blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 15

blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 15
blaöió ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007 27 Kreppa á fasteignalánamarkaði í Bretlandi Hægir á hækkun húsnæðisverðs Microsoft tapar áfrýjun Microsoft skal bjóða Windows-kerfið án Media Player í Evrópu Hugbúnaðarrisanum Microsoft er gert að reiða fram 63 milljarða króna í sektir vegna brota á rétti neytenda með því að bjóða ekki stýrikerfið Windows án Media Player-hugbúnaðarins. Þetta er niðurstaða áfrýjunardóm- stóls Evrópusambandsins en þangað skaut Microsoft málinu eftir að framkvæmdastjórn bandalagsins ákvarðaði fyrir þremur árum að fyr- irtækið bryti lög með þessu og sekt- aði risann um tæplega 45 milljarða í undirrétti árið 2004. Hafa tvo mánuði til að áfrýja Fyrirtækinu er því gert að bjóða vöru sína á evrópskum mörkuðum án umrædds spilara en bandaríska fyrirtækið hefur þó tvo mánuði til að fara með málið fyrir æðsta dóm- stóls bandalagsins, Evrópudómstól- inn sjálfan. Talsmaður Microsoft segir að nú fari lögmenn þess yfir niðurstöðuna og meti næstu skref. Hann ítrekar þó að ríkur vilji sé hjá fyrirtækinu að virða lög og reglur sambandsins og því óvíst hvort farið verði með málið lengra en orðið er. albert@bladid.net Búist er við því að hækkanir á húsnæðisverði í Bretlandi verði um helmingi minni á næsta ári en þessu. Að mati sérfræðinga Nation- wide, stærsta lánveitenda á húsnæð- islánamarkaði, hefur húsnæðisverð hækkað um sjö prósent á þessu ári. Þeir telja að dýrari fasteignalán muni valda því að húsnæðisverð muni einungis hækka um þrjú pró- sent á næsta ári. Samdrátturinn í Bretlandi er ra- kinn til áhrifa kreppunnar sem nú geisar á bandaríska fasteignalána- markaðinum. Eftirtektarverðustu áhrifin hafa verið á breska bankann Northern Rock, en áhyggjufullir viðskiptavinir hans héldu áfram að flykkjast í útibú hans í gær til að taka út sparifé sitt. Bankinn viðurkenndi á fimmtu- dag að eiga í fjárhagsvandræðum og leitaði eftir aðstoð Englandsbanka til að takast á við lausafjárskort sinn. Þegar hafa viðskiptavinir bankans tekið yfir tvo milljarða punda út úr honum, eða sem nemur 260 milljörðum íslenskra króna. I gærmorgun höfðu hlutabréf í bank- anum lækkað um 33 prósent frá því á fimmtudag. thordur@bladid.net f Lækkun á Wall Street Hlutabréf lækkuðu í verði á Wall Street við opnun hlutabréfamark- aða í gær. Dow Jones-vísitalan lækkaði um 0,23%, Nasdaq lækkaði um 0,29% og Standard & Poor’s 500 lækkaði um 0,27%. í dag mun Seðlabanki Bandaríkj- anna kynna stýrivaxtaákvörðun sína en stýrivextir bankans eru nú 5,25% og hafa verið óbreyttir frá miðju síðasta ári. Vandræði á lánamarkaði og þær sviptingar sem hafa verið á fjármálamörkuðum undanfarnar vikur ásamt slakri stöðu húsnæð- ismarkaðar í Bandaríkjunum og versnandi stöðu á vinnumarkaði gefa tilefni til vaxtalækkunar í dag. Meðalspá Reuters meðal greiningaraðila hljóðar upp á vaxtalækkun um 0,25 prósent- ustig í dag og munu vextir þá verða 5,0%, samkvæmt Morgun- korni Glitnis. mbl.is ÖRT VAXANDI ÞEKKINGARSAMFÉLAG Oskum aðilum sem vilja taka þátt Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar í samstarfi við ýmsa aöila vinnur aö þróun og umbreytingu fyrrum varnarsvæðisins í þekkingar- og háskólasamfélag. Mikil starfsemi er þegar hafin og hefur Þróunarfélagiö samhliöa óskaö eftir hugmyndum um nýtingu þeirra eigna sem eftir eru á svæöinu ásamt tilboðum í þær. Upplýsingar um eignir á svæöinu má finna á www.kadeco.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.