blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 2
2
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007
blaöiö
Láglaunastefna
20% lægri
laun hjá ríki
Heildarlaunamunur milli rík-
isstarfsmanna og starfsmanna
á almennum markaði var að
meðaltali 20 prósent í febrúar
í vetur samkvæmt könnun
sem SFR gerði.
SFR segir að þessi launa-
munur eigi sér engar eðlilegar
skýringar heldur sé um að
ræða hreina láglaunastefnu
ríkisins. Segir SFR Ijóst að í
komandi kjarasamningum
verði þess krafist að félags-
menn verði launaðir til jafns
við starfsmenn á almennum
markaði.
mbl.is
Aukaverk vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar kosta hálfan milljarð
Tenging við IKE A kostnaðarsöm
Aukaverk vegna tvöföldunar
Reykjanesbrautar milli Kópavogs
og Hafnarfjarðar hafa kostað um
500 milljónir króna. Þar af eru tæp-
lega 400 milljónir króna vegna mi-
slægra gatnamóta við nýja verslun
IKEA, sem voru ekki í upprunalegri
verkáætlun.
Jónas Snæbjörnsson, svæðisstjóri
Vegagerðarinnar á Suðvesturlandi,
segir að mikið hafi legið á þessu
verki. Vegagerðin hafi því samið
beint við verktakana, Klæðningu og
Glúm, um gerð þess eftir að útboð
fór fram og samningar frágengnir.
Hann segir mislægu gatnamótin
vera beina afleiðingu af byggingu
nýrrar verslunar IKEA á þessu
svæði þar sem umferð hafi aukist Heildarkostnaður vegna tvöföld-
mikið og að tengja hafi þurft inn á unarinnar er áætlaður um 1.600
nýtt svæði. milljónir króna með öllu og því er
Nýja IKEA-verslunin Gerð mislægra
gatnamóta til að tengja inn á svæðið
sem verslunin er staðsett á kostar
tæplega 400 milljónir króna.
um fjórðungskostnaðaraukningu
að ræða vegna byggingar mislægu
gatnamótanna. Verklok voru áætluð
þann 16. ágúst síðastliðinn og hafa
verktakarnir sætt 100 þúsund króna
dagsektum frá þeim degi.
Verktakarnir segja verkið hafa
tafist vegna stóraukins umfangs,
meðal annars vegna byggingar
mislægu gatnamótanna við IKEA.
Jónas segir þetta ekki rétt. „Þegar
samið var um þessi viðbótarverk þá
var jafnframt samið um nýja skila-
fresti. Það eru þeir skilafrestir sem
verktakinn hefur ekki getað staðið
við. En ég vona að verklok verði í
október.“
thordur@bladid.net
Gullhornum stolið á ný
Eftirlíkingum af gullhornunum með rúnaletrinu sem fundust 1639 og
1734 við Gallehus í Danmörku og eru talin vera frá því um árið 400 var
stolið aðfaranótt mánudags úr safninu Kongernes Jelling.
Báðum hornunum var stolið 1802 frá safni í Kaupmannahöfn og þau
brædd. Árið 1979 voru gerðar eftirlíkingar af hornunum eftir teikn-
ingum frá 17. og 18. öld. Það var að þessum eftirlíkingum, sem taldar
eru þjóðargersemi, sem danska lögreglan leitaði í gær.
ibs
Farbanniö
sem hvarf
Maður sem hlaut á dögunum
þriggja og hálfs árs fangelsisdóm
fyrir hrottafengna nauðgun er
horfinn úr landi. Var maðurinn
dæmdur í farbann á meðan málið
var rannsakað en það var ekki
framlengt þegar það rann út.
Maðurinn hvarf úr landi daginn
áður en hæstaréttardómurinn
yfir honum féll, en þá hafði hér-
aðsdómur áður dæmt hann til
fangavistar vegna málsins.
aþ
Þyrlan sótti
slasaöa
Alvarlegt bílslys varð í Reykhóla-
sveit á Vestfjörðum í gær. Þyrla
Landhelgisgæslunnar var kölluð
út. Ekki var vitað um tildrög eða
hve margir lentu í slysinu, þegar
Blaðið fór í prentun.
Haust á fast-
eignamarkaði
í nýrri fasteignaspá greiningar-
deildar Kaupþings er gert ráð
fyrir að fasteignaverð hækki að
meðaltali um 9% á þessu ári en
síðan taki markaðurinn að kólna
og að tólf mánaða hækkun fast-
eignaverðs nái lágmarki í 2,5% að
nafnvirði á næsta ári.
Velta hefur aukist verulega á
fyrri hluta ársins 2007 þannig að
fjöldi þinglýstra kaupsamninga
í hverri viku slagar hátt upp í
það sem hæst var haustið 2004
þegar bankarnir komu inn á fast-
eignalánamarkaðinn. Hins vegar
hefur fasteignaverð hækkað mun
minna nú en árið 2004.
íslendingi vísað
frá Danmörku
íslendingur í Kaupmannahöfn,
sem dæmdur var í tveggja ára
fangelsi fyrir fíkniefnabrot á
föstudag, fær ekki að búa í Dan-
mörku að lokinni afplánun. Lög-
maður hans segir fáheyrt að end-
urkomubanni sé þar beitt gegn
norrænum borgara og því sé nú í
fyrsta sinn beitt gegn íslendingi.
Maðurinn hefur búið á fimmta ár
í Danmörku, er í sambúð og á þar
tólf ára dóttur. Dómnum hefur
verið áfrýjað, að sögn RÚV.
FLUGFÉLAO ÍSLANDS
flugfelag.is
Burt úr bænum
Hópaferðir fyrir öll tilefni
GRIMSEV*
ÞO«*HÖWýt,
VÓPNAFJO60UH-
Upplýsingar:
Simi 570 3075
hopadeild@flugfelag.is
VESTf/ArjfJAEVJAH
Fá fjóra daga í
leikskólanum
■ Börnin á Austurborg fá ekki að mæta á hverjum degi ■ Sér-
kennsla og foreldraviðtöl verða undan að láta í manneklunni
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@bladid.net
Þau börn sem sækja menntun í
leikskólanum Austurborg fá ekki að
mæta nema fjóra daga í viku sökum
manneklu og er það bara eitt af
mörgum dæmum um það hvernig
leikskólarnir reyna að bregðast við
starfsmannaskortinum.
„Allt starfsfólkið gerir náttúrlega
sitt besta til þess að láta þetta ganga
og stendur sig mjög vel, en auðvitað
kemur þetta mjög illa við flesta for-
eldra,“ segir Rúna Malmquist, for-
maður foreldrafélags barna á Aust-
urborg. „Þetta er auðvitað tuttugu
prósenta skerðing." Vandinn sem
Rúna lýsir er samfélagslega knýj-
andi, því að á æ fleiri vinnustöðum
þurfa foreldrar að hverfa frá störfum
sínum til að sinna barnauppeldi.
Auk þess sem dvalartími barn-
anna hefur skerst eru dæmi um
skerta þjónustu á leikskólunum, til
dæmis anna einhverjir leikskólar
ekki foreldraviðtölum.
Sérkennsla í hættu
Björg Bjarnadóttir, formaður Fé-
lags leikskólakennara, segir að eðli-
lega heyri hún fyrst og fremst af fag-
legum áhyggjum sinna félagsmanna,
frekar en áhyggjum foreldra. Hún
segir félagsmenn sína meðal annars
kvarta undan því að undirbúnings-
VEÐRIÐ í DAG
Börnin á vergangi Þessi börn,
sem tengjast þó ekki efni fréttar-
innar, eru nógu lánsöm til þess að
fá að dveljast í leikskólanum.
LEIKSKÓLAR í VANDA
í Reykjavfk er 81 leikskóli.
10. september sl. voru 160
stöðugildi ómönnuð, sem
var þó framför frá því sem
var fyrr í haust.
tími leikskólakennara sé nánast að
engu orðinn og jafnframt hafi hún
heyrt að í einhverjum tilfellum hafi
sérkennsla þurft undan að láta.
„Við höfum verulegar áhyggjur,"
segirBjörkEinisdóttir.framkvæmda-
stjóri Heimilis og skóla. Hún segir
að óneitanlega sé ástandið víða
slæmt, en tekur fram að það sé mis-
ÁMORGUN
►
►
jafnt eftir leikskólum. Hún bendir á
að sums staðar sé engin mannekla
sem veki spurningar um það hvað
sé öðruvísi á þeim vinnustöðum.
Sigrún Björnsdóttir, upplýsinga-
fulltrúi leikskólasviðs Reykjavík-
urborgar, segist ekki kannast við
að þjónusta við börn sem njóti sér-
kennslu hafi verið skert. Hún tekur
undir með Björk að ástandið sé mis-
munandi eftir hverfum. Til dæmis
hafi gengið illa að manna stöður
í nýrri hverfum og þá séu ný börn
síður tekin inn í þá leikskóla.
HEFURÞÚ ÁBENDINGU?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Hlýnandi
Snýst í suðvestan 8-13 með skúrum vest-
antil, en 5-10 austantil á morgun og léttir
þar til. Hlýnandi veður og hiti 5 til 12 stig,
hlýjast norðaustanlands.
Rigning sunnanlands
Austlæg átt, 5-10 m/s og rigning sunn-
anlands síðdegis. Hægari vindur og víða
léttskýjað norðantil fram eftir degi. Hiti 5
til 10 stig.
• Eldsvoði Tilkynnt var á tíunda
tímanum í gærmorgun um reyk
í sogkerfi á trésmíðaverkstæði
við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði.
Glóð hafði komist í sag í kerfinu,
eldur náði þó ekki að komast
upp en það tók slökkvilið um tvo
tíma að slökkva í glæðunum og
hreinsa kerfið.
mbl.is
Myndir ótengdar efninu
Fyrir mistök birtust í Blaðinu á laugardag
tvær myndir sem ekki tengdust efni
greinanna sem um ræddi, án þess að
þess væri sérstaklega getið. A bls. 15 var
mynd af sambýli þroskaheftra á Akureyri,
sem á engan hátt tengdist umfjöllunarefni
greinar forystumanna Þroskahjálpar. Á
bls. 2 var mynd af fluguveiðimanni, sem
tengdist ekki efni fréttar um brottræka
maðkaveiðimenn í Hítará. Blaðið biðst
afsökunar á mistökunum.
Leiðrétt
Ritstjórn Blaösins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaöinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.
VÍÐA UM HEIM
Algarve 23
Amsterdam 15
Ankara 27
Barcelona 27
Berlln 24
Chicago 28
Dublin 12
Frankfurt 18
Glasgow 11
Halifax 20
Hamborg 13
Helslnki 14
Kaupmannahöfn 16
London 15
Madrid 27
Mílanó 22
Montreal 10
Munchen 14
New York 14
Nuuk 4
Orlando 25
Osló 16
Palma 25
París 20
Prag 16
Stokkhólmur 17
Þórshöfn 5