blaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 22
22
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2007
blaðió
LÍFSSTÍLLKONAN
konan@bladid.net
Lífið í sveitum norðurhluta Namibíu er að mörgu
leyti í takt við hugmyndir okkar um Afríku, enda
stunda margir sjálfsþurftarbúskap og hafa tak-
markað aðgengi að menntun og annarri þjónustu.
Kvennaverk-
efni styrkt
Menningar- og minningar-
sjóður kvenna auglýsir eftir
styrkumsóknum fyrir kvenna-
verkefni, það er, verkefni
unnin af konum og sem fjalla
um málefni kvenna. Að þessu
sinni verður lögð áhersla á rit-
störf, ritgerðir eða rannsóknir,
einkum um þjóðfélagsmál er
varða konur. Einnig koma til
greina ferðastyrkir til fram-
haldsrannsókna á því sviði.
Úthlutað verður 100.000
krónum og umsóknareyðu-
blöð má nálgast á heimasíðu
Kvenréttindafélags íslands,
krfi.is. Umsóknir skulu berast
Menningar- og minningar-
sjóði kvenna fyrir 5. september.
- Jafnréttiog
einkageirinn
Alþjóðalánastofnunin (IFC
- International Finance Cor-
poration) óskar eftir áhuga-
sömum til að taka þátt í rit-
gerðasamkeppni um jafnrétti
kynjanna við uppbyggingu
einkageirans í þróunarlönd-
unura. Hlutverk stofnunar-
innar er að berjast gegn fátækt
og stuðla að efnahagslegri
framþróun með fjárfestingum
og lánum til uppbyggingar
á fyrirækjum í fátækum
löndum. Ritgerðirnar skulu
vera á ensku og að hámarki
2500 orð að Iengd, en nánari
upplýsingar fást á vefsíðum ut-
anríkisráðuneytisins, utn.stjr.
is, og á vefsíðu Alþjóðalána-
stofnunarinnar, ifc.org.
" Brjóstgjöfin
mikilvæg
Brjóstagjöf innan við klukku-
tíma eftir fæðingu getur
komið í veg fyrir allt að 1,3
milljónir tilfella af ungbarna-
dauða á ári í þróunarlönd-
unum að mati UNICEF, Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Brjóstamjólk veitir mikilvæg
næringarefni auk þess sem
_ húneflirvarnirgegnýmsum
banvænum sjúkdómum.
Samkvæmt rannsókn
víetnamskra vísindamanna
-• fá aðeins 12 prósent þarlendra
barna eingöngu brjóstamjólk
á fyrstu sex mánuðum ævi
sinnar. Vísindamenn telja
að með aukinni áherslu á
brjóstagjöf mætti fækka dauðs-
föllum ungbarna um allt að 22
prósent.
KONA VIKUNNAR
Það hefur varla farið framhjá mörgum að
Menningarnótt verður í Reykjavík næstkomandi
laugardag. Það er því í nógu að snúast hjá Sif
Gunnarsdóttur, verkefnisstjóra viðburða hjá Höf-
uðborgarstofu, sem vonar að sólin skíni og allir
skemmti sér vel þennan umrædda dag.
Hvað œtlaðirþú að verða þegarþú varst lítil?
Ótrúlega skemmtileg og vinsæl - og vinna sem
blaðamaður.
Efekki hér, þá hvar? Hmmm, London, París,
Róm ... New York? En bara ef fjölskyldan væri til
í að koma með.
Hvað er kvenlegt? Að vera kona (með flottan
varalit).
Er munur á körlum ogkonum ogefsvo er hverer
hann? Það er munur, já - en það er meiri munur
á fólki.
Er fullu jafnrétti náð? Nei, því miður.
Hvað skiptirþig mestu máli í lífinu? Akkúrat
núna - að sólin skíni á Menningarnótt og allir
skemmti sér vel. Á öðrum tímum að stórfjöl-
skyldan sé heilbrigð og glöð.
Helstu fyrirmyndir? Svo margar. Ég finn að ég lít
upp til þeirra kvenna sem ég upplifi sem heiðar-
legar og sterkar - eins og mamma til dæmis.
Ráð eða speki sem hefur reynstþér vel? Þegar
allt stefnir í flækju og vandræði er ráð að leggja
málið aðeins frá sér og koma að því ferskur með
nýjar lausnir eftir nóttina - eða svo.
Uppáhaldsbók? Mér þykir afskaplega vænt um
Ódauðleikann eftir Kundera og ég veit ekki alveg
afhverju.
Draumurinn þinn? Hinn eilífi sannleikur Thor-
björns Egner - að öll dýrin í skóginum séu vinir.
UNIFEM vekur athygli á málefnum kvenna í þróunarlöndunum
Þróunaraöstoö
gengur í báöar áttir
íslendingarfá um helgina
tækifæri til að kynnast lífi
og starfi alls kyns kvenna
í „Langtíburtistan" í
máli og myndum í boði
UNIFEM.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Meðlimir UNIFEM á íslandi hafa
safnað saman ljósmyndum, minja-
gripum, örsögum og tónlist frá Lang-
tíburtuistan og ætla að deila öllu
þessu með gestum og gangandi næst-
komandi laugardag.
„Okkur langaði að virkja með-
limina og fá þá til að senda okkur
minjagripi eða myndir af konum í
þróunarlöndunum. Viðbrögðin létu
ekki á sér standa og fólk var duglegt
að skila inn til okkar munum frá
hinum og þessum löndum en aðal-
lega þó myndum. Þær ætlum við
að sýna á laugardaginn á svona sli-
des-myndum," segir Sjöfn Vilhelms-
dóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á
íslandi. Hún hefur töluverða reynslu
af störfum í þróunarlöndunum. „Ég
fór fyrst til Afríku árið 1992 og var þá
sjálfboðaliði á vegum Rauða kross ís-
lands við þróunarverkefni í Gambíu.
Síðan starfaði ég fyrir Þróunarsam-
vinnustofnun íslands í Namibíu í
rúm fjögur ár við grasrótarverkefni í
fátækum hverfum bæja við ströndina
og aðalmarkhópurinn var ómennt-
aðar konur sem voru að flytja úr sveit-
unum í þéttbýli til þess að freista þess
að bæta lífskjör sín. Lífið í sveitum
norðurhluta Namibíu er að mörgu
leyti í takt við hugmyndir okkar um
Afríku, enda stunda margir sjálfs-
þurftarbúskap og hafa takmarkað
aðgengi að menntun og annarri
þjónustu. í þessum verkefnum voru
byggð félagsheimili og skipulögð full-
orðinsfræðsla þar sem konum var
kennd enska, lestur og fleira. Enska
er opinbert tungumál í Namibíu en
það eru mörg önnur tungumál töluð
þar og í dreifbýli tala alls ekki allir
ensku. En til þess að fá vinnu getur
enskukunnátta verið nauðsynleg.
Reyndar er árangurinn af fullorð-
insfræðslu ekki alltaf mældur í því
hvort þær fá vinnu, enda er mikið
atvinnuleysi í Namibíu, en stundum
er sagt að ef þú menntir karlmann
UNIFEM-ÞRÓUNARLÖND
►
Ofbeldi gegn konum eykst
til muna á stríðstímum og í
kjölfar átaka
►
Um 2 milljónir stúlkna eru
umskornar á hverju ári
Ungar konur í Afríku á aldrin-
um 15-24 ára eru þrisvar sinn-
um líklegri til að smitast af
HlV/alnæmi en karlar á sömu
sióðum og á sama aldri
sértu að mennta einstakling, en ef þú
menntir konu sértu að mennta heila
fjölskyldu. Með því að gefa konum
tækifæri til að læra breytist viðhorf
þeirra til menntunar. Þær skila því
til barnanna og leggja meiri áherslu
á að þau stundi nám og klári skóla.
Komum á vitundarvakningu
UNIFEM á íslandi eru frjáls félaga-
samtök sem voru stofnuð til að styðja
starf UNIFEM sem er þróunarsjóður
kvenna hjá Sameinuðu þjóðunum.
„Okkar hlutverk er að vekja athygli á
stöðu og aðstæðum kvenna í þróunar-
löndunum og koma á vitundarvakn-
ingu um þau mál meðal almennings,
stjórnvalda og einkageirans. í rik-
ari löndum eins og Evrópulöndum,
Bandaríkjunum, Japan og fleiri eru
til landsnefndir UNIFEM sem eru,
líkt og við, frjáls félagasamtök, en
svo vinnur UNIFEM sitt starf í þróun-
arlöndunum og við sýnum því sam-
stöðu og stuðning, útskýrir Sjöfn.
Ýmislegt jákvætt líka
Á kvennaslóðum í Langtíburt-
istan, sem verður þemað í opnu húsi
UNIFEM á laugardaginn, verður þó
ekki einblínt á hið neikvæða. „Félags-
menn hafa tekið ýmsar myndir af
konum í Afríku, Suður-Ameríku og
Asíu við sin daglegu störf sem er afar
skemmtilegt að skoða. Ég hef alltaf
lagt á það áherslu að þróunaraðstoð
gengur í báðar áttir. Við í þessum rik-
ari löndum höfum kannski tækni og
fjármagn til að gefa til uppbyggingar,
en þau hafa á móti sögu og menn-
ingu til að deila með okkur. Þannig
er þetta flæði í báðar áttir, segir Sjöfn
að lokum.
Skrifstofa UNIFEM er við Lauga-
veg 42, á annarri hæð.