Bændablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 29

Bændablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 29
29Þriðjudagur 27. júní 2006 „Ég spyr af hverju á að láta gsm- samband á Fróðárheiði en ekki Bröttubrekku,“ segir Einar Örn Thorlacius sveitarstjóri í Reyk- hólahreppi en íbúar þar eru mjög ósáttir við lítið gsm-samband í sveitarfélaginu og á vegum til og frá því. Hann bendir á að íbúar í Reykhólahreppi eigi ekkert val um aðra leið en Bröttubrekku en það eigi hinsvegar þeir sem fari um Fróðárheiði því þeir geti líka farið Vatnaleiðina. Einar segir íbúa í Reykhólahreppi hafa gert sér vonir um að fá ein- hverjar úrbætur í þessum málum þegar ljóst var að hluti af andvirði Símasölunnar rynni til endurbóta á gsm-sambandi. „Það virðist hins- vegar búið að marka þá pólitísku stefnu að láta Vestfjarðaveg mæta afgangi. Það geri ég athugasemdir við og vil fá skýringar á,“ segir Ein- ar. Hann segir þetta raunar gilda um alla Dalina og Reykhólahreppinn. „Ég er óhress með þetta fyrir hönd vegfarenda um Vestfjarðaveg að við eigum ekkert að vera með í þessum endurbótum, eigum bara bíða. Það er ágætis gsm-samband á Reykhól- um en það þarf ekki að fara langt til að vera kominn í þögnina.“ Einar segir önnur fjarskipti í sveitarfélaginu þokkaleg. Flestir bæir séu með ISDN-tengingu og á Reyk- hólum sjái Skerpla um þráðlausa ADSL-nettengingu. Um daginn hitt- ist samt svo ótrúlega á að hér á Reyk- hólum vorum við án allra fjarskipta, því bilun varð á tengingunni hjá Skerplu og á sama tíma bilaði sendir Rásar 1. „Þetta var nú bara ótrúleg tilviljun en hefur ekkert með slæm fjarskipti að gera að öðru leyti. Við erum hinsvegar að fara fram á það nú við Símann að fá ADSL-tölvuteng- ingu í sveitarfélagið og undirskrift- um er safnað um það. Þeir hafa nú lækkað viðmið sín vegna aukinnar samkeppni, voru lengi að miða við 150 íbúa en ég held að þeir séu komnir niður í 50. Hér á Reykhólum eru 110 íbúar þannig að við erum vel yfir þessum mörkum,“ segir Einar Örn Thorlacius, sveitarstjóri Reyk- hólahrepps. Hbj. Íbúar Reykhólahrepps ósáttir við lélegt gsm-samband Vilja vera með í úthlutun Símasölupeninganna Su›urlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000 • www.falkinn.is BÍLAVÖRUR • Legur • Höggdeyfar • Kúplingar • Reimar • Hjöruli›ir • Hemlahlutir E in n t v e ir o g þ r ír 3 1. 29 4 11. júlí Síðasta blað fyrir sumarleyfi. Auglýsendur eru beðnir um að hafa samband við augýsingastjóra með góðum fyrirvara. Síminn er 563 0300. Norska olíufélagið Statoil rek- ur hreinsunarstöð fyrir olíu úr Norðursjó í Kalundborg á vest- anverðu Sjálandi í Danmörku. Á Sjálandi, eins og víðar í landinu, hafði lengi verið mikil sykurrófnarækt og sykurverk- smiðja starfandi í Kalundborg. Sykurrófnarækt hefur nú verið hætt á Sjálandi og verksmiðjan aflögð eftir að ESB ákvað að draga verulega úr styrkjum til þessarar framleiðslu. Í stað þess hafa bændur á þessum slóðum aukið kornrækt sína, einkum á hveiti og í fram- haldi af því hafa samtök bænda á svæðinu leitað til Statoil um samstarf um byggingu og rekstur á ethanólverksmiðju í Kalund- borg sem notaði hveiti frá bænd- um í nágrenninu og annan líf- massa til framleiðslunnar. Statoil féllst á þessar hugmyndir og nú er unnið að því að reisa verk- smiðju sem geti í upphafi fram- leitt 125 þúsund lítra af lífethan- óli á ári. Upplýsingafulltrúi Statoil í Kalundborg, Sören Bjelka, segir að fyrirtækið sé hvetjandi þessarar framkvæmdar, en ýmsir endar séu enn óhnýttir, m.a. hafa dönsk stjórnvöld enn ekki tekið afstöðu til verkefnis- ins. (Maskinbladet 2. júní 2006). Sykurrófur til ethanólframleiðslu

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.