blaðið - 16.08.2007, Page 38
38
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2007
blaóió
FÓLK
folk@bladid.net
Jú, en þetta hlaup er nokkurs-
konar árshátíð skokkarans og
ekkert óeðlilegt að greidd sé væg
upphæð fyrir umgjörðina.
Er blóð, sviti og tár ekki nægur fórnarkostnaður í maraþoni?
Svava Oddný Ásgeirsdóttir er verkefnastjóri Reykjavíkurmaraþons sem fer fram á
laugardaginn. Þátttaka í heilu maraþoni kostar 4500 krónur, sem sumum þykir hátt
gjald fyrir það eitt að svitna.
HEYRST HEFUR
Fjölmargir hafa lagt leið sína í
bíó undanfarið til að sjá nýjasta
sumarsmellinn, Transformers,
eða Umbreytingana, sem eru
öflug vélmenni sem geta breytt
sér í allskyns vélar og bíla. Sam-
nefnd leikföng voru
mjög vinsæl fyrir
nokkrum árum og
ekki loku fyrir það
skotið að Magni
Ásgeirsson hafi
leikið sér með
slík tæki, en
hann skemmti
sérkonunglega
yfir myndinni
siðastliðið
þriðjudagskvöld...
Bolur Bolsson er nafnið á vin-
sælasta Moggabloggaranum í
síðustu viku. Hefur bloggarinn
lítið annað gert en að hengja
eina setningu við hverja einustu
frétt mbl.is og trónar fyrir
vikið efst á vinsældarlistanum,
þangað til nú. Hefur íþrótta-
fréttamaðurinn digurbarkalegi,
Henry Birgir Gunnarsson, nú
stigið fram í dagsljósið með þá
játningu að hann sé maðurinn
á bak við Bol Bolsson, og að
uppátækið hafi aðeins verið til-
raun til þess að
sýna fram á
ÆBjgmJ hversu afbakað
\ vinsældarkerfi
í bloggsins getur
verið en í sömu
■ytl. ^ andráhefur
nafnStefáns
Steíánssonar
jff MSk einnigoft
' verið nefnt...
0g enn af íþróttafréttamönnum.
Hinn hagmælti Þorsteinn Gunn-
arsson gekk fram fyrir skjöldu
um árið þegar Skjárinn hóf að
nýta sér erlenda þuli í enska bolt-
anum. Sagði Þorsteinn þetta
ólíðandi í garð sinnar stéttar og
athæfið gengi einnig í berhögg
við íslenska tungu, nokkuð sem
mörgum fannst skondið, í ljósi
mælsku Þorsteins í lýsingum
leikja. Nú hefur dæmið aftur á
móti snúist við. Nú hafa
365 miðlar hafið
útsendingar á enska
boltanum og viti
menn, i nokkrum
þeirra hefur verið
notast við enska
þuli. Ætli Þor-
steinn sé búinn
að segja upp...?
J % /p
Gísli „Gís" Jóhannsson mundar gítarinn á Skagaströnd
Kúrekinn kominn, í bili
Gísli Jóhannsson, eða GÍS
eins og hann kallar sig,
gerir það gott í Nashville
þar sem hann starfar sem
kántrýsöngvari. Hann er
nú staddur á Dalvík þar
sem hann hleður rafhlöð-
urnar árlega en hann stóð
þó ekki yfir fiskisúpunni
um síðustu helgi.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
„Nei, Logi Bergmann var bara í
því. Ég lenti reyndar í partíi með
honum um kvöldið og hann kunni
öll Garth Brooks-lögin, heilmikið
kántrý í karlinum bara! En maður
reynir að koma heim minnst einu
sinni á ári og stíla þá inn á Fiskidag-
inn á Dalvík, því það er ótrúlega
gaman þegar hátt í 40.000 manns
heimsækja svona lítinn bæ. Maður
slær líka nokkrar flugur í einu höggi,
þarna hittir maður alla í einu og
skemmtir sér með fjölskyldunni.“
Kom út úr kúrekaskápnum
„Ég ætlaði upphaflega að læra
djass og pældi lítið í kántrýtónlist.
Ég uppgötvaði síðan allt í einu, einn
góðan veðurdag, mér til mikillar
skelfingar, að ég væri einfaldlega
kántrýgaur! 1 fyrstu var ég í gríðar-
legri afneitun en smám saman tók
ég þetta í sátt. Ætli það megi ekki
segja að ég hafi komið út úr kántrý-
skápnum. Ég fór til Los Angeles og
MAÐURINN
Gísli erfertugur.
Hans stóra ást í lífinu er
Bella, hundurinn hans.
Gísli keyrir ekki um á pick-
up, heldur Toyota Rav 4 og
Harley Davidson-mótorhjóli.
lærði lagasmíðar og hljóðvinnslu.
Þá var mér gefið þetta GÍS-nafn sem
hefur fylgt mér æ síðan. Það fellur
undir sömu reglu og mörg engilsax-
nesk nöfn. Nicholas verður að Nick,
Patrick verður að Pat og Gísli verður
að Gís. Það er mjög þægilegt að hafa
svona sviðsnafn i þessum bransa,
en það er líka voðalega ljúft að
heyra pabba gamla kalla mig Gísla,
svona rétt til að minna mig á að ég
á mér líka annað líf en kántrýbrans-
ann. Til dæmis var ég í fyrstu frekar
hræddur við að flagga þjóðerni
mínu þarna úti, hélt að það myndi
eyðileggja fyrir mér. Síðan áttaði ég
mig á því eftir ábendingar margra
vina minna og félaga, að þetta væri
akkúrat tækifæri til að sýna fólki
hver ég raunverulega er. Maður flýr
ekki sjálfan sig og það eru ákveðnir
þættir í minni tónlist og fortíð,
ákveðinn tregi og rómantík sem er
svo íslenskt að það skín í gegn. En
þó svo að ég markaðssetji mig ekki
sérstaklega sem íslending, þá kemur
það fram í öllu kynningarefni sem
ég sendi frá mér og ég nefni þessa
staðreynd að ég sé frá Islandi, alltaf
stoltur þegar ég er spurður hvaðan
ég sé enda forréttindi “
Flutti í mekka kántrýtónlistarinnar
„Eftir að hafa verið í mörg ár í Los
Angeles flutti ég til Nashville í mars
í fyrra. Ég keypti mér flott hús þar
sem ég er einnig með eigið hljóðver.
Ég hef alltaf viljað vera með puttana
í hljóðblöndun og þetta er mikil hag-
ræðing þar sem ég rek einnig eigin
framleiðslu- og útgáfufyrirtæki.
Annars fóru fyrstu sex mánuðirnir
í að kom sér í réttu samböndin.
Tónlistarbransanum í bænum er
stjórnað af 6-7 mönnum sem nauð-
synlegt er að hafa einhver tengsl við
til þess að lifa af þessa baráttu. Hér
eru öll bestu hljóðverin og bestu
hljóðvers-spilararnir og þetta er
hörkubisness að harka í þessu. Ann-
ars er ég að gefa út mína þriðju plötu
núna, sem heitir No Regrets. Að vísu
kemur hún ekki út í mörgum ein-
tökum því hér kaupir enginn geisla-
diska lengur. Fólk hleður þessu
í 90% tilvika af Netinu, en mesti
peningurinn er í sölu varnings sem
tengist listamönnunum; bolir og all-
skyns munir. Einnig er gert mikið
úr sjálfum tónleikunum sem eru á
við alvöru Broadway-show,“ segir
Gísli sem verður í sviðsljósinu um
næstu helgi.
„Ég mun víst opna Kántrýdag-
ana með kassagítarnum í svona
klukkutíma á föstudaginn. Svo
á laugardeginum kemur Kántrý-
bandið mitt saman og við tökum
blöndu af kántrýslögurum, frá mér
og þessum þekktu kántrýkóngum.
Þetta er frábær skemmtun fyrir alla
fjölskylduna, jíhaaa!" sagði Gísli að
kúrekasið í lokin.
BL0GGARINN...
Vinstri, hægri
„Ég sé að ungu vinstri sinnuðu stelpurnar
á ritstjórn Moggans eru larnar að hafa
mikiláhrifá fréttaskrif. I frétterm.a. sagt
að þjóðemisSÓSlALiSTAR séu hægri
öfgamenn. Hvernig geta sósíalistar verið
hægri menn? Þó þeir séu þjóðernislega
sinnaðir. Að vera þjóðernislega sinnaður
hefur ekkert með vinstri-hægri að gera
- ekki neitt. [...] Þegar minnst er á menn
eins og Maó frænda, Stalín, Castro og
Che Guavera er aldrei talað um vinstri
öfgamenn - oftast em þeir frelsishetjur
en Ijótasta orðið sem vinstri sinnaðir
blaðamenn voga sérað nota er e.t.v. ein-
ræðisherra.“
Gísli Freyr Valdórsson
gislifreyr.blog.is
Löggan óhæf
„Lögregla rikis og Reykjavikur er óhæf til
að gæta öryggis almennings. Hún vaknar
bara til lífsins, þegar góðmenni á borð við
Falung Gong koma til landsins. Hún getur
ofsótt pólitíska mótmælendur. Svo er það
búið. Hún þorir ekki út úr bílunum, þegar
dóp- og áfengisóðir menn vaða gargandi
um göturnar. Lögreglustjórinn ÍReykjavik
talar digurbarkalega um „zero tolerance.
Svo erþað búið. Miðbærinn i Reykjavík
er eini miðbær evrópskra höfuðborga,
sem er undirlagður óðum skril um nætur
og morgna. Neyðarlínan anzar ekki einu
sinni köllum þar. Þvíað töggan þorir ekki
á svæðið. “
Jónas Krístjánsson
www.jonas.is
Klúður
„Upplýsingafulltriiar eru æði misjafnir.
Sumir gera eiginlega meiri skaða en
gagn.f...] I gær ákvað Siminn að rjúfa allt
samband Bolungarvíkur við umheiminn í
tvær klukkustundir. [...] En upp á öryggi
bæjarbúa skiptirþetta töluverðu máli.
Það virtist upplýsingafulltrúinn ekki skilja.
[...]! stað þess að biðjast afsökunar á
þvíaö Síminn hafi gert upp á bak iþessu
máli, að Síminn hafi ekki áttað sig á örygg-
isþætti sínum, þá fer upplýsingafulltrúinn
að delera um ástarvikuna og aðkomu
Símans að henni, að gera bæjarbúum
kleift að kela író og friði?"
Heiga Vala Helgadóttir
eyjan.is/helgavala
blaðiðs
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
Su doku
1 8 2 6 3 5
2
7 2 5 6
5 2 1 7 3
9 3 7
4 5 2
3 6 9 7
2 1 8
5 8 9 2
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
10-4
© LaughlngSlock Intemational lnc./dist. by United Media, 2004
HERMAir
eftir Jim Unger
Það er bannað að leika
sér með fótinn á afa.