blaðið - 31.08.2007, Síða 30

blaðið - 31.08.2007, Síða 30
38 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 blaðið FÓLK folk@bladid.net Já, en ætli hann verði nokkuð sá síðasti? Var ísbjörninn fyrstur til að fara? Listamaðurinn Bjöm Bragason hélt sýningu í Kringlunni nýverið sem hét The first one to go og sýndi sjö ísbimi á víð og dreif um verslunar- húsið. Þann 15. ágúst hvarf einn ísbjöminn og er taliö að einhver óprútt- inn og fingralangur hafi tekið hann ófrjálsri hendi. Þeim sem geta gefiö upplýsingar um málið er bent á að hafa samband við lögreglu. HEYRST HEFUR íþróttafréttamaðurinn knái, Ad- olf Ingi Erlingsson, hefur í nógu að snúast þessa dagana við að lýsa HM í frjálsum íþróttum, en sýnt hefur verið frá viðburðinum á RÚV. Hefur bandaríski sprett- hlauparinn Týson Gay farið á kostum á mótinu, sigrað bæði í íoo metra og 200 metra hlaupi karla. Adolf, sem hefði kannski mátt velja sér ögn látlausari vettvang en sjónvarp allra lands- manna fyrir ummæli sín í gær, sagði einmitt við það tækifæri, að þar sem Tyson væri bæði svartur á hörund og bæri eftirnafnið Gay, hefði hann einhvern tímann þurft að geta hlaupið hratt þegar hann var yngri. Dreng að nafni Davíð, sem kenndur er við Grensás, virðist vera ansi iaus höndin ef skoðuð er stympingasaga hans. Honum er eignaður sá vafasami heiður á spjallsíðum að hafa slegið Sverri Þór Sverrisson, (Sveppa), Eið Smára Guðjohnsen og nú síðast knat tspyrnudómara eftir leik í utandeildinni með þeim afleið- ingum að dómarinn rifbeins- brotnaði. Hefur Davíð beðist afsökunar á gjörðum sínum, en dómarinn hyggst kæra. Sökum hegðun- armynsturs síns hefur Davíð verið sakaður um steranotkun, en það ku vera hinn mesti misskilningur segja þeir sem séð hafa piltinn með berum augum... Nýjustu færslur ofurbloggar- ans Ellýjar virðast fara fyrir... eh... brjóstið á mörgum þessa dagana. Meðal þeirra móðguðu er Jenný Anna Baldursdóttir, sem gert hefur óspart grín að ritstfl Ellýjar. Hún segist vera klígjugjörn á endaþarms- og hor-færslur kynsystur sinnar og segir færslunar ekki lengur bláar, heldur kúkabrúnar með horgrænu ívafi. Hafa fjölmargir tekið undir þessa skoðun Jen- nýjar í athugasemdakerfinu. Þess má geta að gefnu tilefni að þegar þessi orð eru rituð hefur síðu Ellýjar veriðlæstogþeim einum veittur aðgangur erlykilorð hafa.... Elfar Andri Aðalsteinsson Veit alveg hvað hann vill gera í framtlðinni BlaðU/Ómar BLOGGARINN. Draumur um bólfélaga „Bandarískir blaðamenn kvarfa um, að skólagengin fagmennska sé á undanhaldi ísjónvarpi. Nefnt er til sögunnar, að nú séu einkum ráðnar Ijóskur til að lesa fréttir. Hjá Fox þurfi þær að hafa þykkar varir, sem hreyfist eins og álar ísamförum. Því miður hefégtýnt höfundi hinnar sérstæðu samlíkingar. Sannanlega hafa fréttatengdir þættir að hætti Kastljóss og Islands ídag fjarlægst fagmennsku þar vestra. Sjónvarpið þar færist frá frétta- mönnum yfir i táknmyndir um bólfélaga. Það eykur notkunartölur sjónvarpsins, en dregur um leið úr trausti manna á því. Á sama ferli örlar hér á landi. “ Jónas Krístjánsson www.jonas.is Elfar Andri Aðalsteinsson fékk draumastarfið upp í hendumar Þýöir úr Harry Potter Elfar Andri Aðalsteinsson er ungur Harry Potter-að- dáandi. Honum bauðst að þýða torskilin orð úr nýj- ustu bókinni um galdra- strákinn vinsæla og geta glósur hans nýst öllum þeim sem heimsækja vef bóksölunnar Eymunds- son, eymundsson.is. Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net Þýðendur eru alla jafna bók- menntafræðingar eða íslenskufræð- ingar á fimmtugs- og sextugsaldri. Það á ekki við um Elfar Andra, sem byrjar ekki í menntaskóla fyrr en á næsta ári. Hann tók sig þó til og þýddi nánast heila Harry Potter-bók einn síns liðs sem honum þótti ekki leiðinlegt enda mikill aðdáandi bókanna. „Amma mín vinnur í Eymunds- son og þannig bauðst mér að vinna mér inn nokkrar krónur aukalega við að glósa þau ensku orð úr bók- inni sem ég skildi ekki og taldi að aðrir lesendur gætu hnotið um. Mér fannst ég ekki þéna nógu vel í bæj- arvinnuni í Kópavogi, þar sem ég vann í sumar, og sló því til. Þetta fannst mér frábær hugmynd því ég er mikill Harry Potter-aðdáandi og hef lesið allar bækurnar og séð allar myndirnar, sem þrátt fyrir ágæti sitt lúta þó í lægra haldi fyrir bókunum," sagði Elfar sem getur vel hugsað sér að þýða aðrar bækur. „Jú, jú, það kemur alveg til greina. En allt veltur þetta á kaupi og kjörum auðvitað. Þetta er alveg jafn- góð vinna og hver önnur. Það tók mig um tvær vikur að glósa þessi 5.000 orð og ef launin eru sanngjörn þá er ég alveg til. Annars hefur það ekki verið rætt enn þá, en ég fæ ein- mitt útborgað i dag, þannig að það kemur kannski betur í ljós. Sjálfur les ég líka mikið af spennusögum og krimmum og gæti hugsað mér að þýða slíkar bækur. Þó ég sé kannski ekki að safna fyrir neinu sérstöku getur verið gott að eiga smá pening þegar maður byrjar í menntaskóla." Framtíðin Elfar Andri er. staðráðinn í að ger- ast lögreglumaður og hefur sterkar skoðanir á stöðu og hlutverki lög- reglunnar, enda mikið verið í um- ræðunni undanfarið. „Það er nú engin sérstök ástæða fyrir því að ég vil gerast lögreglu- maður. Ég hef bara bitið þetta í mig DRENGURINN Elfar Andri er 15 ára gamall Kópavogsbúi Hann heldur með HK í handbolta en Breiðabliki í fótbolta Hann fylgist mikið með enska boltanum og styður Manchester United einhvern veginn. Ég má sækja um þegar ég verð tvítugur en ég ætla strax að byrja að undirbúa mig. Kannski byrja ég að lyfta lóðum, en fyrst og fremst ætla ég að útskrifast úr menntó og kíkja jafnvel á eitt- hvert háskólanám. Lögreglan hefur einmitt mikið verið í fréttum und- anfarið og finnst mér alveg borð- liggjandi að sýnileiki hennar mætti vera meiri til þess að sporna við of- beldisverkum í miðbænum. Vanda- málið er hins vegar að launalega séð er það ekki sérlega eftirsóknarvert að sækja um lögreglustarfið því það er bara ekki nógu vel borgað miðað við eðli vinnunnar. Það mætti því hækka launin og þannig fjölga lög- reglumönnum, sem mun auka sýni- leikann og fækka ofbeldisverkum," sagði Elfar Andri sköruglega að lokum. Besti bloggarinn „Nú eraðeins sólarhringurþar til kosningu um besta bloggara Islands lýkur. Þátt- taka hefur verið góð og vil ég meina að heiðarleiki og góður andi hafi rikt á meðal keppenda og þátttakenda í kosningunni. Það ferekki á milli mála eins og staðan er nú þegar þetta er skrifað að tveir mætir bloggarar, Jens Guð og Gurrihar, hafa vænlega stöðu þegar aðeins sólarhring- ur er til stefnu en margt getur gerst á endasprettinum. Úrslit verða gerð kunn klukkan 22 annað kvötd." Karl Tómasson ktomm.blog.is Sérann um slúður „Einhverra hluta vegna hafa sögusagnir um náungann ætíð átt greiðan aðgang að eymm manneskjunnar, hvort sem þær eru hálflognar eða algjör uppspuni. Slúður er mikilvæg söluvara iþeirri miklu mark- aðsmaskínu sem fjölmiðlar samtimans eru. Slúður er sjaldnast meinlaust. Það getur þvert á móti verið stórhættulegt. Það ersærandi, meiðandi, niðurlægjandi og sundrandi. Fram til þessa hefur slúður þótt mein i siðmenntuðum samfélögum. Það virðist vera að breytast. [...jÞegar við kauþum slúður erum við að kosta fram- leiðslu þess. Við verðlaunum þá sem niða æruna af fólki og leggjum þeim lið við að bera Ijúgvitni gegn náunganum. “ Svavar Alfreð Jónsson svavaralfred.blog.is Er fyrirtækið þitt uaktað? Ávextir í áskrift er einhver besta fjárfesting sem þú gerir í starfsmannamálum. www.avaxtabillinn.is Su doku 5 8 9 4 1 3 1 7 2 4 3 2 9 6 2 9 8 7 5 4 6 1 3 4 5 9 2 9 5 6 1 7 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem uþþ eru gefnar. HERMAN eftir Jim Unger Himmi! Mig vantar smá hjáip hérna! 8-11 © Jim Unger/dist. by United Modia, 2001

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.