Bændablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 22

Bændablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 22
22 Þriðjudagur 27. júní 2006 Því miður erum við að vísafrá fjölda fólks á hverjusumri, ég kannaði það í nokkra daga í fyrra og þá kom í ljós að það voru um 60 manns sem við vorum að vísa frá dag- lega. Það er því greinilegt að gistingu vantar hér á Héraði og ég segi að það vanti ódýra gist- ingu. Þó maður bjóði fólki her- bergi með baði, þá vill það ekki þiggja svoleiðis nokkuð, fólkið vill svefnpokapláss með eldunar- aðstöðu. Allt tal um að herbergi með baði sé það eina sem gangi í dag er bara bull„. Þetta segir Þórunn Sigurðardóttir ferða- þjónustubóndi á Skipalæk í Fell- um, á bökkum Lagarfljóts. Í ríflega 20 ár, frá árinu 1985, hafa þau Þórunn Sigurðardóttir og maður hennar Grétar Brynjólfsson á Skipalaæk í Fellum á Héraði rek- ið ferðaþjónustu heima á Skipa- læk. Þau byrjuðu að leigja út efri hæð íbúðarhússins, svo bættust við sumarhús og tjaldstæði, síðan gistiskáli og nú síðast gistihús með 6 herbergjum með baði. Nú eru tímamót því líklega verður þetta síðasta sumarið sem þau Þórunn og Grétar stýra ferðaþjónustunni á Skipalæk. Gréta Sigurjónsdóttir tengdadóttir þeirra er byrjuð að starfa með þeim og stefnt er að því að næsta ár taki hún og Sigurður Grétarsson maður hennar við rekstrinum. „Það var nú Anton Antonsson sem hvatti okkur til að gera þetta„, segir Þórunn. Hann var með Ferðamiðstöð Austurlands og vissi að þörf var fyrir gistingu, sérstak- lega svefnpokapláss með mögu- leika fyrir ferðamenn að elda sinn mat sjálfir.„ Hún segir að strax hafi verið góð aðsókn og fljótlega var boðið upp á meira en efri hæð íbúðar- hússins. „Þannig var að Orri Hrafnkelsson hjá Trésmiðju Fljóts- dalshéraðs var að vandræðast með sumarhús, sem hafði verið til sýnis á iðnsýningunni á Egilsstöðum 1985. Hann falaðist eftir lóð undir húsið hjá Grétari, og fékk hana, en Grétar sagði honum jafnframt að hann myndi kaupa af honum húsið frekar en fara að taka það upp aft- ur. Það varð strax mikil aðsókn að þessu húsi og við bættum fljótlega tveimur alveg eins húsum við. Það er óhætt að segja að þessi hús hafi verið fullbókuð öll sumur í þessi 20 ár en það er pláss í hverju þeirra fyrir 6 manns„, segir Þórunn. Síð- an komu 2 hús í viðbót, nokkru minni en hin með rúmum fyrir þrjá. „T.d. hjón með 1 barn vildu gjarnan dvelja, en töldu sig ekkert hafa með svona stórt hús að gera, þannig að við fengum Björn Krist- leifsson arkitekt til að teikna minni hús í sama stíl og þau hafa verið jafn eftirsótt.“Hún viðurkennir að fólki hafi mörgu þótt dýrt að leigja húsin og verið að bera leiguna saman við leigu á húsum stéttarfé- laganna sem voru niðurgreidd en það hafi fljótt rjátlast af. „Annars voru stéttarfélög að leigja húsin hjá okkur fyrir félagsmenn í fyrstu í allt að 10 vikur á ári, það er hin- vegar ekki lengur og nú er algeng- ast að fólk sé að dvelja í tvær til þrjár nætur en ekki í heila viku eins og var áður„. Uppbókað fram í september Þau Þórunn og Grétar hafa alla tíð verið með aðild að Ferðaþjón- ustu bænda og flestar þeirra bók- anir koma þaðan. Nú er svo komið að strax í maí eru öll gistipláss uppbókuð fram í september en þau hjón geta tekið 56 manns í gist- ingu. „Þær eru óþægilegar þessar blokkpantanir hjá ferðaskrifstofum sem eru að biðja okkur að taka frá fyrir sig og svo verður ekki neitt úr neinu á sama tíma og maður er að vísa frá fólki sem ætlar sér vissu- lega að koma. Ferðaskrifstofurnar áskilja sér eins mánaðar fyrirvara en þegar maður svo leitar frétta af hvernig staðan sé, þá eru oft loðin svör hjá þeim eins og þetta sé enn svolítið óljóst, það sé ekki víst hvort það verði af ferðinni og þar fram eftir götunum. Svo kannski kemur enginn eða bara brot af hópnum„, segir Þórunn og greini- legt að henni finnst ekki nægilegur skilningur hjá ferðaskrifstofunum fyrir því að þær eru að halda eftir- sóttu plássi. „Ég skil samt að sumu leyti afstöðu þeirra því auðvitað geta þær ekki auglýst ferðir nema plássið sé öruggt. Svo finn ég fyrir því núna að það vantar meira af ódýrari gistingu hérna. Nú er engin gisting lengur á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal, þar var boðið upp á svefnpokapláss og við vorum með Fellaskóla en hættum með hann fyrir 2 árum. Okkur fannst þetta orðið of umsvifamikið og það fékkst enginn til að taka við. Við eigum rúm og dýnur og allt til alls, svo hægt væri að byrja þar en þetta var of mikil vinna fyrir okkur að vera með Fellaskóla líka. Það var ekkert starfrækt þar í fyrra og ekki heldur í sumar. Þarna voru 45 svefnpokapláss og þegar maður er að vísa 60 manns frá á hverjum degi þá munar um það„, segir hún. Þau Þórunn og Grétar höfðu ekki fengist við ferðaþjónustu fram að því að þau byrjuðu með gistinguna á Skipalæk. Sauðfjárbú- skapur hafði verið þeirra aðalat- vinna frá því þau byggðu upp á Skipalæk árið 1950. Skipalækur er út úr jörðinni Ekkjufelli, þaðan sem Grétar er og nafnið sótt í læk sem rennur út í Lagarfljótið skammt frá. Grétar segir það kom- ið af ferjunum yfir Lagarfljótið áður en brúin kom. „Í raun heitir þetta Skipholt, þar sem íbúðarhús- ið stendur og lækurinn rennur í fljótið hérna utan við„, segir Grét- ar, sem nú er kominn inn frá garð- yrkjustörfum utan dyra. „Þeir eru margir ferðamennirnir sem spyrja um þetta nafn. Þeim finnst það skrítið inn í miðju landi.“Helgi Hjörvar kom hér þegar hann var í örnenfnanefnd og sagðist hrifinn af þessu örnefni, segir Þórunn og Grétar tekur undir. Það vekur fólk til umhugsunar um lífsbaráttu fólksins sem bjó við óbrúuð vatns- föll. Þórunn segir viðbrigðin fyrir þau þó ekki hafa verið mikil að fara að taka á móti gestum með bú- skapnum sem enn var til staðar fram á síðasta áratug síðustu aldar. „Við Grétar erum bæði alin upp við mikinn gestagang á heimilum okkar, hann á Ekkjufelli í Fellum og ég á Sólbakka á Borgarfirði eystra. Munurinn var kannski helst sá að á okkar æskuheimilum var aldrei tekin króna fyrir gistingu og fæði„, segir Þórunn og viðurkennir að á stundum hafi henni fundist henni hún vera að rukka of mikið fyrir greiðann. „Ég er jafnvel enn- þá svolítið veik fyrir því ef fólki finnst verðið of hátt, maður er við- kvæmur fyrir því, en þetta venst„. Þórunn segir þau aldrei hafa þurft að auglýsa neitt. Fyrst hafi gestir komið á vegum Antons hjá Ferðamiðstöð Austurlands og síð- an frá Ferðaþjónustu bænda. „Við höfum bara aldrei þurft að auglýsa neitt. Það vantar ekki að það er alltaf verið að þrábiðja um auglýs- ingar en við höfum bara aldrei þurft á því að halda. Við erum nátt- úrlega vel staðsett, alveg við þétt- býlið og stutt frá flugvellinum.„ Á yfir 20 ára ferli hlýtur ýmis- legt skemmtilegt að koma upp. Þórunn segir að mörg dæmi séu Fólk vill ódýra gistingu líka og það er bull að herbergi með baði sé það eina sem gildi í dag - segir Þórunn Sigurðardóttir ferðaþjónustu- bóndi á Skipalæk í Fellum síðustu 20 ár Gréta Sigurjónsdottir tengda- dóttir þeirra Þórunnar og Grétars segir að framtíðin á Skipalæk legg- ist vel í sig. „Ég er svo sem vön bindingu, nánast allan sólarhring- inn,“ segir hún, og vísar þar til veit- ingareksturs sem hún hefur verið í síðustu ár. Í eina tíð var hún í hljómsveitinni Dúkkulísunum, sem gerði garðinn frægan um allt land. Gréta ætlar að byggja meira upp. Hún segir alveg flöt á því að bæta við gistingu enda sé verið að vísa ótrúlega mörgum frá. Gréta segir að núna þegar krónan sé sterk þá vanti ódýra gistingu. „Hér er nýjasta hús- ið með baði en ég held að að það sé ekki endilega mesta eftirsóknin í það. Við þurfum að bæta við. Ég sé fullt af möguleikum, við erum hérna rétt hjá þéttbýl- inu en samt úti í sveit.“ Hún hefur verið við kennslu í tónlistarskólanum og ætlar að sinna því áfram með ferðaþjonustunni a.m.k. næsta ár. Þrjár ungingsstúlk- ur eru við vinnu á Skipalæk og Gréta segir líka eftirspurn eftir störfum erlendis frá. Til dæmis komi stúlkur frá Þýskalandi og Nor- egi í sumar. Gréta segist vilja skoða hvort hún geti boðið upp á mat, allavega kvöldverð yfir sumarið. Allt þetta sé þó spurning um fjár- magn. Nýtingin sé góð yfir sumarið en vetrarnýtinguna vanti. „Ég ætla að skoða alla möguleika og hvað hægt er að gera. Ég ætla að byrja á því að sjá hvernig þetta virkar en mér finnst miklir möguleikar hér og gef mér bara tíma í að skoða þá.“ Gréta segir Skipalæk vera orðinn vel þekktan og þau Þórunn og Grét- ar góð heim að sækja. Þau gera allt fyrir gestina, meira að segja spila þau bridds við þá fram eftir kvöldum, enda veit ég að hingað er að koma fólk ár eftir ár,“ segir Gréta Sigurjónsdóttir, arftakinn á Skipalæk í Fellum. Ég sé fullt af möguleikum hérna -segir Gréta Sigurjónsdóttir sem er að taka við ferðaþjónustunni á Skipalæk Þórunn Sigurðardóttir og Grétar Brynjólfsson ferðaþjónustubændur á Skipalæk í Fellum. Gréta Sigurjónsdóttir sem nú er að taka við rekstrinum á Skipalæk með manni sínum Sigurði Grétars- syni. Gistihúsin á Skipalæk og íbúðarhúsið fjær, tjaldstæðið til hægri.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.