Bændablaðið - 27.06.2006, Side 2

Bændablaðið - 27.06.2006, Side 2
2 Þriðjudagur 27. júní 2006 Þyrlupallur við Hótel Búðir? Bæjarstjórn Snæfellsbæjar barst á dögunum ósk frá eigend- um Hótels Búða um leyfi til þess að koma upp þyrlupalli við hót- elið. Að sögn Kristins Jónasson- ar bæjarstjóra var ekki ljóst af bréfinu hver ætti að borga fyrir gerð pallsins en óskinni var vís- að til umhverfis- og bygginga- nefndar. ,,Hótelið stendur í miðju friðlandi svo þetta er flók- ið mál sem eflaust þarf að fara fyrir Umhverfisstofnun,“ sagði Kristinn í samtali við Bænda- blaðið. Beiðni eigenda hótelsins teng- ist framkvæmdum sem fyrirhug- aðar eru við aðkomuna að hótel- inu. Vegagerðin hyggst lagfæra og rykbinda veginn heim að Búðum en eigendur fóru fram á að því verki yrði frestað fram í síðari hluta ágústmánaðar. ,,Þeir vildu ekki að vegurinn yrði tepptur vegna framkvæmda á háannatíma hótelsins enda fara þarna um fjöl- margir bílar á degi hverjum yfir hásumarið,“ sagði Kristinn og bætti því við að bæjarstjórn hefði komið þessum skilaboðum áfram til Vegagerðarinnar. Loks báðu hótelhaldarar um að sveitarfélagið tæki þátt í gerð bíla- stæðis við hótelið og er það mál í skoðun hjá bæjarstjórn. Tækjaflutningar milli sóttvarnar- svæða Nýjar reglur í mótun Jóhanna E. Pálmadóttir al- þingismaður og bóndi lagði fyrirspurn fyrir landbúnað- arráðherra um það hvort ekki sé þörf á ,,að flokka landbúnaðartæki og önnur tæki sem farið er með þvert á sauðfjárveikivarnarlínur með tilliti til smithættu sem gæti borist á milli varnarhólfa með tækjunum, nú þegar bændur og aðrir vinnuvéla- eigendur eru í ríkara mæli farnir að sækja vinnu út af búum sínum“ . Í svari ráðherra er vísað til laga og reglugerðar sem kveður á um að hægt sé að banna flutn- inga dýra, vöru og tækja milli eða innan sóttvarnarsvæða. Menn sem þurfa að fara með tæki milli sóttvarnarsvæða skuli fá starfsleyfi héraðsdýra- læknis og vottorð um fullnægj- andi sótthreinsun tækja. Hins vegar hafi ekki verið mótaðar reglur um flutning á tækjum milli sóttvarnarsvæða eða flokkun þeirra. Loks er vísað til þess að nefnd sé að störfum sem á að gera tillögur um end- urskoðun varna gegn búfjár- sjúkdómum og að ráðuneytið muni fela henni að fjalla um þau atriði sem koma fram í fyr- irspurn Jóhönnu. Samkvæmt heimildum Bændablaðsins stendur til að ljúka nefndar- störfum nú í lok júnímánaðar. Jóhanna sagði ástæðu fyrir- spurnarinnar vera þrálátan orð- róm um að menn flytji tæki milli svæða án þess að nokkur hafi af því afskipti. Einkum eigi það við um tæki sem gangi kaupum og sölum. Þá sé óvíst hvernig verktakar í landbúnaði hagi sér þegar þeir flytja tæki sín milli svæða en verktaka í landbúnaði hefur farið ört vax- andi undanfarin ár. ,,Séu mikil brögð að því að menn séu að flytja tæki milli sóttvarnarsvæða þá er það ef- laust gert í hugsunarleysi. Það þarf þó ekki mikið að bregða út af til þess að slys hljótist af og þess vegna lagði ég fram þessa fyrirspurn. Það er hins vegar ljóst að smithætta af tækjum er mjög mismikil. Ég get nefnt sem dæmi að það hlýtur að vera meiri smithætta af mykju- dreifara en áburðardreifara. Þess vegna hlýtur að vera mik- ilvægt að flokka tækin eftir smithættu,“ segir Jóhanna. Markaður fyrir fasteignir hefur breyst mikið á Vesturlandi á liðnum misserum, einkum þó og sér í lagi hefur hann orðið líf- legri á Borgarnesi og Borgarfirði en áður var. Ingi Tryggvason lögmaður og fasteignasali í Borgarnesi segir miklar breytingar hafa orðið á fast- eignamarkaði, sérstaklega á síðast- liðnum tveimur árum. Það eigi þó einkum við um Borgarnes og Borgarfjörð raunar líka. ,,Eftir- spurn eftir eignum á þessu svæðið hefur aukist til mikilla muna og þá sérstaklega hvað varðar meðalstór- ar eignir, fólk sækist mikið eftir íbúðum með bílskúr, um 200 fer- metrum að stærð eða innan við það,“ segir Ingi. Eftirspurnin er mikil Hann segir verðið á slíkum eignum í sumum tilvikum hafa hækkað um 100% á liðnum tveim- ur árum. ,,Verð hefur farið hækk- andi undanfarin misseri, enda er eftirspurnin orðin mjög mikil,“ segir hann. Framboð hafi hins veg- ar á tímabili ekki verið ýkja mikið. ,,Það var lítið af eignum á sölu um tíma, en markaðurinn er líflegri núna en var,“ segir hann. Bæði er um að ræða tilfærslu á fólki innan byggðalagsins og eins segir Ingi að mikið sé um að nýtt fólk sé að flytja í sveitarfélagið. Gjarnan fólk sem einhverjar rætur eigi til Vesturlands. ,,Höfuðborgar- búar sækja meira hingað en var og þá höfum við líka merkt að Há- skólinn á Bifröst hefur áhrif, kenn- arar við skólann hafa í nokkrum mæli fest kaup á húsum eða íbúð- um t.d. í Borgarnesi.“ Ingi hefur einnig haft með sölu fasteigna á Hvammstanga að gera, en segir framboð á íbúðarhúsnæði þar ekki mikið og þar sé um helm- ingi lægra fermetra verð á húsnæði en suður í Borgarnesi. ,,Samt er nú mun auðveldara að selja íbúðir t.d. á Hvammstanga en áður, það bara gekk ekki neitt hér í eina tíð, eignir seldust hreinlega ekki en það hefur aðeins breyst.“ Sólin skein skært í Reyðarfirði þegar Hans Kjerúlf hestamaður bar áburð á túnin sem hann hefur til afnota. Hann starfar við tamningar í fullu starfi og er með um 25 hross í tamningu. Mest er þó um hestamennskuna á veturna því sumarið fer líka í heyskap og fleira því tengdu. Hans fer að sjálfsögðu á Landsmót hestamanna í sumar, þar keppir hann á Júpíter frá Egilsstaðabæ í B flokki í tölti. Freyfaxi heitir hestamannafélagið sem hann er félagi í en þaðan fara tveir hestar í hverju flokki til keppni á Landsmóti. Hans segir að það sé alltaf gaman að fara á landsmót, bæði til skemmtunar og til að keppa í hestaíþróttum. Fasteignamarkaður á Vesturlandi Líflegt og verð fer hækkandi Fágætt listaverk afhent Vesturfarasetrinu Halldór Ásgrímsson, fyrrver- andi forsætisráðherra, var fyrir skömmu á ferð í Skagafirði og af- henti þá Vesturfarsetrinu á Hofsósi fallega gripi til varðveislu. Þarna var annars vegar um að ræða mynd frá Winnipegvatni í Kanada af þeim stað sem fyrstu landnem- arnir frá Íslandi tóku land 21. okt- óber árið 1875. Á þessum stað fæddist einmitt fyrsti Íslendingur- inn nokkrum dögum síðar. Hefur því staðurinn mikla þýðingu í hug- um vestur Íslendinga. Hinn grip- urinn er útskorið listaverk í val- hnetutré. Það ber nafnið Lífsgátan og var gert af Tryggva Thorleif Larum og er gjöf hans til íslensku þjóðarinnar. Verkið gerði hann til minningar um móður sína Láru Gunnarsdóttur. Fyrirmynd af verk- inu er lítil silfurnæla sem fannst við uppgröft í Rangárvallasýslu en nælan er talin vera frá tólftu öld. Lífsgátan er fágætt listaverk sem lögð hefur verið gríðarleg vinna í. Forsætisráðherra sagði að ráða- mönnum þjóðarinnar hefði fundist það vel við hæfi að þetta fallega verk væri varðveitt í Vesturfara- setrinu. Nú hefur komið í ljós að þetta varð síðasta heimsókn Hall- dórs sem forsætisráðherra í Skaga- fjörðinn og fór vel á því að hann afhenti þessa fallegu gripi frá frændum okkar fyrir vestan haf við lok stjórnmálaferilsins. /ÖÞ. Halldór Ásgrímsson og Valgeir Þorvaldsson stofnandi Vesturfara- setursins við listaverkið Lífsgátan. /Bændablaðið Örn Þórarinsson.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.