blaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 20
28
MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007
blaóiö
LÍFSSTÍLLHEIMILI
heimili@bladid.net
Á fyrstu sýningunni fékk ég raunar hálf-
gert sjokk, enda fannst mér ég vera eins
og lítill títuprjónn í risastórri höll.
Stóllinn
FARVELA
Við opnun á sýningunni Vist-
vænni hönnun í sal Hönnun-
arsafns íslands við Garðatorg
síðastliðinn laugardag færði Ingi
Þór Jakobsson, forstjóri húsgagna-
verslunarinnar Exó, safninu að
gjöf stól eftir brasilísku hönn-
uðina Fernando og Humberto
Campana, sem framleiddur er
af ítalska fyrirtækinu EDRA.
Stóllinn nefnist FARVELA og er
samsettur í Brasilíu úr ótal við-
arbútum sem ýmist eru negldir
eða límdir saman, rétt eins og
samefnd fátækrahverfi í Rio de
Janeiro.
. Bambustöng
Hjá Kokku fæst þessi einfalda og
praktíska töng sem hentar
vel í salöt og fleira slíkt. ^
Töngin er búin til úr
bambusvið, sem er
afar fljótvaxinn,
og því eru
áhöld gerð
úr honum
afar um- /
hverfisvæn. •
Ásdís Erla Guðjónsdóttir er manneskjan á bak við föndur.is
Mikill markaður fyrir
bútasaum í heiminum
Bútasaumur er afar slak-
andi iðja að sögn Ásdísar
Erlu Guðjónsdóttur sem
selur sína eigin búta-
saumshönnun hérá landi
sem erlendis
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Óbilandi handverksáhugi Ás-
dísar Erlu Guðjónsdóttur mynd-
listarkennara var kveikjan að
stofnun fyrirtækis hennar, föndur.
is, en þar býður hún upp á tugi búta-
saumssniða með leiðbeiningum og
skýringarmy ndum.
„Ég er búin að vera að sauma frá
því að ég var pínulítil og þegar ég fór
að hanna sjálf bútasaumssnið var
fólk oft að koma að máli við mig af
því að það langaði sjálft að gera eins
og ég var að búa til. Þá kom upp þessi
hugmynd að markaðssetja sniðin
og setja þau í pakkningar ásamt leið-
beiningum og nú er fondur.is orðið
þriggja ára gamalt fyrirtæki,“ segir
Asdís. „Síðan vatt þetta upp á sig
og fyrir tveimur árum ákvað ég að
hefja markaðssetningu á sniðunum
mínum í Ameríku, en þar ganga þau
undir nafninu Disa Designs. Nú hef
ég tekið þátt í fjórum alþjóðlegum
bútasaumssýningum, International
Quilt Market, sem haldnar eru
tvisvar á ári í Bandaríkjunum og er
á leiðinni á þá fimmtu sem haldin
verður í Houston í október."
Stór heimur
Ásdís hannar snið fyrir dúka,
veggmyndir, skrautfígúrur og fleira
fyrir heimilið. „Þau eru framleidd
og þeim pakkað í Minneapolis í
Bandaríkjunum og þeim er dreift
þaðan út um allan heim,“ segir hún.
Er mikill markaður fyrir þetta
úti?
„Já, ótrúlega mikill. Þegar ég var
að byrja á þessari markaðssetningu
og fór að fara á sýningar fannst mér
þetta ólýsanlega stór heimur þarna
úti í Bandaríkjunum. Á fyrstu sýn-
ingunni fékk ég raunar hálfgert
sjokk, enda fannst mér ég vera
eins og lítill títuprjónn í risastórri
höll. Þó voru þetta bara sýningar
fyrir verslunareigendur en ekki
almenning.
En ég er líka með ákveðna mark-
aðssetningu í gangi hér heima og til
dæmis er ég að fara í samstarf við
Quiltbúðina á Akureyri með mán-
aðarlegan verkefnaklúbb, Dísu-Qu-
iltklúbbinn. Þá hanna ég snið fyrir
klúbbinn og Quiltbúðin tekur til
pakkningar með efnum og sendir
til klúbbfélaga. Þó svo að markað-
urinn á íslandi sé ekki stór er mjög
gefandi að vinna hér heima enda er
nálægðin miklu meiri. Ég fæ oft bréf
og tölvupósta með athugasemdum
og fyrirspurnum um alls konar at-
riði og það kann ég vel að meta.“
Slakandi iðja
Hvað er það sem heillar mest við
bútasaum?
„Fólk sem sækir í hann leggur oft
áherslu á að hafa eitthvað sérstakt
á heimilinu, eitthvað sem aðrir eru
pottþétt ekki með. Svo er bara svo
gott að hafa eitthvað á milli hand-
anna til að dúllast með, það er svo
slakandi. Sumir tala um að búta-
saumur, prjónamennska og fleira
komi í tískubylgjum en það er þó
ekki mín reynsla. Þeir sem finna
sig í þessu festast gjarnan í því. Svo
er bútasaumur líka svo ofboðslega
fjölbreytilegur. Sumir gera heilu
rúmteppin úr pínulitlum bútum
sem er auðvitað mjög tímafrekt
verkefni, en ég sjálf er minna í þvi.
Mín snið bera þess merki að mér
finnst gaman að teikna, enda eru
þau myndræn og auðvelt að búa þau
til.“
Samhent hjón
Ásdís er ekki eina manneskjan á
bak við fyrirtækið föndur.is enda
er maðurinn hennar, Sölvi Rafn,
stoð hennar og stytta í rekstrinum.
„Hann sér um heimasíðuna, bæði
þá íslensku og þá ensku ásamt fjár-
málahliðinni þannig að ég get ein-
beitt mér að hönnunarvinnunni.
Það er mjög þægilegt að hafa þessa
skýru verkaskiptingu og svo förum
við alltaf saman út á sýningar," segir
hún.
Er ekki mikið af bútasaumi á
ykkar heimili?
„Ég er með vinnustofu heima og
þar kennir vissulega ýmissa grasa.
Hins vegar erum við tiltölulega
nýflutt frá Selfossi, þar sem ég ólst
upp, til Keflavíkur og búum í leigu-
húsnæði meðan íbúðin á Selfossi er
til sölu. Ég ætla því að bíða með að
skreyta heimilið með bútasaums-
veggmyndum, fígúrum og fleiru
þangað til við erum komin í varan-
legt húsnæði. En mikið af okkar
bútasaumi er núna í geymslu í sum-
arbústaðnum hjá mömmu og pabba,
þannig að hann er allavega mjög hlý-
legur,“ segir Ásdís Erla að lokum.
Umhverfisvænt teppi
Besta sætið í húsinu
Á nýju vefsíðunni iDe-
signCarpet.com geta inn-
anhússhönnuðir útbúið
sínar eigin teppaprufur
með hjálp nútímatækn-
innar. Á síðunni er hægt
að velja snið, mynstur og
litasamsetningu teppa-
prufanna, og loks setja
þau inn í sýndarherbergi á vefnum
og sjá hvernig þau koma út með
þeim litum sem fyrir eru. Einnig er
hægt að prenta út prufur á pappír í
alls kyns litum og með ýmiss konar
mynstri og máta þau við sjálft gólfið
sem á að teppaleggja.
Síðan er fyrst og
fremst hugsuð til
þess að spara hönn-
uðum tíma og fyrir-
höfn sem fylgir því
að panta, skoða og
flytja prufur úr teppa-
verslunum. En ekki
síður mikilvæg er sú
staðreynd að þetta er mun umhverf-
isvænni kostur en sá hefðbundni.
Með þessu móti sparast flutnings-
kostnaður og um leið minnkar út-
blástur gróðurhúsalofttegunda, auk
þess sem auðveldara er að endur-
vinna pappír en teppi.
Bandaríski baðtækjaframleiðand-
inn Toto kynnti nýverið nýtt há-
tæknisalerni sem kallað er washlet
á ensku. í því er sérstakur hitari
þannig að setan þarf aldrei að verða
ísköld, ásamt því sem hún er búin
til úr sérstöku bakteríueyðandi
plasti. Sérstakt lofthreinsitæki er
innbyggt í skálina, en við hana er
áfastur stýribúnaður með tökkum
og stillimöguleikum. En þrátt fyrir
þessa miklu tækni eru þessi salerni
sögð sparneytin á orku. Það er því
varla að ósekju sem framleiðend-
urnir kalla þetta salerni „besta
sætið í húsinu“.