blaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 18
30
ÞRIÐJUDAGUR 18. SEPTEMBER 2007
blaóiö
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@bladid.net
Liðið rétt slefaði inn í Meistaradeildina eftir heppnis-
sigur gegn NK Zagreb og aðeins tímaspursmál áður
en helsta stjarna þeirra og einhver besti leikmaður
heims, leikstjórnandinn Diego, fær nóg af meðalmennsku.
SKEYTIN INN
Martin Jol,
r-
tenham, hefur
-• brennt flestar
brýr að baki sér
eftir dapra byrjun
liðsins í haust. Fullyrða háttsettir
menn innan stjórnar liðsins í
fjölmiðlum þarlendum að Hol-
lendingurinn eigi aðeins nokkrar
vikur eftir í starfi fari púslin ekki
að falla fyrir hðið. Tottenham
tapaði erkislag sínum gegn Arsen-
al á heimavelli um helgina 1-3.
Ronaldin-
hoþykir
ekki vera
svipur hjá sjón
þessa dagana
miðað við síðustu
leiktíð og auðsjá-
anlegt hverjum sem er að hann
er nokkuð langt frá sínu besta
formi. Hann er engu að síður
markahæstur Börsunga með
tvö mörk sem bæði komu
beint úr aukaspyrnum.
Dietmar
Hamann
notaði
tímann fyrir
helgi, lagði saman
tvo og tvo og
fór svo í blöðin
með niðurstöður sínar. Þar segir
hann alveg víst að Manchester
City verði áfram að vinna leiki
til að eiga einhverja möguleika
á Evrópusæti í vor. Gott hjá
Hamann að leggja áherslu á
þetta enda aldrei legið ljóst fyrir
stuðningsmönnum boltans.
Annar kappi
með greind-
arvísitölu
við herbergishita,
sóknarmaðurinn
James Beattie
hjá Sheffield
United, greinir ff á því að hann
verði að leggja sig fram til að
■x komast í hðið hverju sinni...
Ballið byrjað
Meistaradeildin hefst í kvöld Blaðið spáir í spilin
Fyrstu átta leikirnir í Meist-
aradeild Evrópu þessa leiktíðina
hefjast í kvöld og geta knattspyrnu-
aðdáendur óhikað tekið kvöldið
frá þvf minnst fjórir þessara leikja
verða harðar rimmur skemmti-
legra liða. Verkefni Liverpool
gegn Porto á útivelli er langt í frá
auðvelt, viðureign Schalke gegn
Valencia er afar forvitnileg, Real
Madrid ætti að rúlla upp Werder
Bremen sem misst hefur marga
sína bestu leikmenn og meistarar
Milan ættu að fara varlega gegn
Benfica sem oftar en ekki hefur
komið á óvart.
MARSEILLE 2-1 BESIKTAS ■ PORTO 2-2 LIVERPOOL
Marseille þjáist af sama kvilla
og önnurfrönsk félagslið; allir
bestu leikmenn þeirra vilja fara
brott um leið og vel gengur.
Þannig er þeirra langbesti
maður á síðustu leiktíð, Franck
Ribery, nú að heilla alla í
búningi Bayern Munchen og
niðurgangur verið í hafnarborg-
inni síðan. Besiktas er einnig
hefðbundið tyrkneskt lið. Þeir
gætu nælt sér í fimm til sex
stig í riðlakeppninni en lengra
fara þeir ekki.
Sparkáhugamenn eiga margir
hverjir auðvelt með að merkja
við útisigur hér en fótboltasagan
er stútfull af félögum sem töldu
auðvelt að eiga við Portúgalana
og fengu rassskellingu fyrir
vikið. Porto var ekki fjarri því
að Ijúka möguleikum Chelsea í
sömu keppni fyrir ári og liðið er
síst veikara nú. Er reyndar efst í
Portúgal með fullt hús stiga.
Benítez veit þetta og þarf að
brýna fyrir sínum mönnum að
fara varlega.
CHELSEA 3-0 R0SENB0RG ■ SCHALKE 1-2 VALENCIA
Hér spáir Blaðið að allt smelli
hjá Mourinho enda kominn tími
til. Norðmennirnir munu pakka
í vörn eins og flestir aðrir gera
gegn Chelsea á heimavelli þeirra
og því eru þeir bláklæddu vanir
og munu fljótlega finna veikan
hlekk á norsku keðjunni. Cheis-
ea hefur aldrei tapað sínum
fyrsta leik í Meistaradeildinni og
tapaði engum leik í riðlakeppn-
inni á síðasta ári.
Taka ber ofan fyrir hetjuskap Ro-
senborg enda vel mannað lið.
Þessi er forvitnilegur því bæði
félög hafa stritað meira en í
meðallagi í deildum sínum þetta
haustið. Schalke hefur aðeins
náð sjö stigum úr fyrstu fimm
leikjum sínum og Valencia hefur
verið þrælheppið að ná þeim
sex stigum er þeir hafa á Spáni.
Sigurinn hér fellur því liði í skaut
sem labbar fram á völlinn með
meira sjálfstraust og það hafa
Spánverjarnir þrátt fyrir þær tug-
þúsundir á pöllunum sem hvetja
heimamenn.
íi i’íhiL/JiJil
WERDER B.
0LYMPIAK0S 0-1 LAZI0
Ekki alveg grískur harmleikur en
slæmur leikur engu að síður fyrir
heimamenn að mati Blaðsins.
Lazio einfaldlega með breidd og
mannskap til að taka þrjú mikil-
væg stig á útivelli þó að alkunna
sé að grísku liðin í keppninni
tapi yfirleitt ekki heimaleikjum
sínum þó sjaldan fari þau langt í
keppninni. Það helgast kannski
af því að þau vinna aldrei útileiki
og Olympiakos meira með sem
uppfylling en nokkuð annað.
Það sést í kvöld.
ii
Þaulreynt lið meistara Milan er
of sjóað til að falla í þá gryfju
að vanmeta Benfica og á þeim
stólpum hvílir sigur ítalanna. Þeir
þurfa líka að sýna að það var
engin tilviljun að þeir unnu Meist-
aradeildina í fyrra og að liðið sé
ekki veikara nú þó margir vilji
meina að svo sé. Benfica leikur
þrælskemmtilegan bolta og
munu liðsmenn þess sækja sem
þeirra er von og vísa en verður
ekki kápan úr þeim klæðunum í
þetta skipti.
Dagar Werder Bremen meðal
stórliða Evrópu er taldir í bili að
mati Blaðsins. Liðið rétt slefaði
inn í Meistaradeildina eftir
heppnissigur gegn NK Zagreb
og aðeins tímaspursmál áður en
helsta stjarna þeirra og einhver
besti leikmaður heims, leikstjórn-
andinn Diego, fær nóg af meðal-
mennsku.
Reai hefur byrjað betur heima en
í mörg ár og bullandi sjálfstraust
þýðir einstefnu á mark Bremen
og sannfærandi sigur í spilunum.
SHAKTAR 1-1 CELTIC
Bæði lið verða afar varkár enda
má ieiða líkur að því að tapliðið
lendi í slæmri stöðu í riðlinum
sem ráð er fyrir gert að Milan
vinni örugglega. Það félag sem
ætlar að fylgja Milan upp úr riðlin-
um þarf að sýna seiglu og negla
þrjú stig á minnst einum útivelli
og tækifærið er fyrir Celtic nú.
Úkraínska liðið er þó nautsterkt
og um það gilda sömu reglur.
Miðjumoð mestallan leikinn og
stöku skyndisóknir Skotanna
líklegar.
15-20%
AFSLÁTTUR
AF KÆLI- OG
FRYSTISKÁPUM
B-SKAPAR
Lítió eóa ekkert
útlítsgallaóir skapar
og sýningareintök
SELDIR
MEÐ ALLT AÐ
50°/o
AFSLÆTTI
www.ormsson.is
UMBOÐSMENIM
UM LAND ALLT
ORMSSON
Tæklar Totti
Þjálfari Reggina, liðs Emils
Hallfreðssonar, var ánægður
með sitt fólk þrátt fyrir 0-2
ósigur gegn Roma um helgina.
Emil lék mestallan leikinn
og stóð sig vel eins og aðrir
félagar hans en Reggina er
dverglið miðað við Rómverj-
ana og ódýrustu leikmenn
Roma kosta svipað og allt lið
Reggina. Engin skömm er því
að tapinu og víst er að stjarna
Roma, Francesco Totti, veit í
dag hver Emil Hallfreðsson er
enda tæklaði íslendingurinn
hann grimmt í leiknum.
Trónar Tiger
íþróttafréttamenn sem sér-
hæfa sig í golfi eiga náðuga
daga þessi dægrin. Tiger
Woods vinnur öll mót sem
hann tekur þátt í og hægt er
að endurvinna fvrirsagnir
viku eftir viku. I þetta sinn
snýtti hann andstæðingum
sínum á Tour-meistaramót-
inu og sigraði með átta högga
mun. Bólgnaði bankabók
hans um tæpar 700 milljónir
króna fyrir vikið.
Rísa Rússar
Rússar sigruðu Spánverja í
úrslitaleik Evrópukeppninnar
í körfuknat tleik á ævintýra-
legan hátt 60-59 en lokaskot
Spánverja sem tryggt hefði
þeim sigur hefði það dottið
geigaði. Bauð leikuiinn upp
á allt það besta í evrópskum
körfuknattleik sem þó, eins
og skorið bendir til, á talsvert
í land að ná bandaríska körfu-
boltanum hvað sóknarleikinn
varðar.
i ORMSSON ! ORMSSON * ORMSSON * ORMSSON ! ORMSSON ! ORMSSON # ORMSSON i ORMSSON ! ORMSSON ! ORMSSON ! ORMSSON
LÁGMÚLA 8 SMÁRAUND KEFLAVlK MODEL-AKRANESI ÞRISTUR-ÍSAFIRÐI RADIONAUST-AKUREYRI VlK-EGILSSTÖÐUM VlK-NESKAUPSTAÐ VlK-REYÐARFIRÐI ÁRVIRKINN-SELFOSSI BÓKABÚÐ-HÚSAVlK
SÍMI5302800 SÍMI5302900 SÍMI421 1535 SlMI431 3333 SfMI4564751 SlMI461 5000 SÍMI471 2038 SlMI477 1900 SlMI474 1477 SlMI480 1160 SlMI464 1515
McRae allur
Rallkappinn Colin McRae
sem yngri kynslóðin þekkir
kannski best úr tölvuleikjum
lést um helgina ásamt 5 ára
syni sínum þegar þyrla er
þeir ferðuðust í hrapaði til
jarðar í Skotlandi. McRae var
einn fremsti rallökumaður
heims um tíma og vann slíkar
keppnir alls 26 sinnum á
ferlinum.