökur
Fyrirtækið Irrational Games sem
gerir leikinn er kannski mörgum
vel kunnugt en það hefur gert leiki
á borð við System Shock. Framleið-
endur leiksins hafa sagt að Bioshock
sé andlegur arftaki System Shock
og er margt í uppbyggingu og anda
leiksins sem ber sterkan keim af
hinni geysivinsælu leikjaseríu. Leik-
urinn hefur fengið hreint út sagt
frábærar móttökur víða um heim
og sem dæmi má nefna að Official
Xbox Magazine UK gaf leiknum
fullt hús stiga og lét fylgja með að
söguþráðurinn væri framúrskar-
andi góður og að hljóðið í
leiknum væri stórbrotið. Þar
að auki gaf tímaritið PC Zone
leiknum 96 prósent í einkunn og lof-
aði leikinn í hástert.
Þeir sem hafa hug á að kaupa
sér leikinn munu hafa úr nægu að
velja því leikurinn verður gefinn
út í fimm mismunandi útgáfum.
Þremur fyrir Xbox3óo og tveimur
fyrir PC. Bioshock verður gefinn út
á Xbox3óo og PC þann 24. ágúst.
GIGABÆT
Alltaf að þvælast fyrir
Harry Potter: The Order of the Pho-
enix þjáist af bíómyndaeinkenninu
ógurlega, þ.e. gjörsamlega enginn
metnaður virðist hafa verið lagður í
leikinn heldur bara einhverju skellt
saman í hvelli til að nýta vinsældir
myndarinnar og í þessu tilfelli
bókanna.
í þessu tilfelli hafði ég undir
höndum tvær útgáfur af sama leik,
eina á Playstation 3 og svo aðra á
Nintendo Wii. Þrátt fyrir að vera
sami leikur á allan hátt er spilun
leiksins gjörólík á tölvunum. Ástæða
þess er að sjálfsögðu fjarstýring Wii-
tölvunnar. Það bjargar einfaldlega
leiknum að spila hann á Wii, því
maður fær að veifa fjarstýringunni
eins og hálfviti til að framkvæma
galdrana. Grafíkin í Playstation 3-
útgáfunni er óneitanlega betri en á
Wii, en það þýðir þó ekki að hún sé
sérlega flott.
Spilun leiksins er hálfsorgleg, þar
sem maður eyðir mestum hluta
leiksins f að hlaupa um Hogwarts
í erindagjörðum fyrir fólk og þess
á milli leysa einhverjar smáþrautir
sem engu öðru hlutverki gegna en
að lengja leikinn. Slíkt ætti að vera
algerlega óþarft, því bók sem hefur
slegið jafn rækilega í gegn og Harry
Potter ætti að hafa meira en nóg efni
til að gera leikinn spennandi. En þar
liggur hundurinn nefnilega grafinn.
Eftir að hafa ráðfært mig við Harry
Potter-sérfræðing kom í ljós að leik-
urinn fylgir ekld söguþræði bókar-
innar heldur bíómyndinni.
Ron og Hermione virðast ekki
vera sérlega góðir vinir Harrys, því
þau gera allt sem þau geta til að vera
fyrir manni í leiknum. Það skiptir
ekki máli hvar maður er eða hvert
maður ætlar, einhvern veginn tekst
þeim að standa fyrir manni. Hermi-
HARRY POTTER:
THE ORDER OF THE PHE''“,'X
Nintendo Wii
^yföu^llurT^ldurshópun^/ * ^
SPILUN: 65%
ENDING: 75%
Elías R. Ragnarsson elli@bladid;net
=70%
one hefur líka mjög gaman af því að
minna mann á það augljósa, eins og
hvernig á að telja upp á fimm.
Leikurinn er þegar öllu er á botn-
inn hvolft langdreginn og ekkert sér-
lega skemmtilegur. Hogwarts-kastal-
inn er stór og mjög vel gerður en það
verður á sama tíma stór galli þar sem
allt of stórum hluta leiksins er varið í
að hlaupa um kastalann.