Bændablaðið - 27.06.2006, Page 37
37Þriðjudagur 27. júní 2006
Disel rafstöð, 30kw
3x400v 50hz
Verð kr. 385.000 + vsk
Kvistás s/f Selfossi
Sími 482 2362 og 893 9503
Stein/malbikssög,
500 mm blað,
sögunardýpt 17cm,
70 lítra vatnstankur
9hö disel,
Verð kr. 155.000+vsk
ISO 9001, CE
Disel rafstöð, 4,5kw
230v 50hz,
hljóðeinangruð,
rafstart
Verð kr. 115.000 + vsk
Til sölu
Ekki fyrsta tillagan
Í greinargerð kemur fram að
þetta er ekki í fyrsta skipti sem
sambærileg þingsályktunartillaga
er flutt. Í fyrri tillögu er gert ráð
fyrir að Alþingi veiti árlega af fjár-
lögum fé í sérstakan ferðasjóð
íþróttafélaga til að standa straum
af kostnaði við keppnisferðir. Jafn-
framt gerir tillagan ráð fyrir að út-
hlutun fjármuna úr sjóðnum fari
eftir reglum sem menntamálaráð-
herra setur. Við umfjöllun nefndar-
innar um framangreinda tillögu
var ákveðið að flytja nýja þings-
ályktunartillögu byggða á henni en
þó með umtalsverðum breyting-
um.
Hár kostnaður fyrir
lið af landsbyggðinni
Menntamálanefnd telur að
æskilegt sé að skipuð verði nefnd
og tekið sé fram að í nefndinni eigi
sæti fulltrúar fjármálaráðherra og
menntamálaráðherra, ásamt full-
trúum sveitarfélaga, íþróttaforust-
unnar og íþróttafélaga úr öllum
landshlutum, þar á meðal íþrótta-
félaga á landsbyggðinni. Fyrir
liggur að sá kostnaður sem til fell-
ur við það að senda keppnislið á
viðurkennd mót hefur verið þung-
bærastur fyrir íþróttafélög á lands-
byggðinni og telur menntamála-
nefnd því rétt að fulltrúar þeirra
eigi fulltrúa í nefndinni. Í öðru lagi
leggur menntamálanefnd til að
nefnd þeirri sem lagt er til að skip-
uð verði, verði falið að gera úttekt
á umfangi þess kostnaðar sem
íþróttafélög hafa fram til þessa
þurft að mæta við að senda keppn-
islið sín á viðurkennd mót. Telur
menntamálanefnd nauðsynlegt að
slík úttekt fari fram áður en hafist
er handa við tillögugerð um hvort
stofna skuli slíkan sjóð og með
hvaða hætti hann skuli fjármagn-
aður.
Gera á úttekt á málinu
Því leggur menntamálanefnd til
að eftir að slík úttekt hefur farið
fram setji nefndin fram tillögur, á
grundvelli áðurnefndrar úttektar,
um það hvort og þá hvernig koma
skuli slíkum sjóði á, en jafnframt
leggi nefndin fram tillögur um
hvernig fjármögnun hans skuli
háttað og eftir hvaða reglum skuli
úthlutað úr honum. Í þessu sam-
bandi telur menntamálanefnd rétt
að taka fram að hún telur ekki aug-
ljóst að fjármögnun hans verði
endilega tryggð með greiðslum úr
ríkissjóði heldur kunni að vera
ástæða til þess að aðrir komi að
fjármögnun hans, svo sem sveitar-
félög, íþróttahreyfingin og eftir at-
vikum enn aðrir aðilar. Að lokum
leggur menntamálanefnd til að
nefndin skilgreini nánar hvaða
íþróttagreinar gætu sótt um fram-
lag úr sjóðnum, m.a. með tilliti til
einstakra landsvæða, aldurshópa
og kynja, verði hann á annað borð
stofnaður.
Fá íþróttafélög aðstoð
við að fjármagna
keppnisferðir?
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd sem í sitji full-
trúar fjármálaráðherra, menntamálaráðherra, sveitarfélaga,
íþróttaforustunnar og íþróttafélaga úr öllum landshlutum, til að gera
úttekt á kostnaði við ferðalög íþróttafélaga á viðurkennd mót. Jafn-
framt setji nefndin fram tillögur um hvort og þá hvernig skuli koma
á sérstökum sjóði til að taka þátt í þeim kostnaði, hvernig fjármögn-
un hans skuli háttað og eftir hvaða reglum skuli úthlutað úr honum.
Enn fremur geri nefndin tillögu um hvaða íþróttagreinar gætu fengið
framlög úr sjóðnum, meðal annars með tilliti til einstakra landsvæða,
aldurshópa og kynja,“ segir í tillögu til þingsályktunar um ferðasjóð
íþróttafélaga sem lögð hefur verið fram á alþingi.
14-15.000 eintök! Bændablaðið kemur út
hálfsmánaðarlega. Þarft þú að auglýsa?