Bændablaðið - 26.05.2011, Side 4
4 Bændablaðið | fimmtudagur 26. maí 2011
Fréttir
Gosið í Grímsvötnum hefur haft
margvísleg áhrif á landbúnað og
atvinnulíf í Skaftafellssýslum.
Áhrifasvæði gossins er í raun
víðfeðmt og efnahagsleg áhrif
þess ná langt út fyrir sýslumörk.
Það svæði sem þó hefur fyrst og
fremst orðið fyrir umtalsverðu
öskufalli nær frá Mýrdalssandi
og austur í Öræfi. Eins og sann-
aðist í Eyjafjallajökulsgosinu getur
öskudreifing verið afar misjöfn og
staðbundin. Það sama á við um
Grímsvatnagosið þar sem askan
leggst misjafnlega yfir sveitirnar.
Landbúnaðurinn er
undirstöðuatvinnuvegur
Á meðfylgjandi korti eru merktir
inn þeir bæir sem eru skráðir með
búfénað í Skaftárhreppi en einnig
eru þarna nokkrir bæir í Öræfum þar
sem ösku lagði yfir. Alls eru bæirnir
á kortinu 82 talsins en við bætast svo
býli þar sem t.d. er stunduð skóg-
rækt, fiskeldi, ferðaþjónusta o.fl.
Á svæðinu er einnig nokkur fjöldi
sumar- og veiðihúsa í eigu bænda
og einkaaðila. Kröftugar vindáttir
á meðan gosinu stóð gerðu það að
verkum að öskudreifing var mikil
og umtalsvert magn gosefna fauk
til sjávar sem verður að teljast afar
heppilegt. Rigningarspár næstu daga
auka bændum bjartsýni á að askan
gangi sem mest niður í grassvörðinn
á næstunni. Með rigningunni batna
loftgæðin sem auðveldar lífið til
muna fyrir menn og málleysingja.
Fjöldi íbúa og búfjár
Íbúar í Skaftárhreppi eru um 450 tals-
ins og þeirra bíður nú hreinsunarstarf.
Um 20 þúsund fjár eru í hreppnum en
í Öræfum og Suðursveit eru um 10
þúsund kindur. Skaftafellssýslurnar
báðar eru mikilvæg sauðfjárræktar-
svæði en frá Mýrdal og austur í
Hornafjörð eru um 44 þúsund fjár
sem er um 10% af íslenska fjárstofn-
inum. Kúabúskapur er nokkur en kýr
og aðrir nautgripir eru um 1.800 á
svæðinu sem sýnt er á kortinu hér
að ofan. Aðeins eru um 600 hross
í Skaftárhreppi en rúmlega 1.000
í Hornafirðinum. Ferðaþjónustan
er mikilvægur hlekkur í atvinnulífi
Skaftárhrepps og þar hefur umtalsverð
uppbygging átt sér stað undanfarin ár.
Alls eru um 20 ferðaþjónustuaðilar
á svæðinu sem bjóða upp á gistinu
og ýmsa þjónustu. Þar er einnig fisk-
eldi sem hefur orðið fyrir skakka-
föllum vegna öskunnar. Bændur
með svín og alifuglarækt eru fáir í
Skaftafellssýslum og þeir eru ekki á
þeim svæðum þar sem askan hefur
gert mönnum og dýrum skráveifu.
Um 3.000 hektarar ræktaðs lands
Flatarmál ræktaðs lands á því svæði
þar sem mesta askan hefur farið yfir
liggur ekki nákvæmlega fyrir en ætla
má að ræktað land sé í kringum 2.800-
3.300 hektarar (í Skaftárhreppi og
hluta Öræfa). Þá er tekið mið af þeim
hektarafjölda sem þarf til fóðuröflunar
fyrir bústofninn á svæðinu.
3.000 manns búa á svæðinu frá
Mýrdal og austur í Hornafjörð
Í meðfylgjandi töflum er sundur-
greindur fjöldi búfjár á svæðinu
(tafla 1) og samtölur fyrir Mýrdal,
Skaftárhrepp og Hornafjörð er að
finna í töflu 2. Þegar svæðið frá
Mýrdal og austur í Hornafjörð er
skoðað kemur í ljós að ríflega 3.000
manns búa á landsvæðinu (tafla 3).
Þar eru ásamt mannfólkinu 4.500
kýr og aðrir nautgripir, um 2.000
hross og eins og áður segir 44 þús-
und fjár. Allt þetta svæði varð fyrir
áhrifum af Grímsvatnagosinu þó
með ólíkum hætti væri.
/TB
Skaftfellingar glíma við náttúruöflin
Skaftártunga Álftaver Meðalland Landbrot Síða
Fljótshverfi og
Brunasandur
Öræfi Suðursveit Samtals
Kýr 175 80 83 87 65 77 30 155 752
- aðrir nautgripir 558 142 157 154 74 124 58 313 1.580
Sauðfé 5.821 2.026 2.799 2.402 5.768 1.063 3.533 6.355 29.767
Hross 70 192 129 31 158 15 102 373 1.070
Heimild: Matvælastofnun - gagnagrunnurinn Bústofn
Fjöldi búfjár í Mýrdalshreppi, Skaftárhreppi og í Hornafirði
Sveitarfélag Nautgripir Sauðfé Hross Alifuglar
Mýrdalshreppur 1.264 5.218 306 37
Skaftárhreppur 1.797 19.854 597 55
Hornafjörður 1.442 18.966 1.049 8.139
Alls 4.503 44.038 1.952 8.231
Heimild: Matvælastofnun - gagnagrunnurinn Bústofn
Mannfjöldi - 2011 Alls
Dreifbýli í Mýrdal 178
Vík í Mýrdal 291
Skaftárhreppur 446
Öræfi 89
Dreifbýli í Hornafirði 389
Höfn í Hornafirði 1.641
Alls 3.034
Heimild: Hagstofan
Búfé á þeim svæðum sem hafa orðið fyrir öskufalli síðustu daga
» Íbúafjöldi um 500
» 82 bæir með búfénað
» Rúmlega 21 þúsund fjár
» Um 20 ferðaþjónustuaðilar
Mynd | Gunnar Sigurjónsson