Bændablaðið - 27.06.2006, Side 7
Indriði Þorkelsson á Ytra Fjalli í
Aðaldal orti:
Allir hafa einhvern brest
öllu fylgir galli.
Öllum getur yfirsést
einnig þeim á Fjalli.
Á sunnudögum
Haraldur Hjálmarsson frá Kambi
var í hópi snjallari hagyrðinga
okkar. Honum þótti sopinn góður
og orti.
Á sunnudögum sýp ég vín
samkvæmt manna lögum.
Þess vegna er ég miður mín
á mánu- og þriðjudögum.
Þrír bæjarstjórar
Hjálmar Freysteinsson sendi þetta
frá sér: ,,Nú fréttist að við
Akureyringar fáum að reyna þrjá
bæjarstjóra á kjörtímabilinu“ :
Akureyri er ekki smá
ýmsu þarf að sinna,
bæjarstjóra þurfum þrjá,
þýðir ekkert minna.
Góð forysta
Séra Hjálmar Jónsson veltir fyrir
sér stöðunni í
Framsóknarflokknum:
Á hvert öðru framsóknarfólkið tróð,
að fallinu óðum dregur.
Forystan hún er fremur góð
en flokkurinn ómögulegur.
Spámaðurinn
Kristján Bersi Ólafsson segir: ,,Nú
ætla ég að gerast spámaður um
framvinduna í framsóknarmálinu.“
Dauðastríð eru stundum grimm,
stansar þó klukkan ekki.
Í næstu kosningum Framsókn fimm
fær inn á þingsins bekki.
P.S. Kannski hefði verið
raunsærra að gera ráð fyrir sjö, en
það passaði ekki rímsins vegna. -
Bersinn.
Nauðgar eyra
Pétur Stefánsson lét þetta frá sér á
Leir á fimmtugsafmæli Bubba
Morteins: ,,Bubba var hampað á
öllum útvarpsrásum í dag.“
Áreiti og eilíft plag,
allt vill lífið subba.
Nauðgar eyra í allan dag
org úr þessum Bubba.
Hæstiréttur smalar
Snæbjörn Sigurðsson bóndi á
Grund í Eyjafirði stóð í málaferlum
við nágranna sína um alllangt
skeið um miðja síðustu öld út af
landsréttindum. Málið fór fyrir
hæstarétt og gerðu dómarar
réttarins áreið á landið eins og
þeim bar. Við það tækifæri orti
Rósberg G. Snædal:
Undir bú er gott á Grund,
gróttukvörn þar malar.
Ekki þarf að halda hund,
Hæstiréttur smalar.
Og þegar dómur lá fyrir bætti
Rósberg þessari við:
Lengi þéttings gróða gaf
Grundin fléttuð blómum.
Hver einn blettur helgast af
hæstaréttardómum.
Yfir fjöllin fagurblá
Kristján Eiríksson orti þessa
skemmtilegu vísu:
Yfir fjöllin fagurblá
fannhvít mjöllin breiðist.
Verða sköllin vísast há
vont ef tröllið reiðist.
Mælt af
munni fram
Umsjón:
Sigurdór Sigurdórsson
7Þriðjudagur 27. júní 2006
Á aðalfundi Kaupfélags Borgfirðinga sem
haldinn var í vor gerðust þau tíðindi að kosinn
var nýr formaður. Sá heitir Þorvaldur Tómas
Jónsson og býr í Hjarðarholti í Stafholtstung-
um. Að aðalstarfi er hann rekstrarstjóri Land-
búnaðarháskóla Íslands. Þorvaldur Tómas er
alinn upp í Kaupfélagi Borgfirðinga og var fyrst
kosinn í stjórn þess árið 1998.
,,Ég var í stjórninni í fjögur ár en sneri mér
þá að sveitarstjórnarmálum. Nú er ég hættur í
þeim og kominn aftur í stjórn kaupfélagsins,“
segir Þorvaldur í spjalli við Bændablaðið. Á
þessum viðsjárverðu tímum í sögu samvinnu-
hreyfingarinnar liggur beint við að hefja spjallið
á því að spyrja hvað KB sé.
,,Kaupfélag Borgfirðinga er fyrst og fremst
eignarhaldsfélag og ekki með mikinn rekstur
lengur ef frá er talin búrekstrardeild sem er í
töluverðum vexti. Þar er verslað með áburð,
fóður og önnur aðföng til landbúnaðar. Síðan
eigum við hlutabréf í ýmsum góðum félögum,
svo sem Borgarnes kjötvörum ehf., Samkaup-
um og Borgarlandi sem er fasteignafélag. Fé-
lagið hætti eigin rekstri matvöruverslana fyrir
tveimur árum þegar verslanir KB voru samein-
aðar Samkaupum. Undir merkjum Borgarnes
kjötvara starfrækjum við stórgripasláturhús þar
sem við slátrum nautgripum, svínum og svolitlu
af sauðfé.“
Uppstokkun og endurnýjun
Þorvaldur Tómas segir að félagið sé stönd-
ugt enda eigi það talsverðar eignir í hlutafélög-
um. ,,Félagið gekk í gegnum mikla endurskipu-
lagningu á sínum tíma. Það var í fjölbreyttum
rekstri eins og önnur kaupfélög en hann var
stokkaður upp og rekstrareiningar seldar eða
þeim komið fyrir í hlutafélögum að undanskil-
inni búrekstrardeildinni. . Eftir að þeirri upp-
stokkun lauk býr félagið yfir miklum möguleik-
um og gegnir eftir sem áður mikilvægu hlut-
verki í borgfirsku samfélagi.
KB hefur staðið fyrir mikilli uppbyggingu á
síðustu árum eins og verslunarmiðstöðin
Hyrnutorg er gleggsta dæmið um en hún er í
eigu Borgarlands sem KB á í félagi við Spari-
sjóð Mýrasýslu. Annað dæmi er uppbygging
kjötvinnslunnar og það þriðja er húsnæði bygg-
ingavörudeildarinnar. Rekstur deildarinnar var
síðan seldur Húsasmiðjunni en KB á húsnæðið
áfram. Loks höfum við byggt yfir búrekstrar-
deildina og þar eru höfuðstöðvar félagsins.
Þetta eru miklar framkvæmdir og fela í sér að
það er búið að endurnýja alla aðstöðu fyrir
starfsemi sem er á vegum kaupfélagsins eða það
tekur þátt í.“
Þorvaldur bætir því við að á sviði kjötvinnsl-
unnar sé verið að huga að því að því að styrkja
rekstur sláturhússins. ,,Þar höfum við orðið að
kaupa um 300 tonn af lambakjöti til þess að
fullnægja þörfum kjötvinnslunnar enda eru
vörumerkin, Borgarnes og Íslenskt - franskt
mjög sterk á markaðnum. Við ætlum að reyna
að tryggja aðföng til vinnslunnar eins og hægt
er.“
Samvinnuformið á sinn sess
Eins og fram hefur komið er mestallur rekst-
ur á vegum KB í formi hlutafélaga þótt móður-
félagið sé samvinnufélag. Þetta hefur verið að
gerast um allt land og vekur upp þá spurningu
hvort samvinnufélagsformið sé orðið úrelt þing
og ónothæft.
,,Samvinnuformið hefur ákveðnar takmark-
anir þegar kemur að samkeppnisrekstri og okk-
ur hefur ekki tekist að nýta það þar. Við því höf-
um við brugðist með því að nota þau félagsform
sem best henta rekstrinum, ekki síst einkahluta-
félagið sem er mjög þægilegt rekstrarform.
En samvinnufélagsformið lifir góðu lífi víða
um heim, sérstaklega í kringum afurðasölu. Það
getur gagnast vel þar sem smærri framleiðendur
eru að taka sig saman um að koma einhverri af-
urð eða vöru á markað, til dæmis handverki.
Samvinnuformið getur líka gegnt hlutverki þar
sem menn vilja standa saman að ákveðnum fé-
lagslegum verkefnum eða markaðssetningu.
Jafnvel til þess að tryggja framboð á einhverri
þjónustu sem markaðurinn getur ekki sinnt. En
það verður ekki notað í samkeppnisgreinum á
borð við verslun hér á landi.“
Reksturinn snýst um arðsemi
- Samvinnuhreyfingin hefur löngum gegnt
töluverðu félagslegu hlutverki í sveitum lands-
ins. Er það hlutverk að renna út í sandinn?
,,Ja, þegar rekstur sem kemur fólki mest við,
svo sem afurðasalan, hverfur út úr samvinnufé-
lögunum þá er ekki margt eftir sem hvetur til
þátttöku í þeim. Það er eðlileg þróun enda hafa
samvinnufélögin lengst af snúist um hagsmuni
fyrst og fremst Innan kaupfélaganna hefur verið
umræða um hvernig hægt er að efla tengslin við
félagsmenn og finna sameiginlega hagsmuni
sem menn geta sameinast um í félögunum. Þar
hefur verið staðnæmst við viðskiptakort og aðr-
ar leiðir til að veita afslætti í verslunum á veg-
um félaganna.
Þorvaldur segir að KB hafi ekki komið mik-
ið við sögu í þeirri miklu uppbyggingu á sviði
skólamála sem átt hafi sér stað í Borgarfirði. Þó
á Borgarland og rekur fasteign á Hvanneyri og
hefur skoðað svipaða möguleika á Bifröst þar
sem KB rak verslun á sínum tíma. Hann segir
að það komi vel til greina að taka þátt í þeirri
uppbyggingu en það verði að vera á grundvelli
gagnkvæmra hagsmuna.
,,Þegar allt kemur til alls snýst þessi rekstur
um arðsemi eins og raunar allur annar rekstur,
það er hún sem heldur lífinu í félaginu. Við
erum alltaf að skoða einhverja möguleika enda
þurfum við ná því sem hægt er út úr eignum fé-
lagsins til þess að það geti aukið slagkraft sinn í
atvinnulífinu,“ segir Þorvaldur Tómas Jónsson
stjórnarformaður Kaupfélags Borgfirðinga.
Nýtum eignirnar til að
auka slagkraft félagsins í
borgfirsku atvinnulífi
Rætt við Þorvald Tómas Jónsson nýkjörinn formann stjórnar Kaupfélags Borgfirðinga
Kaupfélag Borgfirðinga
Á aðalfundi Kaupfélags Borgfirðinga svf.
kom fram að rekstur félagsins gekk vel á ár-
inu 2005, hagnaður af rekstri varð 40,3 millj-
ónir króna og eigið fé í árslok var 379 millj-
ónir. KB er samvinnufélag sem á hlutabréf í
öðrum félögum sem hér segir:
KB fjárfestingarfélag ehf. 100%
Borgarland ehf. 44%
Vesturland hf. 41%
Samkaup hf. 15%
Fóðurblandan hf. 9%
KB fjárfestingafélag á svo tæplega 50%
hlutafjár í Borgarnes kjötvörum ehf. en aðrir
hluthafar eru fyrirtæki og einstaklingar í
Borgarfirði.
Kaupfélagsstjóri er Guðsteinn Einarsson.
Horft til Borgrness.