Bændablaðið - 29.04.2008, Qupperneq 7
7 Bændablaðið | Þriðjudagur 29. apríl 2008
Pálmi Jónsson á Sauðárkróki var
svo vinsamlegur að senda mér
nokkrar vísur eftir sjálfan sig
og kann ég honum bestu þakk-
ir fyrir. Hann er afar hógvær í
fyrstu vísunni:
Ljóð mín eru lítil að vöxtum
liggja svona til og frá,
stuðlabjargar stefnuröstum
steytast á.
Kastar burtu 39 eyrnamörkum
Pálmi segir að í nýlegri orðabók,
sem Mörður Árnason beri mesta
ábyrgð á, séu eyrnamörk sögð
vera aðeins 63; hann kasti burtu
39 mörkum, sem skráð séu í eldri
bókum. Pálmi segir eyrnamörk
vera fornminjar, sem okkur beri
að varðveita, og yrkir:
Vanþekkingu vonda finn
vöðin straumi hulin
og eyrnamörkin enn um sinn
augum margra dulin.
Orðin fæstu
Orðin fæstu fara best
ef fláráð gerist saga
ást og skilning eflum mest
ævi vorrar daga.
Andagift ég ekki skil
Pálmi segir að þegar Pétur
Blöndal byrjaði með vísnaþing
í Morgunblaðinu á sínum tíma
hafi hann fengið séra Hjálmar sér
til hjálpar, enda hefði hann svo
mikla andagift. Hjálmar orti þá:
Andagift ég ekki skil
eða þekki.
Stundum verða stökur til
og stundum ekki.
Öfugmælavísa
Pálmi sendi Pétri öfugmælavís-
ur:
Andagift að vonum vex
voða pent hjá klerki.
Á Alþingi er eilíft pex
yfir litlu verki.
Armæða af illsku hlýst
Pálmi endar bréfið til mín með
þessari frábæru vísu:
Armæða af illsku hlýst,
elskumst meðal vina.
Andartalið eigum víst,
ekki framtíðina.
Ætla að drepa marga
Um 1970 áttu þeir Ólafur Ragnar
Grímsson og Njörður Njarðvík
sæti í útvarpsráði. Þeir létu
mikið fyrir sér fara og breyttu
öllu, ungir og vaskir. Andrési
Björnssyni útvarpsstjóra féll
þetta ekki mjög vel og orti:
Leiðist mér og líkar ei
að lifa á meðal varga.
Aftur geng ég er ég dey
ætla að drepa marga.
Rýrnar ekki
Bjarni Jónsson, úrsmiður á Akur-
eyri, orti til konu sinnar á efri
árum:
Hugarvíl og harmur dvín
er horfi ég á frúna.
Hún er eina eignin mín
sem ekki rýrnar núna.
Að fækka fötum
Snillingurinn Jakob frá Varmalæk
í Borgarfirði fór eitt sinn í bænda-
ferð til Kanada. Á heitum sólar-
degi naut fólk veðursins, fækkaði
fötum og lét sólina baka sig:
Sólin hækkar, fækka föt
fjörgast hugarsetur.
Aldrei vissi ég íslenskt kjöt
auglýst meira og betur.
Umsjón:
Sigurdór Sigurdórsson
ss@bondi.is
Í umræðunni
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Samkeppnismálið allt hið
undarlegasta
Á fundinum fluttu þeir Eiríkur
Blöndal, framkvæmdastjóri Bænda-
samtaka Íslands, og Björn Snæ-
björnsson, formaður verkalýðsfé-
lagsins Einingar-Iðju og fulltrúi
ASÍ í Verðlagsnefnd búvöru, ávörp.
Eiríkur ræddi m.a. nýlega kæru
samkeppniseftirlitsins, sem telur að
hagsmunafélög bænda hafi seilst
of langt í hagsmunagæslu sinni og
frumvarp um upptöku matvælalög-
gjafar EES, sem nú liggur fyrir
þingi. Taldi hann samkeppnismálið
allt hið undarlegasta, en svo gæti þó
farið að BÍ og önnur samtök bænda
yrðu að breyta umfjöllun sinni um
verðlagsmál. Þá taldi hann að frum-
varp um matvælalöggjöf væri keyrt
áfram af nokkru offorsi og að hags-
munaaðilar hefðu lítið svigrúm til
umsagnar.
Björn Snæbjörnsson fjallaði um
afstöðu ASÍ til landbúnaðarins og
störf sín í Verðlagsnefnd búvöru.
Taldi hann þá sátt, sem vettvangur
Verðlagsnefndar skapaði um verð-
lag mjólkurafurða, mjög mikilvæga
fyrir landbúnaðinn og að áfram-
haldandi aðkoma launþega væri
trygging fyrir því að sú sátt héld-
ist. Hann sagði þó skiptar skoðanir
innan ASÍ um landbúnaðarmálin
og aðkomu að Verðlagsnefnd. Var
gerður góður rómur að erindum
frummælenda og spunnust í kjöl-
farið fjörugar umræður.
Kappsmál að skila ræktunarhæfu
landi óskemmdu til komandi
kynslóða
Á fundinum var mótmælt þeirri
skerðingu, sem boðuð er á vakta-
greiðslum til dýralækna, á þeim
svæðum sem talið er að markaðs-
legar forsendur séu fyrir hendi til
að sjálfstætt starfandi dýralæknar
haldi uppi þjónustunni. Í greinar-
gerð frá fundinum segir, að nái
hugmyndin fram að ganga sé
verið að mismuna dýrum og eig-
endum þeirra eftir landshlutum.
„Ef einhverjir dýralæknar fást til
að sinna þjónustunni mun þetta
leiða til þess að gjaldskrá þeirra
muni hækka umtalsvert. Það er
ábyrgðarhluti að vinna að óþörfu
að hækkun búvöruverðs.“
Þá fjallaði fundurinn um til-
lögu til Alþingis um verndun
ræktarlands og skoraði á Alþingi
að taka nú þegar til endurskoð-
unar hluta núgildandi Jarðalaga
og Skipulags- og byggingarlög,
með sérstöku tilliti til nýtingar
lands með það að markmiði að
varðveita auðræktað land til land-
búnaðarnota. „Nauðsynlegt er að
skerpa lagaramma um þessi mál,
ef takast á að viðhalda þeirri land-
notkun sem nauðsynleg er í dag til
öflunar fóðurs fyrir búpening og
þar með innlendri matvælafram-
leiðslu. Jafnframt þarf að skapa
möguleika til að nýta betur land
til matvælaframleiðslu, m.a. með
tilliti til hlýnandi veðurfars og
aukinnar eftirspurnar á landbún-
aðarvörum á heimsvísu. Það hlýtur
að vera okkur kappsmál að skila
sem mestu af ræktunarhæfu landi
óskemmdu og aðgengilegu til
komandi kynslóða.“
Þá má nefna tillögur sem beint
var til sveitarstjórna á Eyjafjarð-
arsvæðinu um verndun ræktunar-
lands í héraðinu, en skorað var á
þær að standa vörð um ræktanlegt
land og bent á, að við gerð aðal-
skipulags sveitarfélaga ætti ekki
að taka slíkt land undir íbúa-, frí-
stunda- eða iðnaðarbyggð nema
slík byggð kæmi í beinu framhaldi
af núverandi þéttbýlisstöðum á
svæðinu. ÞÞ
Eiríkur Blöndal, framkvæmdastjóri
Bændasamtakanna, ræddi m.a.
nýlega kæru Samkeppniseftirlits-
ins, sem telur að hagsmunafélög
bænda hafi seilst of langt í hags-
munagæslu sinni, og frumvarp um
upptöku matvælalöggjafar EES,
sem nú liggur fyrir þingi.
Björn Snæbjörnsson, formaður
Einingar-Iðju, taldi þá sátt sem
vett vangur Verðlagsnefndar skap-
aði um verðlag mjólkurafurða
mjög mikilvæga fyrir landbúnað-
inn og að áframhaldandi aðkoma
launþega væri trygging fyrir því
að sú sátt héldist.
Bændur sem hyggjast taka þátt í
Opnum landbúnaði hafa fundað
á síðustu dögum um starfið fram-
undan. Í fyrravor var auglýst
eftir bændum sem hefðu áhuga á
því að opna sín býli fyrir almenn-
ingi og taka þannig þátt í kynn-
ingarstarfi fyrir bændastéttina.
Viðtökur voru ágætar en einnig
hafa Bændasamtökin, sem halda
utan um verkefnið, haft samband
við fjölda bænda og skor-
að á þá að kynna sér
hvað felst í þátt-
töku í Opnum
landbúnaði.
Um þrjátíu
bændabýli
víðs vegar
að af land-
inu hafa
unnið að
því að skil-
greina þá
þ j ó n u s t u
sem gæti
verið í boði en
fyrstu bæirnir
sem sigla undir
merkjum Opins land-
búnaðar hefja móttöku
gesta nú í vor.
Berglind Hilmarsdóttir og Tjörvi
Bjarnason, sem starfa hjá útgáfu- og
kynningarsviði Bændasamtakanna,
segja að undirbúningur hafi gengið
vel og þátttakan sé jafnvel umfram
væntingar. „Við lögðum upp með
það markmið að ná a.m.k. 20 bæjum
í tengslanetið en það er ljóst að fleiri
hafa áhuga á að taka þátt í þessu
metnaðarfulla verkefni sem nýt-
ist öllum bændum landsins. Okkur
vantar raunar tilfinnanlega bæi af
Vestfjörðum og af ákveðnum svæð-
um á Austurlandi og hvetjum þá til
að hafa samband við okkur,” segir
Tjörvi og greinir frá því að Berglind
Hilmarsdóttir verkefn-
isstjóri hafi unnið að
því að ná bænd-
um saman og
u n d i r b ú i ð
l e i ð b e i n -
inga- og
kynning-
arefni um
O p i n n
landbún-
að. „Við
Berg l ind
h ö f u m
fundað með
b æ n d u m
síðustu daga
og hljóðið er
almennt mjög gott í
þeim. Ýmsar spurningar
koma upp um fyrirkomulagið en
við leggjum áherslu á að hver bóndi
er í þessu á sínum forsendum. Það
er ánægjulegt að sjá hvað bændur
bjóða upp á fjölbreytta þjónustu og
við erum ekki í nokkrum vafa að
almenningur muni taka því fagn-
andi að fá að heimsækja bóndabæi
og kynna sér störf bænda af eigin
raun þegar fram líða stundir,“ segir
Tjörvi.
Í vor kemur út kynningarbækl-
ingur sem verður dreift um landið
þar sem bæir í Opnum landbúnaði
verða auglýstir. Eins og fyrr sagði
verður fjölbreytt þjónusta í boði
en allir bæirnir munu taka gjald af
þeim gestum sem koma og kynna
sér starfsemina í sveitinni. Flestir
bæirnir ætla sér að hafa opið eftir
samkomulagi og því þurfa gestir
að gera boð á undan sér í flestum
tilfellum. Nánari upplýsingar um
Opinn landbúnað eru að finna á
vefsíðu Bændasamtakanna, www.
bondi.is.
Bændur jákvæðir gagnvart Opnum landbúnaði
Í Borgarnesi komu bændur saman af Vesturlandi. F.v. Bjarni Guðmundsson
frá Landbúnaðarsafni Íslands, Guðmundur Davíðsson í Miðdal, Bjarni
Bjarnason á Hraðastöðum og Arnheiður Hjörleifsdóttir frá Bjarteyjarsandi.
Berglind Hilmarsdóttir verkefnisstjóri Opins landbúnaðar og Birna
Hauksdóttir í Skáney
Á Suðurlandi var fjölmennur fundur haldinn á Hellu þar sem bændur
kynntu sér starfsemi Opins landbúnaðar. Þeir sem sitja fremst á þessari
mynd f.v. eru Áslaug Sveinbjörnsdóttir frá Espiflöt, Knútur R. Ármann í
Friðheimum en hægra megin á myndinni eru bændurnir í Hrosshaga þau
Sigríður Sigurfinnsdóttir og Gunnar Sverrisson. Ljósm.: TB