blaðið - 16.08.2007, Page 23
blaóið
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2007
23
Verri lífskjör en fyrir fall járntjaldsins
Sígaunar í Albaníu hafa alltaf
búið við fátækt og mismunun. En
þrátt fyrir að lífskjör hafi víðast
hvar batnað til muna í fyrrum Sovét-
ríkjunum eftir fall járntjaldsins árið
1991 hafa lífskjör albanskra sígauna-
kvenna versnað síðastliðin 16 ár.
Giftingaraldur þeirra hefur lækkað
umtalsvert og síaukinn fjöldi ungra
stúlkna fer aldrei í skóla.
Albanía var lengi vel fátækasta og
afskekktasta land Evrópu en und-
anfarin ár hefur hagvöxtur verið
hraður í landinu, sem hefur verið
að breytast úr kommúnistaríki í lýð-
ræðisríki með frjálsu hagkerfi. En sí-
gaunar hafa að mestu leyti orðið út-
undan við skiptingu auðs í landinu
og hefur það bitnað einna harðast
á konunum. Fyrir utan lágan gift-
Gott
gæsapartí
Svokölluð gæsa- og steggja-
partí eru orðin að sterkri hefð
hjá verðandi brúðhjónum hér
á landi sem víðar. Slík partí
geta tekið á sig ýmsar myndir
og keppast vinir brúðhjón-
anna jafnan við að skipuleggja
sem eftirminnilegust partí á
síðustu dögunum fyrir stóra
daginn. Hefðin er sú að ein-
ungis karlmenn fá að mæta í
steggjapartí og einungis konur
í gæsapartí.
Konur sem eru að skipuleggja
gæsapartí fyrir sínar bestu
vinkonur ættu að kíkja á vef-
síðuna bachelorettepartyfun.
com. Þar er hægt að fá alls
kyns varning sem er sérstak-
lega ætlaður slíkum partíum,
jafnt sakleysislegum sem
klúrum.
Bakteríuvæn-
ar skrifstofur
Vinnubásar og skrifstofur
kvenna eiga til að safna í sig
mun fleiri sýklum og gerlum
en vinnubásar og skrifstofur
karla. Þetta er niðurstaða
bandarískrar rannsóknar
frá því fyrr á árinu. Vísinda-
menn gerðu rannsóknir á
fjölmörgum vinnustöðum og
komust að því að á meðalskrif-
borði væri um 40ofalt fleiri
bakteríur og sýklar en á með-
alklósettsetu. En meðalbakter-
íufjöldinn var um þrisvar til
fjórum sinnum meiri í vinnu-
umhverfi kvenna en karla og
voru skýringar meðal annars
taldar vera þær að konur
væru oftar með mat eða
snyrtivörur á skrifborðum
sínum. Engir hlutir væru þó
eins frjósöm gróðrarstía fyrir
bakteriur eins og seðlaveski
karlmanna.
ingaraldur þeirra þá er nánast enga
vinnu fyrir þær að hafa auk þess
sem dregið hefur úr aðgengi þeirra
að heilbrigðisþjónustu og menntun.
Á tímum Sovétlýðveldisins var sí-
gaunum hins vegar, eins og öðrum,
útvegað húsnæði og störf og þeir
skikkaðir í nám. Þá var meginþorri
almennings í Albaníu vissulega fá-
tækur - en munurinn var sá að lítill
sem enginn munur var á lífskjörum
sígauna annars vegar og annarra
hins vegar.
Samkvæmt tölum frá Alþjóða-
bankanum hafa um 48 prósent karla
og 57 prósent kvenna úr röðum si-
gauna í Albaníu aldrei farið í skóla,
þannig að ljóst er að misskipting
auðs bitnar harðar á konum en
körlum.