blaðið - 12.09.2007, Page 10

blaðið - 12.09.2007, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007 blaðiö blaðii Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarf ulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Lögreglan í for- eldrahlutverki Lögreglan í Reykjavík hefur hafið herferð gegn sóðaskap í borginni. Þeir sem brjóta flöskur, henda rusli á götur, pissa á almannafæri og stunda annan subbuskap eru umsvifalaust beittir háum fésektum. Vissulega eru þetta harkalegar aðgerðir en því miður nauðsynlegar. í miðbænum um helg- arnætur hefur fram að þessu þótt næsta sjálfsögð hegðun að grýta flöskum í götu til að hífa upp stemninguna og að spræna utan í næsta hús hefur þótt jafnast á við snoturt íþróttaafrek. Lögreglan ætti vissulega að hafa sitthvað þarfara að gera en að kenna fólki mannasiði. Mannasiðir eru nokkuð sem menn eiga að læra í æsku og það sem innprentað er í börn af fullum þunga snemma á ævinni fylgir þeim venjulega ævina á enda. Sitthvað virðist hafa skort á að nútímaforeldrar hafi sinnt því nægilega vel að kenna börnum sínum almenna mannasiði, og ein- hver börn villast svo af góðri leið. Nú er svo komið að þar sem foreldrum hefur mistekist tekur lögreglan við. Menn þurfa ekki að vera sérstakir stuðningsmenn harðra refsinga til að fagna þessu framtaki lögreglunnar. I samfélagi manna gilda ákveðnar umgengnisreglur sem byggja á virðingu fyrir umhverfi og eignum. I alltof langan tíma hefur óöguðum fslendingum verið leyft að sýna umhverfi sínu fyrirlitningu. Tyggjóklessur á götum borgarinnar eru sorglegt dæmi um þetta og sömuleiðis sá furðulegi siður ungra karlmanna að ganga hrækj- andi um stræti borgarinnar. Sennilega telja þeir sig vera að fullkomna karl- mennskuímyndina þegar þeir hrækja úr sér slefunni. Sjálfsagt mun það taka lögregluna nokkurn tíma að kenna þeim, sem svo illa ganga um, almenna mannasiði. Best væri vitanlega ef hægt væri að tala um fyrir fólki með góðu en stundum dugar sú aðferð ekki. Þá er leið að sekta fyrir tiltækin og láta umhverfissóðana þannig finna fyrir því á eigin buddu að það er dýrt að kunna ekki almenna mannasiði. Lögreglan fer þó ekki einungis „hörðu“ leiðina til að taka á vandanum. Hún undirbýr einnig að fara á fund þeirra sem mestum skaða valda í mið- bænum, hitta þá þegar viðkomandi eru ódrukknir og bjóða þeim aðstoð og úrræði í samráði við SÁÁ. Þetta hljómar eins og fyrirmyndarlausn. Sjálfsagt munu ekki allir læknast af vanda sínum en sennilega þó nokkrir. Þá er til mikils unnið. Nýr lögreglustjóri, Stefán Eiríksson, hefur á skömmum tíma látið mjög til sín taka í starfi. Hann horfir ekki aðgerðalaus á vandann og fyrir frum- kvæði hans ber að þakka. Reykvíkingar hafa of lengi búið í borg þar sem sóðaskapur og skemmdarstarfsemi hafa viðgengist. Nú er vonandi að verða breyting á. Kolbrún Bergþórsdóttir SÆKTU LEIÐARANN A WWW.MBL.IS/P0DCAST Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Veitingahúsið Lækjarbrekka Óskar eftir að ráða matreiðslumann til starfa. Við leitum eftir fagmenntuðum og metnaðarfullum einstaklingi og æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst. Mjög góð laun eru í boði. Vinsamlega hafið samband við Hilmar Þór í síma: 892-0434 eða i tölvupósti: info@laekjarbrekka.is Veitingahúsið Lækjarbrekka Óskar eftir aðstoðafólki í veitingasal bæði á fullar vaktir og aukavaktir um kvöld og helgar. Reynsla er kostur en ekki skilyrði. Kennsla í framkomu og vinnubrögðum fyrir óvana. Allar upplýsingar eru veittar á staðnum á milli klukkan 14:00 — 17:00 eða í síma 551-4430. SKORTÍJfUHN A ÍSLEN5KUM IDNAdaTWÖNNUM Vald sérfræðinnar Vald sérfræðinnar gerir marga af- huga afskiptum af stjórnmálum. Al- menn þjóðfélagsmál sem kjósendur eiga að taka afstöðu til eru sveipuð í búning og svonefndir sérfræðingar flytja alþýðunni boðskap. Skila- boðin eru þau að fólk eigi að fara eftir því sem sérfræðingarnir segja. Háskólaprófessorar, lektorar og dó- sentar fara mikinn og halda sumir að þeir séu merkilegri en annað fólk þegar rætt er um pólitík. 1 sumum tilvikum sveifla sumir meintir fræðimenn um sig tilvitnunum eða halda því fram að ástandið erlendis sé með ákveðnum hætti og þá þurfi ekki frekar vitnanna við. 1 sumum tilvikum reynast þessar staðhæf- ingar langt frá raunveruleikanum. Ónefndur svonefndur sérfræðingur sem titlar sig stjórnmálafræðing hefur þannig haldið því fram að ástand í innflytjendamálum á Norð- urlöndum sé með öðrum hætti en blasir við þeim sem til þekkja. Þannig ferst „sérfræðingnum” eins og ungkommúnistanum í Búdapest í Ungverjalandi 1956 sem varð ekfci var við ófrið í þjóðaruppreisn Ungverja. Við umræður um innflytjenda- mál hafa sumir „sérfræðingar” talið nauðsynlegt að stuðla að svonefndu fjölmenningarsamfélagi sem m.a. á að felast í því að innflytjendur haldi siðum sínum og tungumáli, læri ekki íslensku eða aðlagi sig þjóðfélag- inu. Þekktur prófessor vildi m.a. að við yrðum 600 þúsund sem fyrst, þ.e. helmingur innflytjendur. Hollend- ingar og Danir hafa áttað sig á að slíkt gengur ekki, sérstaklega ekki þegar um ólfka menningarheima er að ræða. En „sérfræðingarnir” minn- ast ekki á það. Vér einir vitum segja þeir eins og gamlir arfakóngar og neita að horfa til reynslu sem þegar er komin í innflytjendamálum í ná- grannalöndum ofckar. Sumir sérfræð- ingarnir ganga svo langt að bregða þeim sem vilja gæta þjóðernis, tungu, sögu og lífsgilda eigin lands um óeðli- legar hvatir og öfgar. í bráðræði sínu gleyma þessir menn að öll þjóðfélög eru fjölmenningarsamfélög með ákveðnum hætti, flest þó án þess að tapa eigin eigind og ásýnd. Yfirgangs- sérfræðin segir eitt og heimtar undir- gefni af alþýðunni þótt það stangist á við allt sem venjulegur einstaklingur veit og skynjar. Þeir halda ráðstefnur á vegum háskólasamfélagsins um innflytjendamál og þess er gætt að einungis þeir sem eru sammála við- teknum sfcoðunum tali. Jón Magnússon Lagastofnun Háskóla íslands gerði samning við Landssamband íslenskra útvegsmanna um kostun tímabundinnar stöðu sérfræðings í auðlindarétti sem þekktur skák- maður var fenginn til að sinna. f framhaldi af því titlar skákmaður- inn sig sérfræðing í auðlindarétti, þó að sérfræðin sé ekki merkilegri en að ofan greinir. Háskólasamfélagið gengst síðan fyrir fundum, skrifum og ráðstefnum þar sem svonefndir sérfræðingar nokkrir auk skák- mannsins boða fræði sín. Þar tala ekki aðrir en stuðningsmenn kvóta- kerfisins. Þeir sem krefjast þess að komið verði f veg fyrir að þetta stærsta rán íslandssögunnar verði leiðrétt, komast ekki að. Á fundum sérfræðinganna sem kostaðir eru með einum eða öðrum hætti af kvótagreifunum er það talið versta guðlast að ætla að færa fólkinu í landinu aftur auðlindina sem samt er þjóðareign. Slíkir „gufuruglaðir hálfvitar” þurfa að þola köpuryrði af vörum sérfræðinganna. Nú hefur ríkisstjórnin með ut- anríkisráðherra í broddi fylkingar farið fram á það við hásfcólasam- félagið að það kynni sérstaklega framboð íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Yfirgnæfandi meirihluti þjóðarinnar er á móti þessu brölti og hefur alltaf verið en fína fólkið ætlar sér að fara sínu fram. Nú skal sérfræðin virkjuð til að sýna pöplinum hvað er pólitískt rétt. Háskólasamfélagið bregst við eins og ríkisstjórnin óskar og hefur þegar kynnt að haldnar verði 8 ráð- stefnur um málið. Þar tala þeir sem hafa skoðanir sem eru rífcisstjórn- inni þóknanlegar eins og kom fram á fyrstu ráðstefnunni í Háskóla íslands. Sennilega er leitun á landi þar sem háskólasamfélagið bregst við með þeim hætti að stunda áróð- ursstörf fyrir sitjandi ríkisstjórn samkvæmt hennar ósk. Einn virtasti öldungadeildarþing- maður Bandaríkjanna til margra ára, Barry Goldwater, sem var undir lok þingferils síns kallaður sam- viska þingsins, sagði eitt sinn þegar honum ofbauð vald sérfræðinnar og yfirgangur sjálfskipaðrar rétt- hugsunar: „Þú þarft efcki að vera sérfræðingur í pólitík eða kynlífi til að hafa gaman af þvf.” Við skulum muna að í lýðræðisþjóðfélagi eru allir kjósendur jafnir. Tími mennt- uðu einvaldanna er liðinn og reynd- ist lakara stjórnkerfi en lýðræðið þar sem allir hafa jafnan rétt til að hafa rétt eða rangt fyrir sér. Höfundur er alþingismaður KLIPPT 0G SK0RIÐ Islandsvinurinn víðfrægi Bobby Fischer er byrjaður að láta ís- lensk stjórnvöld heyra það svo um munar en á heimasíðu hans úthúðar hann íslenskum stjórnvöldum svo mjög að ekki er eftir hafandi á prenti. Sakar hann þar fjármálafyrir- tækið UBS í Sviss um að hafa af sér milljónir króna með dyggri hjálp íslenskra stjórnvalda. Bætir því við að ekki sé ríkisstjórninni einni um að kenna þar sem hún sé ekki annað en strengjabrúða bandarísku leyniþjónustunnar CIA og því sé fyrirséð að fé sitt í Sviss sjái hann aldrei aftur. Neðar á sömu síðu stærir hann sig af íslensku vegabréfi sínu sem gildir til 2015 og biður Bandaríkjamenn að hoppa upp í.... Tímaritið Foreign Policy birtir athygliverða úttekt á kynlífs- hegðun ýmissa þjóða í síðasta tölublaði sínu. Þar kemur fram að íslendingar eru þar framarlega sem í flestu öðru. Byrja þeir að jafnaði einna yngstir að stunda kynlíf, 12 ára, og eiga hvað flesta mismunandi bólfélaga og fyrir vikið er tíðni kynsjúkdóma einna mest hér á landi. Borgarfulltrúi Samfylkingar- innar, Bryndís ísfold Hlöðvers- dóttur, veltir þessum sláandi tölum fyrir sér og biðlar til félagsfræðinga að kanna málið. Þær upplýsingar gætu legið fyrir nú þegar enda upplýsingar Foreign Policy fengnar úr tveggja ára gam- alli kynlífskönnun Durex-smokka- framíeiðandans og ekki alveg nýjar af nálinni. albert@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.