Bændablaðið - 27.06.2006, Page 31
31Þriðjudagur 27. júní 2006
Upplýsingar um EQVALAN.VET.: Pasta til inntöku.QP 52 A D 01. 1g inniheldur: Ivermectinum
INN 18,7 mg. Eiginleikar: Ívermectín, sem er avermektín, er fjölvirkt sníklalyf, m.a. virkt gegn
þráðormum og lirfum þeirra í meltingarvegi húsdýra. Hámarksblóðþéttni í hrossum næst u.þ.b. einum
sólarhring eftir gjöf lyfsins. Lyfið verkar á þann hátt að hemja boðsendingu í taugavöðvatengi með því
að örva losun GABA frá presynaptískum taugaendum og auka bindingu GABA við postsynaptíska
móttendur þannig að sníklarnir lamast og drepast. Lyfið útskilst að mestu í óbreyttu formi með saur.
Ábendingar: Þráðormur í meltingarvegi hrossa og þráðormalirfur á ýmsum þroskastigum. Frábendingar:
Ekki þekktar. Aukaverkanir: Kláði og bólgur geta komið fram skömmu eftir lyfjagjöf. Skammtastærðir:
0,2 mg Ivermectín/kg, þ.e. 1,07 g af pasta/100 kg gefið um munn. Gæta skal þess að hesturinn sé ekki
með fóðurleifar uppi í sér og lyfið skal lagt aftarlega á tungu. Hver pakkning lyfsins skal merkt:„Eigi
má nýta sláturafurðir fyrr en 30 sólarhringum eftir lyfjagjöf“. Pakkningar: 6,42 g x 1.
FYRIR
HROSS
EQVALAN, sem er selt án lyfseðils,
inniheldur ivermectin, einstakt
efnasamband unnið úr lífverum
í jarðvegi.
Sannað þykir að ivermectin hefur
meiri virkni og heldur því hrossinu
þínu mun lengur ormalausu en
önnur sambærileg lyf.
Milljónir skammta af EQVALAN sem
gefnir hafa verið hrossum um allan
heim sanna áhrifamátt og mikið
öryggi lyfsins.
Lesið íslenskar leiðbeiningar, sem
fylgja hverri pakkningu lyfsins, vand-
lega fyrir notkun. Þar er fjallað um
skömmtun, aðvaranir og mikilvægar
varúðarreglur.
ORMALYF
Hörgatúni 2, 210 Garðabæ, sími 535 7000
Fáanlegt án lyfseðils í apóteki
eða hjá dýralækni.
Fyrirkomulag og framkvæmd á efnagrein-
ingaþjónustu fyrir bændur verður með svip-
uðu sniði og á síðastliðnu ári. Vinnuferillinn
verður því óbreyttur. Sýnin skulu öll send að
Hvanneyri þar sem þau verða skráð og hluti
mælingavinnu fer fram. Undanskilin eru
sýni af Norðausturlandi en þau skal senda að
Búgarði á Akureyri eins og verið hefur. Nið-
urstöður verða sendar út frá Keldnaholti og
einnig frá Búgarði fyrir þau sýni sem til-
heyra starfssvæði ráðunautaþjónustunnar í
Búgarði.
Ábyrgðarmenn eru :
Björn Þorsteinsson,
LBHI Hvanneyri sími 4335000 fax 4335001
Guðmundur Helgi Gunnarsson,
Búgarði sími 4604477 fax 4604478
Tryggvi Eiríksson,
LBHI Keldnaholti sími 4335000 fax 4335201
Til upprifjunar og fyrir þá sem ekki hafa sent
inn sýni í greiningu áður er rétt að minna á aðal-
atriðin hvað viðvíkur sýnatöku og skráningu.
Vanda skal til sýnatöku
Mikilvægt er að sýnin séu vel tekin og gefi
sem besta mynd af því fóðri sem sýnin eru tekin
úr. Í þeim tilvikum sem bændur taka sýnin sjálf-
ir er best að hafa samband við héraðsráðunauta
sem veita ráðleggingar um hvernig best er að
standa að sýnatökunni og útvega sýnatökubora
þar sem það á við.
Undanfarin ár hafa bændur í æ ríkari mæli
farið að taka hirðingarsýni, enda verið hvattir til
þess. Séu tekin hirðingarsýni við verkun í plasti
í rúllur eða stórbagga þá losna menn við að gera
göt á plastið og þá er einnig vitað nákvæmar um
uppruna (spildu) sem sýnið er af. Auk þess sem
þessu fylgir sá kostur að niðurstöður liggja fyrir
áður en innifóðrun hefst að hausti. Hægt er að
taka hirðingarsýni með því að ganga þvert á
múgana áður en rúllað er og taka smá viskar úr
þeim, eða taka sýnið úr rúllunum áður en plast-
að er og nota heybor ef þess er kostur. Þegar
hirðingarsýni eru tekin úr múgum (eða rúllum)
er betra að fara aðeins undir yfirborðið því það
er oft eitthvað þurrara en inn í múgunum. Á
svipaðan hátt er hægt að taka sýni við hirðingu í
vothey eða þurrhey. Nægjanlegt er að sýnin séu
um 0,3 kg en fer þó nokkuð eftir aðstæðum, sér-
staklega hvert rakastigið er og svo hversu jafn
efniviðurinn er sem sýnið er tekið úr. Séu tekin
stór sýni sem menn vilja smækka þá er hægt að
gera það með því að blanda sýnið mjög vel upp
í pappakassa og taka úr því smærra sýni. Þetta
krefst vandvirkni því sýnið verður að vera jafnt
úr öllu upprunalega sýninu. Gæta skal þess að
sýnin þorni ekki í meðförum og setja þau í
frysti sem fyrst í vel lokuðum, sterkum plast-
pokum og umfram allt vel merkt.
Merking sýnanna sé nákvæm
Mjög mikilvægt er að sýnin séu vel merkt,
það gerir skráningu öruggari og sparar fyrirhöfn
og vandræði. Gætið þess að nota skriffæri sem
þola bleytu!
Eftirfarandi upplýsingar skulu fylgja:
Tökudagur sýnanna
Sendandi: Nafn bónda, heimilisfang og
kennitala. Einnig lögbýlisnúmer.
Gerð sýna: Hirðingarsýni eða sýni úr verk-
uðu fóðri.
Verkunaraðferð: Þurrhey, vothey, rúllur,
stórbaggar, grænfóður eða annað.
Auðkenni: Af hvaða túni, úr hvaða hlöðu,
eða það sem menn vilja auðkenna sýnið með.
Dagsetningar: Sláttudagur og hirðingardag-
ur.
Sláttur: Fyrri sláttur eða seinni sláttur.
Tegund: Skrá grastegundir aðeins ef menn
eru vissir á greiningunni, þarf ekki að vera mjög
nákvæmt. Grænfóðurtegund skal ávallt skrá
(hafrar, rýgresi, kál eða annað).
Sýni send inn í mælingu fyrir 10. október
Þegar fyrri slætti er lokið eða í heyskaparlok
eru hirðingarsýnin send í efnagreiningu með til-
heyrandi upplýsingum. Sjá leiðbeiningamið-
stöðvar um að koma sýnunum áfram í mælingu.
Sýni úr verkuðu fóðri eru tekin við fyrsta hent-
ugleika eftir að heyskap er lokið og mælt með
að sýnin séu tekin með heybor. Mælst er til að
öll heysýni verði öll komin inn fyrir 10. október
til LBHI, en þá er formlega síðasti móttökudag-
ur á haustönninni.
Verð og afgreiðslufrestur
Þær mælingar sem gerðar eru við hefð-
bundna efnagreiningu á heyi eru; þurrefni,
meltanleiki (og útreiknað orkugildi), prótein
(útreiknað AAT og PBV) og steinefnin Ca, P, K,
Mg, og Na. Einnig er sýrustig mælt í gerjuðu
fóðri. Boðið er upp á mælingar á tréni nánar til-
tekið NDF, einnig fleiri mælingar sem kann að
verða óskað eftir. Verður að biðja um það sér-
staklega og skrifa þá beiðni inn á skráningar-
seðla sem fylgja sýnunum.
Afgreiðslufrestur niðurstaðna frá móttöku
sýnis er að hámarki 30 dagar fyrir hefðbundna
greiningu með steinefnum. Ef þess er óskað er
hægt að senda út aukalega niðurstöður án stein-
efna 15 dögum eftir móttöku og síðan send
lokaskýrsla þegar steinefnamælingar liggja fyr-
ir. Reiknað er með að fyrsta útsending niður-
staðna verði fyrir miðjan ágúst.
Verð fyrir heildarmælingar (með stein-
efnum) er 3.950.- kr hvert sýni án vsk
Verð án steinefna
2700.-. kr hvert sýni án vsk
Viðbótarmæling - tréni (NDF)
2000.- kr hvert sýni án vsk
Ef óskað er eftir öðru en hefðbundinni grein-
ingu með steinefnum verður að tilgreina það
sérstaklega. Ofangreint gildir einungis um hey-
sýni og önnur gróffóðursýni. Sé óskað eftir öðr-
um efnagreiningum fer það eftur sömu leiðum
og hefðbundnu heyefnagreiningarnar.
Móttaka af Norðausturlandi er í Búgarði, Ós-
eyri 2, 603 Akureyri sími 460 4477
Móttaka úr öðrum landshlutum Rannsókna-
stofa LBHI, Hvanneyri, 311 Borgarnes
Sími 433 5000 (beint Hvanneyri 4335038
beint Keldnaholt 4335215)
Netföng: Hvanneyri rannsokn@lbhi.is,
Keldnaholt syni@lbhi.is, Búgarður ghg@
bondi.is
Auk framangreindra aðila veita leiðbein-
ingamiðstöðvarnar nánari upplýsingar og að-
stoð. Tryggvi Eiríksson
Fyrirkomulag heyefna-
greininga hjá LBHÍ
Bændablaðið
Smáauglýsingar.
5630300