blaðið - 18.09.2007, Page 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007
blaðiö
Hafa glæpahringir snúið
sér að lyfjafölsunum?
Á þingi alþjóðasamtaka lyfja-
fræðinga (FIP) sem haldið var í Pek-
ing í byrjun september var fjallað
nokkuð um málefni sem er vax-
andi áhyggjuefni Alþjóðaheilbrigð-
ismálastofnunarinnar (WHO),
lyfjaiðnaðarins, heilbrigðisstétta
og stjórnvalda víða um heim. Mál-
efni þetta er lyfjafalsanir, eða fram-
leiðsla á „counterfeit medicines”,
sem að sögn Jeffrey Gren hjá banda-
ríska viðskiptaráðuneytinu er nýj-
asta áhugamál þeirra sem fengist
hafa við eiturlyfjaframleiðslu.
Michael Anisfeld, frá bandaríska
ráðgjafarfyrirtækinu Globepharm
Consulting, tilgreindi þessa aðila
nánar: rússneska mafían, kólumb-
ískir „viðskiptajöfrar” og hryðju-
verkasamtök eins og Hizbollah og
al-Quaeda.
Ávöxtun fjármuna
Augljóst er að hryðjuverkasam-
tök hafa þarna séð leið til að skaða
og drepa á ófyrirsjáanlegan hátt,
en hitt virtist ekki jafn augljóst,
hvers vegna rússneska mafían
og kólumbískir „viðskiptajöfrar”
kjósa að beina kröftum sínum að
lyfjafölsunum fremur en eiturlyfja-
framleiðslu. Jeffrey Gren varpaði
ljósi á málið: ávöxtun fjármuna
sem „viðskiptajöfrarnir” leggja í
eiturlyfjaframleiðslu á borð við
heróínframleiðslu er nálægt 200
prósent, á meðan hún getur verið
2000 prósent ef peningarnir eru
lagðir í lyfjafalsanir á sumum teg-
undum. Refsiramminn gerir starf-
semina ekki minna aðlaðandi:
langir fangelsisdómar geta legið
við ef menn eru gripnir við eitur-
Texti þessi
■k erskrifaður
almenningi til
K JB umhugsunar
W áðurenlagt
%sé, T er út í Internet-
verslun með lyf.
UMRÆÐAN
Ingunn Björnsdóttir
lyfjaframleiðslu eða sölu, á meðan
refsiramminn fyrir lyfjafalsanir
er víða um lönd svipaður og fyrir
fölsun á Levi’s-gallabuxum eða
Prada-töskum. Þó er ekki vitað
til þess að falsaðar gallabuxur eða
töskur hafi skaðað heilsu fólks að
nokkru marki, en fölsuð lyf hafa
skaðað/drepið fjölda fólks, þótt
meira hafi verið um slík dauðs-
föll í þróunarlöndum en þróuðum.
Refsiramminn miðast gjarnan við
að verið er að brjóta gegn lögum
um skrásett vörumerki og tekur
þannig oft ekki mið af hættunni
sem lögbrotið skapar fyrir blásak-
lausan almúgann.
Aukin Internetverslun
En skyldu íslensk stjórnvöld
hafa áhyggjur af lyfjafölsunum?
Lauslegar athuganir benda til að
svo sé ekki. Lyfjastofnun stoppar
að vísu nokkurn fjölda ólöglegra
sendinga á fæðubótarefnum og/
eða lyfjum í viku hverri, en ekki
er talin ástæða til að reyna að
flokka þessar sendingar eftir því
hvort um fölsuð lyf er að ræða
eða ekki. Stofnunin og ráðuneytið
telja nægja að stöðva sendingarnar
á öðrum forsendum. Þetta er ef til
vill ekki stórkostlegt áhyggjuefni
fyrir íslendinga að svo stöddu, en
ef Internetverslun með lyf verður
leyfð, þá horfir málið hugsanlega
öðruvisi við (samkvæmt fyrirlestri
Jeffrey Gren má reikna með að
helmingur Internetverslunar með
lyf snúist um falsaða vöru). Við
aukna Internetverslun má reikna
með að Lyfjastofnun fái enn meira
að gera við að skanna stikkprufur
af lyfjasendingum og hefur þó
stofnunin ærinn starfa fyrir, ef
mið er tekið af starfsmannafjölda.
Tekið skal fram að ekki er hver ein-
asti pakki frá útlöndum grandskoð-
aður þótt allir séu þeir opnaðir,
heldur eru teknar stikkprufur til
nákvæmari skoðunar. Eftirlit með
lyfjum sem berast til landsins
eftir hefðbundnum innflutnings-
leiðum er sambærilegt við eftirlit
af slíku tagi í nágrannalöndunum,
þótt „viðskiptajöfrar” í þessari
grein „viðskipta” hafi jafnvel verið
staðnir að því að koma fölsuðum
lyfjum inn í lyfjasendingar sem
fara hefðbundnar leiðir (sjá til
dæmis frétt á heimasíðu Lyfja-
stofnunar um falsað lyf sem barst
í samhliða innflutningi frá Frakk-
landi til Englands).
Texti þessi er skrifaður almenn-
ingi til umhugsunar áður en lagt
er út í Internetverslun með lyf.
Von mín er sú að hann beri ekki
fyrir augu allt of margra kólumb-
ískra „viðskiptajöfra”, rússneskra
mafíósa eða hryðjuverkamanna.
Þeim gæti þótt íslenska kerfið
athyglisvert.
Höfundur er lyfjafræðingur
Hvar eru kratarnir?
Ekki hef ég alltaf verið sammála
krötum í gegnum tíðina. Stundum
hef ég þó verið það. Ekki síst þegar
um hefur verið að ræða eignarhald á
auðlindum. Almennt var lína krata
sú að vilja styrkja eignarhald al-
mennings, þjóðarinnar allrar, á auð-
lindum Islands. Þessi afstaða þótti
mér stimpluð inn í hina kratísku vit-
und. Nú stöndum við frammi fyrir
því að ráðafólk þjóðarinnar selji frá
okkur dýrmætustu auðlindir okkar.
Salan á orkuveitunum er nefnilega
sala á auðlindum. Hellisheiðar-
virkjun er ekki bara hús og pípur.
Hún er Hellisheiðin sjálf. Og nú
standa fjárfestar sem vilja komast
yfir slíkar auðlindir í röðum til að
hrifsa þær til sín. Þetta þarf engum
að koma á óvart. Öðru gegnir um
vesaldóm ríkisstjórnarinnar því allt
er þetta gert með dyggum stuðningi
hennar. En getur verið að hvergi
eimi eftir af gömlum arfi í flokki
sem vill kenna sig við jafnaðar-
mennsku og almannahag? Hvar er
arfleifð Hannibals? Hvar er arfleifð
Gylfa? Hvar er arfleifð Jóns Bald-
vins? Hvar er arfleifð allra hinna?
Valtar peningavaldið yfir þá sem
JtfkgnijL Nú stöndum við
frammi fyrir því
að ráðafólk þjóð-
arinnar selji frá
okkur dýrmæt-
■ k ustu auðlindir
yjj |i okkar.
UMRÆÐAN
Ögmundur Jónasson
segjast bera kyndla þessara manna
án minnstu fyrirstöðu? Leggjast
þeir kannski undir valtarann? Er allt
orðið falt? Helsti vandinn að mati
ríkisstjórnarinnar er löggjöf sem
bannar útlendingum utan EES að
fjárfesta í orkulindum. Þetta líkaði
F1 Group, Glitni og Goldman Sachs
bankanum illa enda er þegar búið
að skipa nefnd til að kippa þessu í
liðinn. I nefndinni eiga sæti full-
trúar ríkisstjórnarflokkanna, Við-
skiptaráðs og Samtaka atvinnulífs-
ins. Enginn frá Neytendasamtökum,
enginn frá verkalýðshreyfingunni.
Hefði Hannibal haft þetta svona?
Höfundur er þingflokksformaður VG
Oticon ♦ Epoq
Ný kynslóð þráðlausra heyrnartækja
Epoq eru fyrstu heyrnartækin sem tala saman. Tvö Epoq senda stöðugt
upplýsingar sín á milli og samræma hratt og örugglega stillingar og
hljóðstyrk. Með Epoq heyrnartækjum kemstu nær eðlilegri heyrn en
nokkurn tímann áður!
Epoq heyrnartækin geta tengst þráðlaust við farsíma og aðra hljóðgjafa
í gegnum Epoq streymi. Með Epoq opnast því ný hljóðveröld sem auðveldar
þér að eiga dagleg samskipti og njóta þess sem tækni 21. aldar hefur
upp á að bjóða.
Heymrtækm______________________
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 1 0 4 Reykjavík |
Pantaðu tíma í síma
568 6880
Y04.IK
Eltak sérhæflr sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum mesta úrval
á íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafdu samband
ELTAK ,
Síðunuila 13, sfmi 588 2122
www.eltak.is
TliSÖLU...
SMÁAUGLÝSINGAR
Efnalaugin Björg
Gæðahreinsun
Góö þjónusta
Þekking
Opiö: mán-fim 8:00 - 18:00
föst 8:00 - 19:00
laugardaga 10:00 - 13:00
Háaleitisbraut 58-60 • Sími 553 1380