blaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 24
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2007
blaóiö
LÍFSSTÍLLMATUR
matur@bladid.net
'y
Ég ætlaði fyrst að vera sjálf í eld-
húsinu og var það alveg í fimmtán
mínútur eftir að ég opnaði.
Matur og
menning
Matarmenningu verður sinnt
með ýmsum hætti á Menning-
arnótt sem fram fer í Reykjavík
næstkomandi laugardag. Nokkrir
íbúar í Þingholtunum bjóða
gestum og gangandi að þiggja
kaffi og vöfflur milli kl. 14 og 16.
Hjálpræðisherinn býður einnig
upp á vöfflur og söng í Víkur-
kirkjugarði kl. 16-20.
í Norræna húsinu verða hinir sex
landfræðilegu hlutar heimsins
kynntir, meðal annars í gegnum
mat, tónlist og tísku. Efnt verður
til útimarkaðar með lífrænar
matvörur við verslun Yggdrasils
á Skólavörðustíg líkt og fyrri
ár. Bændur mæta með afurðir
sínar beint af akrinum. Maga-
dansmeyjar verða á staðnum og
óvæntar uppákomur.
Nokkru neðar við Skólavörðu-
stíg býður Ostabúðin gestum og
gangandi að smakka alls kyns
lostæti fyrir utan verslunina. Síð-
ast en ekki síst geta þeir sem eru
farnir að hlakka til jólanna tekið
forskot á sæluna og gætt sér á pip-
arkökum og jólaöli við Jólahúsið
á Skólavörðustíg kl. 13-14.
Kvöldverður
neðansjávar
Þeir sem vilja njóta þess að borða
við óvenjulega aðstæður ættu
að prófa veitingastaðinn Hilton
Ithaa Maldives á Rangali-eyju á
Indlandshafi. Staðurinn er fimm
metra fyrir neðan yfirborð sjávar
og þar sem veggir hans eru að
mestu úr gleri njóta gestir óvið-
jafnanlegs útsýnis um nærliggj-
andi kóralrif á meðan þeir snæða.
Innangengt er í staðinn úr öðrum
veitingastað hótelsins sem er
ofan sjávar.
Veitingastaðurinn er ekki stór
og tekur aðeins 14 manns í sæti.
Fiskréttir eru áberandi á matseðl-
inum sem er óneitanlega viðeig-
andi í þessu umhverfi en einnig
er þar að finna freistandi kjöt- og
grænmetisrétti. Megináherslan
er lögð á matargerð að hætti Mald-
íveyinga sem þó er undir sterkum
vestrænum áhrifum.
Verðið er í hærri kantinum og
mega kvöldverðargestir búast
við að greiða um og yfír 15.000
krónur fyrir máltíðina og eru
drykkir þá ekki með í reikn-
ingnum. Mælt er með því að
fólk panti með að minnsta kosti
tveggja vikna fyrirvara.
Helga Vala lætur af kaffihúsarekstri í Edinborgarhúsinu
Vantar
Helga Vala Helgadóttir
leggur áherslu á
afbragðsgott kaffi og
suðræna smárétti á Kaffi
Edinborg.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Laganeminn og leikkonan Helga
Vala Helgadóttir brá sér í nýtt hlut-
verk í sumar þegar hún tók að sér
rekstur Kaffi Edinborgar í hinu ný-
uppgerða Edinborgarhúsi á Isafirði.
Innan skamms sest hún aftur á
skólabekk en skilur kaffihúsið eftir
í góðum höndum.
„Eftir að prófum og kosningum
lauk í vor áttaði ég mig á því að ég
hafði alveg gleymt að sækja um sum-
arvinnu. Ég skrifaði eitthvað um
það á blogginu mínu og eigendur
Kaffi Edinborgar sáu það og fengu
þá gloríu að ég væri tilvalin í þetta
starf,“ segir Helga Vala um tildrög
þess að hún var fengin til verksins.
Hún þurfti ekki að hugsa sig
tvisvar um þegar henni var boðið
starfið. „Það vantar eiginlega alveg
í mig hikgenið og á stundum skyn-
semina líka. Mér fannst þetta mjög
spennandi því að ég er svo mikil
kaffihúsakona sjálf þannig að ég
hafði ákveðnar hugmyndir um
hvað mig vantaði hér fyrir vestan"
segir hún.
Suðrænir smáréttir
Helga Vala fékk að hafa nokkuð
frjálsar hendur með matseðilinn og
eigendur staðarins lögðu blessun
sína yfir hugmyndir hennar.
„Þetta gengur út á afbragðsgott
kaffi frá Kaffitári en svo þurfum við
auðvitað að borða einhvern mat og þá
bjóðum við aðallega upp á létta rétti.
Ég er voðalega hrifin af suðrænu
eldhúsi, til dæmis frönsku, ítölsku
og spænsku. Manni finnst notalegt
að fara og fá sér eitthvað létt eins og
rauðvínsglas og ólífur með eða osta-
disk eða eitthvað þess háttar. í hádeg-
inu erum við bara að bjóða upp á alls
konar samlokur,“ segir hún.
„Ég fékk afbragðskokk strax í
byrjun sem vinnur í hádeginu. Hann
er meðal annars með grænmetisrétti,
svolítið suðræna, og fisk, til dæmis
í mig hikgeniö
saltfisk (baccalau) og þess háttar en
líka íslenska kjötsúpu,“ segir Helga
Vala sem ætlaði upphaflega sjálf að
standa vaktina við eldavélina.
Korter í eldhúsinu
„Ég ætlaði fyrst að vera sjálf í eld-
húsinu og var það alveg í fimmtán
mínútur eftir að ég opnaði. Fimm-
tán mínútum eftir að ég opnaði var
staðurinn orðinn fullur af fólki og
neðri vörin á mér var farin að titra
af skelfingu. Þá hringdi ég í kokk-
inn og sagði: „Komdu strax. Þú ert
ráðin.“ Og hún hefur ekkert komist
heim til sin síðan," segir Helga Vala
og bætir við að það sé búið að vera al-
veg nóg að gera í allt sumar og mjög
gaman.
„Það fylgir því náttúrlega alveg
rosaleg vinna að koma þessu af stað.
Maður þarf einhvern veginn að finna
upp hjólið á öllum vígstöðvum.“
Á veturna stundar Helga Vala laga-
nám við Háskólann í Reykjavík og sest
því senn aftur á skólabekk en lætur af
kaffihúsarekstrinum. „Ég er að skilja
við ef svo má að orði komast," segir
hún. „Núna verð ég bara neytandi
á Kaffi Edinborg og hlakka mikið
til, eins afskiptasöm og ég get verið,“
segir Helga Vala sem skilur kaffihúsið
EDINBORGARHÚSIÐ
Húsið var reist árið 1907.
Það var opnað á ný í sumar
eftir talsverðar endurbætur.
Það hýsir margs konar
menningarstarfsemi.
eftir í góðum höndum. „Þórir Trausta-
son tekur við en hann hefur verið að
leysa af hjá Svæðisútvarpinu hér fyrir
vestan í sumar þannig að þetta er eins
konar útvarpsmannastaður,“ segir
Helga Vala Helgadóttir að lokum.
Leitin að bestu sultunni
Sultuáhugamenn og aðrir sæl-
kerar fjölmenna án efa á hina árlegu
sultukeppni á sveitamarkaðinum í
Mosskógum í Mosfellsdal sem fram
fer á laugardag. Þátttakendur geta
mætt með afurðir sínar milli 12 og
12:30 og verða þær síðan lagðar fyrir
dómnefnd sem kveður upp úrskurð
um kl. 15.
Keppnin hefur verið haldin í
nokkur ár og hefur þátttaka alltaf
verið góð að sögn Jóns Jóhanns-
sonar á Mosskógum sem rekur
markaðinn ásamt sveitungum
sínum. Sulturnarkoma enn fremur
víða að. „Við höfum fengið sultur
sendar utan af landi, þær hafa
komið úr Reykjavík, Hafnarfirði,
Grindavík og héðan og þaðan. Það
er alltaf skemmtileg stemning sem
skapast í kringum þetta,“ segir
hann.
Að vanda verður dómnefndin
skipuð valinkunnum sælkerum
en ekki lá ljóst fyrir hverjir myndu
taka að sér það vandasama verk
þegar blaðamaður ræddi við Jón.
„Við finnum alltaf einhverja," segir
hann. „Það er reiknað með að það
verði þrír dómarar í ár þannig að
menn geti rifist um hvað þeim
finnst.“
Þegar dómarar hafa kveðið upp
úr um hvaða sultur lenda í þremur
efstu sætunum gefst gestum síðan
tækifæri til að sannreyna gæði
þeirra á eigin bragðlaukum.
Miðað við reynslu fyrri ára má
búast við því að fjölbreytni og til-
raunagleði einkenni sultugerðina
að þessu sinni. „Það er ýmis til-
raunastarfsemi í gangi og ýmsar
blöndur og samsetningar sem
koma. Uppistaðan í þessu er samt
það sem vex núna eins og bláber,
krækiber, rabarbari, sólber og svo
framvegis," segir Jón.
Líkt og fyrri ár kennir ýmissa
grasa á sveitamarkaðinum. Þar er
aðallega í boði nýtt grænmeti úr
nágrenninu en einnig silungur úr
Þingvallavatni, rósir, súkkulaði og
sósur (til dæmis pestósósur) sem
heimamenn hafa lagað.
Markaðurinn er opinn á laugar-
dögum kl. 12-17 og vonast aðstand-
endur til að geta haldið hann til 22.
september.
Alvoru svertamarkaður Boðið er upp
á nýtt grænmeti, silung og sósur á sveita-
markaðinum í Mosskógum sem haldinn er
á hverjum laugardegi fram á haust.