blaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 12.09.2007, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007 blaðið Saksóknari segist hafa gögn til að ákæra Hár af Madeleine í farangursgeymslu Fjölmiðlar í Portúgal greindu frá því í gær að erfðaefnið sem fannst í bílaleigubíl foreldra bresku stúlk- unnar Madeleine McCann væri ekki úr blóði heldur annars konar líkamsvessum. Einnig er sagt frá því að svo mikið af hári stúlk- unnar hafi fundist í geymsluhólfi varadekks í skotti bílsins að ómögu- legt sé að það hafi borist þangað úr teppi eða fatnaði. Samkvæmt frétt Sky ákvað portú- galskur saksóknari i gær að næg sönnunargögn lægju fyrir til að ákæra þau Kate og Gerry McCann fyrir morðið á stúlkunni, sam- kvæmt frétt Sky. aí Eldflaug skotið af Gasaströndinni á búðir ísraelshers Sjötíu hermenn særðust Um sjötíu ísraelskir hermenn særðust, þar af nokkrir alvarlega, þegar eldflaug var skotið af Gasa- svæðinu á þjálfunarbúðir fsraels- hers í suðurhluta ísraels aðfaranótt gærdagsins. Eldflaugin, sem skotið var frá bænum Beit Hanoun, hæfði mannlaust tjald og særðust tugir hermanna sem sváfu í nálægum tjöldum. Líklegt má telja að árásin Íirýsti enn frekar á ísraelsstjórn og sralesher að taka harðar á málum Gasastrandarinnar, sem lýtur nú stjórn Hamas-samtakanna. Zikkim-þjálfunarbúðirnar eru um kílómetra frá landamærunum að Gasaströndinni. Hermennirnir sem særðust eru allir í grunnþjálfun og safnaðist mikill fjöldi foreldra og aðstandenda hermannanna saman við búðirnar til að fá fregnir af ör- lögum barna sinna. Skömmu eftir árásina svaraði fsraelsher með því að skjóta eldflaug á norðurhluta Gasa, þar sem fjórir særðust. Eldflaugaárásir frá Palestínu eru tíðar í suðurhluta fsraels, en aldrei hafa fleiri særst í sömu árás- inni. Þó að sjaldan verði manntjón í eldflaugaárásum Palestínumanna, hafa þessar tíðu árásir haft mikil sálræn áhrif á ísraelsmenn í suður- hluta landsins. atlii@bladid.net Sósíalistar guldu afhroð Borgaralegu flokkarnir héldu meirihluta sínum í stærstu borgum Noregs, Ósló og Bergen, í norsku sveitarstjórnarkosn- ingunum sem fram fóru á mánudaginn. Sósíalískivinstriflokkurinn (SV) galt afhroð í kosningunum og missti rúmlega helming atkvæða sinna, samanborið við síðustu kosningar. Verkamannaflokkur- inn fékk flest atkvæði á landsvísu, eða 29,7 prósent. Hægriflokkurinn fékk 19,2 prósent, Framfaraflokk- urinn 17,6 prósent, Miðflokkurinn 7,9 prósent, Kristilegiþjóðarflokk- urinn 6,4 prósent og Sósíalíski vinstriflokkurinn 6,1. aí Opel Corsa eða sambærilegur Vika í Frakklandi frá 18.700 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. Bókaðu bílinn heima - og fáðu 500 Vildarpunkta 522 44 00 • www.hcrtz.is FOSTUDAGAR LIFSSTILLBILAR Auglýsingasíminn er 510 3744 blaðið= Petraeus og sendiherrann Crocker Yfirmaður bandaríska heraflans í (rak og sendiherra Bandaríkjanna i írak komu á fund bandarískra þingnefnda til að greina frá stöðu mála I írak. Minnkandi þörf fyrir erlent herlið ■ Demókratar gagnrýna yfirmann bandaríska herliðsins harðlega ■ Iraksstjórn fagnar skýrslu Petraeus Eftir Atla Isleifsson atlii@bladid.net Stjórnvöld í írak hafa fagnað vitn- isburði David Petraeus, yfirmanns bandaríska herliðsins í Irak, fyrir þingnefndum Bandaríkjaþings, þar sem hann lagði mat á stöðu mála í Irak. Þjóðaröryggisráðgjafi Iraks- stjórnar sagði að írakar myndu í náinni framtíð hafa mun minni þörf á erlendu herliði til að sjá um ýmsar hernaðaraðgerðir í landinu. Petraeus mælti með að fækkað yrði í bandaríska herliðinu um þrjátíu þúsund næsta sumar. Slíkt myndi binda enda á hertar aðgerðir Banda- ríkjahers í Irak, þó að ekki yrðu gerðar grundvallarbreytingar á hernaðaráætluninni. Petraeus sagði Bandaríkjaher hafa náð mörgum markmiðum sínum, en að nauðsynlegt væri að gefa honum lengri tíma til verksins. Bandarískir demókratar hafa gagn- rýnt Petraeus harðlega fyrir skýrsl- una. Þeirhafnaþví að Bandaríkjaher hafi náð árangri í írak og kalla eftir að hafist verði handa að kalla herinn heim þegar í stað. „Við þurfum að yfirgefa Irak, bæði íraks og Banda- VITNISBURÐUR PETRAEUS David Petraeus, yfirmaður >•"' bandaríska herliðsins í írak, sagði hertar aðgerðir hers- ins síðasta hálfa árið hafa skilað árangri. ► Hann segir að kalla mætti heim um þrjátíu þúsund her- menn um mitt næsta ár. ► Þrátt fyrir að ofbeldis- verkum hafi fækkað þá er ástand mála í írak enn erfitt. ríkjanna vegna. Það er kominn tími til að fara,“ sagði Tom Lantos, formaður utanríkismálanefndar Bandaríkjaþings. Fulltrúadeildar- þingmaðurinn Lynn Woolsey sagði lítið að marka orð Petraeus, þar sem hann væri í raun málpípa Hvíta hússins. Petraeus hafnar þeirri full- yrðingu þingmannsins. Vel þjálfaðir Irakar Mowaffaq al-Rubaie, þjóðarörygg- isráðgjafi íraksstjórnar, sagði íraska hermenn verða vel þjálfaða og búna fyrir mitt næsta ár. „Við höfum á að skipa 500 þúsund hermönnum og lögreglumönnum, sem hafa fengið bestu þjálfun sem völ er á.“ Hann sagði það markmið íraskra yfirvalda að taka að sér öryggismál landsins að fullu, þó að enn um sinn yrði þörf á aðstoð erlends herliðs til að tryggja öryggi og stöðugleika. Ali al-Adeeb, náinn samstarfs- maður íraska forsætisráðherrans Nuri al-Maliki, segir að það myndi ekki hafa mikil áhrif á öryggi í Irak, þótt þrjátíu þúsund hermenn Banda- ríkjahers yrðu kallaðir heim. „Banda- ríkjamenn eru með 160 þúsund her- menn í Irak. Þessi tala er ekki há.“ Krefst tímaáætlunar Talsmaður stjórnmálahreyfingar sjítaklerksins Moqtada al-Sadr, vís- aði skýrslu Petraeus á bug og fór fram á að tímaáætlun um brotthvarf Bandaríkjahers frá írak yrði lögð fram. „Svo lengi sem bandarískir hermenn eru á götum okkar munu Irakar bera kostnaðinn af því að tryggja öryggi Bandaríkjamanna.“ HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Efnalaucjin Björg GædaKreinsun Góð þjónusta Þekking Opið: mán-fim 8:00 - 18:00 föst 8:00 - 13:00 laugardaga 10:00 - 13:00 Háaleltlsbraut 58-60 • Sími 553 1380

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.