Bændablaðið - 29.04.2008, Síða 21
21 Bændablaðið | Þriðjudagur 29. apríl 2008
Sumarið er komið og túlipanarn-
ir farnir að kíkja upp úr jörð-
inni. Börnin eru búin að fara í
skrúðgöngu til að fagna sumrinu
og veðurfræðingar eru farnir að spá
einu hlýjasta sumri í manna minn-
um. Og með sumrinu koma ýmsar
spurningar frá starfsmönnum.
„Hvernig er þetta með sum-
arfrí hjá starfsmönnum? Á ég rétt á
sumarfríi eins og þeir sem eru búnir
að vinna allt árið,“ spurði Kaisa
nýlega. Þessi spurning er ekki óal-
geng enda geta orlofslögin vafist
fyrir ýmsum. Réttur starfsmanna
til orlofs byggir á orlofslögunum
nr. 30/1987 og gilda um launþega.
„Svarið við þessari spurningu er
eilítið flókið,“ svaraði ég Kaisu.
Orlofsár er frá 1. maí til 30. apríl
ár hvert. Á þessu tímabili safna laun-
þegar sér annars vegar rétti til orlofs
og hins vegar rétti á launum í orlofi.
Orlof og orlofslaun
Orlof eru tveir dagar fyrir hvern
unninn mánuð á síðasta orlofsári.
Ef starfsmaður vinnur meira en
hálfan mánuð þá telst það sem heill
unninn mánuður. Veikindi, slys og
orlof skerða ekki rétt til orlofs.
Starfsmaður á að taka orlof frá
2. maí til 15. september, og kveða
lögin á um samráð á milli atvinnu-
rekanda og starfsmanns um skipu-
lag orlofsins. Atvinnurekandi skal
reyna að verða við óskum starfs-
mannsins eins og unnt er, og til-
kynna um fyrirkomulag orlofsins
í síðasta lagi mánuð fyrir byrjun
orlofs. Það er líka hægt að óska
eftir því að orlof sé tekið utan
orlofstímabilsins.
Þar sem orlofsréttindin eru tví-
skipt getur það gerst að starfsmað-
ur eigi rétt á leyfi en ekki greiðslum
frá núverandi atvinnurekanda.
Orlofslaun eru að lágmarki
10,17% af heildarlaunum, en
getur verið hærra eftir kjarasamn-
ingnum. Orlofslaunin eru reiknuð
samhliða öðrum launagreiðslum.
Verkalýðsfélög mæla með að
orlofslaun séu greidd inn á banka-
reikning sem starfsmenn fá greidd
þegar orlofstaka hefst.
Greiða á orlofslaun næsta virka
daga fyrir töku orlofs samkvæmt
orlofslögum. Þegar starfsmaður
hættir störfum á hann að fá upp-
gerð orlofslaunin sín.
Þegar um er að ræða skamm-
tímaráðna starfsmenn þá er yfirleitt
samið um það í upphafi að starfs-
maðurinn taki ekki orlof á meðan á
ráðningartímabilinu stendur. Þegar
ráðningunni lýkur getur hann tekið
sér orlof þar sem hann hefur fengið
greidd út sín orlofslaun.
Orlofsuppbót
Ef starfsmaður er í starfi síðustu
viku apríl, eða fyrstu viku maí, skal
við upphaf orlofstöku eða eigi síðar
en 15. ágúst greiða orlofsuppbót.
Orlofsuppbót samkvæmt kjara-
samningi Samtaka atvinnulífsins
og Starfsgreinasambandsins fyrir
orlofsárið sem hófst 1. maí 2007 er
23.000 kr. Orlofsuppbót fyrir orlofs-
árið sem hefst 1. maí 2008 verður
24.300 kr. Í núgildandi samning-
um á milli Bændasamtakanna og
Starfsgreinasambandsins er orlofs-
uppbót innifalin í launatöxtum.
En hvað ef starfsmaður vinnur
ekki allt árið? Reglan er sú að ef
starfsmaður lætur af störfum vegna
aldurs eða eftir 12 vikna sam-
fellt starf á orlofsárinu á hann við
starfslok að fá greidda orlofsuppbót
vegna áunnins tíma m.v. starfshlut-
fall og starfstíma.
Dæmi: Starfsmaður í ferðaþjón-
ustu hefur verið í vinnu frá 1. maí
2008 til 31. ágúst 2008, eða 18 vik-
ur af orlofsárinu. Hann tekur ekkert
frí á starfstímabilinu.
a) 18/45 0,4 af fullri uppbót
b) 23.000 kr. x 0,4 9.200 kr. í
orlofsuppbót
Greiða þarf skatta og gjöld
af orlofsuppbót líkt og af öðrum
launagreiðslum.
Nánari upplýsingar um útreikn-
ing á orlofsgreiðslum og -uppbót
er hægt að fá hjá Bændasamtök-
unum (www.bondi.is) eða Starfs-
greinasambandinu (www.sgs.is).
Gleðilegt sumar!
Er kominn tími á frí?
Eygló Harðardóttir
Ráðningaþjónustunni Nínukoti
eyglo@ninukot.is – www.ninukot.is
di f í iErlen r star smenn sve t
LANDBÚNAÐARSÝNINGIN
HELLU
22.–24. ÁGÚST 2008
Búnaðarsamband Suðurlands Austurvegi 1 800 Selfoss 480 1809 johannes@bssl.is www.landbunadarsyning.is
Tryggðu þér svæði
– bókaðu núna!
www.landbunadarsyning.is
Samstarfsaðilar:
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti
Bændur, fyrirtækjaeigendur og aðrir
MEINDÝRAEYÐING
Vilja ekki allir eiga flugulaust sumar?
kóngulóm
Allir vita hvað flugur og önnur skordýr geta verið
miklir smitberar.
Athygli skal vakin á því að best er að pantanir berist
sem fyrst, með því móti get ég skipulagt ferðir mínar
vel og haldið ferðakostnaði í lágmarki.
Hjalti Guðmundsson
meindýraeyðir
Huldugili 6-103, 603 Akureyri
Símar: 462-6553, 893-1553, 853-1553
ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is
Hefðbundnir jarðtætarar
Vinnslubreiddir 2,60 m - 2,85 m - 3,10 m
Hafið samband við sölumenn okkar og aflið nánari upplýsinga.
Tæ
ta
ra
r
Starfsmenntanám
· Blómaskreytingar
· Búfræði
· Garðyrkjuframleiðsla
· Skógur og umhverfi
· Skrúðgarðyrkjubraut
www.lbhi.is
Háskóli
lífs og lands
Umsóknarfrestur um skólavist
er til 4. júní