blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007 blaðió Aðgerðir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í miðborginni halda áfram Fjörutíu og sex handteknir fyrir brot um helgina Ibúar landsins, sérstaklega karl- menn, voru iðnir við lögbrot um liðna helgi. Flest voru brotin framin í miðborg Reykjavíkur þar sem lögreglan á höf- uðborgarsvæðinu hélt áfram átaki sínu. Þá gerðust töluvert margir brotlegir undir stýri en lítið var um ofbeldisbrot. Lögreglan ætlar að halda eftirlit- inu í miðborginni áfram um helgar. Hún segir hert eftirlit ekki tíma- bundna aðgerð heldur það sem íbú- arnir og gestir miðborgarinnar verði að venjast og virða. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu boðar stórhertar aðgerðir þar og vill næturklúbba úr miðborginni. 1 Handtökur 46 voru handteknir í höfuðborginni um helgina fyrir brot á lögreglusamþykkt borg- arinnar. Brotin voru reyndar 47 því einn var tekinn tvisvar. Flest brotin voru framin aðfaranótt sunnudagsins eða þrjátíu talsins, sextán voru framin nóttina á undan. Af þessum fjörutíu og sex brotum áttu einungis þrjár konur hlut að máli, hinir fjörutíu og þrír voru karlar. Brotin Brot fólksins fólust einkum í því að kasta af sér vatni á almannafæri, fleygja rusli og brjóta flöskur. En brotin voru þó fjölbreyttari en það. Einn var meðal annars handtekinn fyrir að gyrða niður um sig buxurnar og bera á sér afturendann á almannafæri. Aðfaranótt sunnu- dags var auk þess einn piltur handtekinn fyrir að trufla störf lögreglunnar tvisvar. 2 3 Svæðið Lögbrotin á höfuðborgar- svæðinu voru ekki einskorðuð við miðborgina. Tólf ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur, flestir á sunnudag eða fimm. Þrír voru teknir á föstudag og fjórir á laug- ardag. Ökumennirnir voru allir karlmenn, sá yngsti sautján ára og sá elsti fimmtíu og fjögurra ára. Ökumenn neyttu fleiri vímu- gjafa en áfengis því fimm voru teknir fyrir lyfjaakstur. Landsbyggð Á Vesturlandi varð vart við veiðiþjófa á hvítum jeppa sem veiddu gæs í óleyfi. Þeir ganga enn lausir. Á Akureyri urðu unglingspiltar uppvísir að stórfelldum reiðhjólaþjófnaði. Á Suðurnesjum gistu sex fanga- geymslur vegna óspekta, einn fyrir að slá til lögreglumanns. Þar voru einnig tveir teknir fyrir ölvunarakstur og vel á þriðja tug fyrir hraðakstur. 4 fyígir fegurð Utlendir inn í REI Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, doktorsnemi í borgar- skipulagi og hagfræði, fjallaði á Miðborgarþingi í gær um rannsóknir sínar á þeim samfélagslegu og efnahags- legu áhrifum sem miðborgar- mynd hefur á borgarsamfélög. Rannsóknir hans á austurevr- ópskum borgum sýna að heild- stæð, falleg borgarmynd skilar ótvíræðum uppgangi. „Skemmdarverk og slíkt er algengara á þeim stöðum þar sem ekki er mikið lagt upp úr því að vernda og fegra um- Opinber heimsókn Forsetinn fer til Rúmeníu Forseti íslands Ólafur Ragnar Grímsson flaug nú í morgun til Rúmeníu. Fyrsta opinbera heimsókn hans þangað hefst á morgun og stendur í tvo daga. Með forsetanum í för verða Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og embætt- ismenn frá utanríkisráðuneyti, viðskiptaráðuneyti og skrif- stofu forseta. Viðskiptanefnd skipuð fulltrúum 25 fyrir- tækja fylgir honum einnig. gag á næstu vikum ■ Erlendir fjárfestar munu kaupa sig inn í Reykjavík Energy Invest á allra næstu vikum ■ REI stofnað til að eigendur Orkuveitunnar þyrftu ekki að ábyrgjast útrásarverkefni Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net „Ég get ekki sagt hvaða aðilar þetta eru, en það mun skýrast á allra næstu vikum,“ segir Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykja- víkur (OR), um erlenda fjárfesta sem ætla að kaupa sig inn í Reykja- vík Energy Invest (REI). Þegar félagið var kynnt í síðustu viku kom fram að það eigi að ráða yfir 50 milljarða króna hlutafé. OR ætlar sér að vera kjölfestufjárfestir með um 40 prósenta eignarhlut. Hjörleifur staðfestir að viðræður við erlenda fjárfesta hafi átt sé stað og segir fjölmarga slíka hafa óskað eftir því að verða þátttakendur í REI. Það muni koma í ljós á næstunni hverjir verða valdir til samstarfs. Hafa þegar sett 2,6 milljarða í REI Aðspurður um hvernig standi til að fjármagna hlut OR í REI segir Hjörleifur að fyrirtækið hafi þegar lagt fram um tvo milljarða króna í félagið auk eignarhluta í öðrum út- rásarfélögum. Þeir hlutir séu sam- tals um 600 milljóna króna virði. OR ætlar sér hins vegar að eiga hlutafé í félaginu að andvirði um 20 milljarða króna. Hjörleifur segir alls óvíst að þessi upphæð komi öll inn í félagið í peningum. „Við gerum ráð fyrir að það verði REI ► Er íslenskt orkuútrásarfyr- irtæki sem ætlar sér að fjármagna alþjóðleg jarð- hitaverkefni. W. Stefnt er á útgáfu nýs hluta- ^ fjár í REI, en félagið hyggst ráða yfir um 50 milljarða króna hlutafé. W. Orkuveita Reykjavíkur aetlar að verða kjölfestufjárfestir með um 40 prósent hluta- fjár. Það ætti að vera um 20 milljarða króna virði. metið með einhverjum hætti þegar aðrir fjárfestar koma inn í þau verk- efni sem Orkuveitan hefur þegar tryggt sér annars staðar. Það á eftir að meta þau verkefni og þá viðskipta- vild sem Orkuveitan hefur inn í þetta félag. Aðrir sem koma inn munu því koma inn á öðru gengi.“ Hann gerir ráð fyrir því að þau verkefni sem REI muni vinna að verði bæði fjármögnuð með hlutafé og lánsfé. „Það að vera með 50 millj- arða króna eigið fé gefur mikla möguleika á skuldsetningu.“ Tengist hlutafélagavæðingu OR Hjörleifur segir stofnun REI að hluta til tengjast hlutafélagavæð- ingu OR, en stefnt er að því að fy- irtækið verði orðið hlutafélag um næstu áramót. Sem stendur er OR sameignarfyrirtæki og sem slíkt þurfa eigendur þess, sveitarfélögin Reykjavík, Akraneskaupstaður og Borgarbyggð, að gangast í ábyrgðir fyrir skuldum fyrirtækisins. „Það sem við vildum gera var að taka þessa starfsemi út úr Orkuveit- unni og setja í sérstakt félag til þess að ábyrgð eigendanna tæki ekki til útrásarverkefna. Þetta félag var meðal annars stofnað svo að við gætum hleypt öðrum inn í það. Það var ekki hægt með Orkuveituna. Þannig að þetta tengist með þeim hætti að tilgangurinn er að þvæla ekki ábyrgðum eigenda Orkuveit- unnar inn í útrásarverkefni.“ Vegmúla 2 - 108 Reykjavlk - 550 1310 - verdbref@spron.is - www.spronverdbref.is •Nafnávöxtun miöast viö 31. ágúst 2006 til 31. áúgst 2007, skv. sjodir.is. Peningamarkaössjóöur SPRON er fjárfestingarsjóöur skv. lögum nr. 30/2003 um veröbréfasjóöi og fjárfestingarsjóöi. Rekstrarfélag sjóösins er Rekstrarfélag SPRON. Útboöslýsingu má nálgast á heimasíðu SPRON Veröbréfa, www.spronverdbref.is.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.