Bændablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 23
23Þriðjudagur 27. júní 2006
Korngörðum 5 Sími: 540 1100
www.lifland.is
- Blásið 3ja laga plast sem reynst
hefur vel á Íslandi!
Megastretch Rúlluplast
frá Hollandi
Hafðu samband
við sölumann og
fáðu tilboð í síma:
540 1100
750 mm 7.650.- án vsk. Grænt
750 mm 7.650.- án vsk. Hvítt
500 mm 6.350.- án vsk. Hvítt
brosleg og sum verulega skondin.
Hún viðurkennir að hún leggi ekki
allt á minnið. Eitt atvik sé þó veru-
lega minnisstætt en það séu ungu
hjónin sem voru í brúðkaupsferð-
inni. „Þetta var ungt og yndislegt
fólk sem gisti hérna og ég tók eftir
því þegar þau voru farin að unga
konan hafði gleymt náttkjólnum
sínum. Ég vissi að þau áttu bókaða
næstu nótti á Brunnhóli við Horna-
fjörð, svo ég hringdi þangað og
segist bara senda náttkjólinn með
rútunni, sem ég gerði. Svo gerðist
það suður á Brunnhóli að unga
fólkið meldaði sig bara inn þar og
fór síðan. Svo skildi enginn neitt í
neinu þar að fólkið skilaði sér ekki
þangað aftur en þá birtist það hér
hjá mér aftur. Búið að keyra 270
kílómetra leið til baka til að sækja
náttkjólinn og ég búin að senda
hann með rútunni til þeirra. Þá
hafði það gerst að ég talaði við Jón
á Brunnhóli og hann var svo ekki
inni við þegar unga fólkið kom og
gat því ekki látið það vita af því að
náttkjóllinn væri á leiðinni með
rútunni. “Ég man þegar ég hringdi
í Jón og sagði honum frá því að
náttkjólinn væri á leiðinni, þá segir
hann: „Þau eru nú í brúðkaupsferð.
Ég hefði nú viljað hafa hana Sigur-
laugu mína náttkjólslausa í svo-
leiðis ferð„, „svona er nú misjafnt
mat fólks á notagildi hlutanna
“segir Þórunn og hlær mikið. -
„Þau hittu aldrei Jón, Sigurlaug
bókaði þau inn og hún saknaði
þeirra svo um kvöldið.„
Ekki hlaupið í gistingu
hérna á Héraði
Þórunn segir ótrúleg dæmi
koma upp. Fólk með ung börn
komi og hafi hvergi gistingu, það
hafi ekki hugsað fyrir því, sé ekki
með neitt, ekki tjald, ekkert. Hún
tekur undir að þetta sé skiljanlegt
með unga stráka á leið á útihátíð
en ekki fjölskyldufólk á ferðalagi,
það þurfi að huga að gistingu áður
en lagt er af stað. Hérna á Hérað-
inu er ekki hlaupið í gistingu án
fyrirvara en meðan á „styrjöldinni
stóð“og á þá við Kárahnjúkavirkj-
un, „þá komu hingað heilu rúturn-
ar af fólki, sem vildi gistingu, mik-
ið baráttufólk, þetta voru Íslend-
ingar sem vildu gista, enda ekki
auðfært þarna inneftir þá, segir
Þórunn„.
Á Skipalæk er boðið upp á allar
gerðir gistingar, allt frá svefnpok-
plássi upp í uppábúin herbergi
með baði. Þórunn segir að strax
hafi verið ljóst að Skipalækur
hefði upp á margt að bjóða. „Mað-
ur fann það strax að við vorum á
góðum stað, sem fólk kunni að
meta„. Þau voru með sauðfé ásamt
ferðaþjónustunni fram undir 1990
en þá var allt fé skorið niður vegna
riðu á svæðinu. Þórunn er þó alltaf
með hesta. „Ég á 15 hesta og það
sem þeir eru notaðir er vegna ferð-
mennskunnar. Ég fer með ferða-
mönnunum í eins til tveggja tíma
ferðir um nágrennið. Fólki fnnst
þetta land einstakt. Það sér hér inn
á Snæfell út á Héraðssand og út
um allt, en ég get ekki farið með
fólk óhindrað um allt því búið er
að skipta landinu og það skapar
viss vandamál fyrir umferð um
það.
Þórunn segist lengi hafi gert sér
grein fyri því að enginn vandi sé
að kollsteypa svona ferðaþjónustu-
fyrirtæki . Þetta sé nánast sólar-
hringsvakt. „Ég fékk smjörþefinn
af þessu þegar ég var 15 ára göm-
ul, þá fór ég frá Borgarfirði að
vinna hjá Fanneyju á Egilsstöðum
og það var skóli sem ég hefði ekki
viljað missa af. Hún Fanney fór
fyrst á fætur og síðust að sofa. Hún
var ótrúleg„, segir Þórunn og bætir
við að ef ætti að kaupa þá vinnu
sem felst í þannig vakt þá myndi
það aldrei borga sig. En Þórunn
segir það ljúft af sinni hálfu að
þessi rekstur haldist í fjölskyld-
unni. „Við byrjuðum hér með tvær
hendur tómar 1950 og það er ljúft
að afkomendurnir skuli taka við.
B300 (G39400)
Power Box
Spennir fyrir 12V sýrugeymi
Hleðsluorka 2,6 joule
Hentar með 21W Sólspegli
3 – 4 km Fjölvíragirðing
Ef þú vilt alvöru rafgirðingastöðvar
og rafgirðingaefni ...þá velur þú Gallagher
M-1800 (G-314)
Spennugjafi f. 220 v.
Hleðsluorka 18 joule.
Hentar fyrir allt að 65 km.
fjölvíragirðingu
B700 (G 39500) Power Plus
Spennir fyrir 12V sýrugeymi
Hleðsluorka 7 joule
Hentar með 31W Sólspegli
5 – 10 km fjölvíragirðing
MBX 1500 Smartpower (
G 30030)
Spennir fyrir 220V
Fjarstýring fylgir
Hleðsluorka frá 7 í 15 joule
15 – 20 km Fjölvíragirðingu
Er með innbyggðu aðvörunarkerfi
Útsölustaðir: • Húsasmiðjan • Fóðurblandan • Verslunin Eyri Sauðárkróki
ER KOMINN TÍMI Á NÝTT HLIÐ?
Leitið
upplýsinga
www.bondi . is