blaðið - 12.09.2007, Page 6

blaðið - 12.09.2007, Page 6
6 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007 blaðiö Styrkja íslenskuna Guðrún Ögmunds- dóttir ráðin Stofnaður hefur verið sjóður til að styðja með sértækum hætti kennslu í islensku fyrir þá nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku. Sjóðurinn skal veita fjárframlög umfram reiknilíkan til sérstakra aðgerða í íslenskukennslu fyrir nemendur framhaldsskóla með annað móðurmál en íslensku. Styrkir til framhaldsskóla Framhaldsskólar geta sótt um styrki úr sjóðnum tvisvar á ári og er fyrsti umsóknarfrestur um styrki til 15. september 2007. Menntamálaráðherra hefur einnig ráðið Guðrúnu Ögmunds- dóttur, fyrrverandi alþingismann, sem verkefnastjóra yfir mála- flokknum og mun hún vinna með starfshópnum að tillögugerð og úrbótum í menntunarmálum fyrir þá nemendur sem eiga sér annað móðurmál en íslensku. mbl.is Falið vandamál I Aukin fræðsla eina leiðin til þess að vinna gegn kynferðisbrotum meðal þroskaheftra ■ Fræðslubylting yfirvofandi með opnun fræðsluseturs í október Eftir Arndísi Þórarinsdóttur arndis@bladid.net „Þið hringið eiginlega hálfum mánuði of snemma," sagði María Jónsdóttir, félagsráðgjafi hjá Styrkt- arfélagi vangefinna í gær. „1. okt- óber verður opnað þekkingarsetur hér hjá Styrktarfélaginu um málefni sem tengjast kynfræðslu og öðru henni tengdu, svo sem hvernig ber að bregðast við kynferðisafbrotum þegar fólk með þroskahömlun á í hlut.“ María fellst óhikandi á að kynferð- isbrot séu vandamál meðal þroska- heftra. „Þetta er mjög falið. Þetta er vandamál og það er falið.“ Breytt og bætt fræðsla Kynfræðsla og ráðgjöf um kyn- hegðun fyrir einstaklinga með þroskahömlun, aðstandendur og starfsfólk hefur fram til þessa verið mjög takmörkuð að sögn Maríu. „Ungmenni með þroskahömlun fá sömu eða svipaða kennslu í lífs- leikni og kynfræðslu og jafnaldrar þeirra í grunn- og framhaldsskólum. Skólinn veitir hins vegar bara hluta fræðslunnar. Við lærum ekki síður af umhverfi okkar utan veggja skól- ans, með því að lesa í það. Þar liggja veikleikar fólks með þroskahömlun, í yfirfærslunni.“ María segir fólk með þroska- hömlun vera í mun meiri áhættu að verða fyrir misnotkun og það hafi oft ekki fengið þjálfun eða fræðslu til að læra að greina hvenær um mis- notkun sé að ræða eða hvernig megi "S Kennslu þörf María Jónsdóttir félagsráðgjafi telur að fræðslu um mannleg samskipti, þar á meðal kynferðisleg, sé þörf frá unga aldri. varast hana. Þjálfun þurfi að hefjast fyrr hjá þessum einstaklingum og hún eigi ekki eingöngu að eiga sér stað innan veggja skólans, heldur þurfi að tvinna alla þætti saman og setja hlutina í samhengi við atburði úr daglegu lífi. „Þannig næst bestur árangur,“ segir María sem mun stýra þekkingarsetri Styrktarfélagsins. Hitt húsið Jenný Magnúsdóttir þroskaþjálfi starfar í Hinu húsinu þar sem er mikið félagsstarf fyrir þroskahefta undir merkjum Sérsveitarinnar, en eins og fram kom í Blaðinu í gær sagðist stúlka hafa orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi í Hinu húsinu fyrir fáum árum. Sýknað var í mál- inu og í kjölfarið var eftirlit í húsinu aukið. „Hér rekum við opinbert félags- starf og allir eru mjög kátir með það. Starfið er opið og það er fylgst vel með. Þetta hefur ekki verið vanda- mál hjá okkur,“ segir Jenný. „En sem fagmaður, en ekki sem starfsmaður borgarinnar, þá hef ég heyrt af málum sem koma upp í part- íum og þegar fólk er að skemmta sér í heimahúsum sem eru sum mjög alvarleg." HITTHÚSIÐ Um 50-70 einstaklingar sækja böll og uppákomur Sérsveitar Hins hússins Á meðan kærur hafa iegið fyrir dómstólum hefur hin- um ákærðu verið meinaður aðgangur að samkomun- um HEFUR ÞÚ ÁBENDINGU? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.