Bændablaðið - 29.04.2008, Side 28
28 Bændablaðið | Þriðjudagur 29. apríl 2008
Nú er sumarið formlega gengið í
garð og ekki líður á löngu þar til
hægt er að snæða úti við í sum-
arsólinni. Tilvalið er þó að taka
forskot á sæluna, matreiða létt
spínatlasagna með góðu vorsalati
og steikja sér banana með van-
illuís að japönskum sið í eftirrétt.
Spínatlasagna
6 lasagneblöð
1 pakki frosið spínat
1-2 laukar
fetaostur
1 peli rjómi eða kaffirjómi
mozarella-ostur
Aðferð:
Saxið laukinn og brúnið hann í
olíu. Setjið frosið spínatið saman
við og látið þiðna. Bætið rjómanum
saman við spínatblönduna á pönn-
unni og látið krauma í nokkrar mín-
útur. Þekið botn á eldföstu fati með
smá spínatblöndu, síðan örlítið af
fetaosti þar yfir og síðan lasagne-
blöð. Endurtakið koll af kolli þar til
allt hráefnið er komið í fatið. Stráið
mozarella-osti yfir og bakið í ofni
við 180°C í um 40 mínútur. Berið
fram með vorsalati (sjá uppskrift)
og hvítlauksbrauði.
Vorsalat
1 poki veislusalat
1 græn paprika
8 konfekttómatar
½ rauðlaukur
½ krukka fetaostur
20 græn vínber
1 pakki furuhnetur
Aðferð:
Setjið veislusalatið í fallega skál.
Skerið papriku í strimla, konfekt-
tómatana í tvennt og rauðlaukinn
í litla bita og bætið út í skálina.
Blandið vel saman. Bætið fetaosti
út í. Skerið vínberin til helminga
og setjið þau ofan á salatið. Ristið
furuhneturnar á pönnu þar til þær
dökkna eilítið, kælið og skreytið
loks salatið með þeim.
Steiktir bananar
2 msk. hveiti
1 egg
5 msk. brauðrasp
4 bananar
grænmetisolía, til steikingar
flórsykur, til að strá yfir
fersk mintulauf, til skreytingar
vanilluís
Aðferð:
Setjið hveitið í skál, þeytið eggið
með gaffli og setjið í aðra skál og
raspið í þá þriðju. Afhýðið ban-
anana og skerið þá í tvennt. Veltið
bananahelmingunum fyrst upp úr
hveitinu, dýfið síðan í eggið og
veltið að lokum upp úr raspinu.
Hitið olíu (um 5 cm djúpt lag) á
djúpri pönnu eða í potti þar til
hún fer að rjúka. Djúpsteikið ban-
anabitana í 2-3 mínútur eða þar til
þeir eru gulbrúnir að lit. Takið upp
með spaða og leggið á eldhúspapp-
ír til að láta olíuna renna af þeim.
Leggið tvo bananabita á hvern disk,
stráið flórsykri yfir og skreytið með
mintulaufi. Berið fram með van-
illuís. ehg
MATUR
Spínatlasagna og ilmandi steiktir bananar
6
8 3
8 4 6 7
5 3 1
1 4
2 7 5
9 6 3 1
4 7
2
3 9 6
2 3
4 7
7 2
4 1 3 5
8 6
7 1
4 1
9 2 5
6 4
7 1 9 2
4 2 1
3 4 7
9 3
6 9 7
2 5 8
4 7 9 5
8 4
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóðrétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari línum.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Eftirréttur sem kemur á óvart, heitir og mjúkir steiktir bananar með van-
illuís sem bráðna í munni. (Ljósmynd: Kristján Maack).
Menningarsjóður Sparisjóðs Svarfdæla
Átján styrkjum úthlutað
Menningarsjóður Sparisjóðs Svarfdæla úthlut-
aði við hátíðlega athöfn nú nýlega styrkjum til 18
verkefna, en 34 umsóknir bárust til sjóðsins. Hafa
þær aldrei verið fleiri í sögu hans en Menningar-
sjóðurinn var stofnaður árið 1984 í tilefni af aldar-
afmæli Sparisjóðs Svarfdæla.
Samanlagt nemur úthlutunin í ár 4.550.000 kr. og
fengu eftirtaldir aðilar styrki:
100.000 – Myriam Dalstein – til heimasíðugerðar
vegna ferðamannaþjónustu á Skeiði í Svarfaðardal
100.000 – Dana Ýr Antonsdóttir – til að vinna að eigin
tónlist
150.000 – Ljósmyndasamkeppni/Freyr Antonsson
– til að koma á fót ljósmyndasamkeppni v/10 ára
afmælis Dalvíkurbyggðar
150.000 – Skafti Brynjólfsson – til að vinna að rann-
sóknum á jöklum
200.000 – Foreldrafélag leikskólanna Fagrahvamms,
Krílakots og Leikbæjar – til danskennslu fyrir leik-
skólabörnin
200.000 – Elmar Sindri Eiríksson – til útgáfu hljóm-
disks
250.000 – Vignir Þór Hallgrímsson – til að vinna að
listsköpun sinni
250.000 – Kvikmyndafélag Dalvíkurbyggðar – til að
safna og festa viðburði í Dalvíkurbyggð á filmu og
safna heimildum
250.000 – Guðrún Edda Gunnarsdóttir – til að gera
upp 100 ára kvíhús á Atlastöðum
300.000 – Artex ehf. – til merkingar gönguleiða og
uppsetningar skilta
300.000 – Guðmundur Ingi – til gerðar heimasíðu með
efni og myndum úr gömlum Bæjarpóstblöðum
300.000 – Fígúra ehf. – til innréttinga á brúðuhúsi vegna
sýninga og leiðsagna fyrir börn á öllum skólastigum.
300.000 – Karlakór Dalvíkur – til styrktar starfsemi
kórsins
300.000 – Mímiskórinn – til að halda kóramót eldri
borgara á Norðurlandi
300.000 – Kvennakórinn á Dalvík – til að koma starf-
seminni á rekspöl
300.000 – Hrísiðn Hrísey – til að byggja upp aðstöðu
til sýninga og vinnslu á gömlum amboðum og
minjagripum
300.000 – Byggðasafnið Hvoll – til útgáfu á bæklingi
um byggðasöguleg efni um skemmtanir og dægra-
dvöl í Dalvíkurbyggð
500.000 – Urðakirkja í Svarfaðardal – til forvörslu á
predikunarstól kirkjunnar, sem er illa farinn, enda
200 ára gamall.
Hópurinn sem fékk úthlutað úr Menningarsjóði Sparisjóðs Svarfdæla á dögunum. Með á styrkþegum á myndinni
eru Björn Daníelsson, formaður menningarsjóðsins (lengst.v.) og Friðrik Friðriksson, sparisjóðsstjóri (t.h.).
Nýlega fór fram úthlutun menn-
ingarstyrkja á Suðurlandi í blíð-
skaparveðri í Samgöngusafninu
í Skógum. Fjölmenni var í veisl-
unni og tónlistarmenn úr hópi
styrkþega settu skemmtilegan
svip á athöfnina. Fram komu fé-
lagar úr Djassbandi Suðurlands,
Fjöllistahópurinn Tónar og Trix frá
Þorlákshöfn og kór Fjölbrautaskóla
Suðurlands. Jóna Sigurbjartsdóttir,
formaður Menningarráðs Suður-
lands og Þórður Tómasson, safn-
stjóri í Skógum, ávörpuðu gest-
ina. Helga Haraldsdóttir, fulltrúi
Iðnaðarráðuneytisins og Dorothee
Lubecki, menningarfulltrúi Suður-
lands, afhentu styrkina. Alls bárust
113 umsóknir, sótt var um u.þ.b.
93 milljónir króna samtals og
fengu 66 umsækjendur styrki, sam-
tals 20,6 milljónir króna. Hæstu
styrkina fengu listakonan Sigga á
Grund í Flóahreppi, eða 1 millj-
ón króna og Sigurgeir ljósmynd-
ari í Vestmannaeyjum, 2 milljónir
króna. MHH
Sigurgeir ljósmyndari í Vestmanna-
eyjum, sem fékk 2 milljónir í styrk
vegna verkefnisins „Fiskur í 50 ár
– ljósmyndasaga fiskveiða og fisk-
vinnslu“, og Sigga á Grund með
barnabarni sínu, Alexander Ómari
Kristjánssyni, en hún fékk 1 millj-
ón vegna verkefnisins „Útskurður
á aski“.
Hópurinn sem fékk peningastyrki að upphæð 20,6 milljónir króna til
hinna ýmsu verkefna frá Menningarráði Suðurlands við styrkúthlutunina
í Skógum.
20,6 milljónum úthlutað til
menningarmála á Suðurlandi