blaðið - 12.09.2007, Page 22
MIBVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 2007
blaðió
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@bladid.net
w Verkefni Eyjólfs og landsliðsmanna okkar er
ekki ýkja flókið. David nokkur Healy er maður-
inn á bak við undravert gengi liðs síns og hefur
skorað ekki færri en 11 af þrettán mörkum liðsins alls.
SKEYTIN INN
Fram fram
fylking er
ráð hins
aldna kappa
Johans Cruyíf
til landa síns
Frank Rijkaard,
þjálfara Barcelona, en Cruyff
þykir sókndjarft lið Börsunga
ekki nógu sókndjarft. Með
slíka leikmenn sem bæði eru
eldsnöggir og áræðnir á hðið að
spila mun framar en verið hefur
í vetur því tapist boltinn eru
leikmenn liðsins sneggri til baka
en flestir andstæðingar í sókn.
Stuðnings-
menn QPR
hafa vart
getað á heilum
sér tekið síðustu
daga eftir að það
kvisaðist út að
nýr ítalskur eigandi liðsins hefði
hug á að ráða Fabio Capello
sem þjálfara liðsins. Nú hefur
eigandinn, Flavio Briatore,
sagt þetta úr lausu loffi gripið
enda þyrfti hann að selja alla
leikmenn liðsins til þess eins að
borga Capello ein mánaðarlaun.
Englend-
ingar eiga
enga góða
markverði og
Paul Robinson
er veikur hlekkur
sem við munum
sækja á. Þetta er mat Andrei
Arshavin, fyrirliða rússneska
landsliðsins, sem mætir því
enska í Evrópukeppninni í kvöld.
Munu enskir þar líklega fá aðeins
meiri andstöðu en Israelsmenn
veittu þeim um helgina.
Luis Arago-
nes.þjálfari
Spánar, er
dottinn út af
jólakortalista
Fernando
Torres eftir að
sá fyrrnefndi skipti Torres út
af í landsleik Islands og Spánar
um helgina. Hljóp Torres í fylu
sem ekki sér fyrir endann á
og er nokkuð dæmigert fyrir
spænska landsliðsmenn; hlaupa
í fýlu og fjölmiðla í stað þess
að herða upp hugann og reyna
betur og leggja harðar að sér.
Engin þjóð enn örugg með Evrópukeppnissæti næsta sumar
ísland í slæmum félagsskap
Engin þjóð hefur enn tryggt sér
farseðil á Evrópumót landsliða í
knattspyrnu að undanskildum gest-
gjöfunum Sviss og Austurríki og
hefur riðlakeppnin í þetta skipti
verið jafnari en oft áður. Aðeins
sjö þjóðir hafa hlotið færri stig en
íslenska landsliðið það sem af er
keppninni.
Þjóðverjar eru næstir því að
tryggja sér farseðilinn yfir landa-
mærin með 22 stig í efsta sæti D-rið-
ils en aðrir riðlar eru enn galopnir.
Tvö landslið fara upp eða fjórtán
félög alls fyrir utan gestgjafana
tvo sem ekki þurfa að vinna sér
þátttökurétt.
Það fer eftir því hvernig á það er
litið hvort ísland er í góðum eða
slæmum félagsskap. Fyrir metnað-
arfulla er sérdeilis óásættanlegt að
vera með færri stig en þjóðir eins
og Kýpur og á pari við Möltu. Þá er
einnig dapurlegt til þess að vita að
Liechtenstein hafi skorað næstum
jafn mörg mörk og ísland.
LÖKUSTU LIÐ ÁLFUNNAR
Kýpur 7 stig
Slóvenía 7 stig
Georgía 7 stig
Slóvenía 7 stig
Kasakstan 6 stig
Malta 5 stig
Aserbaídsjan 5 stig
Island 5 stig
Liechtensteln 4 stig
Eistland 3 stig
Moldóvia 2 stig
Lúxemborg Ostig
Andorra Ostig
Færeyjar Ostlg
San Marínó 0 stig
FÆST MÖRK SKORUÐ
fsland 6 mörk
Makedonía 6 mörk
Kasakstan 6 mörk
Liechtenstein 5mörk
Lettland 5 mörk
Litháen 5 mörk
Aserbaidsjan 4 mörk
Armenía 4 mörk
Eistland 2 mörk
Andorra 2 mörk
Færeyjar 2 mörk
San Marínó 1 mark
Lúxemborg 1 mark
Ekkert elsku
mamma nú!
Þrælahald og
kynþátta-
fordómar
fyrirfinnast í
Hollandi að mati
talsmanns Af-
onso Alves hjá He-
erenveen. Verður Alves reglulega
fyrir áreiti af versta tagi frá
hollenskum knattspyrnubull-
um sem er nógu slæmt en ekki
skýrir talsmaðurinn nánar hvar
þrælahald á að eiga sér stað.
Raúl er í
slíku líkam-
legu formi
að hann getur spil-
að hér til fertugs
hið minnsta. Þetta
segir þolþjálfari
Real Madrid um fýrirliðann
sem hefur hafið sitt fjórtánda
tímabil með liði sínu og á þrjú
til fjögur góð tímabil framundan
enn. Hann lék sinn fýrsta leik
með liðinu aðeins 17 ára gamall.
■ ísland mætir Norður-írum í kvöld Þrjú stig skýlaus krafa
Islenska landsliðið í knattspyrnu
hefur nú gyrt sig í hálfa brók eftir
jafntefli gegn Spánverjum um helg-
ina og í kvöld er gullið tækifæri til
að klára málið þegar spútniklið
Norður-fra mætir okkar mönnum
á Laugardalsvellinum. Fyrri leikur
liðanna er eini leikur landsliðsins
undir stjórn Eyjólfs Sverrissonar
sem þjálfarinn getur verið virkilega
stoltur af enda sigraði Island 0-3.
Nú þarf endurtekningu á því.
Upp upp mín sál
Þó að eitthvert svekkelsi sé eflaust
í leikmönnum landsliðsins eftir
að hafa tapað stigum gegn Spáni
þegar þeir áttu meira skilið geta
þeir tekið gleði sína að nokkru á ný
fyrir leikinn í kvöld. I fyrsta lagi eru
Irarnir ekki næstum því jafn sterkir
og Spánverjar og í öðru lagi mun
Eiður Smári Guðjohnsen spila með
og ekki er loku fyrir það skotið að
hann verði i byrjunarliðinu. Hann
TÖLFRÆÐIN í F RIÐLI
ísland N-írland
Skot á mark 24 33
Skot framhjá 11 28
Rangstaða 16 27
Mörk 6 13
Mörk á sig 16 9
Stig 5 16
hræðast írarnir mjög og Eiður hefur
sjálfur ýmislegt að sanna fyrir sér
og öðrum.
Stórt hjarta
Annars eru írarnir í öfundsverðri
stöðu í riðlinum, stöðu sem íslenska
landsliðið á undir venjulegum
kringumstæðum að eiga möguleika
á. Eru þeir í öðru sæti á eftir Svíum
og væru þeim jafnir hefðu þeir ekki
klúðrað síðasta leik sínum gegn
Lettum um helgina. Þeim leik töp-
uðu þeir 0-1 eftir sjálfsmark Chris
Baird.
Frakka á Healy
Verkefni Eyjólfs og landsliðs-
manna okkar er ekki ýkja flókið.
David nokkur Healy er maðurinn
á bak við undravert gengi liðs síns
og hefur skorað ekki færri en 11 af
þrettán mörkum liðsins alls. Verði
hann stöðvaður eða tekinn úr um-
ferð á einhvern hátt ætti eftirleik-
urinn að vera auðveldur ekki síst
ef landsmenn mæta á völlinn og
styðja sína menn. ísland hefur ekki
að öðru að keppa en að verja heiður
sinn og helsta keppikeflið nú er að
enda ekki í neðsta sæti F-riðils. Ef
marka má bætt hugarfar leikmanna
gegn Spáni er sigur á Norður-Irum
næsta skref upp á við.
Fall fararheill?
Birgir Leifur Hafþórsson
fellur um nokkur sæti á Evr-
ópumótalistanum en hann
hefur ekki náð í gegnum niður-
skurð á fjórum síðustu mótum
sínum. Tíu mót eru eftir en
möguleikar Birgis eru mjög
takmarkaðir enda getur hann
ekki tekið þátt í þeim öllum.
Er hann sem stendur í 189.
sæti og í 724. sæti á heimslista
atvinnukylfinga. Nú kemur
fljótlega í ljós hvort fall er
raunverulega fararheill
m f* — —m;txtu jmm
PvrwxHjK. 'fSSk [u wrwéamti Pvtwtk
‘y ; ; y jy ■ - 1E* BKt J ' [^fSTi
Blakað burt
Sé ástæða til að finna af og til
að gengi íslenskra landsliða er
full ástæða nú til að gagnrýna
harðlega þjálfara og leikmenn
Ui7-unglingalandsliðs karla
og kvenna. Bæði lið töpuðu
öllum leikjum sínum á Norð-
urlandamótinu um helgina
og enduðu í neðstu sætum.
Meira að segja Færeyingar
áttu ekki í vandræðum með
íslendingana.
Svitna í Afríku
Það muna kannski ekki
margir eftir Dikembe Mut-
umbo úr NBA-körfuboltanum.
Mutumbo var einn þeirra
skærustu í skamman tíma
þó aldrei næði hann ofur-
hæðum. Hann stofnaði hins
vegar samtökin Körfubolti án
landamæra og er ötull við að
fá stjörnur deildarinnar til að
svitna örlítið annars staðar en
á vellinum. Til að mynda hafa
samtökin byggt hús, kamra og
skóla fyrir íbúa í S-Afríku.
Bjöminn
ounninn
Skautafélagið Björninn úr
Grafarvogi sigraði á Aseta-bik-
armóti íshokkímanna eftir
spennandi úrslitaleik við
íslandsmeistarana úr Skauta-
félagi Reykjavfkur. Þá vann
Skautaféíag Akureyrar lið
Narfa auðveldlega í leik um
þriðja sætið en mótið markar
upphaf íshokkítímabilsins hér
á landi.