blaðið - 29.09.2007, Page 36
36
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007
blaöið
LÍFSSTÍLLSPJALLIÐ
bladid@bladid.net
Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar og
skellti mér alein í bíó í miðborg Stokk-
hólms til að sjá þessa mynd. Fyrirfram
vissi ég ekkert um hvað hún fjallaði.
Áhrifamesta
kvikmyndin
Kvikmyndir og kvikmyndagerð eru mikið í umræðunni
þessa dagana enda stendur yfir Alþjóðleg kvikmyndahátíð
í Reykjavík. Af því tilefni ákvað Blaðið að hafa samband við
fimm vel valda kvikmyndaáhugamenn og fá þá til að segja
frá því hvaða kvikmyndir hefðu haft mest áhrif á þá.
Þrjár myndir koma upp í hugann
Ég get nefnt þrjár myndir sem koma strax upp í hugann. í fyrsta lagi myndina Requiem for
a Dream eftir Darren Aronovski. Hún er mjög áhrifamikil, ekki síst af því að Aronovski tekst
svo vel að má út mörkin á milli ímyndunar og veruleika og magna þannig upp vímuna sem
fylgir eiturlyfjunum sem og óhugnaðinn. Þetta er klikkuð mynd og í henni gerast hlutir sem
gætu aldrei gerst, en það er einmitt í takt við þennan heim sem eiturlyfjaneytendur búa í.
1 öðru lagi er það myndin Magnolia eftir Paul Tomas Anderson. í henni eru sagðar margar
sögur samhliða og allar fléttast þær saman. Það magnaða við myndina er að mikil spenna
býr undir niðri í öllum þessum átta eða níu sögum og endalaust ris í þeim. 1 raun var hálf-
gert átak að horfa á hana og þrátt fyrir alla þessa spennu gerast mjög hversdagslegir atburðir
í henni. Fólk er ekki að veifa vopnum og sprengjum.
Að síðustu verð ég að nefna myndina Big Lebowski eftir Cohen-bræður. Hún er uppáhalds-
myndin mín, enda mettuð af húmor og hægt að horfa á hana aftur og aftur og koma auga á
nýja brandara í hvert skipti.
Gekk grátandi um
götur Stokkhólms
Myndir Bergmans réðu miklu um það að
ég fór að læra kvikmyndafræði i Svíþjóð á
sínum tima og hið sama gildir um myndir
Kieslowskis, en ég sérhæfði mig í honum í
skólanum.
En af nýlegri myndum er það Lilya 4 Ever
eftir Lukas Moodysson sem hefur haft hvað
allra mestu áhrifm á mig. Þegar ég sá hana
hafði ég fylgst með verkum Moodysson frá
upphafi ferils hans og næsta mynd á undan
Lilyu 4 Ever var Tilsammans sem allir þekkja
sem fyndna og skemmtilega. Ég vissi því ekki
við hverju ég átti að búast þegar ég var stödd
í Svíþjóð vegna ráðstefnu og sá í bíóauglýs-
ingunum að nýbyrjað væri að sýna nýjustu
mynd Moodyssons. Ég hugsaði mér gott til
glóðarinnar og skellti mér alein í bíó í mið-
borg Stokkhólms til að sjá þessa mynd. Fyrir-
fram vissi ég ekkert um hvað hún fjallaði. Ég
var byrjuð að gráta þegar um 4 mínútur voru
liðnar af myndinni og gekk síðan grátandi
eftir myndina í gegnum miðborg Stokkhólms
og heim á hótel.
Dóttirin meira
kúl en ég
Áhrifamesta kvikmyndin sem ég hef séð
er Disney-myndin Bambi. Ein af mínum
fyrstu bíóminningum er frá því þegar ég sá
hana sem barn í Gamla biói einhvern tím-
ann á 8. áratugnum. Ég man svo vel hvað
það var sterk upplifun fyrir mig þegar ég sá
að móðir Bamba var skotin af veiðimanni
og pabbinn varð að taka við. Maður getur
rétt ímyndað sér hvernig upplifun það
er fyrir lítinn dreng að horfa upp á svona
lagað! Ég hika ekki við að fullyrða að Bambi
er áhrifamesta myndin sem ég hef séð og
ekki síst af því að þetta er ein af mínum
fyrstu bíóminningum.
Síðan þá hef ég nokkrum sinnum horft
á hana og sá hana síðast með dóttur minni
fyrir nokkrum árum og mér finnst myndin
ennþá svínvirka. Dóttir mín tók þetta þó
ekki eins mikið inn á sig og ég á sínum
tíma, enda er hún miklu meira kúl en ég var
á hennar aldri auk þess sem hún sá mynd-
ina bara á vídeói en ekki i bíó.
Heimildarmyndir
hafa mestu áhrifin
Það er alltaf mjög erfitt verk að velja úr
myndir sem hafa haft hvað mest áhrif á
huga manns, en sem dæmi get ég byrjað
á að nefna myndir Roy Rogers, en hann
mótaði mitt líf að hluta til þegar ég var
smápatti og lék mér i kúrekaleikjum.
Myndir eftir Bergman, eins og til
dæmis Sjöunda innsiglið, settu sitt
mark á mig og nýlega var það myndin
Líf annarra sem er eftir Dorian Henckel
von Donnersmarck sem hafði djúpstæð
áhrif á mig. Ég er einmitt þessa dagana
að vinna að gerð heimildarmyndar sem
fjallar að hluta til um lífið í Austurþýska
alþýðulýðveldinu.
Ég held þó að það sem standi alltaf
upp úr hvað varðar áhrif kvikmynda á
mig séu heimildarmyndir af alls kyns
toga. Þar get ég nefnt sem dæmi heim-
ildarmyndina Check Pointl en í henni er
fjallað um ástandið i Palestínu. Svo hafa
heimildarmyndir Michaels Moore einnig
haft mikil áhrif á mig.
Ágætis byrjun
Ein fyrsta myndin sem hafði veruleg
áhrif var Síðasti bærinn í dalnum sem Óskar
Gíslason gerði árið 1950. Ég man það eins og
gerst hefði í gær þegar ég - barnung - sá hana
í Ríkissjónvarpinu. Ég var alin upp við lestur
ævintýra og sagna og fannst magnað að sjá
þessi stórskornu tröll birtast ljóslifandi í sauð-
arlitunum og þegar kistan tókst á loft og flaug
á einhvern óskiljanlegan hátt.
Ég gekk í gegnum hryllings- og spennu-
myndatímabil og leitaði uppi blóðugustu
myndir sem buðust. Af þeim hefur The
Shining eftir Stanley Kubrick elst best en hún
er frábærlega skrifuð og leikin. Aðrar Kubrick-
myndir eru einnig ofarlega á lista.
f háskólanámi mínu í Bretlandi tók ég kvik-
myndafræði með öðru og kynntist myndum
Orson Welles. Þær eru stórkostleg veisla og
meistaralega fléttaðar mistorræðum táknum,
sem mér fannst heillandi að reyna að ráða í.
Sú mynd sem stendur mér næst hjarta í
augnabíikinu er sú sem ég sá siðast en það er
mynd Sigur Rósar, Heima. Þetta er feikilega
vel gerð mynd að öllu leyti.
Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri
menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkur