blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 14

blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007 blaðið FÉOGFRAMI vidskipti@bladid.net Þegar sótt er að frumlyfjaframleiðendum með ódýrum samheitalyfjum sem eru lík- leg til að taka af þeirra hlutdeild á markaði berjast þeir auðvitað með kjafti og klóm. 84% TM í eigu FL Group FL Group hf. á nú 83,7 prósent í Tryggingamiðstöðinni (TM). FL Group hefur keypt 46,2% hlut af Glitni banka hf., Hnotskurn ehf. og Sam- herja hf. en átti fyrir 37,6 prósent. Kaupverðið er 47 krónur á hlut og samanlagt kaupverð því tæpir 24 milljarðar króna. Kaupin verða að fullu fjármögnuð með útgáfu nýs hlutafjár í FL Group hf., samkvæmt fréttatilkynningu. Kaup FL Group á TM er fyrsta skref félagsins inn á tryggingamarkaðinn. gag Evruposar hjá Flugþjónustunni Fyrirtækið Kortaþjónustan hefur sett upp fyrstu posana hjá Flug- þjónustunni á Reykjavíkurflug- velli sem taka við evrum. Fleiri fyrirtæki hafa þegar beðið um að fá slíka evruposa, segir Jóhannes I. Kolbeinsson, framkvæmda- stjóri Kortaþjónustunnar. Hann segir margar ferðaþjónustur og hótel stefna á að taka nýju pos- ana í notkun á nýju ári. „Hindr- anirnar fyrir því að hér sé greitt með evrum eru engar,“ segir hann. Seljandinn ræður svo hvort hann fær uppgjörið á posafærsl- unum greitt í íslenskum krónum eða evrum. gag Fiskurinn verðmætari en í fyrra Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum ágústmánuði var 12% meiri en í ágúst 2006, sé hann metinn á föstu verði. Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna brey tingu á verðmæti heildaraflans. Það sem af er árinu hefur fiskafl- inn aukist um 2,2% á föstu verði miðað við sama tímabil 2006, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Botnfiskafli dróst saman um tæp 600 tonn frá ágústmánuði 2006 og nam tæpum 37.000 tonnum. Þorskafli dróst saman um rúm 1.000 tonn, ýsuaflinn jókst um tæp 3.200 tonn og ufsaaflinn dróst saman um tæplega 2.200 tonn. gag Tilboð í Stork dregið til baka Eignarhaldsfélag Candover hefur dregið yfirtökutilboð sitt upp á 47 evrur á hlut í hollenska félagið Stork til baka þar sem LME, eignar- haldsfélag Marels, Landsbankans og Eyris Invest, neitaði að selja, að því er segir í tilkynningu frá Stork. LME á nú 43 prósenta hlut í Stork. Samkvæmt tilkynningu frá Stork munu viðræður á milli LME, Stork og Candover halda áfram. Ert þú með mat og þyndarmál á heilanum? Esther Hetga Guömundsdóttir, ráðgjafi. MFM MIÐSTÖÐIN Meðferöar- og fræðslumiðstöð • Hvað á ég að gera, ég er búín að prófa alla kúra í heimi? • Ég get bara ekki hætt að borða sykur! • Ég get ekki lengur stundað alla þessa líkamsrækt, líkaminn erað gefa sig! • Það er alveg sama hvað ég geri og reyni, ég fell alltaf aftur í sama farið! Starf MFM MIÐSTÖÐVARINNAR felur m.a. í sér: • Fræðslu um matarfíkn og aðrar átraskanir, orsakir og afleiðingar. • Stuðning og kynningu á leiðum til bata. • Leiðbeiníngu um andlega, huglæga og líkamlega þætti sjúkdómsins. • Matreiðslunámskeið; lært að elda fyrir nýjan lífstíl. Við bjóðum upp á greiningu, ráðgjöf, stuðning, einstaklingsmiðaða meðferð og fræðslu. Lagakrókar á lyfjamarkaði H Lögfræðin leikur stórt hlutverk á lyfjamarkaði ■ Málaferli tefja þróun og halda verði uppi ■ Lyfjaframleiðendur stefna Actavis Eftir: Elías Jón Guðjónsson og Hlyn Orra Stefánsson Halldór Kristmannsson, upp- lýsingafulltrúi Actavis, segir það nánast sjálfgefið að frumlyfjafram- leiðendur á Bandaríkjamarkaði höfði mál á hendur samheitalyfja- framleiðanda eins og Actavis, þegar þau sækja um framleiðsluleyfi á samheitalyfjum. Actavis hefur aldrei tapað slíku máli. Barist í réttarsalnum „Þegar sótt er að frumlyfjafram- leiðendum með ódýrum samheita- lyfjum sem eru líkleg til að taka af þeirra hlutdeild á markaði berjast þeir auðvitað með kjafti og klóm. Yfirleitt hafa þeir tífalt stærra lög- fræðiteymi en samheitalyfjafyrir- tækin og setja gríðarlegan kraft í málaferlin. Það telur auðvitað fljótt í kassann hjá þeim nái þeir að tefja innkomu samheitalyfjanna; okkar sem annarra," segir Halldór. Hann segir löggjöfina þannig gerða í Bandaríkjunum að þegar frumlyfjaframleiðendur stefni samheitalyfjaframleiðanda fyrir að brjóta einkaleyfi sitt þá sé fram- leiðslu og markaðssetningu sam- heitalyfsins sjálfkrafa frestað um þrjátíu mánuði. Kærurnar séu því taktík frumlyfjaframleiðendanna til að halda samkeppninni frá. „Við erum eins og frumlyfjafram- leiðendur með gott lögfræðiteymi. Þetta snýst kannski fyrst og fremst um það hvort þeirra einkaleyfi stenst og hversu vel skráningar- vinna okkar er undirbúin,“ segir Halldór. Notað til að tefja Sigurður Óli Ólason, aðstoðarfor- stjóri Actavis, tekur undir orð Hall- dórs og leggur áherslu á að þau mál sem samheitalyfjafyrirtæki hafi tapað séu mjög fá. „Til dæmis hefur Actavis aldrei tapað slíku máli.“ Sam- heitalyfjaframleiðendur séu ekkert Við lyfjaframleiðslu Samheitalyfjaframleiðendur þurfa að hafa klóka lögfræð- inga á sínum snærum. sérstaklega sáttir við rétt frumlyfja- framleiðenda til að kæra framleiðslu samheitalyfjaframleiðenda því þeir noti leiðina til að seinka komu sam- heitalyfja inn á markaðinn og halda þannig lyfjaverði uppi. „En þetta er í lögum og þetta er leyfilegt." Hann bætir við að hvert lyf sem sett sé á markað í heiminum hafi mörg einkaleyfi. Þau séu þó mis- sterk. Hann segir samheitalyfja- framleiðendur í Bandaríkjunum einkum gera atlögu að framleiðslu- einkaleyfum. „Við teljum að okkar framleiðsluaðferð sé ólík þeirra framleiðsluaðferð og að við brjótum að því leyti ekki gegn einkaleyfinu,“ útskýrir Sigurður. Ólfkar reglur á milli markaða Sigurður segir reglurnar í Evrópu og Bandaríkjunum vera ólíkar að því leyti að það er verulegur akkur fyrir samheitalyfjaframleiðendur í Bandaríkjunum að vera fyrstir með lyf á markaðinn. „Ef þú sendir inn fyrstur þá færðu sex mánaða einkarétt á markaðnum. LYFJAFRAMLEIÐSLA ► Þegar lyf eru þróuð og sett á markað eru þau vernduð með einkaleyfi í nokkurn tíma. Þau kallast frumlyf. Samheitalyf innihalda ^ sama virka efni og frum- lyf, en eru framieidd sem eftirlíking af frumlyfi þegar einkaleyfisvernd frumlyfs rennur út eða er ekki fyrir hendi. Actavis er með 650 mismun- andi lyf á markaði í öllum heiminum. Af þeim eru um 190 í Bandaríkjunum. Þetta er ekki til staðar í Evrópu, þannig að það er minni hvati til þess að vera fyrstur á markaðinn og takast á við einkaleyfin þar því að næsti má bara koma strax á eftir.“ ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net MARKAÐURINN í GÆR Hlutabréfavíðskipti með skráð bréf hjé OMX á fslandi, 17. sept. 2007 Viðskipti í krónum Heildar- ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hluttallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboð I lok dags: verð breyting viðsk.verðs viöskipta dagsins Kaup Sala Félög f úrvalsvísitölu ▼ Atorka Group hf. 9,88 -0,20% 17.9.2007 3 101.596.396 9,88 9,89 ▼ Bakkavör Group hf. 61,50 -1,76% 17.9.2007 21 182.039.581 60,80 61,50 ▼ Existahf. 28,80 -3,84% 17.9.2007 86 379.513.233 28,70 28,80 ▼ FLGrouphf. 24,20 -0,41% 17.9.2007 46 527.072.511 24,20 24,30 ▼ Glitnir banki hf. 27,00 -2,17% 17.9.2007 58 1.523.567.064 26,90 27,00 Hf. Eimskipafélag íslands 39,40 - 17.9.2007 3 7.360.432 39,40 39,85 lcelandair Group hf. 25,40 - 17.9.2007 5 26.029.403 25,40 25,60 ▼ Kaupþing banki hf. 1040,00 -2,80% 17.9.2007 129 1.125.356.565 1035,00 1040,00 ▼ Landsbanki íslands hf. 38,90 -2,02% 17.9.2007 64 1.068.514.256 38,85 38,90 ♦ Mosaic Fashions hf. 17,50 0,00% 14.9.2007 1 6.261.815 ▼ Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 18,40 -3,41% 17.9.2007 59 421.120.762 18,30 18,40 ▼ Teymihf. 6,00 -1,80% 17.9.2007 23 100.372.166 5,94 6,02 ▼ össurhf. 99,50 -0,50% 17.9.2007 15 66.545.072 98,70 99,70 Önnur bréf á Aðallista ▼ 365 hf. 2,48 -0,40% 17.9.2007 1 1.240.000 2,46 2,49 Alfesca hf. 6,25 - 17.9.2007 2 386.331 6,22 6,28 ▲ Atlantic Petroleum P/F 1360,00 4,21% 17.9.2007 60 22.815.436 1310,00 1368,00 ▼ EikBanki 660,00 -1,49% 17.9.2007 16 20.937.527 654,00 660,00 Flaga Group hf. 1,42 - 13.9.2007 - - 1,41 1,43 ▼ Foroya Bank 217,00 -1,36% 17.9.2007 16 5.498.049 212,00 217,00 ▼ lcelandic Group hf. 5,86 -0,68% 17.9.2007 5 770.432 5,86 5,94 ▼ Marelhf. 97,90 -0,41% 17.9.2007 7 23.323.957 97,90 98,30 Nýherji hf. 21,50 - 13.9.2007 - - 21,50 21,90 a Tryggingamiðstöðin hf. 46,50 1,53% 17.9.2007 4 128.017.200 46,40 46,70 Vinnslustöðin hf. 8,50 - 22.8.2007 ■ - - 9,00 First North á íslandi * Century Aluminium Co. 3015,00 1,69% 17.9.2007 8 71.973.000 2990,00 3030,00 HB Grandi hf. 11,50 - 7.9.2007 - - 10,50 12,50 Hampiðjan hf. 6,50 - 5.9.2007 - - 6,55 • Mest viðskipti í Kauphöll OMX í gær voru með bréf Glitnis, fyrir 1,5 milljarða króna. • Mesta hækkunin var á bréfum P/F Atlantic Petroleum, eða 4,21%. Bréf Century Aluminum hækkuðu um 1,69% og bréf Tryg- ingamiðstöðvarinnar um 1 »53%. • Mesta lækkunin var á bréfum í Exista, eða 3,84%. Bréf í Straumi- Burðarási lækkuðu um 3,41% og bréf Kaupþings um 2,80%. • Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,42% í gær og stóð í 7.583 stigum í lok dags. • íslenska krónan veiktist um 0,78% í gær. • Samnorræna OMX40-vísitalan lækkaði um 1,13% í gær. Breska FTSE-vísitalan lækkaði um 1,7% og þýska DAX-vísitalan um 0,2%.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.