Bændablaðið - 27.06.2006, Page 35
35Þriðjudagur 27. júní 2006
!"#$%&'(!)')*
+', Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400
VASKUR
• Kubota vatnskæld
• 26 hestafla vél
• Öflugt vökvakerfi
• Lyftigeta, beinn: 955 kg
• Lyftihæð: 2,7 m
• Snúningsradíus: 55 sm
• Heildarþyngd: 1665 kg
• Breidd: 89 - 109 sm
• Dekk 7.00 - 12 AS
Jötunn Vélar
- Sterkur félagi -
jotunn.is
P
re
nt
sm
ið
ja
S
uð
ur
la
nd
s
Bændasamtökin fengu á dögunum góða gesti frá
Skotlandi, heiðurshjónin Campbell og Sheena
Slimon, en sagnfróðir lesendur gætu kannast við
eftirnafnið. Campbell er afkomandi Slimons þess
sem rak verslun undir nafni sínu og var afar virk-
ur í sauðasölunni á síðari hluta nítjándu aldar. Um
þann kaupskap má segja að hann skipti sköpum
fyrir íslenskt samfélag, ekki síst bændastéttina, því
þetta varð til þess að margir bændur sáu peninga í
fyrsta sinn á ævinni og augu þeirra opnuðust fyrir
því að það var hægt að versla við útlönd framhjá
danskinum. Að því má svo leiða rökum að þetta
hafi ýtt undir stofnun bæði sparisjóða og kaupfé-
laga.
Gott orð fór af þessum bresku sauðakaupmönnum
sem reyndar föluðust einnig eftir hrossum til notkunar
í kolanámum Bretaveldis. Árið 1885 veitti Alþingi
Slimon og helsta umboðsmanni hans, John Coghill,
viðurkenningu fyrir verslunarstörf þeirra hér á landi.
Þeirri viðurkenningu fylgdi heiðursskjal sem Camp-
bell fann í fórum foreldra sinna. Dóttir þeirra fann svo
bók eftir enskan jarðfræðing sem hafði fengið far með
skipum Slimons-verslunarinnar til Íslands í því skyni
að kynna sér jarðfræði og náttúru landsins. Þar lýsir
hann einnig sauðasölunni.
Meira vissu þau Slimonhjónin ekki þegar þau
komu til Íslands en þau þyrsti í að vita meira. Þau
komu ekki að tómum kofanum þar sem voru þeir Jón-
as Jónsson fyrrum búnaðarmálastjóri og Ólafur Dýr-
mundsson starfsmaður Bændasamtakanna. Blaðamað-
ur Bændablaðsins hitti þau líka að máli og fékk að
heyra að þau byggju á föðurleifð Campbells sem er
bóndabær ekki langt fyrir sunnan Inverness í Skot-
landi. Þar búa þau með 1.100 fjár og 80 nautgripi af
tegundunum Aberdeen Angus og Limosín. Þau fram-
leiða mjólkurkálfa og ala þá upp að 7-8 mánaða aldri.
Lambakjötið selja þau til Spánar og Ítalíu.
Afkomandi skoskra
sauðakaupmanna í heimsókn
Meðal þess sem skosku hjónin Campbell og Sheena
Slimon fundu í reytum forfeðra hans var þessi fáni
sem er með fálkamerkinu en það var þjóðartákn Ís-
lendinga á síðari hluta nítjándu aldar. Fáninn var hand-
saumaður af íslenskum konum og færður skosku
kaupmönnunum að gjöf þegar þeir voru heiðraðir árið
1885. Þau höfðu einnig í fórum sínum heiðursskjalið
sjálft undirritað af helstu embættismönnum og
bændahöfðingjum þess tíma.
www.bondi.is