Bændablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 45
45Þriðjudagur 27. júní 2006
Bændasamtök Íslands, Land-
búnaðarháskóli Íslands og land-
búnaðarráðuneytið efndu til
málþings um notkun erfðatækni
í íslenskum landbúnaði 21. júní
sl. þar sem flutt voru fimm er-
indi og endað á pallborðsumr-
æðum. Frummælendur voru
þrír íslenskir vísindamenn, Ólaf-
ur S. Andrésson prófessor í
erfðafræði við Háskóla Íslands,
Einar Mäntylä frá ORF Líf-
tækni og Snorri Baldursson að-
stoðarforstjóri Náttúrufræði-
stofnunar Íslands, og tveir út-
lendir: bandaríski prófessorinn
Charles Arntzen frá Arizona
State University og Bretinn
Chris Pollock forstjóri Gras-
ræktar- og umhverfisstofnunar
Bretlands en þeir eru báðir í ráð-
gjafarráðum ríkisstjórna sinna,
Arntzen gefur ráð um vísindi og
tækni en Pollock um það hvaða
erfðabreyttum lífverum er óhætt
að sleppa út í umhverfið.
Fyrri hluti málþingsins fór í að
lýsa þeim fjölbreyttu möguleikum
sem erfðabreyttar jurtir geta skap-
að bændum og öðrum þeim sem
starfa í landbúnaði en síðari hlut-
inn snerist meira um þær hættur
sem hugsanlega steðja að lífríkinu
af völdum erfðabreyttra jurta og
hvernig rétt sé að standa að reglu-
smíð um sleppingu þeirra út í um-
hverfið.
Í lokin urðu líflegar umræður
þar sem málshefjendur lýstu meðal
annars framtíðarsýn sinni hvað
snertir hagnýtingu erfðatækni.
Enginn þeirra efaðist um að erfða-
tækni og erfðabreyttar lífverur
ættu eftir að leika stórt hlutverk á
ýmsum sviðum, ekki síst í því að
fullnægja næringarþörf jarðarbúa
og á sviði heilbrigðismála og lyfja-
gerðar. Enginn þeirra gerði mikið
úr þeirri hættu sem lífríkinu gæti
verið búin og var í því sambandi
bent á að yfir tveggja áratuga
reynsla væri nú komin á hagnýt-
ingu erfðatækni og engin teljandi
vandamál skotið upp kollinum.
Þeir lögðu hins vegar áherslu á
nauðsyn þess að vel væri fylgst
með nýjungum og hvergi slegið
slöku við rannsóknir á áhrifum
erfðabreyttra lífvera á umhverfi
sitt.
! " #
$! " #
%%%& '
!"
#$
' '
Pallborðið í Súlnasalnum, talið frá vinstri: Einar Mäntylä, Ólafur S. Andrésson, Charles Arntzen, Chris Pollock, Snorri Baldursson og pallborðsstjórinn
Ágústa Guðmundsdóttir prófessor í matvælaefnafræði við Háskóla Íslands.
Skeggrætt um erfðatækni í íslenskum landbúnaði
Síðasta blað fyrir sumarleyfi
kemur út 11. júlí.Nýtt hrossaveggspjald
Bændasamtök Íslands hafa
gefið út nýtt hrossaveggspjald
en áður voru komin veggspjöld
fyrir íslensku mjólkurkúna og
sauðféð sem hafa reynst mjög
vinsæl innanlands sem utan.
Auk þess að sýna alla helstu
hrossalitina kemur fram meiri
fjölbreytni en í hinum vegg-
spjöldunum, þ.e. bæði í kynjum
og aldri (hestar, hryssur, stóð-
hestar, tryppi, folöld), umhverfi
og árstíðum (sumar, vetur, vor
og haust). Spjöldin eru 61 x 87
cm að stærð eins og hin tvö,
prentuð í skýrum litum og
plasthúðuð í Odda. Greinargóð-
ir textar eru á fjórum tungu-
málum, íslensku, ensku, sænsku
og þýsku. Veggspjaldið er til
sölu á skrifstofu Bændasamtak-
anna í Bændahöllinni, Reykja-
vík, sími 563 0300.