blaðið - 29.09.2007, Qupperneq 46
46
LAUGARDAGUR 29. SEPTEMBER 2007
blaðið
FÓLK
folk@bladid.net
Þess þarf ekki því að í
tilefni dagsins veitum
við öllum gestum reynslu-
lausn samdægurs.
Verður gestum boðið upp á næturgistingu?
Halldór Valur Pálsson vinnur hjá Fangelsismálastofnun,
sem efnir til „opins húss“ og móttöku fyrir gesti að Kvía-
bryggju, sem tekin verður formlega í notkun eftir stækk-
un og endurbaetur.
~4
HEYRST HEFUR
Ofurbloggarinn Jónína Bene-
diktsdóttir hefur sjaldan legið
á skoðunum sínum. Á bloggi
sínu ritar hún um fyrrverandi
„stjörnublaðamenn“ sem hafa
endað ferilinn á „sorpritinu
DV“ eins og hún kemst að
orði. Hún sakar „litlu typpin“
um atvinnuróg gegn fyrirtæki
sínu því þau geri lítið úr stól-
pípumeðferð hennar í Pól-
landi. Þá segir hún orðrétt:
„Eftir að hafa horft á annan rit-
stjóra DV, þann ófríðari, reyna
að standa á fætur í gufubaðinu
í Vesturbæjarlauginni um dag-
inn tel ég stólpípuáhuga þeirra
skiljanlegan."
Hvom ætli
hún sé að
tala um,
Reyni
Traustason,
eða SME
Guðrún Gunnarsdóttir og Raggi Bjama hafa nóg fyrir stafni
Söngstund á Sögu
FÓLKIÐ
Mikið var um dýrðir á opnun
Alþjóðlegrar kvikmyndahátíð-
ar í Reykjavík í gær. Opn-
unarmyndin, Heima, fékk afar
góðar viðtökur áhorfenda og
mun án efa laða marga erlenda
ferðamenn til íslands í ffam-
tíðinni. í kjölfar sýningarinnar
var gestum boðið í heljarinnar
veislu í O.J.& Kaaber-húsinu
við Sætún. Þar vom að sjálf-
sögðu staddir allir meðlimir
Sigur Rósar og Aniimu en
þjónamir vom klæddir sem
böðlar og buðu upp á
Fjöldinn allur af erlendum
gestum mætti á opnunina og
virtust þeir afar hrifnir af
landi, þjóð. Þeir vom, eins og
aðrir gestir, ferjaðir yfir í Sæt-
ún í rútum frá Háskólabíói. Þó
gleymdist að upplýsa þá um að
Sætún væri innan borgarmark-
anna því að nokkur óróleiki
greip um sig í einni rútunni
þar sem útlensku gestimir
tóku eftir því að ekkert klósett
var í vagninum og spurðu
hvort ekki yrði gert pissustopp
á leiðinni ef ferðin tæki mikið
meira en klukku-
tíma .
Guðrún Gunnarsdóttir og
Ragnar Bjarnason syngja
saman á Hótel Sögu
næstu vikurnar. Þau hafa
sjaldan haft jafn mikið að
gera en bæði gefa út jóla-
plötur á næstunni.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Guðrún Gunnarsdóttir og Ragnar
Bjarnason eru meðal þeirra sem
troða upp á Hótel Sögu næstu
vikur með söngskemmtun í hæsta
gæðaflokki. Bæði hafa þau nýlok-
ið við gerð jóladiska og hefur
sjaldan verið jafn annasamt hjá
þeim og nú. „Það er alveg brjálað
að gera hjá mér þessa dagana,“
segir Guðrún. „Þessa vikuna hef
ég verið í upptökum á nýrri jóla-
plötu með Friðriki Ómari, sem
útsett er af Ólafi Gauki og mun
heita Ég skemmti mér um jólin.
Þetta er þriðja plata okkar Óm-
ars, en jafnframt fyrsta jólaplatan
sem við gerum saman. Við mun-
um halda tónleika fyrir norðan á
^ Akureyri þann 22. nóvember og
stólum á að norðanmenn rnæti."
Fagnar 20 ára starfsafmæli
„Síðan er ég alltaf í útvarpinu á
Guðrún er 44 ára og var um
langt skeið á sjónvarps-
skjánum í fslandi í dag og ís-
landi í bítið, sem og 6 til 7 á
Skjá einum
Ragnar er 73 ára og hóf feril
sinn sem trommuleikari.
Hann stofnaði Sumargleðina
árið 1971 ásamt Ómari Ragn-
arssyni
Rás 2, starf sem ég kann mjög vel
við. Ég uppgötvaði það nú bara
um daginn að ég á 20 ára starfs-
afmæli í útvarpi, því ég byrjaði á
Rás 2 árið 1987! Utvarpið er ein-
mitt sá miðill sem ég held að eigi
best við mig og ég kann best við
sjálf. Kannski er það vegna þess
að ég byrjaði þar, en í sjónvarp-
inu er alltaf þetta vesen með
sminkið, hárið og fötin, allt þetta
útlitslega sem er svo þungt í vöf-
um. Þetta allt er ég laus við í út-
varpinu," segir Guðrún sem þarf
að fara að rjúka á æfingu fýrir
kvöldið. „Þetta er svona skemmt-
un sem spannar alla tónlistarsög-
una, nánast frá því að hótelið var
opnað. Við tökum Abba-lögin,
Bítlana, Bjarni Ara tekur Elvis-
og Tom Jones-lög og Hara-systur
koma síðan ferskar inn með svo-
lítið meira „physical" nálgun á
sviðsframkomuna en hjá okkur
heldra liðinu! Raggi Bjarna verð-
ur þarna með okkur, en hann
virðist bara fara batnandi með
árunum, er alveg ótrúlegur kall-
inn. Saman koma þarna því þrjár
kynslóðir á sviðinu, sem er nú
ekki amalegt!
Þekkir vel til staðarins
„Ég hef nú verið eitthvað lítið
þarna síðan Sumargleðin hætti,“
segir Raggi og hlær. „Mér varð
einmitt hugsað til þess í gær, þeg-
ar ég labbaði upp tröppurnar,
hversu oft ég hefði nú farið um
þessar blessuðu tröppur! Sumir
hafa sagt að ég sé jafnvel orðinn
að einni súlunni í Súlnasal! En
það er voðalega gaman að vera
kominn þarna affur, því ég á
margar góðar minningar þaðan.“
Ragnar mun senda frá sér jóla-
plötu á næstunni, sem hann segir
þá fyrstu sinnar tegundar. „Hún
mun heita Gleðileg jól með Ragga
Bjarna og er að mínu viti fyrsta
al-íslenska jólaplatan, með nýjum
lögum og nýjum textum. Ég sem
sjálfur tvö lög, Þorgeir Ástvalds
semur eitt og Gunnar Þórðarson
rest, ásamt því að útsetja. Diddú
syngur dúett með mér og sömu-
leiðis einn 12 ára strákur, hann
Árni. Svo eru kórar og jólasveinar
og allur pakkinn á plötunni, eitt-
hvað fyrir alla.“
BL0GGARINN...
Veljum íslenskt
„Islensk tónlist" heitir diskurinn minn og
efmenn lesa aftan á umslagið skilja
menn það sem ég erað gagnrýna.
Enskir textar vaða uppi hjá íslenskum
tónlistarmönnum og tónlistin þeirra
hljómar Ifka eins og hun sé bresk eða
bandarísk og vekurþar af leiðandi enga
athygli erlendis. Islensk tónlist með ís-
lenskum textum ermun eftirtektarverð-
ari á heimsmælikvarða efmenn eru á
annað borð að spá í heimsmarkaðinn"
Guðmundur Gíslason
gummigisla.blog.is
Verra en ríkið
„Auðvelt erað hefja viðskipti við Voda-
fone, engin fyrirhöfn. Annað erað losna
úr viðskiptum við það. Þá finna starfs-
menn fyrirtækisins alls konar meinbugi
á slíku. Þeirhalda áfram að senda reikn-
inga.j...] Vodafone er verra en ríkiseln-
okun. Passiðykkur."
Jónas Kristjánsson
www.jonas.is
Kvenskór í 43
„Mig bráðvantar háhæla skó fyrir fyrstu
helgina íoktóber. Erað fara útálífið i
sokkabuxunum sem ég keypti í París og
allskyns öðru kvenlegs eðlis, eins og ég
hefþegarsagt frá. Ég reikna hins vegar
með að verða í erfiðleikum með að
finna háhæla skó númer43. Efeinhver
góðhjarta karlmaður eða stórfættur
kvenmaður lumar á pari sem viðkom-
andi er til í að lána eina kvöldstund
myndi ég þiggja það. “
Þorgrímur Þráinsson
thorgrimur.eyjan.is
Sport Outlet
Vlnlandsleið 2-4, efri hæð
OPIÐ
Virkadaga kl. 12-18
Laugardaga kl. 12-16
4“ Nóatún
Margt Smátt
Toppskórinn
Vlnlandslelö
Húsaamlðj^
Vesturtandsvegur
Reykjavlk
Vínlandslelð 2-4 • 113 Reykjavlk
tmiyíXU
UllCTAl WííWliÆt
Su doku
5 2 1 9 3
7 6 2 5 3
9 7
5 3 7 1
8 4 5 3
2 9 8
9 4 3 7 2
2 5 6
4 7 2
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
HERNIAN
eftir Jim Unger
Gastu ekki fundið þér góðan
kærasta frá þessari plánetu?