blaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 15

blaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 15
blaóiö MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007 15 Málverkafölsun Seljandi leggi fram eigendasögu Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra kynnti í gær fyrir ríkis- stjórn íslands frumvarp um breyt- ingu á lögum um verslunaratvinnu. Breytingin snýr að eigendasögu myndverka og tekur frumvarpið mið af tillögum starfshóps sem var skipaður í kjölfar víðtæks málverka- fölsunarmáls sem kom upp hér- lendis fyrir nokkrum árum. í frumvarpinu er gerð sú krafa að seljandi leggi fram eigendasögu myndverks. Jafnframt er þar kveðið á um að gæta skuli sérstakrar var- úðar varðandi ranga eignaraðild og herra mun leggja frumvarpið fram hættu á fölsun verka. Viðskiptaráð- á komandi haustþingi. þsj Bjami Armannsson stjómarformaður REI Með 50 milljarða króna hlutafé Reykjavík Energy Invest (REI), útrásarfyrirtæki Orkuveitu Reykja- víkur (OR), var kynnt í gær. Fyrir- tækið mun ráða yfir 50 milljarða króna hlutafé til að fjármagna alþjóðleg jarðhitaverkefni á þess vegum. Stefnt er að því að gefa út nýtt hlutafé í fyrirtækinu en að OR verði áfram kjölfestufjárfestir með um 40 prósent hlutafjár. Bjarni Ármannsson, fyrrum forstjóri Glitnis, verður stjórnarfor- maður REI. „Verkefnið er afskaplega spennandi fyrir mig. Ég er búinn að starfa í fjármálageiranum allt mitt líf [...] Það er svolítið önnur nálgun að koma inn í orkugeirann. En ég held að það sé nokkuð augljóst mál að í upphafi 21. aldarinnar, á tímum þverrandi kolefnisorkuframleiðslu og vaxandi mengunar af hennar völdum, er áherslan að færast sífellt meira í það form hvernig hægt er að nýta þessa orkugjafa til vistvænni og betri heims, og þá peninga og fjármagn sem til þarf,“ sagði Bjarni í samtali við fréttavefinn mbl.is. Reykjavik Energy Invest á hluti í útrásarfélögunum Enex, Enex-Kína, Galantaterm og Iceland American Energy. Bjarni hefur keypt hluti í fé- laginu fyrir hálfan milljarð króna. Guðmundur Þóroddsson verður forstjóri REI, en hann tók sér ný- verið leyfi frá starfi forstjóra OR til að leiða útrás REI. Auk Bjarna sitja Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykja- víkur, og Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar OR, í stjórn Reykjavik Energy Invest. þsj/mbl.is Fyrirtæki Exista Onógur gróði JJB Sports Breska sportvöruverslana- keðjan JJB Sports Plc, sem er að hluta í eigu Exista, gaf í gær út afkomuviðvörun. Vísað er í viðvörunina i Vegvísi Lands- bankans en þar kemur fram að uppgjör fyrir fyrrihluta ársins hafi sýnt 8 milljóna punda hagnað fyrir skatt, sem er 3,5 milljónum punda undir væntingum. Sölutekjur drógust saman um 4,4% milli ára og er meginskýr- ingin sú, að á sama tíma í fyrra var mikil sala tengd heims- meistaramótinu í knattspyrnu. Hlutabréf í JJB lækkuðu um tæplega 16% í kjölfar tilkynn- ingarinnar og gengið fór niður fyrir 167 pens á hlut innan dags sem er lægsta gengi félags- ins frá því í janúar 2006. Exista keypti 29% hlut í JBB til helminga við aðra í júní 2006. mbl.is Straumur og Kaupþing Seldu sænsk hlutabréf Sænska viðskiptablaðið Dagens Industri segir að tveir af fjórum íslenskum stórfjár- festum á sænskum hlutabréfa- markaði hafi valið að selja stóran hluta af fjárfestingunni og fara heim með gullið, eins og það er orðað. Eru þetta fyr- irtækin Straumur-Burðarás, sem m.a. hafi selt allan hlut sinn í Betson, og Kaupþing, en Landsbankinn og Trygginga- miðstöðin virðist hafa meiri trú á sænska markaðnum. Blaðið segir að Straumur-Burð- arás hafi sclt hlutabréf sín í 12 af 14 félögum sem íslenski bankinn átti í. Straumur eigi nú aðeins bréf í bankanum SEB og félaginu Pricer. Segir það, að eignamappa Straums- Burðaráss hafi minnkað um 870 milljónir sænskra króna. Þá eigi Kaupþing nú aðeins hlut í 20 sænskum félögum en átti í 38 félögum í upphafi ársins. mbi.is Hýtt afí í upptýsingatækni! Grensásvegi 111105 Reykjavik Sími: 550 40001 Netfang: digital@digitaJ.is Grand Hótel Reykjavík 14. september 09:00-10:00 Ekki örvænta þótt gögnin glatist Við erum til þjónustu reiðubúin! Digital Task og ibas bjóða þér til morgunverðarfundar að Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 14. mars frá kl. 09:00-10:00. Þar munu sérfræðingar Ibas í gagnabjörgun fræða gesti um dagleg viðfangsefni sín við að hjálpa fólki við að bjarga glötuðum gögnum og kynna lausnir Ibas fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Á hverjum degi leggja þessir sérfræðingar sitt af mörkum til að bjarga fyrirtækjum frá gagnatapi og að endurheimta dýrmætar stafrænar minningar fjölskyldunnar. Gagnabjörgun Ibas og Digital Task endurheimtir: Stafrænar myndir og myndbönd úr myndasafni fjölskyldunnar Niðurhöluðum skrám s.s. tónlist, kvikmyndum og hugbúnaði Tengiliðalista og dagbókarfærslur Verkefni og námsgögn Mikilvæg tölvupóstsamskipti og bréf Ibas er leiðandi fyrirtæki í gagnabjörgunarlausnum í heiminum í dag. Síðastliðin 28 ár hefur Ibas byggt upp reynslu og lausnir. sem hafa gagnast fyrirtækjum og einstaklingum um allan heim við að endurheimta glötuð gögn. Þjónustuver Digital Task að Grensásvegi 11 er búið tæknibúnaði frá Ibas sem endurheimtir gögn af helstu geymslumiðlum s.s. minniskortum og hörðum diskum. Sérfræðingar Ibas munu einnig kenna þér hvernig þú átt að eyða viðkvæmum gögnum með 100% öryggi! Morgunverðarfundurinn er öllum opinn og þátttakendum að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig með tölvupósti á netfangið: fyrirspurn@digital.is Fyrirlesarar: Henrik Andersen Product Line Manager, Ibas, Nordic Region Lars Lofsgaard Customer Care Manager, Ibas, Nordic Region

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.