blaðið - 16.08.2007, Qupperneq 32
£575 8900
NÝJASTA MFJSTARAVERK
PIXAROGDl
ÞEIRRA STRIÐ. OKKAR HEIMUR
sactíS MM ÁLFABAKKA
ratatouilleenskutal kl. 3-5:30-8-10:30 L
RATATOUILLE TSKUTAL kl.8 L
RATAT0UILLE M/-ISLTAI kl. 3 - 5:30 L
KN0CKED UP M.8 FORSÝND 12
TRANSF0RMERS kl. 5-8-10:30 10
TRANSF0RMERS kl. 5-8-10:50
NANCY DREW kl. 6-8:10-10:20 7
GE0RGIA RULES kl.8 7
HARRY P0TTER 5 kl.3-8 10
SHREK3 M/-ÍSLTAL kl.3-4-6
OCEAN'S 13 kl. 10:30 7
wata M KRIN6LUNNI
RATATOUILLE: : UAL kl. 8-10:30 L
RATAT0UILLE w/ÍSLTAL kl. 4:30 -5:30
TRANSF0RMERS kl.8-11 10
HARRY P0TTER 5 W. 4:30-8 10
GE0RGIA RULES kl. 10:40 7
samiZ: m AKUREYKI
RATATOUILLEm/ÍSLTAL kl.6
RATATOUILLE ÍIÍSKUTAL kl. 8-10:15
TRANSF0RMERS kl. 6-9 10
Sl'iilfblXEFlAVÍK
RUSH H0UR3 kl. 6-8-10 12
RATAT0UILLE uj- ÍSL TAL W. 6 L
TRANSF0RMERS W.9 7
HlSELFOSSI S. 482 3007
RATAT0UILLE W-feLTAL W. 6:40
RATATOUILLEiNSKUTAL kl.9 L
THE TRANSF0RMERS W.9 10
SIMPS0NS THE M0VIE W. 7 10
Nýtt f bió
HAStóLABÍÓ
RUSH H0UR3 kl.6.30,8.30 og 10.30
SIMPSON enskttal W. 8og 10 L
SIMPSONislensktBI kl.6 L
RUSH HOUR 3 kl. 6,8 og 10
THE INVISIBLE W.10 14
SIMPSON enskttal kL8 L
SIMPSON íslenskt tal W. 6 L
RUSH HOUR 3 M. 3.45,550,8oq10.10
RUSH HOUR 3 LÚXÚS M. 3.45,550,8 og 10.10
SIMPSONensktlal kl. 4,6,8 og 10 L
SIMPSON íslensW tal W. 4,6 og 8 L
EVAN ALMIGHTY kl. 4 og 6 L
DIE HARD4.0 kl. 8og 10.45 14
DEATH PROOF W.10 16
RUSH HOUR 3 W. 4,6,8 og 10-POWER
RATATOUILLEfettal kl. 3.45 og 5.45 L
TRANSFORMERS W. 7og10 10
PLANET TERROR kl. 8 og 10.20 16
SIMPSON íslensktí W. 4 L
i 450 hr. f btál Gildir á illar xýníngip merktir með rauðo!
necnBOGinn
SICKO W. 10.30 7
DEATH OF A PRESIDENT W. 8
THE BRIDGE W. 10.30 16
DELIVER USFR0MEVIL W. 8 14
CURSE OF THE GOLDEN FLOWER W. 10.30
AWAYFR0M HER kl. 8 7
FOR YOUR CONSIDERATION W. 10.30 7
BECOMING JANE M.5S0 L
PLANET TERROR W.520 16
SIMPS0N enskttal M.6 L
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2007
blaóió
ORÐLAUSLÍFIÐ
ordlaus@bladid.net
Kynlífsmyndband Parisar Hilton lak á Netið af
óljósum ástæðum rétt áður en þættir hennar
The Simple Life hófu göngu sína en það kom henni
á forsíðu allra helstu blaðanna vestanhafs.
Er Paris Hilton snillingur á sviði viðskipta og markaðsfræða?
Vel heppnuð
markaðssetning
f
Paris Hilton Leynir
á sér og þykir afar
snjöll í hvers kyns
viðskiptum
Samkvæmt dagblað-
inu The Times er Paris
Hilton snillingur í mark-
aðsmálum en tekin hafa
verið saman nokkur atriði
sem benda til þess að
Hilton sé færari en margir
á sviði viðskipta- og
markaðsmála.
Eftir Hildu H. Cortez
hilda@bladid.net
Þrátt fyrir að Paris Hilton hafi
löngum verið litin hornauga af viti
bornu fólki er ekki hægt að líta
framhjá þeirri staðreynd að undir
Ijósum lokkum leynist öflugur
viðskiptahugur, að minnsta kosti
að mati blaðamanns The Times
sem tók saman nokkur atriði sem
benda til þess að Paris Hilton sé fær
í flestan sjó.
Nýtir sér athyglina
Paris Hilton hefur lag á að vekja
á sér athygli. Nú síðast tókst henni
að vekja heimsathygli á fangelsis-
dvöl sinni en um lítið annað var
rætt í fjölmiðlum á meðan stúlkan
afplánaði dagana tuttugu og land-
aði hún einkaviðtali hjá Larry King
á CNN í kjölfarið.
Blaðamaður The Times talar
einnig um að Hilton hafi grætt tölu-
vert á því að hanna föt undir eigin
nafni, bæði fyrir menn og ferfæt-
linga, og hefur hún meðal annars
landað samningum við stórfyrir-
tækin Guess og Parlux Fragrances,
en stjarnan var ekki lengi að heilla
stjórnarformann Guess upp úr
skónum með því að vera vel að sér
í sögu fyrirtækisins og réði hann
hana á staðnum. Forsvarsmenn
fyrirtækisins Parlux Fragrances
hafa lýst Paris Hilton sem draumi
markaðsmannsins en fyrirtækið
samdi við stúlkuna um framleiðslu
ilmvatns undir hennar nafni og er
talið að markaðsvirði fyrirtækisins
hafi þrefaldast við það.
Kynlífsmyndband Parisar Hilton
lak á Netið af óljósum ástæðum
rétt áður en þættir hennar The
Simple Life hófu göngu sína en það
kom henni á forsíðu allra helstu
blaðanna vestanhafs og gerði það
að verkum að áhorf á þættina varð
mun meira en vonir stóðu til.
Eins vildi svo heppilega til að í
vikunni áður en fyrsta bókin um
Tinkerbell, smáhund stúlkunnar,
kom út, hvarf hinn litli chihuahua
í nokkra daga sem vakti mikla
athygli á sögu hundsins og seldist
bókin í bílförmum fyrir vikið.
Paris Hilton hefur einnig
tekist það sem marga rithöfunda
dreymir um, en bók hennar sat á
metsölulista The New York Times í
fimm vikur og skaut hún þar með
mörgum þekktum rithöfundum ref
fyrir rass.
Eftirsóttur fyrirlesari
Stúlkan þarf að því er virðist
ekki að leggja neitt sérstaklega
mikið á sig lengur til þess að græða
fúlgur fjár, en henni voru fyrr á
árinu boðnar 70 milljónir íslenskra
króna fyrir það eitt að fljúga til
Ástralíu til að heilsa aðdáendum og
segjast elska land og þjóð og nýlega
var henni boðin sama upphæð fyrir
að halda klukkutíma fyrirlestur
hjá The Learning Annex i Banda-
ríkjunum. Hilton átti að halda
fyrirlestur um það hvernig skal
byggja upp sitt eigið vörumerki en
aðeins Donald Trump hefur fengið
meira greitt en hún fyrir að halda
fyrirlestur hjá samtökunum.
Finleg blúnda og flottar buxur í
stærðum S,M,L,XLá kr. 1.250,-
Boxer buxur úr microfiber í stærðum
S,M,L,XL á kr. 1.250,-
Góöar bandabuxur í stærðum
S,M,L,XLá kr. 1.250,-
COKEZEROLISTINN
Vikuna 15. ágúst - 22. ágúst
Nýgræðingar
Silversun Pickups var ♦
stofnuð í Los Angeles
árið 2005 og gaf út sína
fyrstu breiðsklfu I fyrra.
Eftir að hafa hitað upp
fyrir áströlsku rokkarana í
Wolfmother í desember í A
fyrra fór sveitin í ferð með
Ok Go og Snow Patrol
sem endaði á Coachella-
hátíðinni nú (vor.
Neitaði Playboy A
Karen O, söngkona Yeah
Yeah Yeah’s, lýsti því
eitt sinn yfir ao hún hefði
áhuga á að sitja nakin fyrir
í Playboy. Þegar boðið ▼
kom svo frá tímaritinu neit-
aði hún beiðninni vegna
þess að hún vildi ekki að
þeir sem lesa Playboy
sæju hana nakta - en hún
taldi aðdáendur sína ekki A
vera f þeim hópi.
Súrsöngvari ^
Hljómsveitinni Editors
hefur oft verið líkt við New ▼
York-sveitina Interpol. _
Það viröist eitthvað fara T
í taugarnar á söngvara yr
sveitarinnar, Tom Smith,
en í nýlegu viðtali sagði ▼
hann að þeir gagnrýn- _
endur sem líktu sveitunum T
saman þyrftu að láta ^
athuga í sér heyrnina.
Nafnamambó N
Margar sögur eru til um
það hvernig nafn hljóm- ▼
sveitarinnar Interpol kom y
til. Sú besta er væntan-
lega sú að skólafélagar N
Paul Banks, söngvara
sveitarinnar, hefðu strítt ▼
honum með því að hrópa y
á eftir honum: „Paul, Paul,
Interpol.” n
1
2
3
4
5
Arcade Fire
No Cars Go
Silversun Pickups
Well Thought Out Twinkles
Smashing Pumpkins
Doomsday Clock
Muse
Map Of The Problematique
Yeah Yeah Yeah's
Down Boy
6. White Stripes You Don’t Know What Love Is
7. Lights On The Highway - Paperboat
8. Editors - An End Has A Start
9. Jeff Who - She’s Got The Touch SS
10. Viking Giant Show - The Cure JS
11. Queens Of The Stone Age - 3’s&7’s
12. Foo Fighters - The Pretender
13. National - Fake Empire
14. Interpol - Mammoth
15. Hard-fi Suburban Knights
16. Unkle Ft. lan Astbury - Burn My Shadow
17. Hot Chip - Arrest Yourself
18. Lada Sport - The World Is A Place For Kids... JS
19. Bloc Party - Hunting For Witches
20. Velvet Revolver - The Last Fight
Leikkonan Lindsay Lohan hefur
verið ákærð fyrir líkamsárás, en
hún ógnaði lífi konu sem var far-
þegi í bíl sem leikkonan unga elti
er hún ók undir áhrifum áfengis
í síðasta mánuði. Konan, Tracie
Rice, segir að Lohan hafi valdið
sér tilfinningalegu tjóni og segist
hafa í kjölfar eltingaleiksins
þurft að leita sér læknisaðstoðar
þar sem stjarnan hafi leikið
hættulegan leik og ógnað lífi
allra í kringum sig með glanna-
legum akstri sínum. „Það hefði
auðveldlega einhver getað orðið
fyrir bílnum og látið lífið þetta
kvöld. Lohan var í engu ástandi
til að aka.“
Cruise fyrir Gap
Suri Cruise, dóttir Tom Cruise
og Katie Holmes, verður andlit
nýrrar barnafatalínu hjá verslan-
akeðjunni Gap. Foreldrar Suri,
sem er aðeins 16 mánaða gömul,
gerðu veglegan samning við
fyrirtækið, en hingað til hafa þau
viljað halda dóttur sinni frá fjöl-
miðlum og hafa ekki verið hrifin
af því að láta mynda dóttur sína,
en fyrsta myndin af barninu birt-
ist í október á síðasta ári þegar
ljósmyndarinn Annie Leibovitz
myndaði fjölskylduna fyrir tíma-
ritið Vanity Fair. Vinir hjónanna
segja þau vera ákaflega upptekin
af barninu og telja að þau muni
að öllum líkindum hafa sitthvað
að segja um myndirnar sem
teknar verða af dótturinni fyrir
Gap.
J-Lo hrædd
Leik- og söngkonan Jennifer
Lopez segist óttast að vakna einn
daginn allslaus, en hún segist
hræðast höfnun og þá tilhugsun
að ferill hennar geti einhvern
tímann verið á enda. „Ég vakna
á hverjum degi og hugsa um þá
staðreynd að það er sama hversu
vel manni gengur eina stundina,
allt getur farið niður á við einn
daginn. Sérstaklega þar sem
þetta er Hollywood, hérna getur
allt gerst. Þess vegna reyni ég að
leggja alltaf harðar og harðar að
mér. Ég geri mér líka grein fyrir
því að ég er ákaflega heppin að
vinna við það sem ég elska að
gera. Ég veit að það eru ekki allir
jafn heppnir og ég.“