Bændablaðið - 26.05.2011, Page 1
40
10. tölublað 2011 Fimmtudagur 26. maí Blað nr. 349 Upplag 23.000
26
Bærinn okkar
Hofsstaðir
Þær miklu andstæður náttúrunnar sem íslenskur landbúnaður á við að glíma hefur komi berlega í ljós síðustu
daga og vikur. Fyrir norðan og austan hefur ríkt sannkallað vetrarríki á meðan Sunnlendingar hafa mátt glíma við
Hugmynd um rekstur kanínu-
bús og sölu kjötsins til veitinga-
húsa og neytenda hefur tekið á
sig skýra mynd að undanförnu.
Framtakið hefur hlotið stuðningi
frá Atvinnumálum kvenna en
IMPRA hefur séð um gerð við-
skiptaáætlunarinnar og markaðs-
könnunar.
Á bak við hugmyndina stendur
Birgit Kositzke sem er þýsk að
uppruna en hefur verið búsett í
Húnaþingi vestra síðan 2007. Að
mati Birgitar er kanínukjöt spennandi
valkostur fyrir sælkera og kröfuharða
neytendur þar sem kjötið er hollt og
inniheldur minni fitu og kólesteról
en aðrar kjöttegundir.
Kannanir sem gerðar voru bæði í
Kringlunni og Húnaþing vestra í vor
2011 staðfesta eftirspurn eftir nýjum
kjöttegundum. Þó að flestir aðspurða
hefði aldrei borðað kanínukjöt, voru
75 % tilbúin að smakka það ef það
væri á markaðnum á Íslandi.
„Áætlað er að kanna betur mögu-
leika til fjármögnunar og markaðs-
setningar til þess reka búið á hag-
kvæman hátt. Einnig verður sett upp
netkönnun á heimasíðunni www.
kanína.is sem lýkur í lok júní. Á
heimasíðunni er einnig hægt að finna
frekari upplýsingar um verkefnið. Á
komandi vikum verður unnið í því að
gera heimasíðuna að upplýsingatorgi
um holdakanínurækt á Íslandi.
Við viljum nú þegar þakka öllum
sem sýnt hafa okkur stuðning með
því að taka þátt í könnuninni og
hvetja aðra að taka þátt,“ segir Birgit
Kositzke. /HKr.
Birgit Kositzke segir kanínukjöt spennandi valkost:
Kannar rekstur kanínubús
í Húnaþingi vestra
Bændasamtökin tilbúin að bregðast við:
Teymi ráðunauta verður sent á
gossvæðið ef ástæða þykir til
Vitað er að níu kindur og tvö
lömb drápust í á gossvæðinu.
Sjö kindur drápust af slysförum
en þær hröktust í skurð. Ekki er
vitað hvað varð hinum tveimur og
lömbunum að aldurtila en ekki er
ólíklegt að mótstaða þeirra hafi
verið minni en gengur og gerist
segir Gunnar Þorkelsson héraðs-
dýralæknir á Klaustri.
Þá drapst nýlega kastað folald
sem hraktist út í skurð og ein hryssa
varð fyrir meiðslum en Gunnar telur
allar líkur á að hún jafni sig að fullu.
Ekki er útilokað að frekara tjón
hafi orðið
á búpen-
ingi en
enn sem
komið er
hafa ekki
borist til-
kynningar um annað en ofangreint.
Gunnar segir að aðalmálið nú sé að
hlúa að búpeningi, skola úr augum
á skepnum þar sem því verður við-
komið, tryggja aðgengi þeirra að
hreinu rennandi vatni, selenbættum
saltsteinum og fóðri þar sem það
þarf. /fr
Vetrarríki fyrir austan en enginn
skaði „Þetta hefur nú allt saman
farið ágætlega og ekki orðið neinn
skaði,“ segir Þórarinn Lárusson
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Austurlands.
Sannkallað vetrarríki hefur verið
eystra undanfarna daga. Heldur fór
að hlýna í gær, miðvikudag og segir
Þórarinn það auka mönnum bjarsýni,
kraft og þor.
Hretið hefur staðið yfir í rúma
vika og töluvert snjóaði fyrir aust-
an, „en það er ekki neitt sem hinn
almenni bóndi hér á svæðinu ræður
ekki við,“ segir Þórarinn og bætir
við að þetta sé ekki fyrsta vorhretið
sem yfir landsfjórðunginn gangi.
„Bændur eru viðbúnir öllu og í ljósi
reynslunnar hafa margir þeirra komið
sér upp eins konar viðbótarhúsnæði
sem grípa má til þegar veðráttan er
með þessu hætti. Þannig hafa til að
mynda sumir komið upp eins konar
tjöldum til að hýsa skepnur,“ segir
Þórarinn.
Fé hefur að mestu leyti verið á
húsi liðna daga og ekki orðið meint
af, en að sögn Þórarins er snjór mis-
mikill eftir svæðum, sumstaðar veru-
lega mikill en annars staðar hefur
hann ekki fest að ráði.
„Bændur hér á svæðinu eru ýmsu
vanir og þeir hafa mikla reynslu,
þannig að enginn lætur sér bregða
þó veður sé slæmt að vorlagi.
Vissulega kostar þetta mikla
vinnu og eflaust margir sem hafa
unnið úr hófi þennan tíma og eins
hefur þetta í för með sér aukinn
kostnað við fóðurgjöf. Ljósi punkt-
urinn er sá að bændur eru vel byrgir
og hafa sumir hverjir yfir að ráða
heimafengnu fóðri, sem hefur komið
sér vel,“ segir Þórarinn.
/MÞÞ
Vetrarríki fyrir austan en enginn skaði
Óverulegt tjón á búfé
Frost og funi á Íslandi
Bændasamtök Íslands hafa fylgst
grannt með aðgerðum í tengslum
við eldgosið í Grímsvötnum. Nú
bendir margt til þess að gosinu
sjálfu sé að mestu lokið en enn
getur þó liðið nokkur tími þar til
að afleiðingar gossins verða ljósar.
Verulegt magn ösku er gossvæðinu
þrátt fyrir að talsvert af öskunni
hafi fokið á haf út í sterkri norða-
nátt.
Bændasamtökin hafa verið í sam-
bandi við stjórnendur aðgerða á svæð-
inu frá því að gosið hófst, bæði við
almannvarnir, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðuneytið og einnig hafa
starfsmenn verið í nánu sambandi við
Búnaðarsamband Suðurlands. Eftir
gosið í Eyjafjallajökli á síðasta ári
fóru ráðunautar alls staðar af landinu
í ferð á gossvæðið, heimsóttu bændur
og ráðlögðu þeim um framhaldið. Að
sögn Borgars Páls Bragasonar ráðu-
nautar, sem hefur leitt starf samtak-
anna vegna gossins nú, hefur verið
haft samband við framkvæmdastjóra
búnaðarsambanda um allt land og
þeir eru reiðubúnir að senda sína
ráðunauta í sambærilegt verkefni ef
talin verður þörf á því. Sú þörf verður
metin þegar frá líður.
Eiríkur Blöndal framkvæmda-
stjóri Bændasamtakanna segir ljóst
að mikið álag hafi verið á bændum
á svæðinu og aðdáunarvert hvernig
fólk hafi tekið af æðruleysi á málum.
„Við munum áfram fylgjast grannt
með þróun mála og veita þá aðstöð
sem við getum veitt. Ég legg áherslu
á að allir aðilar nýti sér reynsluna
frá því í fyrra og hagi aðgerðum í
samræmi við hana en bæti jafnframt
úr þar sem vankantar voru á þá. Við
vonum auðvitað að mestu hamför-
unum sé lokið og jafnframt að tjón
verði minna en á horfðist í fyrstu.
Það er engu að síður ljóst að talsverð
vinna er framundan hjá bændum á
svæðinu áður en líf fellur í daglegar
skorður á ný.“
/fr
Áhrif eldgossins í Grímsvötnum:
32