blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 6
AKA
VIÐ HÖFUM ALLAR GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA
Vagnhöfða 25 112 Reykjavík sími 567 4455 fax 567 4453
Óskum eftir góöu starfsfólki
í dag- og kvöidvinnu.
Frábær starfsandi með góðu starfsfólki
Upplýsingar
Culiacan@culiacan.is
eða Sólveig sími 696-0225
Upplýsingarog skráning:
5444500/www.ntv.is
SKRÁÐU ÞIG NÚNA!
ÖRFÁ SÆTI LAUS
Frábært nám fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína í starfi
eða eru á leið inná vinnumarkaðinn eftir nokkurt hlé.
í náminu er lögð mikil áhersla á að styrkja einstak-
linginn og gera hann hæfari til að takast á við
krefjandi störf á vinnumarkaðnum.
O Skrifstofu- og tölvunám
• Windows stýrikerfið • Word ritvinnsla • Excel töflureiknir
• PowerPoint kynningarefni • Access gagnagrunnur • Bókhald
• Tölvubókhald Navision MBS® • Internetið & Tölvupóstur
• Verslunarreikningur • Tímastjórnun og markmiðasetning
• Streitustjórnun • Atvinnuumsóknir • Sölutækni og þjónusta
• Auglýsingatækni • Gerð birtingaráætlana • Framsögn og framkoma
• Markhópagreining • Mannleg samskipti • Gagnvirk tenging forrita
• Flutningur lokaverkefnis
258 stundir - Verð: 233.000.-
Örfá sæti laus á morgunámskeið sem
6 I FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007 blaóið
250 bíða eftír
offitumeðferð
■ Biðtíminn 9 mánuðir á Reykjalundi og eitt og hálft ár á Kristnesi
■ Skipulagt prógramm vantar fyrir unglinga sem glíma við offitu
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Nú bíða um 70 manns eftir að
komast í offitumeðferð á Kristnesi
og 180 manns á Reykjalundi þar sem
starfrækt hefur verið sjálfstætt nær-
ingar- og offituteymi frá ársbyrjun
2001. Biðtíminn eftir fyrsta göngu-
deildarviðtali er 8 til 9 mánuðir. Það
sem af er þessu ári eru beiðnir um
meðferð orðnar 200. f fyrra og hitti-
fyrra voru beiðnirnar hins vegar
færri eða um 170 hvort árið.
„Ég hélt að þetta væri komið í jafn-
vægi. Fyrst eftir að magahjáveitu-
aðgerðirnar hófust 2001 streymdu
hingað beiðnir og voru eitt árið 340
á þeim tíma þegar við áttum ekki
að sinna nema 25. Nú virðist stefna í
annan topp en við getum verið með
100 á ári í dagdeildarmeðferð," segir
Ludvig Guðmundsson, endurhæf-
ingarlæknir á Reykjalundi.
Að sögn Ludvigs fer stór hluti
þeirra sem gengið hafa í gegnum
offitumeðferð á Reykjalundi í
magahjáveituaðgerð. „Nokkrir vilja
ganga í gegnum alla meðferðina og
sjá hver árangurinn verður áður
en þeir taka ákvörðun um að fara í
aðgerð.“
Knýjandi þörf
Allir sem komast að í meðferðina
á Reykjalundi glíma við mikla offitu.
Flestir eru á aldrinum 20 til 55 ára.
„Það koma líka eldri einstaklingar
hingað og yngri, allt niður í 15 ára.
Þess eru dæmi að unglingarnir séu
allt að 200 kg. Við höfum hins vegar
ekki skipulagt prógramm fyrir tán-
inga. Meðferðin fyrir þá þyrfti að
vera öðruvísi en fyrir fullorðna. Við
viljum helst ekki taka yngri en 18
ára í meðferð en þörfin er knýjandi,"
bendir Ludvig á.
Ef ungt fólk fitnar mikið mjög
hratt er líklegt að önnur vandamál
liggi að baki en bara rangt mata-
ræði og hreyfingarleysi, að sögn Lud-
vigs. „Þetta eru einkenni um að eitt-
hvað annað geti verið að, til dæmis
þunglyndi, áföll, slæmar aðstæður,
einelti eða útilokun. Stundum er erf-
itt að greina hvað er orsök og hvað
afleiðing.“
Konur í meirihluta
Konur eru alls 75 prósent þeirra
sem ganga í gegnum offitumeðferð-
ina á Reykjalundi. „Við höfum enga
ástæðu til að ætla að konur glími
frekar við mikla offitu en karlar.
Þær virðast hins vegar frekar leita
OFFITUMEÐFERÐ
► Meðferðin tekur á mörg-
um þáttum sem tengjast
offituvandamálum, svo sem
næringu og hreyfingu og
einnig á atriðum eins og
sjálfsímynd, andlegri og
líkamlegri líðan og féiags-
legum þáttum og fleiru eftir
því sem við á.
► Meðferðartími frá forskoð-
un er um það bil 3 ár.
sér hjálpar," segir Ludvig.
Biðtíminn eftir offitumeðferð
á Kristnesi, þar sem er endurhæf-
ingardeildFjórðungssjúkrahússins
á Akureyri, er eitt og hálft ár, að
sögn Ingvars Þóroddssonar yfir-
læknis. Nú bíða um 70 manns eftir
meðferð. „Það eru tvö ár síðan við
byrjuðum með hópmeðferð fyrir of-
fitusjúklinga og beiðnunum fjölgar
og fjölgar. Það sem af er þessu ári
eru þær orðnar rúmlega 60. Við
getum verið með alls 55 sjúklinga
yfir árið.“
HEFURÞÚ ÁBENDINGU?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Fjórhjólamenn ATH
Taktu félagann með!
Nú kemurðu tveimur fullvöxnum hjólum ó kerruna I
* tveggja hásinka *Ný& betri beisli * galvanseruð * burðageta 750 kg. * extra löng 430 x!50cm
Topdrive.is Smiðjuvellir 3, Reykjanesbær 422-7722
VISA Lán
■ HAGSTADAR AFBORGANIR
Lengd 430 cm!
Sérsniðin fyrirþig..
Dráttarvextir 225 milljónir á ári
Birgjar missa
þolinmæðina
Landspítali greiðir 225 millj-
ónir í dráttarvexti á ári af þeim
900 hundruð milljónum sem
hann skuldar birgjum sínum. Það
hefur Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra stór-
kaupmanna, reiknað út. „Þetta er
miðað við vanskilavesti sem eru 25
prósent.“
Hann undrast að nú þegar ríkis-
sjóður standi svo vel sé hundruðum
milljóna af almannafé kastað á glæ.
„Það snýr að stjórnvöldum að laga
þetta," segir Andrés. „Menn hafa
misst alla þolinmæði í málinu og
oft hefur verið rætt að það kæmi að
því að hætta sölu til spítalans. Birgj-
arnir vilja hins vegar vera ábyrgir
þar sem höndlað er með lífsnauðsyn-
lega vöru og því hafa þeir ekki tekið
þá ákvörðun." gag